Vísir - 18.02.1977, Side 17
„Bindum vonir við
loðnuno úti af
Vestfjörðum"
— Rœtt við Harald Ágústsson skipstjóra
á Sigurði RE
„Viö bindum töluveröar vonir
viö loönuna úti af Vestfjöröum
þegar fram liöa stundir”, sagöi
Haraldur Ágústsson skipstjóri á
Siguröi EE sem i gær kom til
Haraldur Agústsson um borö I
Siguröi.
Reykjavikur meö fyrstu loön-
una á þessari vertíö sem þangaö
berst.
„Þaö hefur alltaf komiö fram
loðna þarna undanfarnar ver-
tiðir”, sagöi Haraldur. „En þaö
kemur hins vegar ekki til greina
aö fara þangaö fyrr en hiín
hleypur saman i torfur, eins og
allar horfur eru á aö hún geri
innan skamms”.
Hjálmar Vilhjálmsson fiski-
fræöingur hefur veriö úti af
Vestfjörðum á Bjarna
Sæmundssyni i loðnuleit. Þeir
urðu talsvert varir við loðnu
sem stóð dreift. Hjálmar telur
að innan skamms fari loðnan að
þéttast i torfur og veröi þá vel
veiðanleg. Eins og Visir hefur
skýrt frá er það þýðingarmikið
að hægt sé að veiöa loðnu út af
Vestfjörðum og nýta þá þann
verksmiðjukost er nú er ónotað-
ur við Faxaflóa, Bolungarvik og
á Siglufirði.
A toppnum
Sigurði RE hefur gengið mjög
vel á þessari vertíð og er I topp-
baráttunni meö tæplega tiu þils-
und tonn. Asamt Haraldi, er
Kristbjörn Arnason skipstjóri.
Þeir skiptast á. Eru úti i þrjár
vikur i senn, enda álagiö á skip-
stjórunum mikið yfir hávertið-
ina.
15 manna áhöfn er á Sigurði.
Að sögn Haraldar er sama
áhöfnin um borö allan timann
yfir vertiðina, enda skiljanlegt
aö menn sleppi dcki plássinu.
Siguröur var nUna með um
1150 tonn af loönu. En alls getur
skipið tekið um 1400 tonn, eftir
að byggt var yfir það i haust.
Haraldur Agústsson sagði að
þeir hefðu verið 30 tima aö
stima af miðunum. A leiðinni
urðu þeir varir við loðnu Uti af
Ingólfshöfða sem er mun vestar
en aðalveiöisvæðið er. Þeir
köstuðu ekki en Rauðsey mun
hins vegar hafa fengið þarna
töluverðan afla.
Kemst inn á
einstaka hafnir
Eins og kunnugt er strandaöi
Siguröur i innsiglingunni til
mm m íc I il
IIaL 14 !■ ft JjF
Menn voru sem óöast ab undirbúa löndunina— Ljósmynd Visis:
Jens
Vestmannaeyjar. Við það
skemmdist astikkið og ætluðu
kafarar að athuga um skemmd-
iráþvligær. Haraldur bjóst viö
aö komast á veiöar á ný nú i
morgun.
Sigurður RE er stærsta loönu-
skip landsmanna. Hafnaskilyrði
eru viða svo slæm að skipiö
kemst ekki inn þegar þaö er
með fullfermi. Það er aöeins, á
Seyöisfirði, Neskaupstaö, Eski-
firöi, Siglufirði og i Reykjavik
sem það kemst inn þegar þaö er
fjara. Til Vestmannaeyja kemst
skipið ekki fyrr en á hálfföllnu.
—EKG
Samband íslenskra samvinnufélaga 75 óra ó sunnudaginn
Keildarveltan '76 jókst um 34%
og varð tœpir 30 milliarðar
„Bráðabirgðatölur fyrir slð-
asta ár sýna, að velta Sam-
bandsins ein sér var um 29.8
milljarðar, sem er 34% aukning
frá árinu 1975”, sagöi Erlendur
Einarsson, forstjóri Sambands-
ins, á fundi með blaöamönnum I
gær.
Fundurinn var haldinn i til-
efni þess, aö á sunnudaginn eru
75 ár liðin frá stofnun Sam-
bandsins. A fundinum var einn-
ig mættur Eysteinn Jónsson,
formaöur stjórnar Sambands-
ins.
Langmest veltuaukning, eða
55%, var hjá búvörudeildinni,
en sú aukning mun aðhluta vera
vegna birgðabreytinga. Næst
mest aukning var hjá iðnaðar-
deildinni, 43%.
Hæsta veltan var hins vegar
hjá sjávarafuröadeild, 8.7 millj-
arðar. Næst kom búvörudeild
meö 7.2 milljarð, innflutnings-
deild með 6.1, iðnaðardeild með
4.4, véladeild m.eö 2.2 og skipa-
deÚdmeð l.l milljarð. Veltahjá
öðrum aöilum var um 100 millj-
ónir króna.
„Hluti af þessari veltuaukn-
ingu er auðvitað vegna verö-
bólgunnar”, sagði Erlendur,
sem taldi að hin mikla aukning
hjá iðnaðardeild væri visbend-
ing um, að samvinnuhreyfingin
ætti verulegan þátt i iðnaðar-
uppbyggingu I landinu.
Jafnframt hefði samvinnu-
hreyfingin aukið verulega þátt
sinn i vinnslu og sölu sjávar-
afurða.
Félagsmenn eru um 40
þúsund
Þaö kom fram á blaðamanna-
fundinum, að félagsmenn I sam-
vinnuhreyfingunni væru nú um
40.000, en starfsmenn hjá Sam-
bandinu einu saman um 1600.
Sambandskaupfélögin eru 49
talsins, og það fámennasta með
aðeins 27 félagsmenn — það er
Sláturfélagið örlygur á Gjögri
við Patreksfjörð. Stærst er
KRON, sem hefur um 13 þúsund
félagsmenn. KEA á Akureyri
hefur hins vegar mesta ársveltu
kaupfélaganna.
Eysteinn Jónsson taldi, að
tengsl milli stjórnenda og
félagsmanna I samvinnuhreyf-
ingunni mættu vera betri, sér-
staklega I þéttbýlinu. Ákveðiö
væri, að félags- og fræöslumál
hreyfingarinnar væru sérmál
aðalfundar Sambandsins, sem
haldinn veröur i Reykjavik
14.-15. júni I sumar.
„Greinargerö um þossi mál
hefur veríð Sgn(j öllum kaup-
íéiögunum, og veröa þau þar til
umræðu I vetur og vor”, sagði
Eysteinn. „Við vonumst svo til
að fá þaðan ýmsar hugmyndir
um nýjar aðferðir til þess aö
virkja félagsmenn samvinnu-
hreyfingarinnar betur”.
Rikisstyrkt smásölu-
verslun i dreifbýli?
A árinu 1975 voru 17 kaupíélög
rekin meö tapi, og er þar eink-
um um aö ræða kaupfélög á litl-
um stöðum úti á landi, þar sem
mjög erfitt er, aö sögn forsvars-
manna Sambandsins, aö halda
uppi smásöluverslun meö nauö-
synjavörur bæði vegna mikils
flutningskostnaðar, litils
markaöar og ákvæða um álagn-
ingu.
Viöskiptaráðherra skipaöi
fyrir nokkru nefnd til að fjalla
um hugsanlegar úrbætur en hún
er skammt komin I störfum sin-
um.
„Það er ekki hægt aö reka
fyrirtæki til lengdar með tapi”,
sagði Erlendur, „og það á við
um þessa smásöluverslun eins
og annað. Við erum ekki æstir i
að biðja um rikisstyrk, en þetta
hefur þó veriö sú leiö, sem farin
hefur veriö á sumum Norður-
löndum. Og þetta er oröið mjög
alvarlegt vandamál, sem ein-
hvern veginn verður að leysa”.
Það kom fram, aö ein leið
væri sú, að hinn hái flutnings-
kostnaður fengi hreinlega að
koma fram I vörúveröinu, en
það þýddi hærra vöruverð I
strjálbýli en þéttbýli.
Alþjóðlegur samvinnu-
mannafundur
Þess skal getiö, að sérstak-
lega veröur haldið upp á afmæli
Sambandsins I tengslum viö
aðalfund Sambandsins i sumar.
Hins vegar stendur fyrir dyr-
um hér á landi fundur fram-
kvæmdanefndar Alþjóölega
samvinnusambandsins, en hann
verður á Hótel Sögu 7.-11. mars.
Þetta samband var stofnaö 1895,
og er elsta alþjóöastofnun sem
enn starfar. Sambandiö gerðist
aöili að þvi áriö 1927.
-ESJ
ÍBÚÐIR TIL SÖLU
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
auglýsir hér með eftir umsóknum um
24 íbúðir í f jölbýlishúsum, sem verða
byggð á vegum félagsins að Valshól-
um 2, 4 og 6.
Ibúðirnar eru 2ja, 3ja og 4ra-5
herbergja.
Áætlað er að byggingaframkvæmdir
hef jist í apríl n.k. I'búðum ásamt öllu
sameiginlegu og lóð verður skilað
f ullfrágengnum.
Fullgildir félagsmenn Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur koma einir
til greina við úthlutun íbúðanna.
Umsóknareyðublöð verða afhent á
skrifstofu V.R., Hagamel 4, sem veitir
nánari upplýsingar á venjulegum
skrifstof utíma.
Bygginganefndin verður til viðtals
laugardaginn 19. feb. kl. 10-16 á skrif-
stofu félagsins að Hagamel 4.
Umsóknarfrestur er til og með 4. marz n.k.
VERZLUNARMANNAFELAG REYKJAVÍKUR