Tíminn - 17.09.1968, Blaðsíða 7
ÞRIBJUDAGUR 17. sept. 1968
TIMINN
FEHEYJAR AÐ SOKKVA
JV0^01 cl 1' er u 3ð sökkva í
^ hafið, að vísu
hægt, en ekki er nokkur vafi
hver endalok borgarinnar verða
ef ekki verður gripið til ein-
hverra róttækra ráðstafana.
Vatnið í sikjunum. sem liggja
um borgina og í lóninu, sem
umlykur hana stígur um þrjá
sentímetra á hverjum 10 árum.
Og menn óttast að yíirborð
vatnsins taki að hækka örar.
f fyrsta lagi verða nú oftar
flóð á þessu svæði en áður með
þeim afleiðingum að grunnar
bygginganna, bæði þeir sem eru
undir yfirlborði vatnsins og þeir
er standa á þurru landi hrynja
nú tíðar en verið ihefur til
þessa. í vorflóðunum og of-
viðrinu. sem þeim fylgdi, 1966,
kom IV2 m vatns í öll (hús í
eneyjum.
í öðru lagi flytur siífellt
fleira fólk úr húsum sínum.
Þar af leiðandi ganga þessar
bygigingar enn fyrr úr sér. Sig
endumir eiga sífellt erfiðara
með að afla fjár til að standa
undir kostnaði af viðhaldi. Við-
haldskostnaður húsa, er standa
í vatni. er eðlilega meiri en
þeirra, sem byggð eru á þurru
landi. Jafnvel margar hinna
glæisilegu halla hins forna að-
als við aðalsamgönguæð Fen-
eyja, Canal Grande sem liggur
í s-boga gegnum borgina, standa
nú auðar, vegna þess að það
kostar of fjár að halda þeim
íbúðarhæfum.
Einnig flytja sífeTlt fleiri Fen
eyjabúar úr borginni eftir því
sem hún sekkur í.sæ. Það þarf
stórt átak ef takast á að koma
í veg fyrir að Feneyjar eyði-
leggist. Arlega flytja 1500-2000
manns til meginlandsins. Fyrir
aðeins 40 árum voru íbúarnir
yfir 200,000 en nú eru þeir
aðeins 130,000.
Ýmsir þeirra sem flytjast
burt fá atvinnu í nágirenni
sinna nýju heimkynna oft í
sömu starfsgrein og þeir stund
uðu áður. því að mörg iðnaðar
fyrirtæki flytja einnig starf-
semi sína frá Feneyjum. Það
hafa meira að segja ýmsar gler
vöru- og knipplingaverksmiðjur
gert, en þessar starfsgreinar
hafa átt sinn þátt í aliheims-
frægð borgarinmar.
Aðrir vinna áfram í Feneyj-
um og við það aukast enn sam
gönguvandámálin í borginni,
því þeir verða tvisvar á dag að
fara um 'hina fjögunra kíló-
metra löngu brú, sem tengir
eyborgina við meginland Ítalíu.
Feneviar ver®a ekk* íátnar
J J sökkva í sæ, ef
þingmaðurinn og Rómarbúinn.
Augusto Premoili fær nokkru
ráöið. Þótt hann væri búsettur
í Róm tókst honum að sigrast
á átthagahollustu Feneyjabúa
og hlaut þar kosningu til þings.
Aðeins tveir írambjóðendur í
Feneyjum komast á þing, og
því liggja örlög borgarinnar
signo-r Premoli þungt á hjarta.
Hér er mikið í húfi og hefur
Premoli gert áætlanir um að-
gerðir til bjargar borginni, sem
hann ætlar að leggja fyrir þing
ið.
Fyrst og fremst leggur hann
til að ítalska ríkið styðji þá
húseigendur fjárihagslega, sem
vilja endurbyggja og gera upp
húseignir sínar. Slík aðstoð hef
ur áður verið veitt t.þ.a. varð-
veita byggingar, sem hafa
menningarlegt gildi frá sögu-
legu sjónarmiði og hvað húsa-
gerðarlist snertir. f Vecenza
ekki langt frá Feneyjum hefur
ríkið veitt aðstoð til að varð-
veita um 300 gömul einbýiis-
hús. Sum þeirra eru teiknuð af
Pallado og nemendum hans. og
eru perlur á sviði húsagerðar-
listar, og hafa verið sígildar
fyrirmyndir arkitekta fram á
Yfirborð síkjanna hækkar, húsin verða æ hrörlegri og íbúar Fen-
eyja flytja á brott. Þessi þróun verður hægt en stöðugt og mikið
átak þarf til að sigrst á henni.
okkar tíma 400 ár eftir að þau
vo'ru reist.
Iíann mælir einnig með því,
að alþjóðtegum og erlendum
stofnunum. sem óska að fá að-
setur á Ítalíu, og hingað til
hafa einkum fengið hús og lóð
ir í Róm og öðrum stórborgum,
verði framvegis í auknum mæli
bent á Feneyjar. Þeim verði
t.d. boðnar til afnota hallirnar,
sem standa auðar meðfram Can
al Grande.
Þá berst þingmaðurinn einnig
fyrir því, að komið verði í fram
kvæmd áætlun um neðanjarð
argöng frá Feneyjum til Marco
Polo flugvallarins á meginland
inu. og að innlendir og erlend-
ir sénfræðingar vinni að fram-
búðarlausn í sambandi við
hækkun vatnsyfirborðsins og
rannsóknum þar að lútandi e.
t.v. í samvinnu við Menningar-
sjóð Evrópu, en varðveizla Fen
eyja er eitt af fimm meginverk
efnum. sem fé sjóðsins er veitt
til.
Auk þessara aðgerða ríkis-
ins vill Premoli að borgaryfir-
völdin standi fyrir herferð í
því skyni að lengja ferðamanna
tímabilið. Það stendur í aðeins
fjóra mánuði. Þann tíma eru
gistihúsin yfirfull. En hinn
hluta ársins eru þau hálfauð
eða auð. Margir Feneyjabúar
verða að iifa af því, sem þeir
vinna sér inn þessa fjóra mán-
uði allán ársins hring. Þess
vegna er verðlagið tiltölulega
hátt. Það mundi náttúrulega
jafnast ef ferðamenn sæktu
einnig' til borgarinnar að vetr-
arlagi.
En Feneyjum er ekki ætlað
að verða eingöngu ferða-
mannaborg, á það leggur Pre-
moli ríka áherzlu. Borgin má
ekki verða eins konar safn. Það
þarf að endurskapa lifandi
borg — þótt Premoli láti sig
raunar ekki dreyma um að
Feneyjar hljóti aftur sitt forna
veldi, sem náði hámarki á 15.
öld.
ítalskur þingmaður hefur gert áætlanir um björgun og varð-
veizlu hinnar fornfrægu borgar, sem hefur síki í stað gatna
TAKIÐ EFTIR - TAKIÐ EFTIR
Hausta tekur í efnahagslífi þjóðarinnar. Þess
vegna skal engu fleygt en allt nýtt. Talið við
okkur, við kaupum alls konar eldri gerðir hús-
gagna og húsmuna, þótt þau þurfi viðgerðar
við. — Leigumiðstöðin, Laugavegi 33, bakhúsið.
Sími 10059. — Geymið auglýsinguna.
[r r 1
SKARTGRIPIR
UV/L IV^LL^LL
BÆNDUR
Ungur piltur, sem ætlar á
búnaðarskóla á næsta
ári, óskar eftir vinnu á
góðu sveitaheimili.
Tilboð sendist afgreiðslu
blaðsins f. 30. þ.m., merkt:
„Sveitavinna — Skóli.
Kennsla
í ensku, þýzku, dönsku, sænsku, frönsku, reikn-
ingi og bókhaldi. Hægt er að læra tungumál á
einum vetri í einkatímum. Talæfingar einnig
með segulbandstækjum. Aðstoð við skólafólk.
Skóli Haraldar Vilhelmssonar,
Baldorsgötu 10. Sími 18128.
. Modelskartgripur er gjöf sem ekki gleymist. — Haukur Davíðsson hdl.
- SIGMAR OG PÁLMI - lögfræðiskrifstofa
Hverfisgötu 16 a. Sími 21355 og Laugav. 70. Sími 24910 ’ Neðstutröð 4. Kópavogi
Simi 42700.
Frá 1.1. 1969
þurfa allir nýir píj
bílar, sem fluttir
verða til landsins,
að hafa
ÖRYGGISBELTI
S M Y R 1 L L, Ármúla 7,
ÖRYGGISBELTl
nýkomin
fyrir flestar
gerðir bifreiða