Vísir - 23.03.1977, Blaðsíða 5
& Miðvikudagur 23. mars 1977
5
JAFNTEFLISDAUÐI
11. skákin f einvfgi þeirra
Spasskys og Horts, varð jafn-
tefiisdauðanum aö bráö, eins og
svo margar aörar i keppninni.
Eftir aöeins 14 leiki var allt um
garö gengið, nema vangaveltur
þrumulostinna áhorfenda, sem
reyndu að finna viöhlltandi
skýringu á friðsemd keppenda.
Skýringin hlýtur aö vera hin
þrúgandi taugaspenna, sem
þjakar keppendur. Eitt smá-
slys, einn vanhugsaöur leikur,
og draumurinn um heims-
meistaratitilinn er fyrir bi.
Undir sliku álagi er erfitt aö
tefla góöa skák, og freistandi aö
slaka á þöndum taugum, meö
friösælu jafntefli.
Annars byrjaöi skákin I gær
meö miklum hamagangi.
Spassky tefldi til sóknar,
fórnaöi peöi I byrjun og hrókaöi
langt. Þar með var lika at-
burðarásin upptalin, þvi um
hálf átta leytiö bauö Hort jafn
tefli, sem var þegiö.
Hvítt: Spassky
Svart: Hort
Enski leikurinn.
1. c4 Rf6
2. Rc3 e6
3. e4 c5
(Best. Tvieggjaöra er 3. ... d5
4. cxd5 exd5 5. e5).
4. e5 Rg8
5. Rf3 Rc6
6. d4 cxd4
7. Rxd4
1
1 ± 4 i i 1 1 i
t
t
t t t t t
a G S H
(Þetta er nokkuö þekkt peðs-
fórn, og m.a. hefur Furman,
þjálfari Karpovs rannsakaö
þetta afbrigöi).
7. ... Rxe5
8. Rd-b5
(Furman mælir einmitt meö
þessum leik, I staö hins algeng-
ara framhalds, 8. Bf4 d6 9. Dd2
Rf6 meö jafnri stööu).
8. ... a6
(Eða 8.... d6 9. c5a6 10. Rxd6+
Bxd6 11. cxd6 Bd7 meö tvi-
eggjaöri stöðu).
9. Rd6+ Bxd6
10. Dxd6 f6
11. b3 Re7
12. Bb2 0-0
13. 0-0-0 Rf7
14. Dg3 Rf5
Jafntefli.
A B C □ E F G H
Þaö þjónar litlum tilgangi aö
spá nokkru um framhaldiö,
enda skákin nánast ótefld. Staöa
hvits er aö sjálfsögöu mun
frjálsari, en hann á eftir aö
sanna aö slikt sé peðsins viröi.
Trúlega veröur þaö Portisch
sem mætir sigurvegaranum frá
Loftleiðahótelinu. Hann vann
biöskákina gegn Larsen án telj-
andi erfiöleika, og hefur nú 2ja
vinninga forskot. Larsen hefur
tekiö upp þann vana Fischers,
aö koma jafnan 10 mfnútum of
seint til leiks. Þessar minútur
uröu honum dýr-keyptar i skák- >
inni viö Portisch, þvi I miklu
timahraki i lokin lék hann illa af
sér, og fékk upp þessa töpuöu
biöstööu:
111 ............ V
Jóhann örn Sigurjóns-
son skýrir
einvigisskákir Spassky
pg Horts:
Hvftt: Portisch
Svart: Larsen
Framhaldiö varö þannig:
42. a6 Kd8
43. Ra4 Kc7
44. Rxc5 h5
45. Re6 + Kb6
46. Rd4 Rh4
47. Ke2 Rf3
48. Kf2 Rd2
49. Re6 h4
50. Rg5 Bc6
51. Bxc6 Kxc6
52. C5 Kc7
53. Rf7 Rb3
54. Rd6 Gefið.
Jóhann örn Sigurjónsson
Jón Hólfdánarson skrifar frá skákmótinu í Þýskalandi:
Sigurskák Karpovs gegn Torre
í síiustu umferðinni
Frá Jóni Hálfdánarsyni
fréttamanni Vfsis í Bad Lauter-
berg i gærkvöldi:
I dag byggöi Torre upp sterka
stöðu á móti Karpov, en varö of
bráðlátur og sótti rangt fram
(26. e5) svo vinningurinn féll i
skaut Karpovs án þess að hann
þyrfti að reyna mikiö á sig.
Torre yfirsást 27... exf4. Skákin
tefldist á eftirfarandi hátt.
Hvftt: Torre
Svart: Karpov
1. e4 c5
2.RÍ3 e6
3.d4 cí
4. Rd4 aa
5. c4 Dc7
6. a3 Rf6
7. Rc3 Rc6
8. Be3 Be7
9. Hcl Re5
10. Be2 Rg6
11.0-0 b6
12. f4 0-0
13. b4 Bb7
14. Bd3 Hac8
15. Rb3 d6
16. De2 Hfe8
17. h3 Rd7
18.DÍ2 Ba8 27. g5 ef
19. Hc2 Db8 28. Bf4 Be5
20. Hfcl Bh4 29. g6 fg
21. g3 Db8 30. hg Bf4
22. Rd2 Bf6 31. gh Kh8
23. h 4 h6 32. Hfl Hf8
24.h5 Rf8 33. Be4 Re5
25. g4 Rh7 34. Dg2 Rc4
26. e5 De Gefið.
Lokastaðan á afmœlismótinu
Sföasta umferö afmælismóts-
ins í Bad Lauterberg þótti held-
ur bragðdauf. tlrslituröu þessi:
Karpov vann Torre, Csom vann
Liberzon en jafntefli geröu
Friðrik og Hubner, Anderson og
Timman, Miles og Keene, Sos-
onko og Furman, Gligoric og
Gerusel og Hermann og Wock-
enfuss.
Lokastaðan
1. Karpov
2. Timman
3. Furman
4. Sosonko
5. Friörik
6. Csom
7. Hubner
12 vinninga
10 vinninga
9 vinninga
8,5 vinninga
8 vinninga
8 vinninga
8 vinninga
8. Liberzon
9. Gligoric
10. Miles
11. Anderson
12. Keene
13. Torre
14. Herman
15. Gerusel
16. Wockenfuss
Svinninga
7,5 vinninga
7.5 vinninga -
7 vinninga
7 vinninga
6.5 vinninga
5.5 vinninga
4.5 vinninga
3.5 vinninga
Skákmótið í Bad Lauterberg
var mjög sterkt. Þaö var I 12.
styrkleikaflokki FIDE af 15
flokkum. Meöal Elo-stig kepp-
enda voru 2.532. Til að ná al-
þjóölegum titli þurfti sex vinn-
inga en stórmeistaramörkin
voru átta vinningar.
Þýsku skákmennirnir œsast
við andardrátt áhorfenda
„Mikill mannfjöldi var á
skákmótinu i Bad Lauterberg
um siðustu helgi. Það er eins og
þjóðverjarnir Gerusel og
Wockenfuss færist i ham þegar
þeir finna andardrátt áhorfenda
á bakinu á sér.
Eins og ég hef áöur greint frá
er aöbúnaöur á mótinu fyrir
neöan allar hellur og áhorfend-
ur þurfa aö þrengja sér aö skák-
borðunum til þess aö fylgjast
meö skákunum þvi þær eru ekki
sýndar á sýningarboröum.
Þeir Friörik og Csom uröu
fyrir baröinu á þjóöverjunum.
Eins og fram hefur komið slapp
Csom rétt fyrir horn gegn
Wockenfuss og náöi jafntefli, en
Friörik tapaöi fyrir Gerusel.
Helgina áöur vann Gerusel
Timman i mannþrönginni.
Gerusel hefur sýnt gloppótta
taflmennsku á mótinu, en þrisv-
ar sinnum hefur honum tekist
vel upp og lagt stórmeistarana
Timman, Keene og Friörik
Ólafsson.
Friörik valdi gegn Gerusel
leiö sem mælt er meö i rúss-
neskum byrjendabókum, 11.
Bg3, en reyndist illa i þessari
skák. Gerusel drap óhræddur
tvö peö meö drottningunni, en
Friörik vildi i staðinn loka
drottninguna inni. Honum yfir-
sástmótsvar Gerusel 17. ... Rc5
og átti eftir þaö i vök aö verjast.
Þaö er ekki alveg ljóst hvort
hann gat fangað drottninguna á
annan hátt en hann valdi, en
hann sleppti aö minnsta kosti
þráleik sem hann sá I stööunni.”
Þetta sagöi Jón Hálfdánarson
um skák Friöriks og Gerusel, en
hún var birt i heild i Visi á
mánudaginn og geta lesendur
glöggvaö sig betur á henní þar.
— SG
Borik varð að
víkja sœti
fyrir þjálfara
Karpovs
Jón Háifdánarson frétta-
maður Visis i Bad Lauterberg
segir l skeyti frá athyglis-
verðu máli sem nokkuð hefur
veriö til umræðu i sambandi
viö afmælismótið i Þýskalandi
og varöar þýska skákmanninn
Borik.
„Þeir heimamenn, Gerusel,
Wockenfuss og Herman unnu
sér rétt til þátttöku á þessu
móti i meistaramóti V-Þýska-
lands i Bad Pyrmont i júni i
fyrra. Þjóöverjar hafa ákveö-
iö aö halda meistaramótiö aö-
eins annað hvert ár, en hitt ár-
iö alþjóölegt skákmót eins og
mótiö sem nú stendur yfir i
Bad Lauterberg. Fjórir efstu
menn i meistaramótinu fá rétt
til þátttöku i alþjóðamótinu.
A meistaramótinu i Bad
Pyrmont tefldu 26 keppendur
11 umferöir efstir svissneska
kerfinu um Þýskalandstitil-
inn. Röö efstu manna var
þessi: 1. Wockenfuss 8 vinn-
inga. 2. Gerusel7,5. 3. Herman
7,5,4. Borik 7,5,5. Mohrlok 7,5,
6. Reefschlaeger 7 vinninga.
Borik bolað frá
Að öllu jöfnu heföi Borik átt
rétt á að taka þátt í mótinu
sem nú fer fram i Bad Lauten-
berg. Forystumenn þýska
skáksambandsins segja, aö
sovétmenn hafi boðaö meö
stuttum fyrirvara, aö þeir
vildu aö Furman, þjálfari
Karpovs, tefldi lika á mótinu.
Þar sem þjóöverjarnir voru
hræddir um að heimsmeistar-
inn Karpov kæmi ekki, ef ekki
yröi látiö aö ósk sovéska skák-
sambandsins, drógu þeir einn
þýska keppandann til baka og
það lenti á aumingja Borik.
Illar tungur herma hins
vegar, aö Borik hafi ekki feng-
iö aö taka þátt i mótinu vegna
þess að hann er tékki. Borik
flutti frá Tékkóslóvakiu fyrir
nokkuö mörgum árum og sett-
ist aö i Vestur Þýskalandi.
Menn telja ástæöuna fyrir
fjarveru Boriks vera þá aö
hann er ekki þýskur rikisborg-
ari og komi jafnvel pólitik
þarna við sögu. Eftir aö hafa
kynnt mér þetta mál held ég
aö þýska skáksambandiö segi
sannleikann i málinu þótt
margir séu á annarri skoöun.”
Skemmtileg yfirlitsgrein
frá mótinu í Vísi á morgun
i gærkvöldi sendi Jón Hálf-
dánarson fróölega og
skemmtilega yfirlitsgrein um
afmæiismótið i Bad Lauter-
berg og veröur hún birt f VIsi á
morgun. Þar kemur meðal
annars fram, að Friðrik átti
góða möguleika á einhverju af
efstu sætunum þar til hann féll
fyrir Gerusel í 13. umferö.
„Það er eins og létt og lipur
taflmennska Friöriks biti ekki
á minni spámennina”, segir
Jón. —SG