Tíminn - 17.09.1968, Qupperneq 11

Tíminn - 17.09.1968, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 17. sept. 1968 11 TIMINN í húsbruna, sem varð ó Akur eyri fyrir löngu, hagaði svo til að eldur kom upp í kijallara hússins. Var byrjað að bera út af neðri hæðinni og stjórnaði eigandi hússins björguninni með miklum skörungsskap. Öðru máli var að gegna um björgunina á efri hæð hússins. Þar voru so'ólfboðaliðar að verki. Þeir hentu húsgögnum út um glugga, meðal annars orgeli, og brotnaði vitanlega allt, þegar niður kom. Húseigandinn kom nú orðum ui>p á loft, að þeir sikyldu fara gætilega að við björgunina, og frenti þeim á að láta munina eiga niður. Þeir fóru að orðum hans, náðu sér í reipi og létu síga niður það, sem eftir var; fatn að, rúmföt og ábreiður. Sigurður Pétursson póstur var maður orðhvatur og hnytt inrv Hann lenti einu sinni í orða sennu við mann, sem Ketill héif Katli veitti miður í deilunni. Hann reiddist og sat þegjandi • um stund. Þá segir Sigurður: — Er kominn korgur í stút . inn á katlinum? Gísli formaður var kjark- mikill og ágætur sjómaður. Eitt sinn var hann í stórsjó og myrkri nálægt landi. Hann taldi ólendandi, en of djúipt til að leggjast við stjóra. Loks skipar Gísli að kasta stjóranum, og nær hann íljótt botni. Hásetarnir voru hræddir og báðu guð fyrir sér. Þá segir Gísli öruggur: — Treystið Guði, piltar: Ég reiði mig á stjórann! FLÉTTUR OG MÁT Eftirfarandi staða kom upp í skák Zudro (hvítt) og Geburs á skálkmóti í Sovétríkjunum 1966. Hvítur á leik og vann í nokkr um leikum. 18. Rxf8 Kxf8 19. Rd6 Dd4t 20. Dxd4 Rxd4 21. Hc3 Rc6 22. Bg4 Rb6 23. Rxc8 Rxc8 24. Hbl Rd6 25. Bf3 Hac8 26. Bg3 Ke7 27. Helt GefiS — Úúúps . . . . í öfuga átt. Lárétt: 1 Árstíð 6 Blín 8 Fersk 10 Vond 12 Fluga 13 Forfeður 14 Óhreinka 6 Erill 17 Slár 19 Ó- virða. Krossgáta Nr. 118 Lóðrétt: 2 Nit 3 Grassylla 4 Landnámsmaður 5 Árs- tíð 7 Gosdrykkur 9 Nota 11 Lukka 15 Handlegg 16 Fugl 18 Tveir eins. Ráðnin á gótu nr. 117. Lárétt: 1 Útveg 6 Ein 8 Höm 10 Nál 12 Ör 13 No 14 Fim 16 Gat 17 Æpa 19 Frísk. Lóðrétt: 2 Tem 3 VI 4 Enn_ 5 Áhöfn 7 Flott 9 Öri 11 Ána 15 Mær 16 Gas 18 Pí. 20 — Já, af því ég . . . fór . . . götuna fram hjá kúnum — Kúnum? Þær eru úti girð ingu núna? Fórstu þangað? — Nei, en nærri því, svaraði Agnes svolítið skipulegar en áð- ur — Þær eru ekki þar. — Hvernig veiztu það? — Nú, af því ég heyrði í þeim! Þær voru svo gríðar langt í burtu þá. En ég heyrði í bjöllukúnni okkar. Skyldu þæir hafa komizt út? sagði Jóhann. — Nú dettur mér það í hug, að ég hefi ekki í langan tíma heyrt til bjöllukýrinnar, sagði Kristín hugsandi. — Þarna kemur afi. — Það var gott, sagði Anna. — Komið það þá, öll saman, nú förum við inn að snæða. Amma er víst búinn að láta matinn á borðið. — Hvað eigum við nú að fara að gera á eftir? spurði Kristín þegar þau höfðu matazt. — Við verðum að ná hveitinu inn fyrst, svaraði faðir hennar. — Kristín verður líklega að hjálpa til að koma inn hveitinu? Anna beindi þessari spurningu til bónda síns. — Já, það hafði ég hugsað mér anzaði Jóhann. — Þá skal ég heldur koma, svo Kristín geti farið að sækja kým- ar. — Má ég fara með þér, spurði Agnes. — Sjálfsagt. Þegar út í skóginn kom, nam Kristín staðar í tíunda hverju spori og hlustaði. — Hvar var pað, sem þú heyrðir til kúnna? spurði hún. — Ég er ekki alveg viss, en ég held það hafi verið úti undir Stórumýri. Það var langt í burtu að minnsta kosti. Skyndilega nam Kristín staðar. — Þei! Nú heyri ég til þeirra. — Já, en þær eru svo langt í burtu. Þær stóðu báðar kyrrar og hlustuðu. Umhverfis þær var stór skógurinn og alls kyns hljóð bár ust að eyrum þeirra. Fuglar flugu upp og spætur hjugg börkinn í grennd. En gegnurn þetta allt barst daufur hljómur frá kúa-j bjöllu í fjarska. — Já, ég held þær séu úti hjá! Stórumýri, mælti Kristín að lok- um. — Þornar Stóramýri aldrei upp? spurði Agnes þegar þær héldu af stað á ný. — Ekki held ég. Svoleiðis mýr- um verður maður alltaf að vara sig á. | Þegar þær gengu niður í hall- ann hinum megin ássins, heyrðu þær greinilega í bjöllukúnni, og Kristín hrópaði hvellt og syngj-i andi: — Kus-kus! Kuskus! Kallið bergmálaði og kýr heyrðist öskra. — Þetta var Baula! sagði Agnes. — Já, þær eru þar líka. — Nærri úti hjá Skógarkoti. Er það ekki einhvers staðar hérna? — Jú, þarna hinum megin við ásinn. Þú ert svei mér ratvís! Agnes gekkst upp við lofið. — Nú sjáum við þær! sagði hún áköf. — Komið þið nú höldum við heim! hrópaði Kristín. — Kom, kom kýrnai mínai komið bið. — En hvai er hún Rósa? spurði hún allt í einu. — Hún er ekki með þeim. Rósa! Ro-ósa! Komdu, kýrin mín! kallaði hún. — Hvers vegna kemur hún, ekki? Það skyldi þó ekki hafa orð ið eitthvað að henni? sagði hún órólega. — Far þú til hinna, þá skal ég sækja Rósu. Bara að þær komist af stað, þá halda þær sjálfkrafa áfram. Kristín gekk í átt ti'l mýrar- innar og kallaði á Rósu. Kýrin svaraði en kom ekki í ljós, og þegar stúlkan var komin gegnum kjarrbeltið í mýrarjaðrinum, sá hún hvers kyns var. Kýrin stóð úti í keldunni upp að hnjám. — Hvað er þetta. Rósa? varð Kristínu að orði og stóð ekki á sama. — Ertu föst? Kemstu ekki upp úr? Bleytan rann um fætur hennar þegar hún gekk út í til kýrinn- ar og hún sökk upp á ökla nið- ur í seigan smaragðgræna dýja mosann. Frammi hjá kúnni var svörðurinn dökkur milli þúfn anna. Hún reyndi að draga einn fót hennar upp úr, en það kraum aði bara í keldunni og skepnan seig enn lengra niður. Rósa var blýfös og svona langt heim . . .! — Agnes! hrópaði Kristín svo hátt sem hún gat. — Agnes! — Já, hvað þá? heyrðist Agnes loks svara úr fjarska. — Komdu hingað! Rósa er föst! Komdu hingað. Komdu. Það brakaði í þurrum kalkvist um og Agnes kom í ljósmál. — Stattu kyrr þarna! æpti Kristín. — Ekki koma nær. — Hvað . . er . . . þetta? Agnes hafði hlaupið svo hratt sem hún komst. — Rósa hefur farið ofan í. Hún er föst. — Ætlarðu þá að vera hér ef- ir? spurði Agnes óttaslegin. — Já, ég verð að bíða hér og ÚTVARPIÐ Þriðjudagur 17. september 7.00 Morguniútvarp 12.00 Hlá- degisútvarp 13.00 Við vinnuna. 14.40 Við, sem heima sitjum Kristmann Guðmunds- son les sögu síma „Ströndina bláu“ (2) 15.00 Miðdegisútvarp 16.15 Veð urfregnir Óperutónlist 17.00 Klassísk tónlist 17.45 Lestrar stund fyrir litlu börnin 18.00 Lög úr kvikmyndum. 18.45 Veð urfregniir 19.00 Fréttir 19.30 Daglegt mál. Baldur Jónsson lektor flytur þáttinn. 19.35 Þátt um um atvinnumál. í umsjá Eggerts Jónssonar hagfræðings. 20.00 Sónata fyrir selló og píanó op. 6 eftir Samúel Barber 20.20 „Harmkvœlasonuirinn" eftir Thomas Mann Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur les fyrri hluta bókarkafla í þýð- ingu sinni. 20.40 Lög unga fólksins. Hermann Gunnarsson kynnir. 21.30 Útvarpssagan: „Húsið í hvamminum" eftir Óskar Aðalstein. Hjörtur Páls son stud. mag les (13) 22.00 Fréttir og veðurfregnir 22.15 Einsöngur: Gérard Souzay syng ur lög frá ýmsum löndum Dal ton Baldwin leikur undir á píanó. 22.45 Á hljióðbergi. „Dauðinn“ leikþáttur eftir Kaj Munk og atriði úr öðrum þætti leikritsins „Innan múranna" eft ir Henry Nathansen. Leikarar Anna Borg, Clara Pontoppidan og Poul Reumert. 23.30 Fréttir í stuttu máli. Dagskrárlok. I DAG halda henni rólegri. Fylgstu með kúnum fram að götunni, svo þú villist ekki, og svo verður þú að hlaupa. En ekki fyrr en þú kem- ur á götuna hjá girðingunni, heyr irðu það! — Já, hálfsnökti Agnes. — Ég hleyp þá á eftir þeim undir eins. Ég skal flýta mér, allt hvað ég orka. Kristín horfði á eftir litlu telp- unni unz hún hvarf í kjarrskóg- inn. Hve langur tími myndi líða unz þeir pabbi og Jón næðu hingað? Og hvað gæti hún gert í millitíðinni? Líklega aðeins að sækja greinar og leggja undir kúna, svo þær veittu henni við nám undir kviðnum, þegar hún sigi — Svona, já! sagði hún rólega við kúna, þegar hún tók að óró- ast. — Vertu nú róleg, Rósa. Þeir koma bráðum og hjálpa þér upp úr. Ég skal ekki fara frá þér, ég ætla bara að sækja greinar .En þegar hún gerði sig líklega til að ganga frá, varð kusa hrædd og reyndi af öllum mætti að rífa sig upp úr og elta hana Afleið- ingin varð sú, að hún sökk dýpra. Nei, það þýddi víst ekki að fara írá henni. Kristín var örvingl- uð. Nú var Rósa sokkin niður upp í kvið . . . Allt í einu barst hljóð að eyr- um hennar, sem lét betur í þeim en fegursta tónlist, eins og nú stóð á fyrir henni. Það var karl- mannsraust er gall við úr fjarska. — Óhæ! Óhæ! — Ho-ó! hrópaði Kristín á móti. Ó, guði sé lof, andvarpaði hún. — Hér er þá fólk í grennd. Ho-ó! Vertu nú róleg, Rósa. Nú máttu véra viss um að við ná' um þér upp. Ho-ó! Miðvikudagur 18. september 7.00 Morgunútvarp 12.00 Há- degisútvarp 13.00 Við vinnuna 14.40 Við, sem heima sitjum Kristmann Guð’^'indsson les sögu sina „Ströndina bláu“ (3) 15.00 Mið degisútvarp 16.15 Veðurfregn ir fslenzk tónlist. 17.00 Fréttir Klassík tónlist. 17.45 Lestrar- stund fyrir litlu börnin 18.00 Danshljómsveitir leika. 16.45 Veðuinfregnir. 19.00 Fréttir. Til kynningar 19.30 Daglegt mál. Baldur Jónsson lektor flytur þáttinn 19.30 Tækni og vísindi • Páll Theódórsson eðlisfræðing ur talar um vísinda- og tækni. uppfinningar og hagnýtingu þeirra. 19.55 „Íbería“ hljóm- sveitarsvíta eftir Albéniz.. 20. 25 „Harmkvælasonurinn“ eftir Thomas Mann. Sverris Kristj ánsson sagnfræðingur les síðari hluta sögukaflans í þýðingu sinni. 20.45 „Ástaljóð“valsar op 52 eftir Brahms 21.05 Maður framtíðarinnar Guðmundur Þórðarson póstmaður flytur erindi, þýtt og endursagt. 21.25 Einsöngur: Martlia Hödl syng ur aríur úr „Macbeth" eftir Verdi og „Fidelio" eftir Beet hoven. 21.45 Evrópukeppni í knattspyrnu Sig. Sigurðsson skýnr frá leik Vals og Ben- fica frá Lissabon, sem fram fer fyrr um kvöldið. 22.00 Fréttir og veðurfregnir 22.15 Kvöldsag an: „Leynifarþegi minn“ eftir Joseph Conrad Sigrún Guðjóns dóttir les lok sögunnar, sem Málfríður Einarsdóttir xslenzk aði (5) 22.40 Djassþátur Ólaf ur Sephensen kynnir 23.10 Fréttir og veðurfregnir. morgun

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.