Tíminn - 24.07.1968, Blaðsíða 5
MEDVIKUDAGUR 24. júlí 1968. TIMINN
1SPEGU TÍMANS
Þessi mynd er tekin í New
York skömmu eftir Miss Uni-
verse fegurðarsamkeppnina.
Þetta er sigurvegarinn Martha
Vaseoncellos, frá Brasilíu og
myndin er tekin á svölum
Hiltonhótelsins þar í borg.
*
Norðmenn fagna nú þeirri
miklu breytingu, sem orðið hef
ur á krónprinsi þeirra, síðan
hann trúlofaðist Sonja Harald-
sen. Henni hefur tekizt á stutt-
um tíma, það sem föður hans
hafði mistekizt og var hættur
að reyna — að fá Harald til
þess að sinna opinberum skyld
um konungsfjölskyldunnar.
Sem dæmi má nefna það, að
það er sagt, að áður en Harald
ur trúlofaðist hafi hann ekki
komið í norska þjóðleikhúsið
nema tvisvar sinnum, í annað
sinn til þess að setja Ólympíu-
leikana. En síðan hann trú-
lofaðist Sonju. kom hann allt
í einu í leikhúsið þrisvar í
einnu viku.
Listaverkasalar í Osló eru
einnig farnir að verða þeirrar
náðar aðnjótandi að sjá og tala
við krónsprinsinn, því að upp
á síðkastið hefur hann lagt leið
sína til þeirra og segja Norð-
menn að hann sé farinn að
festa peninga sína í annað en
það sem flýtur á vatni og hefur
hann keypt nokkur málverk til
þess að prýða með væntanlegt
heimili sitt.
En það, sem einna mest hef
ur komið á óvart, er sjón-
varpsviðtal við prinsinn. Þar
sagði hann, að áður fyrr hafi
hann látið sér nægja að lesa
dagblöðin og tímarit. En nú
væri hann farinn að lesa Ibsen.
Allar þessar breytingar þakka
Norðmenn Sonju, og vona nú,
að hún, sem er mjög vel klædd,
taki það næst fyrir hendur,
að breyta klæðaburði prinsins,
sem er að sögn fyrir neðan
allar hellur.
Nelson Rockefeller er sem
kunnugt er að berjast fyrir því
að verða útnefndur, sem for-
setaefni repúblikana í Banda-
Þegar Carlo Ponti giftist
Sophiu Loren, hét hann því,
að kaupa handa henni falleg-
asta hús í heimi. Þetta hús
fann hann svo í um það bil
þrjátíu kílómetra fjarlægð frá
Róm. í upphafi var það höll
frá því um fimmtíu fyrir Krist
en á fimmtándu öld byggði
rómverskur fursti við hana.
í húsinu eru fimmtíu herbergi
og mörg gólfanna eru lögð
mósaik, sem þrátt fyrir aldur-
inn er vel varðveitt. Baðkers-
kranarnir eru úr gullu og und-
ir húsinu er gamlar katakomb-
ur. í síðasta stríði bjuggu
Þjóðverjar í þessari höll og var
hún svo illa farin eftir búsetu
þeirra, að það tók þrjú ár að
gera við hana. Innanstokks-
munir þeirra Sophiu og Carlos
eru flest allt fornir munir,
elztu húsgögnin frá því um
sextán hundruð og yeggina
prýða listaverk frá öllum tíma-
bilum eftir alla þekktustu mál-
ara heims.
★
Bítlarnir hatnast við að
stofna hvert fyrirtækið á fæt-
ur öðru. Pyrir nokkru síðan
opnuðu þeir hárgreiðslustofu á
King's Road í London. Þar
eiga síðhærðir sveinstaular að
geta hætt sér inn til þess að
láta klippa hár sitt án þess að
eiga á hættu að hárskerinn
klippi of mikið.
*
ríkjunum. Hér sjáum við hann
á kosningafundi þar sem hann
er að ræða við kjósendur.
5
Á VÍÐAVANGl
50% umferð á
4% vegakerfisins
Það er talið, að um 30% af
allri umferð um vegi á íslandi
hvíli á aöeins um 1%% vega-
kerfisins og um helmingur um-
ferðarinnar hvíli á aðeins um
4% veganna. Vegirnir, sem
bera um helming umferðarinn-
ar, eru: Reykjanesbraut, vegur-
inn frá Reykjavík að Þjórsá,
vegurinn frá Reykjavík að Dals-
mynni, vegarkaflar við Akjir-
eyri, vegurinn milli Egilsstaða
og Lagarfljótsbrúar, vegurinn
að Akranesi, vegurinn að Borg-
arnesi og vegurinn miUi Reykja-
víkur og Þingvalla. Þessir vegir
eru um 400 kíiómetrar samtals
og aðeins Reykjanesbrautin ein
er með varanlegu slitlagi. Opin-
berar heimildir sýna, að við-
haldskostnaður á hvern ekinn
kílómetra hefur farið lækkandi
með hverju árinu, þrátt fyrir
hina stöðugu og sívaxandi um-
ferð um vegina. Það er því ekki
að furða að einmitt þessir vegir
sem hér hafa verið taldir, séu
einhverjir þeir verstu yfirferð-
ar. Umferðin um suma þessara
vega er orðin svo þung, að óger-
legt er með öllu að halda þeim
í sæmilegu horfi með malar-
ofaníburði. Þær tilrauuir, sem
gerðar hafa verið með olíumöl,
hafa gefið svo góða raun, að
fullkomlega eðlilegt virðist að
leggja olíumöl á þá vegi, þar
sem umferð fer ekki yfir
þúsund bíla á dag. Olíumölin
er langódýrasta varanlega slit-
lagið, sem góða raun hefur gef-
ið. Kostnaðurinn við að leggja
olíumöl á þessa vegi, án þess
að undirbyggja þá sérstaklega
nema í undantekningartilfellum,
er tiltölulega mjög lágur, og
sparnaður í viðhaldi þessara
vega réttlætir fullkomlega víð-
tæka notkuu olíumalar.
Molbúabúskapur
Ríkissjóður hefur haft liundr-
uð milljóna króna í tekjur af
bifreiðum og rekstrarvörum
þeirra, umfram það, sem lagt
hefur verið til vegamála. Hin
éðlilega stefna og sjálfsagða er
sú, að öllum tekjum af umferð
inni verði varið til vegakerfis-
ins, a. m. k. um nokkurt ára-
bil meðan verið er að leggja
hraðbrautirnar varanlegu slit-
lagi. Ef við hefðum gert þetta
á síðustu fimm árum, gætum
við nú ekið á breiðum og góð-
um vegi með varanlegu slitlagi
norður til Akureyrar og austur
að Þjórsá og unnið væri nú að
varanlegu slitlagi á þá vegar-
kufla, sem hér voru taldir að
ofan. Og við höfum vissulega
efni á því að búa við sæmilega
vegi og umferðin sjálf getur
staðið undir kostnaðinum. Síð-
ustu árin höfum við aðeins fjár-
fest um 1% tekna okkar árlega
í bjóðvegamannvirkjum. Á
sama tíma hefur viðhald veg-
anna verið undir %% af þjóð-
artekjunum. Til þjóðveganna
höfum við því samtals varið
undanfarin viðreisnarár innan
við IV2 % af þjóðartekjum.
— og menningar-
þ jóðfélög
Vestur-Þjóðverjar og Banda-
ríkjamenn verja nú árlega um
2,5% þjóðartekna sinna til þjóð
vega og skal þá haft í huga, að
þeir hafa búið við fullkomið
þjóðvegakerfi mn langt skeið.
Japanir gera ser einnig grein
fyrir því, að vegirnir eru undir-
staða iðnþróunanr og eyða nú
Framhald-a bls. 15.
J