Tíminn - 13.07.1968, Page 5
LAUGARDAGUR 13. júlí 1968
TÍMINN
5
Að loknu
forsetakjö.ri
Gísli Magnússon í Eyhildar-
holti skrifar
Þjóðin hefur valið sér forseta
til næstu fjögurra ára.
Fjórir ráðherrar a.m.k. lýstu
opinberlega yfir eindregnum
stuðningi við annan frambjóðand-
ann til forsetakjörs. Allmargir
þingmenn stjórnarflokkanna og
anr.að stójrmenni tók undir og
v.'tnaði með ráðherrunum um dýrð
f ambjóðandans. Morgunblaðið,
stærsta og útbreiddasta blað lands
ins og ágætasta að eigin dómi,
var komið í blóðspreng og mátti
ekki lengur vatni halda.
Frambjóðandinn, ágætur mað-
ur hlaut rösklega þriðjung
greiddra atkvæða.
Skyldi ekki dr. Gunnar Thor-
oddsen mega vera þakklátur þess-
um höfuðskepnum?
Morgunblaðið lagði kollhúfur.
Á fyrsta útkomudegi eftir kjör-
dag fórnaði blaðið minna rúmi
til þess að greina frá þjóðhöfð-
ingjakjöri á íslandi en þingkosn-
ingum suður í Frakklandi.
XJrslitin komu ýmsum óvænt.
M.enn veltu vöngum yfir því, sem
gerzt hafði. Fleira kom til en mis
heppnaður áróður pólitískra ráð-
herra og annarra mektarmanna.
Þjóðinni geðfellur ekki að nokk
ur maður telji sig sjálfkjörinn til
þéss að gegna forsetadómi og
stefni að því marki árum saman,
að gerast húsbóndi á Bessastöð-
um. Hún vill sjálf kalla sinn
höfðingja og kann því ekki, að
hann sé til kvaddur af sjálfum
sér.
Þjóðin trúir ekki að maður,
sem lifað hefur og hrærzt í pólitík
frá blautu barnsbeini og áratug-
um saman verið harðskeyttur for-
ystumaður í pólitískum flokki,
geti með góðu móti orðið sam-
einingartákn alþjóðar eða reynzt
með öllu óvilhallur ef á reynir,1
jafnvel þótt ágætur maður sé og j
enginn beri brigður á hæfni hans j
að öðru leyti og góðan vilja. Þessi j
tortryggni kann að vera ástæðu- i
laus. En hún er til eigi að síður:
og á sér býsna djúpar rætur með
þessari flokkspólitísku þjóð.
Þjóðin vildi „nýtt
blóð“.
Þjóðin vildi fá „nýtt blóð“ að
Bessastöðum. Allir eru á einu
máli um að tveir hinir fyrstu for-
setar hafi haldið uppi virðingu
hins háa embættis, svo sem bezt
mátti verða — með réttu eða
röngu og ef til vill af ókunnug-
leika — að embætti þjóðhöfðingj-
ans hafi verið helzti „hátt uppi,“
að „virðuleiki" og „alþýðleiki“ i
hafi ekki haldizt svo í hendur, |
sem æskilegt megi teljast. Þarna
er vandrötuð leið. íslendingar
eru demókratískir að eðli.
Loks er að minnast þess, að
alþýða manna og bændur ekki
hvað sízt töldu sér það metnað-
armál og sæmdarauka, að mega
leiða til sætis í forsetastóli mann,
sem var hold af þeirra holdi —
og það því fremur, sem kostur
var á svo ágætum manni, sem dr.
Kristjáni Eldjárn er. Ef til vill
hefur þetta verið einna þyngst á
metum.
Enn í dag, viku eftir kjördag,
ræða menn forsetakosningarnar
af kappi og velta fyrir sér hver
rök hafi legið að þessum yfir-
burðasigri annars forsetaefnisins.
þar sem um tvo menn var að
tefla og báða mjög vel hæfa. Rök-
in eru mörg og raunar auðsæ
flest. En þyngst hafa þau verið,
sem hér hafa verið nefnd.
Allar vangaveltur hafa að vísu
litla þýðingu. Hitt er mest um
vert, að þjóðin sýndi, þegar alls
er gætt, undraverðan einhug í
vali höfðingja síns. Því ber að
fagna af fyllstu einlægni."
Fjölmiðlunartæki í
þágu góðra málefna
Náttúruunnandi skrifar:
„Það hefur sýnt sig hér á landi
nú síðustu ár að með því að halda
uppi stöðugum áróðri fyrir góð-
um málefnum með aðstoð fjöl-
miðlunartækja má hafa mikil á-
hrif á breytni almennings til batii
aðar. í útvarpi og sjónvarpi hef-
ur umferðardeild lögreglunnar
staglazt á áminningum og leið-
beiningum til vegfarenda í sí-
vaxandi mæli s.l. 2 ár. Ekki ber
á öðru en þessi áróður ásamt
upplýsingastarfseminni, sem 'lög-
reglan rak um og eftir H-dag hafi
haft þann árangur, að umferðar
menning hér á landi er nú stór-
um betri en áður.
Hreint land — fagurt
land
Nú er ein áróðursherferðin enn
komin af stað og má segja að
hún sé mjög tímabær. Það er her-
ferð Æskulýðssambands íslands
og Náttúruverndarráðs undir
kjörorðinu „Hreint land — fagurt
land.“ Herferðin fer aðallega fram
nú sem stendur með stuttum á-
minningum til ferðamanna og
annarra, sem þulir rikisútvarps-
ins lesa, og við höfum orðið vör
við í útvarpinu öðru hverju. Slfk
ar áminningar hafa sitt gildi og
smám saman síast þessi aðvörun-
arorð inn í þykkan skallan á al-
menningi og verða ferðamönnum
að leiðarljósi ferðalögum um
landið. Ég vildi koma á framfæri
hér í Landfara þökkum fyrir
þessa tímabæru herferð og þó sér-
staklega til Æskulýðssambands fs
lands, því að það er mjög ánjegju-
legt að æskulýður landsins skuli
eiga frumkvæði að herferðinni og
sýna með því að æskan lætur sér
ekki á sama standa um vort fagra
land.
Meiri fræðslu og
upplýsingar
En betur má ef duga skal. Eigi
herferð sem þessi að ná takmarki
sínu, verður hún að vera vel
skipulögð, áróðurinn markviss, en
umfram allt verður að fyigja
fræðsla. Mér finnst nauðsynlegt
að forráðamenn herferðarinnar
fyrir bættri umgengni falist eftir
rúmi í blöðum, útvarpi fyrir
stutta en skemmtilega fræðslu-
þætti. (Hver mundi t.d. ekki
hlusta á Sigurð Þórarinssgn í slík-
um þætti). Þegar sjónvarpið kem
ur úr sumarfríinu ætti að vera
hægt að fá inni hjá þeim fyrir
álíka þætti og það er mikilsvert,
því sjón er sögu ríkari, eins og
þegar hefur sýnt sig, þegar sjón-
varpið brá upp nokkrum ófögr-
um myndum af slæmri umgengni
í Reykjavík og Kópavogi fyrir
skömmu. Áróðurs- og áminning-
arherferðum verður ávallt að
fylgja nokkur fræðsla ef þær eiga
að takast sem skyldi, og það ætti
að vera auðvelt að gera margbátt-
aða fræðsluþætti um fegrun lands
ins.“
Einhliða notkun loft-
áburðar orsakar lial.
Jón Arnfinnsson sendir Landfara
eftirfarandi bréf og er ekki í vafa
um orsakir kalbletta:
„Mikið er rætt og ritað um kal-
skemmdir í túnum, sem ekki er
að ástæðulausu. Það liggur bert
fyrir af hverju kalskemmdir stafa.
Þær stafa af einhliða notkun loft-
áburðar. Gerlagróður jarðarinnar
sveltur og deyr, ef jörðin fær
ekki lífrænan ólburð. Þá kemur
það fram með þessum kalskell-
um.
Menn spyrja: Hvað á að gera?
Við eigum að auka þaramjöls-
framleiðsluna. Hætta að selja úr
Húseigendur
Glerísetning, uppkíttun,
gluggaviðgerðir o. fl.
Útvega efni.
Upplýsingar eftir kl. 8 í
síma 23341.
SMYRILL, Ármúla 7.
Sími 12260.
Nú er rétH tíminn til aS athuga rafgeyminn
fyrir sumarferðalögin
SÖNNAK RAFGEYMAR
— JAFNGÓÐIR ÞEIM BEZTU —
ViSurkenndir af Volkswagenverk A.G. í nýja
VW bíla, sem fluttir eru til Islands.
Yfir 30 mismunandi tegundir 6 og 12 v. jafnan
fyrirliggjandi — 12 mán. ábyrgS.
ViSgerSa- og ábyrgSarþjónusta SÖNNAK-raf-
geyma er i Dugguvogi 21. Sími 33155.
landi það sem framleitt er af ■
þaramjöli hér nú og nota það allt ,
innanlands. Þaramjöl er lífrænn a
áburður og fullnægir þör4 gerla- |
gróðursins. Taðan verður eínisrik 1
ari og þar af leiðandi hollara i
fóður. Þá mundi minnka kvillar íj
í kúnum. Síðan að aukin var notk- bj
un loftáburðarins hafa kýrnar 1
veikzt meir og minna og það farið \
vaxandi með ári hverju.
Notið þaramjöl í stað
loftáburðar
Það þarf að rannsaka næring-
argildi töðunnar vaxna við þara-
mjöl og vaxna við loftáburð. Kvill |
ar í kúnum mundi minnl?a ef tað- 1
an fengi lífrænan áburð. Það 9
hefði ekki einungis áhrif á kýrn- |
ar heldur einnig mannfólkið líka.
Það væri mikil nauðsyn að skipta 9
um áburð, hætta við loftáburðinn Ú
og nota þaramjöl í staðinn. Það 1
er sami vinnukraftur við að dreifa n
þaramjóli og loftáburði. Dreifi-
ingin getur farið fram í dreifara
líka. Menn eru alltof sljóir fyrir
þeirri hættu, sem því er samfara
að nota loftáburð.
Loftáburðurinn er gerviefni
sem smeigt er inn í hringrás lífs
keðjunnar og lífið nýtur þá ekki
sinnar tilætluðu efna. Það er sama |
og gefa okkur saltvatn fyrir feiti.“ §
Aths. Landfara.
Það hefur klingt í eyrum íbúa
á Suðurlandi í vor og sumar og
blasað við þeim á forsíðum dag-
blaðanna að það sé mikið kal í
túnum fyrir norðan. Hins vegar
virðist fólkið almennt vera orðið
sljótt fyrir þessum mikla frétta
flutningi af kalinu. Það hristir
hausinn yfir sífelldum „kalglymj-
andanum" og segir: „Það er
slæmt með kalið,“ en gerir sér
almennt enga grein fyrir því, þar
eð margir lesa aðeins fyrirsagnir
kalgreina í dagblöðunum og
hlusta með öðru eyranu á frétt-
ir, hvað um er að ræða. Þar held
ég að sjónvarpið eigi nokkra sök
að máli. Hvers vegna fór sjón-
varpið ekki í kalleiðangur norður
í land áður en starfsliðið fór í
sumarfri til þess að sýna lands-
mönnum j öllum svart á hvítu
hvernig ástandið væri. Það hefði
verið sjálfsögð skylda sjónvarps-
ins.
RADI@NEnE
Sjónvarpstækin skila
afburöa hljóm og mynd
FESTIVAL SEKSJOIM
Þetta nýja Radionette-sjón-
varpstæki fæst einnig með
FM-útvarpsbylgju. — Ákaf-
iega næmt. — Með öryggis-
læsingu.
ÁRS ÁBYRGÐ
Radionette-verzlunin
Aðalstræti 18, sími 16995.
eykur gagn og gleði
§
S
r..i
I
i
Politiken é sökina
Björn Jóhannsson, frétta-
stjóri Morgunblaðsins, sem einn
ig er fréttaritari Politiken hér
á landi, gefur í gær nokkrar
skýringar í Mbl. á furðufréttun
um, sem birtust um úrslit for-
setakosninganna í Politiken og
merktar honum. Björn segir m.
a.:
„Mig uiidrar ekki, að dálka-
höfundur Tímans hafi rekið
upp stór augu, þegar hann las
fyrrgreind atriði í fréttinni. Ég
efast þó um, að hann hafi orð
ið jafnforviða og ég sjálfur,
sem fréttin er þó kennd. f
frétt þeirri, er ég sendi Poli-
tiken um kosningaúrslitin er
hvergi minnzt einu orð á
fyrrgreind atriði. Er mér
hulin ráðgáta, hvaðan ritstjórn
Politiken hafa borizt þessar
upplýsingar. Ég hef afrit af
frétt • minni til Politiken í
fórum mínum, og er dálka
höfundi Tímans velkomið að
sjá það, ef hann vill“.
Þetta eru ánægjlgear upplýs
ingar og gott til þess að vita,
að þvættingurinn er ekki kom-
inn frá íslenzkum fréttamanni.
Það verður að teljast mjög
vítavert, ef þekkt og stórt er-
lent blað leyfir sér að brengla
af yfirlögðu ráði fréft, sem
því er send af fréttaritara sín-
um hér, bæta inn í hana ýms
um atriðum og rangfæra á
annan veg, og merkja hana
síðan stöfum fréttamannsins.
Hitt er þó raunar enn alvar-
legra, ef fréttamenn erlendra
blaða hér láta blöðunum hald
ast slíkt uppi mótmælalaust,
því að það býður nýjum af-
brotum heim. Góður fréttamað
ur eins og Björn Jóhannsson
getur ekki við slíkt unað eða
látið sverta fréttamannsheiður,
sinn þannig og vei hefði hann
mátt vera búinn að hreyfa mót-
mælum, þyí að með því að
þegja við þessu felldi hann
skugga á sig og blað sitt, þar
sem hann er yfirmaður frétta-
deildar. Og ef til vill væri á-
stæða til þess að Björn birti
fregnina eins og hann sendi
Politiken hana í Morgunblaðinu
eða léti Tímann fá hana til
birtingar, því að fullkomin á-
stæða er til þess að Politiken
verði sagt til syndanna. Ann-
ars liggur byrðin á Bimi.
Meiri rannsóknir
Morgunblaðið ræðir kal-
skemmdirnar í leiðara í gær og
drepur m. a. á rannsóknir, sem
gerðar hafa verið á Hvanneyri
og niðurstöður þeirra. Segir
síðan:
„Sjáifsagt er að bændur færi
sér niðurstöður þessara rann-
sókna í nyt. En þær minna
okkur einnig á nauðsyn þess að
öflug rannsóknarstarfsemi verði
rekin á sem flestum sviðum. f
þeim löndum sem lengst eru
komin, er stærstum hluta þjóð
artekna varið tii rannsóknar-
starfsemi á ýmsum sviðum. Er
talið, að á þann hátt verði
bezt tryggður framtíðarárang-
ur í atvinnulífi og bættur efna
hagur. Við fslendingar þurf-
um að efla rannsóknarstarfsemi
okkar á öllum sviðum atvinnu
lífsins. Og má þar sérstaldega
minna á rannsóknir varðamK
jarðiiita og vi'-kjun ónýttrar
orku í landinu.“
Undir þetta er ástæða til að
taka og jafnframt minna á,
hve framlag til rannsókna í
þágu atvinnuveganna hafa vax
ið lítið síðasta áratuginn.