Tíminn - 27.08.1968, Page 14
/
\
14
TIMINN
ÞRIÐJUDAGUR 27. ágúst 1968.
FRELSISSKERDING
Framhald af bls. 1
riða né fregnir um að herlið Var
sjárbandalagsríkjanna eigi að vera
staðsett til frambúðar á landamær
!im Tékkóslóvkíu og Vestur-
Þýzkalands, fengust staðfest af
opinberri hálfu í dag. Fjölmiðl
unartæki í Sovétríkjunum skýrðu
ekki frá viðræðunum í dag.
★ Sovézkar eða aðrar opinberar
heimildir hafa ekki staðfest þær
fregnir sem borizt hafa eftir öðr
um leiðum, að leiðtogar ríkjanna
fjögurra sem ásamt Sovétríkjun
um gerðu innrás í Tékkóslóvakíu,
þeir Walter Ulbricht, Wladislav
Gomulka, Janos Kadar og Todor
Sjikov séu komnir til Moskvu.
Talið er að leiðtogamir hafi kom
'ið til Moskvu á sunnudag ti< þess
að taka þátt í toppfundinum.
-ár Talið er að við heimkomu
tékknesku ráðamannanna til Prag
'muni verða birt þar nákvæm yfir
lýsing um samkomulagið og um
.framtíð Tékkóslóvakíu. Hinsvegar
er aðeins búizt við stuttri yfirlýs
’ingu I Pravda i fyrramálið.
★ Reyndir fréttaskýrendur á
Veshirlöndum efa það mjög að
hinum frjálslyndu tékknesku leið
togum hafi tekizt að bjarga um-
bótastefnu sinni. Það er hald
margra að vissulega yrðu orðin'
,,breytingar í lýðræðis- og frjáls
ræðisátt" og „frelsi“ notuð áfram
í Tékkóslóvakíu en þýðing orð
anna yrði varla sú sama og þegar
Dubcek tók við völdum í janúar [
s. I.
*iír Fundi Öryggisráðsins sem
halda átti í kvöld var frestað.
•fr Kanadíska ályktunýi um að
U Thant skuli senda sérlegan
sendimann sinn til Prag til þess
að reyna a'ð tryggja "öryggi tékkn
eskra leiðtoga er enn á dagskrá
ráðsins, en heimildir í aðalstöðv
um SÞ herma að ályktunin verði
ekki tekin tíl umræðu gegn vilja
Tékka.
. i? Allþjóðasamlband flutninga-
verkamanna gaf í dag út þá skip
un að frá og me'ð mi'ðnætti á
þriðjudag væri í gildi bann á alla
gerðu innrás í Tékkóslóvakíu.
flutninga frá löndunum fimm sem
Verkbannið nær til verkamanna
á Vesturlöndum og Japan. Sam
bandið hefur ákveðið að stöðva
alla flutninga með járnbrauturr,,
og land- sjó- og loftleiðis frá Sovét
ríkjunum AusturjÞýzkalandi, Pól
landi Búlgaríu og Ungverjalandi
í mótmœlaskyni við hernám Tékkó
slóvakíu.
☆ Forsætisráðherra Breta Har
old Wilson, rísaði í dag á bug
hugmyndinni um efnahagstegar
mótmælaaðgerðir gegn innrásar-
löndunum 5.
-£? Fréttaritari NTB í Prag Ole
Sippel, skýrði frá því í dag að
yfirmenn hernámsliðsins herði nú
reipið að hinum tékkneska höfuð
stað æ meir. Kl. 5 í dag var út-
göngúbann gengið í gildi í Prag
og er borgin algjörlega sUtin úr
tengslum við umheiminn. Rússarn
ir leyfa engum að fara inn eða
út fyrir borgarmörkin. Landa-
mærahlið voru opnuð aftur á
sunnudaginn en þeim hefpr nú
verið lokað á ný. Síma- og fjar
skipti milli Prag og útlanda var
nær algjörlega rofi'ð.
☆ Menn og konur, sem báru
tékkneska fánann brustu í grát
við útför 27 ára gamals Tékka,
sem sovézkur bryndreki ók yfir
s. 1. miðviíkudag í Prag. Útförin
v^r gífurlega fjölmenn. Meðan
gremjan og hatrið í garð innrásar
sveitanna jókst um alla Tékkó
! slóvakíu söfnuðust hundruð
manna til rómversk-koiþólsku kap-
ellunnar í Strasniee-kirkjugarðin
um í Prag til þess að fylgja til
hinztu grafar fyrsta fórnarlambi
hernámsins. Yfirkominn af sorg
missti einn viðstaddra stjórn á
sér'og var hann borinn út af vin
um sínum en á leiðinni hrópa'ði
hann til vestrænna blaðamanna
ljósmyndarg: ,Segið heiminum að
við hötum Rússana. Segið heimin
um sannleikann. Segið heiniinum
frá því hvað hér er að gerast".
í Prag skutu sovézkir her-
menn á þrjá ráðherra þegar þeir
yfirgáfu þjóðþingsibygginguna í
kvöld. Hin ,frjálsa“ útvarpsstöð í
Mið-Bæiheimi skýrði frá því að
Sonur okkar,
Haraldur Þórðarson
Ásenda 5,
iézt sunnudaginn 25, ágúst.
Unnur Haraldsdóttir,
Þóróur Kristjánsson,
Konan mín,
Ingiríðar Eyjólfsdóttir,
Yzta-Bæli, Austur-Eyiafjölium,
andaðlst að heimili sínu aðfaranótt 25. þ. m. Fyrir mína hönd og
annarra vandamanna,
Ingimundur Brandsson.
Jarðarför
Sigurðar Böðvarssona r
frá Sólbergi í Höfnum,
fer fram frá Kirkjuvogskirkju miðvlkudaginn 28. ágúst kl. 2 e. h.
Börn hins látna.
Jón E. Oddsson,
Lunansholti, Landssveit,
andaðist að heimili sfnu sunnudaglnn 25. ágúst.
Dætur hins látna.
Maðurinn mínn,
Ólafur Gestsson
frá Efri-Brúnavölium, Skeiðum
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 29. ágúst kl.
3. Blóm vinsamiegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans
er bent á líknarstofnanlr.
irsina hönd og annarra vandamanna,
Slgríður Jónsdóttir, Garðsenda 3.
ríkisstjórnin hefði þegar sent mót
mælaorðesndingu þar sem krafizt
var að opinberar byggingar í
Tékkóslóvaldu væru virtar af
hernámsliðinu. Ráðherrarnir þrír
sem skotið var á voru Josef
Krejci, ea hann fer með málefni
þungaiðnáðarins Frantisec Penc
námumólaráðherra og Frantisek
Rehak samgöngumálaráðherra.
FJÁRBORG
Framhald af bls. 3.
verið frágengið í dag.
Fjáreigendur sögðu frétta-
manni blaðsins í dag, að þeir
hefðu loforð um að kofarnir
mættu standa f tvö ár enn,
hvaða lagaleg forsenda er svo
fyrir því.
Búið var að koma með krana
til að fjarlægja húsin, en eins
og áður segir, varð ekkert af
aðgerðum, í dag a.m.k.
BRUNI í KÓPAVOGI
Framhald af bls 3.
metra vegalengd frá Breiðholts-
vegi, og ennfremur var vatn sel-
flutt á slökkviliðsbílum.
Fljótlega féllu hús trésmiðj-
unnar, en slökkviliðsmenn unnu
að því að slökkva í rústunum
fram eftir morgni, Eldsupptök
eru ókunn.
Á trésmiðju Kristins Ragnars-
sonar var unnið að því að smíða
eldhúsinnréttingar og fleira í fjöl
býlishús Framkvæmdanefndar
byggingaáætlunar.
Þá varð annar bruni á laugar-
daginn, ekki mjög fjarri trésmíða
verkstæðinu í B götu 6 í Blesu-
gróf, en þar er bílasprautunar-
verkstæði. Urðu Talsverðar
skemmdir af eldi þar.
STRAND
Frámbald af ftls 3
þurftu Sædísarmenn ekki á hjálp
áð ‘halda, því að kl. 9 um morg-
uninn losnaði báturinn af sjálfs-
dáðum og reyndist hann lítið eða
ekkert skemmdur.
Sædís frá Bolungarvík er 16
tonna vélbátur og er á henni 9
manna áhöfn.
BYGGINGADAGUR
Framhald at bts 16
lestrar um húsakost í nútíð og
framtíð og um notkun húsakosts.
Eftir hádegið munu svo gestir
skoða sig um í borginni og heim
sækja einkaheimili síðari hluta
dagsins.
HÖFNUÐU KAUPTILBOÐI
Framhald af bls. 16.
afar lítill markaður fyrir þessa
flugvélategund.
Svo sem kunnugt er hafa RR
400 vélar Loftleiða nú leyst DC
6 vélarnar algjörlega af hólmi.
Það átti 5 slíkar vélar, en hef-
ur aðeins tekizt að selja eina,
en tvær eru á leigu hjá hol-
lenzku flugfélagi.
Rauði krossinn í Svíþjóð er
sennilega ekki búinn að taka á-
kvörðun um leigutilboð Loft-
leiða, en svars er að vænta inn
an mjög skamms.
VERZL.SAMNINGUR
Framhald af bls. 16.
Fréttatilkynning utanríkis-
ráðuneytisins um samninginn
fer hér á eftir:
Hinn 17. þ. m. kom til Reykja
víkur samninganefnd frá Sovét
ríkjunum undir forystu A. N.
Manzhulo, forstjóra Vestur-
landadeildar utanríkisviðskipta-
ráðuneytisins í Moskva, til þess
að semja um nýtt viðskiptasam
komulag milli íslands og Sovét
ríkjanna fyrir árin 1969—71,
en slíkir samningar hafa verið
gerðir síðan 1953. Viðræður
hafa síðan farið fram milli
sovézku nefndarinnar og ís-
lenzkrar samninganefndar und
ir forystu Þórhalls Ásgeirsson-
ar, ráðuncytisstjóra.
í dag var nýtt þriggja ára
samkomulag undirritað, og gild
ir það frá 1. janúar 1969 til
31. desember 1971. Viðskipti
landanna verða áfram á jafn-
keypisgrundvelli og var samið
um svipaða árlega vörulista og
vörumagn eins eg í núverandi
samkomulagi, sem gildir til 31.
desember 1968.
Vörur þær, sem ráðgert er,
að ísland selji til Sovétríkjanna
á samningstímabilinu eru: Hrað
fryst fiskflök, heilfrystur fisk-
ur, fryst síld, saltsíld, niðursoð
ið og niðurlagt fiskmeti, prjón
aðar ullarvörur, ullarteppi og
ýmsar iðnaðarvörlur. Sovétrík
in munu hins vegar aðallega
selja til fslandS: Benzín og
brennsluolíur, timbur, járn
og stálvörur, jarðstreng, rúg-
mjöl, kol og koks, gler, hjól-
barða, bifreiðar, vélar, áhöld og
tæki. »
Samkomulagið var af íslands
hálfu undirritað af Emil Jóns-
syni, utanríkisráðherra, en af
hálfu Sovétríkjanna af A. N.
Manzhulo, formanni sovézku
sendinefndarinnar.
SUF-ÞING
Framhald af bls. 16.
gert ráð fyrir samfelldum erind
rekstri áfram. í skipulagsmálaá-
lyktuninni segir m. a., að próf-
kjör eigi að vera undanfari á-
kvarðana um framboð á vegum
flokksins. Þá var ályktað, 'að birta
eigi reikninga flokksins opinber-
lega. Mikil gagnrýni kemur fram
í ályktuninni á starfsemi stjórn-
málaflokkanna undanfarin ár.
Á sunnudagsmorgun hófust þing
fundir kl. 10, og stóðu til kl, 16,
en þá hafði afgreiðslu mála verið
lokið.
Jónas Jónsson, Akranesi, hafði
framsögu fyrir áliti verkalýðs- og
samvinnumálanefndar. Ólafur R.
Grímsson hafði framsögu fyrir á-
liti stjómmálanefndar, »g þeir
Friðgeir Björnsson, Indriði Ketils
son og Sigurður Geirdal töluðu fyr
ir áliti atvinnumálanefndar. Loks
hafði Björn Teitsson framsögu fyr
ir áliti menntamálanefndar.
Stjórnarkjör.
Framkvæmdastjórn SUF næsta
kjörtímabil, sem er tvö ár, varð
sjálfkjörin, og skipa hana eftirtald
ir menn: Baldur Óskarsson, Reykja
vík, formaður, Björn Teitsson, S,-
þing., ritari, Már Pétursson, Rvík.,
gjaldkeri, Sigurður Geirdal, Kópa-
vogi, varaform., og meðstjórnend-
ur: Garðar Hannesson, Árnessýslu,
Ilermann Einarsson, Vestm.eyjum,
Þorsteinn Ólafsson, Rvík, Ólafur
R. Grímsson, Rvík, Daníel Hall-
dórsson, Rvík, Georg Ólafsson,
Rvík, Davíð Aðalsteinsson, Mýra
sýslu og Páll R. Magnússon, Rvík.
í varastjórn sitja: Friðgeir
Björnsson, Rvík, Páll Lýðsson, Ár
nessýslu, Eiríkur Tómasson, _Kópa
vogi, Ólafur Þórðarson, V-ísafj.-
Karl Steingrímsson, Akureyri, Guð
mundur Guðmundsson, Árnessýslu,
Magnús Ilaraldsson, Keflavík og
Jónatan Þórmundsson, Rvík.
Hátíðarfundurinn.
Kl. 17 í gær hófst lokaþáttur
þinghaldsins, en það var hátíðar
fundur I tilefni af 30 ára afmæli
SUF. Fyrst flutti Ólafur Jóhann
esson, formaður Framsóknarflokks
ins, ræðu, sem birtist í blaðinu í
í dag. Þá las Indriði G. Þorsteins
son upp kafla úr bók sinni, Þjófur
í paradís. Kristján Ingólfsson,
skólastjóri á Eskifirði, talaði í
minningu Jónasar Jónssonar frá
Hriflu, og vottuðu fundarmenn hin
um látna skörungi virðingu sína
með því að rísa úr sætum. Guðný
Guðmundsdóttir lék á fiðlu við
píanóundirleik Láru Rafnsdóttur,
og siðar lék L^ra einleik á píanó.
Sigurður Guðmundsson, formaður
Sambands ungra jafnaðarmanna,
flutti gagnmerka ræðu. og verðiíf
hennar getið síðar. Þorsteinn Gunn
arsson, leikari, las upp kafla úr
Eldur í Kaupinhafn eftir Halldór
Laxness. Jóhannes Elíasson, banka
stjóri og íyrrverandi form. SUF.
flutti ræðu, og að lokum sleit Bald
ur Óskarsson, nýkjörinn formaður
SUF tólfta þingi samtakanna og
afmælishátíðinni. Fundarstjóri á
hátíðarfundinum var ungfrú Guð
ríður Eiríksdóttir frá Kristeesi.
Þessi hátíðarfundur heppnaðist
svo vel, að engum mun úr minni
líða, sem hann sótti. Fór þar
saman frábær túlkun listafólksins
og skörulegur ræðuflutningur, þar
sem fram kom ýmislegt óvænt.
SKRIÐUR
Framhald aÆ bls. 16.
inum. Á veginum út í Ketildali
féll skriða mitt á milli Bíldudals
og Hvestu, og lokaði hún einnig
veginum. Var fljótlega ýtt af þess
um vegum. í fjallinu á móti Bíldu
dal félþi tvær skriður, en náðu
ekki að valda spjöllum á veginum.
Alvarlegast var þó að tvær skrið
ur féllui úr fjallinu fyrir ofan Bíldu
dal. Önnur þeirra olli ekki skaða,
en hin féll þvert í gegn um þorp
ið, og olli allverulegum landspjöll
um, og má mildi kallast að ekki
hlauzt alvarlegt slys af. Féll skrið
an rúmlega þrjátíu metra breið,
þar sem hún er breiðust ofan úr
fjallinu, og yfir allstórt tún, sem
liggur á milli tveggja nýbyggðra
einbýlishúsa. Síðan yfir aðalgötu
þorpsins, og áfram hjá húsinu
Lækjarmóti niður allmikið tún,
sem tilheyrir því húsi, yfir landa
merkjagirðingu Lækjarmóts og
Vinamóts, niður tún beggja hús-
anna og niður í fjöru. Er ljótt að
sjá grösug tún þakin aur og
grjóti, sumsstaðar stórgrýttu. Við
annað einbýlisiiúsið féll skriðan al
veg með girðingu, og á einum stað
inn á lóðina. Alvarlegast tjónið
varð þó hjá Þórði Ólafssyni á
Lækjarmóti, en hann missti að
heita má, alveg annað tún sitt og
stóran hluta þess neðra. Þórður
sem er 75 ára gamll, og hefur
um árabil haft póstflutninga í
Arnarfirði með höndum, hefur
þarna smábú með rúmlega 20 ám.
Hann var búinn að hirða heyið af
efra túninu, en missti nokkra hesta
af heyi á því neðra. Girðingar hjá
honum eru allar stórskemmdar,
eða ónýtar, þvottahjallur ónýtur,
og hænsnahúsið umlukið metra
hárri skriðunni, sem féll aðeins
um eitt fet frá fjárhúsunum. Hluti
skriðunnar féll á horn íbúðarhúss
Þórðar, en olli ek'ki skemmdum,
en húsið er af hálfu leyti umlukið
aur. Talið er að ekki sé rétt að
hreyfa við skriðunni um tíma, af
hættu við aðra skriðu. Á sunnudag
inn hélt rigningin áfram, en ekki
féllu þá neinar skriður svo vitað
sé.
VEGASKEMMDIR
Framhald af bls. 1
timabili. Svalbælisá flæddi yf
ir veginn austan við Þorvalds
eyri og braut skarð í hann.
Horfði svo um tíma sem hún.
myndi flæða yfir túnið á Þor
valdseyri, en svo fór þó ekki.
Hins vegar var víða allt lág-
lendi undir vatni, og talið er,
að fé er var á beit á hólmum
og víðar hafi flætt, en óvíst
er hversu margt það hefur
verið. Eins urðu miklar
skemmdir á heyjum á þess
um slóðum.
Þá fór Kaldaklifsá út far-
vegi sínum og rann vestur m»ð
Suðurlandsvegi, og við sam-
komustaðinn Njálsbúð í Vestur
Landeyjum fór úr bníarfyllin®
og víðar á Suðurlandi urðu
minniháttar skemmdir. Veca
ger'ðarmenn fóru þegar á stúf
ana i morgun os kl. 10 í gær
kvöldi var Suðurlandsvegur að
mestu fær, oe í dag er allt kom
ið í samt lag.
Víðar hafa orðið talsverfiar
vegaskémmdir vegna nrKomu.
M. a. skemmdust vegirnir yfir
Dragháls og Uxahryggi.
Þá munu hey víða hafa
skemmzt, t. d. skammt frá
Hveragerði. Mun tjónið mikið.