Tíminn - 13.07.1968, Qupperneq 2
TIMINN
LAUGARDAGUR 13. júlí 1968
SUMARFERÐ
Framsóknarfélaganna í Reykjávík
sunnudaginn 21. júlí n.k. — Lagt verður upp frá Hringbraut 30 kl. 8 að morgni
Árleg sumarferð Fram
sóknarfélaganna í Reykja-
vík verður farin sunnudag-
inn 21. júlí n. k. og hefur
Suðurlandið orðið fyrir
valinu að þessu sinni.
Lagt verður af stað frá
Hringbraut 30 kl. 8 um
morguninn og ekið sem
leið liggur austur Hellis-
heiði og er fyrsti viðkomu-
staðurinn Kambabrún, en
þaðan er fagurt útsýni um
Suðurland og allt til Surts
eyjar, ef skyggni er gott.
Á Selfossi munu tveir
góðir gestir bætast í hóp-
inn. Eru það alþingismenn
irnir Ágúst Þorvaldsson á
Brúnastöðum og Björn
Fr. Björnsson Hvolsvelli.
Þeir munu veita ferða-
fólkinu leiðsögn og skort-
ir án efa pkki kunnugleika
í Árnes- og Rangárvalla-
sýslum.
Frá Selfossi verður ekið
austur Flóa og upp Skeið
og Gnúpver j ahrepp og
rakleitt inn að Stöng í
Þjórsárdal með stuttri við-
dvöl við Skeiðaréttir.
Á Stöng verður snædd-
ur hádegisverður og stað-
urinn skoðaður ásamt
Gjánni. Þór Magnússon
safnvörður mun lýsa bæj-
arhúsunum á Stöng og
gefa stutta lýsingu á daln
um og eyðingu hans og
greina frá helztu örnefn-
um.
Eftir hæfilega viðdvöl á
Stöng verður haldið upp
Sámstaðamúla, þaðan sem
greina má framkvæmd-
irnar og ekið rakleitt að
inntaksmannvirkjum Búr-
fellsvirkjunar við Þjórsá.
Þar verður farið úr bílun-
um og gengið yfir nýju
Þjórsárbrúna, sem þarna
er komin skammt ofan
Tröllkonuhlaups.
Skammt austan Þjórsár
verður komið á Sprengi-
sandsveg og haldið eftir
honum sem leið liggur í
átt til byggða. Skammt of-
an við Galtalæk verður
beygt til austurs og ekið
yfir vað á Ytri-Rangá og
stanzað í Galtalækjarskógi.
Sigurjón Pálsson, bóndi á
Galtalæk kemur til móts
við hópinn þar og mun
lýsa umhverfinu. Þessi
áningarstaður er í næsta
nágrenni Heklu og hraun
inu frá henni á næsta leiti.
Frá Galtalæk liggur veg
urinn um mjög sérkenni-
lega og fallega leið niður
að Gunarsholti, þar sem
Páll . Sveinsson sand-
græðslustjóri tekur á móti
hópnum og sýnir þau und
ur, sem gerð hafa verið í
sandgræðslumálum á Rang
árvöllum.
Frá Gunnarsholti verð-
ur ekið niður á Þjóðveg-
inn og yfir brúna á Ytri-
Rangá rétt við Hellu, en
beygt þar niður með ánni
að vestan.
Þykkvibærinn er eitt-
hvert sérkennilegasta
byggðarlag á íslandi. Bæ^a
röðin liggur frá austri til
vesturs ofan sjávarkambs-
ins, næstum frá Hólsá að
Þjórsá. Kartöfluakrarnir
teygja sig svo langt sem
augað eygir. Þar eru mörg
stórbýli nú, sem áður
voru kot. í Þykkvabæinn
er ráðgert að koma um kl.
6 að kvöldi og aka vestur
eftir byggðinni út í Hóls-
hvenfi og síðan upp með
Þjórsá. í nánd við Sand
hólaferju er ráðgert að
stoppa og snæða kvöld-
verð.
Frá Sandhólaferju
þjóðveginn og síðan sem
leið liggur í átt til Reykja
víkur með stoppi í Hvera-
gerði, ef tími vinnst tiL
Öll ferðin kostar 460
krónur og 300 krónur fyr-
ir böm 10 ára og yngri.
Innifalið í fargjaldinu eru
tveir matarpakkar.
Kaffi og öl er fólk beðið
að hafa með sér.
í hverjum bíl verður
kunnugur leiðsögumaður.
Farmiöar eru seldir á Hringbraut 30 - Sími 24480
Sleppiö ekki úrvais tækifæri til aö skoöa landiö okkar
FERÐANEFNDIN
ÚTBOÐ
Bæjarsjóður Kópavogs óskar eftir tilboði í gerð
holræsis í gangstígi frá Nýbýlavegi að Selbrekku
og Fögrubrekku.
Útboðsgögn verða afhent milli kl. 9 og 12 á
skrifstofu bæjarverkfræðings frá og með þriðju
deginum 16. þ. m. gegn 1000 króna skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð kl. 11, mánudaginn
júlí á skrifstofu bæjarverkfræðings.
Bæjarverkfræðingurinn í Kópavogi.
22.
Gddjon Styrkársson
HASTARÉTTARLÖGMAOIIR
AUSTUKTRJtTl 6 SlMI II3S4
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM
SOLBRA
Laugaveg 83
Úrval barnafata, sendum
gegn póstkröfu um land
allt.
/