Vísir - 16.03.1977, Blaðsíða 13
Fótboltinn af
stað á morgun
— þá hefst keppnistímabil knattspyrnumanna okkar
með leik Fram og Vals í Meistarakeppni KSI
Jæja, þá geta knattspyrnuá-
hugamenn farið að „skunda” á
völlinn, þvi að á morgun hefst
opinberlega keppnistimabil
knattspyrnumanna okkar, en þá
leika Fram og Valur fyrsta leik-
inn i Meistarakeppni KSt 1977.
Eins og undanfarin ár er meist-
arakeppnin fyrsta mótið sem
hefst, en i þvi taka þátt islands-
meistarar fyrra árs, bikarmeist-
arar fyrra árs og það lið sem
hafnaði I 2. sæti Islandsmótsins i
fyrra.
Að sjálfsögöu keppir Valur sem
islandsmeistari i þessu móti, en
Fram keppir sem lið i 2. sæti 1 Is-
landsmótinu I fyrra. Valsmenn
urðu einnig bikarmeistarar i
fyrra, en skagamenn taka þátt i
meistarakeppninni þar sem þeir
komust i úrslit bikarkeppninnar
s.l. haust.
Fyrsti leikurinn er annaö
kvöld á milli Fram og Vals, og
hefst hann á Melavellinum kl. 20 i
flóöljósunum þar. Siðan rekui
hver leikurinn annan, en
leikirnir verða sem hér segir:
17. mars Fram — Valur
22. mars Valur — ÍA
27. mars 1A — Fram
30. mars Valur — Fram
2. april Fram — 1A
23. april IA — Valur.
Talsverðar breytingar hafa
orðið á skipan þessara þriggja
liða, og bíða menn spenntir eftir
að sjá hvernig liöin koma út úr
þeim.
Valsmenn munu mæta með
flesta þá menn sem vou i hinu sig-
ursæla liöi félagsins i fyrra, aö
þvi undanskildu að Kristinn
Björnsson leikur nú ekki lengur
meö liðinu. En I hans staö hefur
Valur fengið Hörð Hilmarsson
aftur, en hann hefur leikiö með
KA á Akureyri.
Skagamenn missa frá s.l.
keppnistimabili þá Teit Þórðar-
son og Davlð Kristjánsson mark-
vörð, en þeir hafa fengið tvo
menn i þeirra stað, þá Jón Þor-
björnsson markvörð úr Þrótti og
Kristin Björnsson úr Val.
Framarar mæta til leiks án fyr-
irliöa sins, Jóns Péturssonar sem
er nýkominn úr skurðaðgerð og
leikur ekki með liðinu fyrst um
sinn. Framarar hafa fengiö eitt-
hvað af nýjum mönnum, t.d.
markaskorarann frá Selfossi,
Sumarliða Guðbjartsson.
All gegn
óþekktum
ítola!
Það hefur nú verið tilkynnt I
New York að Muhammed Ali,
heimsmeistari I þungavigt I
hnefaleikum, mæti óþekktum
itala, Lorenzo Zanon, I bardaga
um titilinn.
Ali hefur haft mjög hægt um sig
að undanförnu, eða allt frá þvl að
hann varði titil sinn gegn Ken
Norton 29. september s.l.
• En Ali gerir það ekki fyrir ekki
neitt að koma fram og berjast.
Fyrir það aö berja á ftalanum vill
hann fá litlar 12 milljónir dollara.
Þorgeir Haraldsson, Haukum. reyndist landsliðsmanninum Viggó Sigurðssyni erflður I leik Hauka og
Vikings um helgina, og myndin sýnir hann skora eitt af fjórum mörkum sfnum I leiknum. Bæði Haukar
og Vlkingur verða I eldlínunni f Laugardalshöll f kvöld. Ljósmynd Einar
Sjá þetta. Ef þettaj^
i væru minir krakkar -‘O’
skyldu þau fá fyrir'
; Svona er>
heimilið.
Ert það þú Chariie? Þurrkaöui
af þér, maturinn er i ofninum.
Það var mikið um dýröir á Keflavlkurflugvelli i ger þegar Hreinn Halldórsson.nýbakaður evrópumeistari f kúluvarpi innanhúss, kom til
landsins. A myndinni er Hreinn ^samt eiginkonu sinni. Jóhönnu Guörúnu Þorsteinsdóttur. “ LjósmyndLoftur
Bristol City
berst enn
ó botninum
Bristol City berst enn
örvæntingarfullri baráttu á botn-
inum I 1. deild ensku knattspyrn-
unnar. 1 gærkvöldi lék Bristol við
annaö botnlið — Derby, og lauk
leiknum með jafntefli. Bristol er
þó enn á botninum ásamt Sunder-
land með 19 stig, en siðan koma
Derby, Tottenham og West Ham,
öll með 21 stig.
Derby komst I 2:0 I leiknum i
gærkvöldi með mörkum Gerry
Daly og Derek Hales I fyrri hálf-
leik, en I siðari hálfleik tókst
Bristol aö jafna metin með mörk-
um Gerry Sweeney og Keith
Fear.
Úrslit leikja i Englandi I gær-
kvöldi uröu annars þessi:
1. deild
BristolC.— Derby 2:2
Leicester — Middlesboro 3:3
Stoke — Ne wcastle 0:0
2. deild
Oldh am — W olves 0:2
Orient — Bolton 2:2
3. deild
Brighton — Shrewsbury 4:0
Lincoln —Portsmouth 2:1
Northampton — C. Palace 3:0
Preston — Wrexham 2:1
4. deild
Scunthorpe —Exeter 4:1
Southend —Swansea 1:2
Skoski bikarinn
EastFife —Hearts 2:3
Skotland úrvalsdeild
Partick Th. — Rangers 4:3
Skotland 1. deild
Dundee — St. Johnstone 2:0
Úlfarnir hafa nú tekið foryst-
una I 2. deild með 41 stig eftir
sigurinn gegn Oldham, Chelsea
hefursama stigafjölda, en lakara
markahlutfall. Mörk Úlfanna
skoruöu: Alan Sunderiand og
Steve Daly.
Tap Rangers I skosku úrvals-
deildinni þýðir að liöiö er nú því
sem næst úr sögunni I baráttunni
um skoska meistaratitilinn — og
allt virðist nú stefna aö þvl að þaö
verði Celtic sem sigrar I deildar-
keppninni.
Evrópumeistarinn kominn heim!
Hvað gerir ÍR
gegn Víkingi?
tsiandsmótinu I handknattleik, 1. deild
verður haldið áfram i kvöid I Laugardalshöll-
inni og verða þá leiknir tveir leikir.
Fyrri leikurinn sem hefst ki. 20 er leikur
Þróttar og Hauka, leikur sem ætti að geta
orðið jafn og skemmtilegur þótt telja verði
Hauka sigurstranglegri.
Síðari leikurinn er milli Vikings og 1R, og
ef að likum lætur verður þar um hörkuviður-
eign að ræða.
Vlkingar unnu góðan sigur yfir Haukum
um slðust helgi, en þá töpuðu ÍR-ingar fyrir
FH með einu marki.
Það veltur þvl á miklu fyrir IR-inga að
tapa ekki i kvöld, sllkt myndi minnka mögu-
leika þeirra á að blanda sér I toppbaráttuna
all-verulega. En með sigri i kvöld myndi Vik-
ingur skjótast upp I efsta sætiö, upp að hliö
Vals.
Pri réð ekki
við Delfs
Norðuriandameistarinn i badminton,
Flemming Delfs frá Danmörku, sigraði
örugglega ihinu mikla alþjóðamóti sem stað-
ið hefur yfir I Kaupmannahöfn undanfarna
daga.
1 einliöaleiknum lék Delfs tii úrslita gegn
landa sinum, fyrrverandi heimsmeistara
Svend Pri. Delfs haföi ávallt undirtökin I
þeirri viðureign, og hann sigraði með 15-12 og
15-7.
í einliðaleik kvenna sigraði Hiroe Yuki frá
Japan, hún vann Joke Van Beusekom frá
Hollandi I úrslitaleiknum með 11-4 og 11-8.
Sviarnir Thomas Kihlström og Bengt Frö-
man eru sem fyrr ósigrandi i tviliðaleiknum,
og I úrslitum sigruðu þeir danina Flemming
Delfs og Steen Skovgaard 15-6 og 15-8.
Barbara Gilks og Jane Webster frá Bret-
landi unnu tviliðaleik kvenna örugglega, þær
sigruðu Joke Van Beusekom og Mar-Jan
Ridder frá Hollandi 15-9 og 15-9.
,,Þetta eru auðvitað mjög
ánægjuleg tíðindi og þau hvetja
mig til að leggja enn meira aö
mér” sagði Hreinn Halldórsson,
nýbakaöur evrópumeistari I kúiu-
varpi innanhúss, þegar Vísir
færði honum þær fréttir I morgun,
Ólögleg
miðasala
Tveir af forráðamönnum
gríska knattspyrnuliösins AEK
Aþena, ritari og gjaldkeri félags-
ins, voru handteknir af lögregl-
unniiAþenuígær fyriraðvera að
selja aðgöngumiða á leik félags-
ins gegn QPRIUEFA keppninni á
ólöglegu verði.
Mikil aösókn er I aögöngumiöa
á leikinn, þrátt fyrir að AEK hafi
tapað fyrri leiknum I London meö
0:3, og það ætluðu forráðamenn-
irnir að notfæra sér.
Þeirvoru látnir lausir fljótlega,
en veröa aö mæta fyrir rétt og
svara þar til saka.
Mánudagsæfing hjá Milford. Alli
leggur á ráðin fýrir útíleikinn"viö
Fenvyick Vale.~........
Þetta er eins og á gamaj
'mennahæli Alli, Webster/
verður,ekki meö vegna' Komdu
_ meiösla á ökla.T^Z cþeim út11
i völlinn Bob.
að samþykkt hefði verið á fundi
borgarráðs I gærkvöldi að hann
fengi fri á launum um þriggja
mánaða tima I sumar til að hann
geti helgaö sig Iþrótt sinni
óskiptur.
,,Eg var búinn aö hreyfa þessu
viö borgarstjóra þvl að það er
erfitt að stunda vaktavinnu og
æfa eins mikið og ég geri — þetta
eru þvi mjög ánægjuleg tlðindi
fyrir mig, sérstaklegar þar sem
markmiðið hefur verið að keppa
erlendis I sumar. Þaö má þvl
segja að allt hafi lagst á eitt hjá
mér hvað þessu viövíkur, fyrst
evrópumeistaratitillinn sem opn-
ar mér greiðfæra leið inn á hvaða
mót sem er — og nú þessi ákvörö-
un borgarráðs.”
Eins og kunnugt er þá keyrir
Hreinn hjá Strætisvögnum
Reykjavlkur og ekur hann á
leiðinni — hægri hringleiö.
Hreinn sagði að strax eftir mót-
ið 1 San Sebastian á Spáni hefði
honum borist boð um aö keppa I
stórmótum erlendis og mætti þar
nefna mót I Nice I Frakklandi,
Zurich I Sviss og I Vestur-Berlln
— og færu þessi mót öll fram I
ágúst. Hreinn sagðist þó ekkert
hafa ákveðið ennþá um sumariö
þvl aö hann væri varla búinn að
átta sig á öllu þessu.
Um mótiö á Spáni sagði Hreinn
að hann hefði verið viss um að ef
atrenannan heppnaðist myndi sér
takast að ná 20 metra kasti. Þetta
hefði heppnast I fyrsta og slðasta
kastinu sem hann kastaði 20.59
metra og 20.27 metra. Hann heföi
farið of geyst I öllum köstunum
nema þvl fyrsta og slðasta. Þaö
væri þó langt frá þvl aö hann
væri ánægður meö stll sinn
ennþá.
,,Ég fór eiginlega ekki að hugsa
út I þaö fyrr en komið var fram I
miðja keppni aö fyrsta kastiö gæti
dugaö til sigurs, sérstaklega þar
sem Geoff Capes frá Bretlandi
hafði náð betri árangri en þetta,
en hann hefði aldrei náð sér á
strik í keppninni. Við Capes erum
ágætir kunningjar og hann veitti
mér mikilvæga aðstoö I mótinu.”
Þegar Hreinn kom til landsins I
gær var mikill viðbúnaður á
Keflavikurflugvelli, þar voru
m.a. mættir tveir fyrrverandi
evrópumeistarar, Gunnar Huse-
by, sem varö evrópumeistari 1946
og 1950 I kúluvarpi og Torfi Bryn-
geirsson sem varð evrópumeist-
ari 1950 I langstökki. Mótið 1946
fór fram I Osló og þar varpaöi
Gunnar kúlunni 15.56 metra. Mót-
ið 1950 fór fram I Brussel og þar
varpaði Gunnar 16.74 metra og
stóð það afrek hans sem Islands-
met i fjölda ára. Torfi sigraði þar
I langstökkinu — stökk 7.32 metra
sem var mjög gott — og væri
toppárangur hér á landi I dag.
Fjöldi aðila gaf Hreini blóm við
heimkomuna I gær, og voru þaö
eftirfarandi: Menntamálaráð-
herra, Frjálsíþróttasamband ís-
lands, aðalstjórn KR,
Frjálsfþróttadeild KR, Jóhanna
Guðrún Þorsteinsdóttir, eigin-
kona Hreins, Knattspyrnufélag
Keflavlkur og Frjálsiþróttadeild
Armanns.
r
Neita að keppa í Eyjum
Borgnesingar og hornfirðingar neita að spila til úrslita í 3. deildinni
i körfubolta á heimavelli ÍV
„Þaö er óhætt aö segja aö hér
i Borgarnesi er mikil óúnægja
meö þá ákvöröun aö iáta úr-
slitakeppni I 3. deild fara fram i
Vestmannaeyjum, á heimavelli
eins liöanna sem tekur þátt I úr-
slitunum” sagöi Bergsveinn
Slmonarsson form. Körfuknatt-
leiksdeildar UMFS, þegar viö
ræddum viö hann um helgina.
„Svo mikill hiti er 1 mönnum
hérna út af þessari ákvöröun aö
menn ræöa um þaö i fullri al-
vöru aö hætta þessu alveg og
snúa sér aö einhverri annarri
iþrótt i staöinn.”
— Úrslitakeppnin I 3. deild Is-
landsmótsins I körfuknattleik
átti að fara fram I Reykjavlk
um siöustu helgi, en þegar boð
kom frá IV (Iþróttafélagi Vest-
mannaeyja) um aöhalda mótið
og borga kostnaö liöanna frá
Reykjavik til Eyja og til baka til
Reykjavlkur skrifaði stjórn KKl
til þeirra liöa sem liklegt væri
að myndu komast I úrslitin og
leitaöi álits þeirra á þvi að leika
I Eyjum. Þeirra á meðal voru
iið UMFS, Haröar frá Patreks-
firði og Tindastóls frá Sauðár-
króki, og tóku öll félögin mjög
neikvætt I þessa tillögu.
„Það hefur nú komið i ljós aö
það að biðja okkur um að segja
okkar álit á, þessu var ekkert
nema sýndarmennska” sagöi
Birgir Jakobsson á Patreks-
firöi. Þaö er greinilegt aö KKl
með vestamannaeyinginn Stein
Sveinsson I fararbroddi ætlaði
sér alltaf aö láta þessa keppni
fara til Ey ja. Þeir seg ja aö þetta
sé til þess að efla körfuknatt-
leikinn úti á landsbyggðinni, en
ég sé ekki betur en það sem þeir
eru aö gera, sé aö byggja körfu-
knattleik upp I Eyjum og
„drepa hann” á öörum stööum
um leiö. Það er aiveg i hreinu aö
við ætlum ekki að leika til úr-
slita I 3. deild við IV á heima-
velli þeirra. Við vorum spenntir
fyrir þessari keppni, en munum
sitja heima og hugsa okkar mál
varðandi það hvort við stöndum
i þvi áfram að taka þátt I Is-
landsmótinu I körfuknattleik.
„Það hefur verið stefna KKI
að færa leikina eins mikið út á
landsbyggðina og hægt hefur
verið” sagði Bogi Þorsteinsson,
stjórnarmaður hjá KKl, þegar
við ræddum þetta mál við hann.
„Það á alls ekki að stefna öllum
helstu leikjunum á Reykjavík.
Varöandi þaö að IV leiki á
heimavelli vil ég aöeins segja að
ég tel aö heimavöllur hafi ekki
eins mikiö að segja og margir
vilja vera láta. Má I þvi sam-
bandi nefna að liö UMFN sem
leikur i sinni ..Ljónagryfju” i
Njarðvik er með alveg jafngóð-
an árangur á útivelli.”
Það nýjasta sem er að frétta
af þessu máli er að þegar það lá
ljóst fyrir að Hörður frá
Patreksfiröi ætlaði ekki að
keppa I Eyjum var liöi hornfirö-
inga boðin þátttaka en þeir
urðu I 2. sæti i riðli Haröar. Þeir
sáu sér þó ekki fært að mæta.
Það ætlar lið Tindastóls hins-
vegar að gera, en allar likur eru
á aö UMFS mæti ekki, þótt
félagið hafi áskilið sér allan rétt
til þess.
Og þaö er greinilegt eftir aö
hafa rætt viö þá i Borgarnesi og
á Patreksfiröi að þar er mjög
mikil óánægja meö ákvörðun
KKl, og ekki óllklegt aö þetta
mál eigi eftir aö koma til um-
ræðu á öörum vettvangi slðar.
tStS
mmmm
Valery Borzov frá Sovétrikjunum, hinn kunni spretthlaupari, bctti enn einni skrautfjöður
I hatt sinn þegar hann sigraði i 60 metra hlauplnu I evrópumeistaramótinu i San
Sebastian um helgina. Hér sést hann koma I mark, vel á undan Marian Woronin frá
Póliandi sem varb i 2. sæti.