Vísir - 04.03.1977, Page 17
vism Föstudagur 4. mars 1977
17
Ástglingarnar
á Reyðarfirði:
stefni
Stér
rifa á
flutn-
inqa-
skinsins
Skipiö eftir áreksturinn. Eins og sjá má gengur bryggjukanturinn nokkra metra inn i stefni skipsins.
Ljósm.:
Gunnar Hjartarson
Sjópróf hófust siðla í gær
vegna ásiglingar griska
flutningaskipsins Allakonon
Progress á bryggjuna á
Reyðarfirði, sem sagt var frá i
blaðinu i gær.
Griska skipið, sem kom til
að ná i 10 þúsund lestir af
loðnumjöli á Reyðarfirði,
sigldi þrisvar sinnum á
bryggjuna, en komst samt
sem áður aldrei upp að henni.
Skemmdi skipið bryggjuna
nokkuð, auk þess sem hluti
stefnis þess gekk inn um einn
tvo metra.
Sjóprófin fóru fram hjá
sýslumanninum á Eskifirði,
og kom Sigurður A. Magnús-
son, skólastjóri, austur til að
vera túlkur, en hann er
griskumælandi.
Hjalti Gunnarsson, út-
gerðarmaður á Reyðarfirði,
sagði i viðtali við Visi, að
loðnubáturinn Guðmundur
Jónsson GK hefði reynt að að-
stoða griska skipið, sem er
10-12 þúsund tonn að stærð, við
að komast upp en árangurs-
laust. Sagði hann, að svo
Ivirtist sem grisku skip-
stjórnarmennirnir væru
vanastir að hafa dráttarbáta
þegar þeir væru að leggjast
upp að, og væru þvi litt vanir
aðstæðum, sem þær er eru á
Reyðarfirði. Einnig sagði
hann að skipið væri hlaðið
þannig, að hluti skrúfunnar
stæði upp úr, og fyrir bragðið
væri erfiðara að stjórna
skipinu.
—ESJ/EKG.
Hluti stefnis skipsins er kominn langt inn á bryggju.
Eftir hinar misheppnu&u tilraunir hélt skipib frá bryggju og sést greini- Bryggjukanturinn, þar sem
lega, hversu illa þab hefur þolað áreksturinn. griska skipið sigldi á.