Tíminn - 24.07.1968, Blaðsíða 14
14
TIMINN
'i 'mrr»rpn-^~i
1—11
MIÐVIKUDAGUR 24. júlí 1968.
LÖGTAK
Eftir kröfu skattheimtu ríkissjóðs í Kópavogi úr-
skurðast hér með lögtak. Verða lögtökin látin
fram fara án frekari fyrirvara, á kostnað gjald-
enda en ábyrgð ríkissjóðs að átta dögum liðnum
frá birtingu þessarar auglýsingar, fyrir eftirtöld-
um gjöldum:
Hækkunum á þungaskatti af díselbifreiðum skv.
lögum nr. 7 frá 1968 (vegalögum), sem féllu í
gjalddaga 1. júlí s.l., söluskatti 1. og 2. ársfjórð-
ungs og nýálögðum viðbótum við söluskatt eldri
tímabila, áföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti
og miðagjaldi, gjöldum af innlendum tollvöruteg-
undum, matvælaeftirlitsgjaldi og gjaldi til
styrktarsjóðs fatlaðra, skipulagsgjaldi af nýbygg-
ingum, almennum og sérstökum útflutningsgjöld-
um, aflatryggingasjóðsgjöldum, svo og trygginga-
iðgjöldum af skipshöfnum 1. og 2. ársfjórðungs
1968, ásamt skráningargjöldum.
Bæjarfógetinn í Kópavogi,
19. júlí 1968.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðar.
för móður okkar,
Sigríðar Grímsdóttur,
Krossavík, Vopnafirði.
Jörgen Sigmarsson,
Ingibjörg Sigmarsdóttir,
Bergþóra Sigmarsdóttir,
Björn Sigmarsson,
Gunnar Sigmarsson.
Þökkum hjartanlega öllum þeim er auðsýndu samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför,
Sigríðar Á. Björnsdóttur,
Grettisgötu 45a
Systkini og vandamenn.
Útför eiginmanns míns,
Þorbjörns Ingimundarsonar,
Andrésf jósum, Skeiðum,
fer fram frá Ólafsvallarkirkju, laugardaginn 27. júlí og hefst með
húskveðju að heimili hins látna kl. 13.30.
Ingigerður Bjarnadóttir.
Útför föður okkar, tengdaföður og afa,
Jónasar Jónssonar
frá Hriflu,
fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 26. júlí kl. 15. Blóm eru
vinsamlegast afþökkuð, en þeir sem vllja minnast hins látna er
bent á Hallgrímskirkju.
Fjölskyldan.
Útför
Bjarna Benediktssonar
frá Hofteigi
fer fram í Fossvogskapellu, föstudaginn 26. júlí kl. 10.30.
Adda Bára Sigfúsdóttir,
Sigfús Bjarnason,
Kolbeinn Bjarnason,
Benedikt Gíslason,
Geirþrúður Bjarnadóttir,
Sigríður Stefánsdóttir,
Sonur okkar og bróðir,
Gísli G. Axelsson,
Álfhólsvegi 43,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 25. júlí kl.
13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Flugbjörgunarsveit-
ina.
Guðrún Gísladóttir,
Axel Jónsson,
Jóhanna Axelsdóttir,
Þórhannes Axelsson.
„SUNDSKÁK"
Framhald af bls. 3.
Kr. Jónsson með 4. í sjötta sæti
var Norðmaður og verður þetta
að teljast ágætur árangur hjá
íslenzku taflmönnuinum, sérstak-
lega þegar til þess er tekið, að í
hópi gestanna voru margir sterk
ir skákmenn.
„Sundsfcák" var algjlörlega ó-
þokkt fyrirbrigði hér á iandi þang
að til sænsku gestirnir á mótinu
skoruðu á fslendingan’a 1 eina
slíka. Eitthvað mun „sundskák“
tíðkiast á Norðurlöndum, en hún
fer þannig fram, að þeir sem
tefla verða að troða marvaðann út
í miðri sund’laug með skákborð á
milli sín og tefla síðan eftir mætti.
Hver keppandi hefur tiu mínútur
til umráða og á meðan má hann
aldrei snerta botn sundlaugarinn
ar með fótunum né sleppa fingrun
um af sloákborðinu. Aðstoðarmaður
er út í lauginni meðan viðureign
in stendur og safnar hann leik-
mönnum sem felldir eru í þar til
gerða kassa. Engin vandkvæði eru
á því að hemja leikmennina á
skákborðinu þar eð þeir eru allir
úr segulstáli að neðan. Hins vegar
er öllu enfiðara fyrir keppendurna
að hemja sig í vatninu og balda
sér á floti.
„Sundskákirnar" voru tefldar í
sundlaug Loftleiðahótelsins og
vöktu þær mikinn fögnuð áhorf-
enda og hlógu menn dátt af til-
burðum keppendanna, þegar þeir
mörúðu í hálfu kafi og drógu
niður með sér taflborðið þannig
að flæddi yfir. Sigurvegari í „sund
skákinni" varð Anton Sigurðsson.
ÁSTANDIÐ VERSNAR
Framhald af bls. 1.
í byrjun fundarins flutti
Björn Halldórsson, framkv.stj.
skýrslu um sölu- og framleiðslu
mál. Sagði hann m.a. að nú
væri að skapast mjög alvariegt
ástand í frystiiðnaði lands-
manna. Orsakir þessa vœru
ei-nkum eftirfarandi:
1. Mikil vandræði, sem skap
azt hafa vegna söluerfiðleika
á skreið og saltfiski.
2. Stóraukin bolfiskafli í vor
eftir að vertíð lauk, sem leitt
hefur til aukinnar framleiðslu,
einkum á fiskblokkum.
3. Óvissa um viðbótarsölur á
fiski til Sovétríkjanna.
4. Verðlækkun á freðfisk-:
mörkuðunum.
5. Stórauknar fiskveiðar j
allra helztu fiskveiðiþjóða. i
6. Auknir ríkisstyrkir til fisk!
veiða og fiskverkunar hjá aðal;
keppinautum íslendinga.
Þessar breyitingar til hins
verra, að und'anteknum vanda-
málum skreiðarframleiðslunn-
ar, hafa gerzt síðan fjallað var
um starfsgrundvöll frystihús-
anna snemma þessa árs. Hjá
því verður ekki komizt, að
endurskoðia starfsgrundvöHinn
strax vegna hinna nýju og
breyttu viðhorfa.
Nú hefur verið framleitt upp
í svo til alla samminga. Hefur
því m.a. orðið að stöðva fram-
leiðslu heilfrysts smáfisks, en
miarkaðir eru takmarkaðir fyrir
þessa afurðategund.
Afli togaranna hefur verið
góður og hafa frystihúsin orðið
að taka á móti karfa til
vinnslu, þrátt fyrir mikið tap
á frystingu karfaflaka. Miklu
meiri fiskafli befur borizt á
land frá vertíðarlokum, en á
sama tíma í fyrra. Stafar það
m.a. af því, að fleiri fiskibátar
stunda nú þorskveiðar í stað
síldveiða. Samkvæmt nýjustu
upplýsingum eru 60 skip við
síldveiðar, samanborið við hátt
á annað hundrað á s.l. ári.
Vegna erfiðleika á skreiðar-
og saltfiskframleiðslu hefur
einnig stærri hluti aflans farið
í frystingu, og hefur því fram
leiðslan orðið mun meiri en
búast mátti við.
Mikið framboð frysts fisks
í Bandaríkjunum, m.a. vegna
góðrar vertíðar hjá Kan-ad'a-
mönnum, hefur léitt til sölu-
tregðu. Þá hefur tregða Rússa
til að semja um það magn, sem
gert var ráð fyrir að selt yrðl
á þessu ári, samkvæmt ramma
samningi við þá, aukið á erfið
leikana.
Gunnar Guðjónsson, stjórnar
formaður SH, skýrði frá við-
brö'gðum stjórnar samtakanna
vegna aðsteð'jandd vandamála.
Rikisstjórninni hefur verið
skýrt frá hinum nýju og
breyttu viðhorfum, og standa
nú yfir viðræðu.r um þessi
mál.
Samiþykkt var að fresta auka
fundinum meðan viðræðurnar
eiga sér stað.“
BIAFRA
Framhald af bls. 1.
skyndiárás.
Um þessar mundir eru um 300
tonn matvæla á leið frá Lagos til
Calabar í námunda við Biafra.
Eru matvælin flutt á birgðaflutn-
ingabílum Nígeríuhers en undir
eftirliti Rauða Krcssins. Talsmað-
ur Rauða-Ki-ossins hefur sagt, að
flutningabíll með matvæli og lyf
komi til Ikmthekpene á morgun,
en í því er hungursneyðin einna
alvarlegust.
Samþykkt hefur verið dagskrá
friðarviðræðnanna milli Nígeríu
og Biafra, sem fram eiga að fara
í Addis Abeba innan skamms, en
þó hefur ekki verið gengið frá
henni í smáatriðum. Leiðtogi
sendisveitar Sambandsstjórnar-
innar, Allison Ayida, fór á sunnu
dag til Lagos til þess að gefa
Gowon hershöfðingja skýrslu um
viðræðurnar. Sagt var í Lagos í
dag, að Sambandsstjórnin hafi
lýst því yfir að Alþjóða Rauði
Krossinn væri bezt til þess fall-
inn að annast neyðarhjálpina til
Biafra. Einnig er sagt að Nígeríu
stjórnin sé þess albúin að opna
birgðaflutningaleið um sitt land-
svæði til Biafra.
Ojukwu hershöfðingi, leiðtogi
Biafra, sagði á sunnudag, að hægt
yrði að koma á vopnahléi áður
en hinar formlegu friðarviðræður
bæifust í Addis Abeba.
ÞOTUKAUP
Framhald af bls. 16
Ég minnti á það í hádegisverðar
erindi, sem ég hélt á fundi Verzlun
armannafélags Reykjavíkur hinn
30. sept. s. 1., að svarsins við
spurningunni urn framtíð íslend-
inga í Norður-Atlantshafsflu'ginu
væri e. t. v. fyrst og fremst að
leita i okfcar eigin skilningi og
viðuiikenningu annarra á þeirri
staðreynd, að rökstuðningur Loft
leiða fyrir lágu fargjöldunum
hlyti að verða má'lstaður íslands,
þar sem íslenzkar flugvélar í flugi
yfir Norður-Atlantshafið yrðu að
vera lengur á leiðinni milli brott
farar- og áfangastaða en flug-
vé'lar annarra vegna viðkomunnar
á íslandi.
Ég hef nýlega fengið tö’lur, seffi
eru mjög fróðlegar fyrir þá, sem
eru svo bláeygir að trúa því, að
allur vandi íslendinga leysist með
þotukaupum til samkeppni á flug
leiðunum milli Evrópu og Amer
íku.
Þota af gerðinni DC-8 flýgur á
sjö klst. og 24 mín. frá London
til New York, en þaðan til Lond
on á sex klst. og sjö mín. Meö
viðkomu og klukkutíma viðdvöl á
íslandi fer þessi sama þota vest-
ur á níu klst. og fjórum mín.,
en austur á átta klst. og sjö mín.
Hér munar 22% á vesturleið, en
32% á austurleið, eða að meðal
tali 27%.
Krafan um lægri fargjöld með
íslenzkum fluigrvélum á þessuim
flugleiðum á, af þessum sökum
þann náttúrlega rökstuðning, sem
fólginn er í því, að vekja athygli
á þeirri einföldu staðreynd, að
vegna viðkomunnar á íslandi
hljióta þær að vera Ienvgur á leið-
inni en hinar, sem fljúga beint
til áfangastaða sinna austan hafs
eða vestan.
Krafa um lá'g fargjöld er þess
vegna ekki eingöngu hið gamla
réttlætismál Loftleiða. Hún hlýt-
ur að vera hin síunga krafa íslend
inga um tryggingu fyrír því, að
lega landsins fyrirmuri okkur ekki
að taka á jafnræðisgrundveli þátt
í baráttunni fyrir því að fá að
hald'a þeim libla en lífsnauðsyn-
lega hundraðshluta, sem við njót
um í dag af farþegaflutningunum
yfir Norður-Atlantshafið.
TÉKKAR
Framihald af bls. t
við landamæri Tékkóslóvakíu.
Heræfingum þessum stjórnar
Ivan K. Bagramjan marskálk-
ur, en að sögn Isvetsjia eiga
þær að standa yfir til 10. ágúst
n. k. í Moskvu er fullyrt, að
aldrei hafi birzt sambærileg
tilkynning í rússneskum blöð-
um og tilkynning Isvetsjia um
heræfingarnar. í Prag er litið
á þetta sem einn liðinn í ,tauga
stríði" Sovétmanna gegn Tékk
um. Sérstaklega er bent á þá
staðreynd, að varaliðið flytur
til landamæranna gífurlegar
birgðir af bensíni fyrir her-
vagna, flugvéla og flutninga-
bíla, einnig skotpalla fyrir eld
flaugar, tæki til flugvallagerð-
ar og ýmislegt fleira sem bend
ir til þess að Sovétstjórnin
muni hugsanlega geta gripið
til umfangsmikilla hernaðarað
gerða fari viðræður út um þúf
ur.
Um leið og tilkynning Isvet
sjia var birt var skýrt frá því
í Prag, að enn væri margar
rússneskar herdeildir í Tékkó
slóvakíu.
Langur aðdragandi getur orðið
að viðræðum.
Tékkóslóvakía og Sovétríkin
hafa enn ekki komið sér sam-
an um hvenær viðræður milli
ríkjanna skuli hefjast. Ekki
hefur heldur verið tekin
ákvörðun um stærð sendinefnd
anna, sem ræðast eiga við eða
fundarstaðinn. Haft er eftir á-
reiðanlegum heimildum, að
undirbúningur viðræðna geti
tekið marga daga, því að enn
eru þjóðirnar aðeins sammála
um eitt atriði — að fundinn
eigi að halda. Æðsta
stjórn kommúnistaflokk-
anna tveggja er tékkneska for
sætisnefndin og rússneska
framkvæmdaráðið, en í hvoru
um sig eiga sæti 11 ráðamenn.
Rússneska stjórnin er sögð
krefjast þess að þessar tvær
nefndir ræðist við fullskipað-
ar. Það hefur hinsvegar ekki
fallið í kramið hjá Dubcek,
þar sem að hann á aðeins vís-
an fullan stuðning 5 fulltrúa
forsætisnefndarinnar. Hinir
fimm eru sagðir vilja einskon-
ar samkomulag og undanslátt
við sjónarmið Rússa, en sagt
cr að vilji og hrifning á breyt-
ingum í lýðræðisátt meðal al-
mennings í Tékkóslóvakíu geti
haft áhrif á afstöðu þeirra. Sá
sem nelzt hefur orð fyrir fimm
menningum þessum heitir Dra
homir Kolden. en hann hefur
ekki verið valinn á næsta
flokksþing, sem halda skal í
september. Sagt er að Dubcek
vilji helzt t'ara til fundarins
við Sovétmenn með hina
fimm tryggu stuðningsmenn
sína innan forsætisnefndarinn
ar og er þetta atriði líklegt til
þess að gera undirþúning við-
ræðnanna erfiðan.