Vísir - 14.02.1977, Síða 23
Meira af teiknimyndum
Elma Jónatansdóttir, Hörgatúni
9, GarOabæ, skrifar:
Ég er sennilega ekki sú eina
sem á þriggja ára hnátu sem biö-
ur spennt fyrir framan sjónvarpiB
grafalvarleg á meöan á frétttun-
um stendur og biOur eftir „Bleika
pardusnum” (hennar mál),alveg
sannfærö um aö hann muni nú
koma. Þegar hann svo loksins
birtist leynir ánægjan sér ekki i
svip hennar.
En svo eru það vonbrigöin þeg-
ar hann kemur alls ekki. Nú lang-
ar mig aö spyrja. Væri ekki hægt
að hafa svona teiknimyndir oftar,
eftir fréttir. ÞaB eru bæöi börn og
fullorönir sem hafa gaman af
þessum myndum. Maöur er orö-
inn leiður á að horfa á þessa
klukku sem oft er sýnd á milli
dagskrárliða.
Svo eru þaö myndasyrpurnar
um Stinu og Stjána. Gaman væri
að fá þær á skjáinn svona einu
sinni i viku. Þetta eru léttir og
gamansamir þættir sem gleöja
alla, jafnt unga sem aldna. Ég
vona aö sjónvarpsmenn hafi þetta
i huga,
GOTT OG EKKI GOTT
Guömundur haföi samband viö
blaðiö:
Forráðamenn Háskólabiós
mega gjarnan fá klapp á bakiö
fyrir snarræöi sitt. Þeir eru
farnir aö sýna kvikmynd um
árásina á Entebbe flugvöll.
Mynd þessi var gerö á siöari
hluta ársins 1976 og hún var til
dæmis jólamynd i Kaupmanna-
höfn i ár. Myndin er glæný, en
þegar komin hingaö. Þetta er
vel af sér vikiö,
En fyrst ég er byrjaöur, þá
langar migaö taka þaö fram, aö
þó aö jólamyndirnar 1 kvik-
myndahúsunum hafi veriö
prýöilegar og margar mjög nýj-
ar og góöar, þá fannst manni
um tima aö forráöamenn kvik-
myndahúsanna hafi verib svo
vissir um aö þeim hafi tekist vel
upp, að þaö nægði fyrir áriö
1977. Mér fannst þessar myndir
margar hverjar nefnilega hafö-
ar aðeins of lengi til sýningar i
sumum kvikmyndahúsanna.
Of margir kunnir menn
tala
Pétur Andrésson, Bjarnarstig 7,
hringdi:
Ég sá fyrirspurn hjá ykkur i
Visi um þáttinn Daginn og veginn
Var þar spurt aö þvi hverjir þaö
væru sem fengju aö tala. Þessu
var m.a. svaraö á þá leiö aö þar
töluðu bæöi kunnir menn og svo
menn sem aldrei heföu. komiö
fram áður, en kunnir menn væru
þó i meirihluta.
Það finnst mér einmitt. Mér
finnst of mikið um það aö kunnir
menn komi þarna fram meö sinar
skoðanir og sjónarmiö. Þaö vant-
ar aöhinn venjulegi alþýöumaður
komi fram meö sinar skoöanir.
Oft finnst mér lika þaö sem um er
rætt fremur ómerkilegt og oft alls
ekki timabært.
Mér finnst þessi þáttur vett-
vangur fyrir ýmis þau mál sem
hæst ber. Mætti ekki t.d. tala um
eiturlyfjamál og verkalýösmál
þjóöarinnar og Önnur slfk'f
Þaö er of mikið veriö aö spjalla
um mál sem mættu liggja á milli
hluta. Við viljum heyra eitthvaö
nýtt, en ekki gamalt. Annars
koma þarna aö sjálfsögöu lika
fram menn sem tala mjög
skemmtilega og sem virkilega
gaman er að hlusta á.
En svo ég komi meö fleiri uppá-
stungur. Má ekki fjalla um staö-
greiöslukerfi skatta, og t.d. þaö
að þegar kaup alþingismanna
hækkar, þá veröur ekki spreng-
ing, en þegar kaup verkamanns-
ins á að hækka, þá ætlar allt vit-
laust aö verða.
,EKKI ALLAR GRÝLUR RAUÐAR'
Framsóknarmaður á Akranesi
hringdi:
Mig langar aö koma á fram-
færi smáorösendingu til
Markúsar Arnar Antonssonar
vegna greinar sem hann skrif-
aöi ummjósnir sovétmanna á Is-
landi. Mig langar aö benda hon-
um á að ekki eru allir grýlur
rauðar, og þaö eru fleiri
njósnarar en rússar.
Inni á hálendi hitti ég t.d.
sumariö ’68 þýska stúdenta sem
voru aö kortleggja og voru meö
fullkomnar græjur til þess.
Gætu þaö ekki allt eins veriö
njósnir?
Ef athuga á njósnir og njósn-
ara hér á landi, þá held ég aö
þaö mætti athuga fleiri en rússa
I þvi sambandi t.d. þjóðverja.
Frábœr og
fáguð sýning
G.S. hafði samband viö lesenda- aönjótandi. Þaö er hins vegar
slöuna: dálitiö undarleg tilhögun hjá
húsinu varöandi auglýsingar að
Við hjónin fórum i leikhús s.l. auglýsa ekki sýningar i
þriöjudagskvöld og sáum Meist- Morgunblaöinu á mánudögum
arann eftir Odd Björnsson. Er og þriðjudögum, og var þaö fyr-
hann sýndur á Litla sviöinu i ir tilviljun að viö fréttum af
leikhúskjallaranum. Aðra eins sýningunni á þriöjudagskvöldiö.
fágun og innlifun i leik höfum Svo eitt aö lokum: Aö sýningu
við ekki séö árum saman og för- lokinni var barinn ekki opinn og
um þó töluvert i leikhús. Ég gafst fólki ekki tækifæri aö
vildi bara vekja athygli á þess- koma saman og rabba um verk-
ari sýningu, ef sýningum skyldi iö sem gefur vissulega tilefni til
fara-fækka, þannig aö sem flest- umræðna. Með fyrirfram þökk
ir gætu orðiö þessarar ánægju fyrir birtinguna.
Hver fór með
aðalhlutverkið?
G. hringdi:
I sjónvarpinu fyrir nokkru var
endurtekinn einn af þáttunum
Ugla sat á kvisti. Var þar meöal
annars sýnd gömul kvikmynd eft-
ir Loft Guðmundsson. Tveir menn
fóru þar meö aukahlutverk, þeir
Haraldur A. Sigurösson og Alfreö
Andrésson og voru nöfn þeirra
tekin fram. Hins vegar var ein-
hverra hluta vegna ekki tekiö
fram hver fór meö aöalhlutverk i
myndinni. Ég vil endilega bæta úr
þvi og koma á framfæri hver þaö
var, en þaö er Guðjón Einarsson.
Þessar myndir birtust meö fréttinni í Vísi um nýju leiktækin á
gæsluvellinum viö Fifusel.
FAGNA NÝJUM
LEIKTÆKJUM
Móöir haföi samband:
Ég sá lesendabréf hjá ýkkur i
Visi um daginn um aö ýmislegt
mætti betur fara á leikvöllum i
borginni. Þar er ég alveg sam-
mála, og þvi gladdist ég þegar
ég sá frétt um þaö i blaðinu aö
nýr gæsluvöllur væri i undir-
búningi meö nýju sniöi og á
hann aö vera viö Fifusel.
I fréttinni eru birtar myndir
af nýjum leiktækjum, svo sem
flugvél, tréhesti og ævintýra-
höll. Er tekið fram að stefnt sé
að þvi aö hafa vellina liflegri og
fjölbrey tilegri.
Ég vona aö þessi nýja stefna
veröi tekin upp á öllum öörum
leikvöllum borgarinnar, þvi aö
ég held aö þau leiktæki sem fyr-
irfinnast séu oröin á eftir timan-
um.