Vísir - 16.03.1977, Blaðsíða 8
8
/■
Miðvikudagur 16. mars 1977 yism
Jóhannes Christensen verkstjóri að útskýra fyrir blaðamanni VIsis hvernig kerfiö virkar f húsi Sementverksmiöju rfkisins i Reykjavik.
' ' *
Vísir heim-
sœkir
hina nýju
pökk-
unarverk-
smiðju
Sements-
verksmiðju
ríkisins
í Reykjavík
„Það kostar bað á hverjum
degi að vinna í sementi"
hreinsunartækjum, sem sjá til
þess, að sementsryk mengi ekki
loftið sem borgarbúar draga að
sér dags daglega.
Það er bókstaflega varla ryk-
korn sem fer út I loftið frá verk-
smiðjunni og þar sem
pökkunarvélin er I gangi er nær
sömu sögu aö segja, þótt hún sé
á fullri ferö, en hún getur fyllt i
800 sementspoka á klukkustund.
Þar inni er i gangi hreinsi-
tæki, sem llkja má við risastóra
ryksugu. Sér hún um að halda
loftinu hreinu og þurfa borgar-
búar ekki að kvarta undan þvi
að hún vinni ekki sitt starf af
vandvirkni.
Allt er þar stórt i snið-
um
A hverjum degi kemur gamla
ferjan frá Akranesi með um 230
til 240 tonn af lausu sementi frá
verksmiðjunni þar. Þetta lausa
sement fer i gegnum leiðslur
inn i tvo stóra tanka, sem hvor
um sig er 37 metrar á hæð, og
taka um 4000 tonn hver.
Þaðan rennur sementiö inn i
sjálfa pökkunardeildina, þar
sem þeir Eyjólfur Gislason og
Hér eru þeir Eyjólfur Gislason, Bogi Sigurðsson, Jóhannes Christ-
ensen og Þórður Sveinsson aö yfirfara nýju pökkunarvélina, sem
tekin var i notkun i siðustu viku.
ÍiÉk
Bræðurnir Rafn og Leifur Harðarsynir oá um að taka við pokunum
á neðstu hæðinni og stafla þeim á bretti.
Það er stærsta ryksuga i bænum
i húsi sementsverksmiðjunnar
við Artúnshöfða. Þar fer varla
korn af sementi út i andrúms-
loftiö.
Vélin getur fyllt 800 sementspoka á klukkustund, og nú þarf
sementið ekki að koma lengur sekkjað frá verksmiðjunni á
Akranesi. Hér er Þórður Sveinsson að koma pokunum fyrir á
vélinni.
„Þaðhefur alltaf þótt
heldur sóðaleg vinna að
vera i sementi, en þetta
venst og er ekki verra
en hvað annað” sagði
Jóhannes Christensen
verkstjóri við Sements-
verksmiðju rikisins á
Ártúnshöfða er við
heimsóttum hann og
starfsfólk hans i gær.
Við buðum okkur sjálfir þang-
að, og þaö sem viö höföum
áhuga aö sjá, var ný og fullkom-
in pökkunarvél, sem tekin var i
notkun fyrir nokkrum dögum og
þykir hiö mesta galdaraverk-
færi.
„Þaö hefur alltaf fylgt sem-
entinu mikið ryk, en i kringum
þessa pökkunarvél er ekkert
ryk aöhafa” sagði Jóhannes er
hann sýndi okkur staöinn ásamt
Boga Sigurðssyni, vélvirkja,
sem hefur haft eftirlit með upp-
setningu og viöhaldi á öllum
þeim tækjum, sem tilheyra
pökkuninni og hinum fullkomnu
mjmm
Turnarnir tveir eru nær 40
metrar á hæö og hvor þeirra
tekur um 4000 tonn af sements-
dufti.
Þórður Sveinsson skiptast á um
að renna sér á þar til gerðum
stól á milli pokanna, sem tekur
aðeins örfáar sekundur að fylla.
„Þaö er ekki nema rúm vika
siðan við tókum þessar vélar i
gagnið, en áður fyrr kom ferjan
meö sementið sekkjaö frá Akra-
nesi” sagði Þórður. „Þaö er til-
breyting i þessu, en annars er
maður orðin hundleiður á
sementinu þvl það kostað baö á
hverjum degi að vinna i þvi’.
Þeir félagar þurfa hvorki að
nota húfu né grimu við vélina.
Ryksugan sér um að hreinsa allt
loft i kringum þá. Aftur á móti
þurfa þeir sem vinna við pökk-
unina á Akranesi að vera með
grimur og annað tilheyrandi,
enda kerfið ekkieins fint þar og
hér.
Þegar pokarnir hafa verið
fylltir renna þeir á færiböndum
niður á neðstu hæð, þar sem
bræðurnir Rafn og Leifur
Harðarsynir taka við þeim og
stafla þeim á bretti, sem siðan
eru geymd þar til viðskiptavin-
irnir láta i sér heyra — og á
þeim hefur ekki verið neinn
skortur hér 1 Reykjavik og ná-
grenni undanfarin ár....
—KLP.