Tíminn - 13.07.1968, Page 3
LAtTGAKDACÆíK 13. Jú!í 1968
TIMINN
iSKaK-',. w t. '
Námsstyrkur borgar-
stjórnarinnar í Kiel.
Borgiarstjórnin í Kiel mun
veLta íslenzkum stúdent styrk
til némsdvalar við háskólann
þar í borg næsta vetur.
Styrkurinn nemur DM 350,-
á mánuði í 10 mánuði til dval
ar í Kiel frá 1. okt. 1968 til 31.
júlií 1969, auk þess sem
kennslugijöld eru gefin eftir.
Um styrk þennan geta sótt
al'lir stúdentar, sem hafa stund
að háskólanám í a.m.k. þrjú
misseri í guðfræði, lögfræði,
hagfræði, læknisfræði, málvís
indum, náttúruvísindum, heim
speki, sagnfræði og landfoún-
aðarvísindum.
Ef styrk'hafi óskar eftir því,
verður honum komið fyrir í
stúdentagarði, þar sem fæði
og húsnæði kostar um DM-
250,— á mánuði.
Styrkhafi skal vera komin.n
til háskólans eigi síðar en
15. okt. 1968 ti.1 undirbúnings
undir námið, en kennsla hefst
** 1. nóvemfoer.
Umsækjendur verða að hafa
nægilega kunnáttu í þýzku.
Umsóknir um styrk þennan
skal senda skrifstofu Háskóla
íslands eigi síðar en 1. ágúst
n. k. Umsóknum skulu fylgj a
vottorð a.m.k. tveggja manna
um námsástundun og nárnsár-
angur og a.m.k. eins manns
sem er persónulega kunnugur
umsækjanda. Umsóknir og
vottorð sfculu vera á þýzku.
Byggingartækniráð
endurreist.
Á árunum 1957—1961 starf
aði á vegum Iðnaðarmála-
stofnunar Íslands (IMSÍ)
fastanefnd, sem bar heitið
Byggingartækniráð IMSÍ. Ann
aðist ráðið undirbúning og
umsjón með stöðlun í bygging
ariðnaðinum á. vegum stofnun
arinmar.
Á miðju sumri 1961 hófu
verkfræðingar verkfall og
hvarf þáverandi stöðlunar
verkfræðingur stofnunarinnar
úr þjónustu hennar og starf
semi ráðsins lagðist þar með
niður-
í apríl siðastliðnum var^ ráð
inn verkfræðingur að IMSÍ, og
skal hann vinna sérstaklega að
setningu íslenzkra staðla og
stuðla að notkun þeirra.
Af því tilefni ákvað stjórn
Iðnaðarmálastofnunarinnar að
endurreisa 'Byggingartækniráð
og skal verksvið þess vera, að:
a) Fjalla um val verkefna,
m. a. með hliðsjón af erlend
um stöðlum.
b) Gera tilliögur um val full
trúa í stöðlunarnefndir.
c. Samræma störf stöðlunar
nefnda og endurs'koða staðla
frumvörp.
Eftirtaldir aðilar eiga sæti
í ráðinu:
Arkitektafélag íslands:
Ólafur Sigurðsson, arkitekt
Húsnæðismálastofnun Rikis
0
ins:
Hal'ldór Halldórsson fram,-
kvstj.
Landsamb. iðnaðarmanna:
Tómas Vigfússon, húsasm.m.
Ranns'óknarstofnun byggingar
iðnaðarins:
Haraldur Ásgeirsson, for-
stjóri
Verkfræðingafél. íslands:
Helgi H. Árnason, verkfr.
Iðnaðarmálasofun íslands:
Hörður Jónsson verkfr.
Ráðið kaus sér formann
Harald Ásgeirsson, forstjóra
Rann'sóknarstofnunar bygging
ariðnaðarins. Hyggst það hefj
ast handa þar sem frá var
horfið 1961, en fyrsti fundur
þess var haldinn 16. júní s. 1.
í undirbúningi eru nú m. a.
frumvörp að stöðlum um mát
kerfi, og verið er að undir
búa fleiri verkefni.
(Fréttatilfcynning frá Iðnaðar
málastofnun íslands)
8. norræni fundurinn um
öryggi við vinnu.
Dagana 27. — 29. júní var
8. noræni furidurinn um öryggi
við vinnu haldinn að Hótel
Doftleiðum í Reykjavífc, en
fundir þessir eru haldnir
þriðja hvert ár til skiptis í
Norðurlöndunum fimm og
standa frjáls samtök vinnu-
veitenda, verkamanna, verk-
stjóra og slysatrygg.jenda að
þeim. Var 7. fundurinn hald-
inn í Leo.pol.ampi við Hels-
ingfors vorið 1965 og sóttu
hann tveir fulltrúar frá ís-
landi.
Undirbúning að fifndinum
hér annaðist samstarfsnefnd
skipuð fulltrúum frá eftirtöld
um aðilum í Vinnuveitenda-
samibandi íslands, Félagi ís-
lenzkra iðnrekenda, Alþýðu-
sambandi íslands, Verkstjóra
sambandi íelands og Sam-
bandi íslenzkra slysatryggj
enda.
Á fundinum voru eftirtalin
mál rœdd og varða þau öll
öryggi við vinnu:
Samstarf öryggiseftirlita á
Norðurlöndum og á alþjóðavett
vangi.
Frjáls samvinna um öryggi
við vinnu á Norðurlöndum.
Starfsaðferðir við nútíma
heilsugæzlu í atvinnurekstri.
Skipti á hugmyndum, áróð-
ursefni og samvinna um
fræðslu varðandi öryggi við
vinnu.
Ta'kmarkagildi heiilsuspill-
andi efna á vinnustöðum.
Mifclar umræður urðu á
fundinum, sem gáfu góða
mynd af afstöðu landanna og
hvar þau eru á vagi stödd í
málum þeim, serii um var
rætt, en engar ályktanir gerð
ar, enda tilgangur funda þess
ara fyrst og fremst gagn-
kvæm . fræðsla. Almennt voru
rnenn mjög ánægðir með ár-
angur fundarins.
Auk ful'lrúa frá öllúm fram
angreindum félagissamtökum
sóttu fundinn forstjórar aHra
öryggiseftirlita Norðurland-
anma, Mltrúar frá Slysavarnr
fólagi íslands og Borgarlækn
inum í Reykjavik.
AHs sátu fundinn 29 erlend
ir fulltrúar og 19 íslenzkir.
Styrkir úr Thor Thors-
sjóði.
Aðalfundur íslenzk- amer-
íska félagsins var haldinn 29.
Framhald a bls 14
Sé5 yfir hluta orlofsheimilanna £ Fnjóskadal. Nýja brúin yfir Fnjóská í baksýn.
(Tímamynd: ED),
ORLOFSHEIMILI A
ILLUGASTÖDUM
S. 1. mánudag var fréttamönnum
boðið að sjá orlofsheimili verka-
lýðsfélaganan á Illugastöðum í
Fnjóskadal, sem nú er verið
að taka í notkun íhvert af öðru.
Þegar er flutt í þrjú húsanna, þau
fyrstu, en um næstu helgi verð-
ur flutt í þau öll, sem ýmist eru
tilfoúin eða verið að leggja si'ð-
ustu hönd að, alls 10 að tölu.
En þess utan eru fimm í smíðum
og koma þau í gagnið síðar á
sumrinu.
Björn Jónsson alþingismaður
skýrði þessa framkvæmd. Sagði
hann, að um nokkurt skeið hefði
orlofsheimilin verið á dagskrá hjá
Alþýðusambandi Nor'ðurlands og
verkalýðsfélögunum. Að ráði hefði
orðið að kaupa jörðina Illugastaði
i Fnjóskadal og byggja orlofsheim
ili þar. Fyrir rúmu ári hófst svo
undirbúningsvinna á staðnum. Al-
þýðusamband Norðurlands stend-* 1
ur fyrir framkvæmdunum og kost
ar þann hlutann, sem sameiginleg
ur er, svo sem rafmagn, vatns-
og skólpleiðslur, vegi, snyrtingu
utanhúss o. s. frv. Hin einstöku
verkalý'ðsfélög kaupia síðan húsin,
sem öll eru eins. Og Alþýðusam-
bandið á jörðina, sem er landrúm,
á t. d. þriggja km. breiða spildu,
allt frá Fnjóská og upp á miðja
Vaðlaheiði.
Lán úr Atvinnuleysistrygginga-
sjióði gerði framkvæmd mögulega
og verkalýðsfélögin leggja fram
fjármagn í sína orlofsheimilasjóði,
sem nú kemur sér vel.
Eigendur hinna 15 húsa, sem
ýmist eru tilbúin til notkunar eða
i smiðum eru: Eining Ak. 3 hús,
Iðja, félag verksmiðjufólks Ak.
1 hús, Vaka á Siglufirði 1 hús,
Hið íslenzka prentarafélag 1 hús,
Fram og Aldan á Sauðárkróki eiga
1 hús og eitt hús eiga ennfremur
Sjómannafélag Akureyrar. Málm-
og skipasmíðasamibandið, Járniðn
aðarmannafélag Reykjavíkur, Fé-
lag íslenzkra rafvirkja, Dagsbrún,
Félag íslenzkra kjötiðnaðarmanna
og mjólkuriðnaðarmanna sameig
inlega, Verkalýðsfélag Húsavíkur,
Aliþýðusamband Nor'ðurlands.
Tréverk á Dalvík, hlutafélag,
sem átti læssta tilboð, þegar hús
in voru boðin út, smíðar þessi
hús. Byggingameistarar eru Sveinn
Jónsson, Dalvík og eru húsin að
mestu smíðuð á verksætði en
síðan flutt á byggingarstað. Ein-
ir h. f. á Akureyri smíðaði hús
gögn.
Húsin eru að grunnfleti 58 fer
metrar. í því eru þrjú svefnher-
bergi, eldhús, dagstofa og snyrt-
ing, ennfremur rúmgóð verönd.
Þeir, sem taka húsin á leigu
til dvalar, vi'ku í senn, grciffa
1200 króná gjald. En fjölskyídur
jeiga ekki að þurfa að flytja ann-
að með sér til þeirrar dvalar en
matvæ'li, jiafnvel uppbúin rúmin
bíða, eldavél og ísskápur, hvað
þá heldur meira.
Orlofsheimilin á Illugastöðum
eru 13 km. frá Skógum. Vegur um
dalinn er góður og flj'ótfarinn.
Starfsfólk við orlofsheimilin nota
íbúðarhús jarðarinnar, því hvorki
er 'þar bóndi né bú.
Gegnt niugastöðum blasir Þórð
: arsta'ðaskógur við og nýlega byggð
J brú er þar yfir Fnjóská. Leikvell
I ir verða gerðir á sléttum árbökkun
um. En heima verður komið upp
aðstöðu fyrir yngstu börnin. Á-
formað er áð byiggja sundlaug og
sérstakt hús til sampiginlegra nota.
j Sérstakt eigendafélag sér um
j rekstur húsanna og kaus það sér
jþessa menn til að annast hann
'fyrir sína hönd: Rósberg G. Snæ-
j'dal, Jón Ingimarsson og Björn
Þorkelsson. Eftirlitsmaður á staðn
! um er Rósberg G. Snæd'al.
Þorvaldur Kristmundsson arki-
tekt teiknaði hús og húsgögn, Jón
Rögnvaldsson skipuleggur lóðir og
Baldur Jónsson í Fjósatungu hef
ureftirlit með ýmsum verklegum
framkvæmdum utanhúss.
Atlantica og lceland ^eview
Nýtt hefti
er komið út
Nýtt hefti Atlantica & ICE-
LAND REVIEW er komið í bóka
búðir. Er það fjölbreytt að efni
og prýtt mörgum myndum í lit-
um og svart/hvítu að vanda.
Grein er um Ásgeir Ásgeirsson og
16 ár hans á forsetastóli — og
grein um Þjóðminjasafnið, sem ný
kjörinn forseti, Dr. Kristján Eld-
járn skrifar. Ennfremur eru marg
ar myndir úr safninu, sem
Kristján Magnússon og Gísli
Gestsson tóku.
Þá er grein um nýja þjóðgarð-
l inn, Skaftafell í Öræfum, sem dr.
: Sigurður Þórarinsson skrifar —
; og fylgja henni m. a. litmyndir
; eftir Gunnar Hannesson. Fimm
j menn skrifa hugleiðingar um ís-
j lad, tilfinningar sínar gagnvart
ladninu og viðmót þess — og koma
þar ýmis sjónarmið fram, sem
fróðlegt er að kynnast — bæði
fyrir íslendinga sem úfclendinga.
Greinarhöfundar eru Indriði G.
, Þorsteinsson, rithöfundur, Guð-
| mundur Daníelsson, ribhöfundur,
Joseph Haiggerty, blaðamaður í
| New York, Jón Baldvin Hanni-
I balsson, hagfræðingur, Jökull Jak
i obsson, rithöfundur og Magnús
Magnússon, ritstijóri í Bretlandi.
j í þetta hefti skrifar Benedikt
! Gröndal, ritstjóri, ennfremur um
j stefnu íslands í utanríkismálum.
Gisli J. Ástþórsson skrifar hug-
leiðingar um vorið á íslandi —
greinar eru um starfsemi Sölu
miðstöðvarinnar í Londón, þróun
símamála á íslandi, ferðalög ís-
lendinga til útlanda, sölu íslenzks
lan^bakjöts í Bretlandi o. fl. Auk
almennra frétta, bókaþáttar, frétta
frá sjávarútvegi og fróðleiksmola
fyrir ferðamenn má nefna nýjan
fróUaþátt ritsins um efnahagsmál
á íslandi og er hann að þessu
sinni skrifaður at Jónasi Kristjáns-
syni, ritstjóra. Kápumynd er sam
ansett úr litmyndum frá Krýsu-
vik, sem teknar voru af Freddy
Laustsen.