Tíminn - 17.09.1968, Side 12
r ~
j 12
i
ÍÞRÓTTIR
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 17. sept. 1968
B-lið KR sendi Islandsmeist-
arana út úr bikarkeppninni!
Handknattleiksinaður á knattspyrnuskóm skoraði sigurmark b-liðsins rétt fyrir leikslok.
AlfjReykjavfk. — Allt getur
skeð í knattspyrnu. Það sannaðist
enn einu sinni, þegar b-lið KR
sendi a-lið KR, fslandsmeistarana,
út úr bikarkeppninni í skemmti-
legum leik, sem fram fór á laugar
daginn og lyktaði 4:3. Sigurmark
b-liðsins skoraði handknattleiks-
maður á knattspyrnuskóm, nefni
lega Hilmar Bjömsson, fyrirliði
RR í handknattleik. Það er ekki
sérlega mikið spunnið í hann sem
knattspyrnumann, en hann sýndi
mikla keppnishörku, þegar hann
á síðustu mínútum leiksins lék á
3 af varnarmönnum a-liðsins og
sendi knöttinn síðan í netið.
Það voru niðurlútir a-liðsmenn,
sem gengu af leikvelli, alveg öfugt
við það, sem var í upphafi leiks,
þegar þeir brostu góðlátlega til
b-liðsmanna, rétt eins og þeir vor
kenndu þeim.
En það þurfti ekki áð vorkenna
b-liðsmönnum KR. Þeir höfðu ó-
bilandi keppnisskap og létu ekki
bugast, þótt á móti blési í fyrstu,
en flíjótlega í leiknum hafði Ólafi
Lárussyni tekizt að skora 1:0 fyr
ir a-liðið. Jón Sigurðssom jafnaði
fyrir b-liðið og Baldvin Baldvins
son náði forystu fyrir b-liðið, 2:1.
Strax á 2. mínútu síðari bálfleiks
jafnaði Ólafur Lár. fyrir a-liðið, en
Jóhann Reynisson náði forystu
Theodór jafnar fyrir a-lioið, 3:3.
3:2 með rangstöðumarki. Theódór
Guðmundsson jafnaði fyrir a-
liðið, en Hilmar Björnsson skor
aði sigurmark b-liðsins, þegar 2
mínútur voru eftir.
Þótt það hlijómi einkenniTcga,
þá var b-liðið jákvæðari aðilinn í
þessum leik. Það var þó fyrst og
fremst baráttuviljinn, sem fleytti
liðinu yfir hættulegustu skerin. A-
Íiom var “eins og hofuðraus her
án Ellerts Sohram. Það var ekki
einungis skarð fyrir skildi i vörn
inni, heldur missti liðið stjórn-
anda sinm. Hvernig er það amiars.
KRb - Valur
Fram - ÍBV
Að leik Fram og Víkings lokn-
um var dregið um það, hvaða lið
leika saman í undanúrslitum í
Bikarkeppni KSÍ. KR b mun leika
gegn Vestmannaeyjum. Fer leikur
Fram og Vestmannaeyja fram um
næstu helgi.
Er Ellert Scíhram eini hugsandi
maðurinn í KR-liðinu?
í b-liðinu börðust mest og bezt
Jón Sigurðsson, Einar ísfeld,
Baidvin Baldvinsson, Gunnar Gunn
arsson og Magnús Guðmundsson í
markinu. Tii gamans má geta þess,
að þetta er í annað sinn, sem b-
lið KR slær íslandsmeistara út
úr bikarkeppminni. í fyrra skiptið
voru það íslandsmeistarar Kefla-
víkur 1964, sem fengu fyrir ferð
ina.
Dómari í leiknum var Magnús
Pétursson og dæmdi yfirleitt vel,
nema hvað hann sleppti vítaspymu
á aJliðið í fyrri hálfleik, þegar
Þórður Jónsson varði knöttinn
með höndum og fótum.
Fara þeir
heilan
hring?
Út af frétt í dönsku blaði
þess efnis, að dregið hafi
verið að nýju í heimsmeist
arakeppninni í handknatt-
leik, og ísland verði þá í
riðli með Norðmönnum og
Svisslendingum, snerum við
okkur til Axels Einarssonar,
formanns HSÍ, og báðum
hann að segja álit sitt.
„Þetta er í fyrsta sinn,
sem ég heyri um þetta“
sagði Axel. „Á ráðstefnunni 3
í Amsteröam var ekki rætt j
um nýjan drátt í keppninni, g
en vel taá vera, að stjóm a
Alþjóðasambandsins hafi g
haldið fund síðan og tekið §
ákvörðun. í fljótu bragði €
sýnist mér þetta vera upphaf
legi drátturinn í keppninni.
Ég væri hreint ekki óánægð
ur, ef það reyndist rétt, að
við lentum í riðli með Norð
mönnum og Svisslendingum.
Það er langt síðan að við
höfum haft samskipti við
þessar þjóðir.“
í framhaldi af því, sem
Axel sagði, kemur hér drátt
urinn, eins og hann birtist
í danska blaðinu:
Danmörk — Holland
Svíþjóð — Finnland
Pólland — Luxemburg
Sovét — Austurríki
V-Þýzkal. — Portúgal
A-Þýzkaland — Belgía
Framhald á bls. 15.
Þegar silfurlið Fram í 1. deild og bofnlið Víkings í 2. deild mættust:
FRAM VAR AÐEINS BETRA
í VÍTASPYRNUKEPPNINNI!
Enginn munur á Fram og Vík-
ing? Það veltu margir þessari
spumingu fyrir sér eftir bikarleik
félaganna á Melavellinum á sunnu
dag, sem lauk með sigri Fram
eftir vitaspymukeppni. Jú, víst var
munur á liðunum. Fram lék í blá-
hvítum búning, Víkingur í rauð-
svartröndóttum búning, en það
var Iíka allur munurinn.
Eftir venjulegan leiktíma var
staðan jöfn, 2:2, og í framleng
iugu tókst hvorugu liðinu að
skora. í vítaspyrnukeppninni
reynduSt Framarar mun sterkari.
Þeir skoruðu úr öllum 5 spyrn-
unum, en Víkingur aðeins úr 2.
Lokatölur urðu því 7:4 og Fram
sótti Fram mjög stíft og var ekki
langt frá því að skora fleiri mörk,
en smátt og smátt jafnaðist leik-
urinn. og á 17. mín. jafnaði Haf-
liði Pétursson, miðlheriji Víkings.
Þetta mark lyktaði af rangstöðu
þvi að ef Hafliði var ekki fyrir
innan Sigurð Friðriksson, mið-
vörð Fram var hann alla vega
samsíða honum, þegar knettinum
var spyrnt.
Strax á 2. mín síðari hálfleiks
náði Víkingur 2:1 forystu, þegar
Jón Karlsson skoraði með föstu
skoti eftir fyrirgjöf frá vinstri.
Það var svo ekki fyrr en á 30.
mín fyrir Helga Númasyni tókst að
jafna fyrir Fram með hörkuskoti
af 20 metra færi, það eina fal-
lega sem Fram sýndi í þes?um
leik.
í vítaspyrnukeppninni voru
Framarar mun öruggari. Sigur-
bergur Sigsteinsson, Ólafur Ólafs-
son, Ásgeir Eliasson. Þorbergur
Atlason og Bialdur Seheving skor
uðu allir örugglega. en einungis
Kára Kaaber og Hafliða Péturs-
syni tókst að skora fyrir Víking.
Ma geta þess, að Þorbergur Atla
son, markvörður Fram, varði 2
vítaspyrnur. sem verður að telja
vel af sér vikið.
Dómari í leiknum var Grétar
Norðfjörð. Hann er greinilega í
góðri æfingu, nýkominn frá Banda
ríkjunum, þar sem hann hefur
dæmt. Kannski er Grétar i of
góðri æfingu. Mér leiðist sparða-
tiningur og flautukonsert á knatt
spyrnuvelli. séTstaklega í prúðum
leik eins og þessum. — alf.
Enska knattspyrnan á laugardaginn:
er komið í undanúrslit.
Fram fékk óskastart í leikn-
um á sunnudag. Strax á 2. mín.
spyrnti Jóhannes Atlason, bakv'örð
ur og fyrirliði Fram, knettinum
frá miðju í átt að marki Víkings.
Það datt ekki nokkrum manni í
hug, að þessi spyrna gæti skapað
hættu. Sigfús. markvörður Vík-
ings bjó sig undir að grípa knött-
inn, en varð illilega á í messunni,
því að hann hljóp of langt út og
missti knöttinn aftur fyrir sig.
Grétar Sigurðssion, hinn gamal-
reyndi og marksækni miðherji
Fram, sá sér leik á borði — hljóp
inn fyrir og skoraði. Klaufamark,
sem skrifa verður á reikning Sig-
fúsar.
Á fyrstu mínútum leiksins
Arsenal heldur forystunni
Arsenal heldur enn forystunni
í 1. deild á Englandi, hefur hlotið
16 stig, en í 2. sæti er Leeds með
14 stig, en hefur leikið einum leik
minna. Chelsea er með 13 stig og
Liverpool 12 stig. Hér koma úrslit
in á laugardag, en sérstaka athygli
vekur að Manchester Utd. tapaði
á útivelli fyrir Burnley:
Arsenal — Stoke 1:0
Burnley — Manch. Utd. 1:0
Everton — Sheff. W. 3:0
Ipswich — Liverpool 0:2
Leicester — Leeds 1:1
Manch. C. — Southampton 1:0
Newcastle — WBA 2:3
Nott. F. — Coventry 0:0
QPR — Chelsea 0:4
West Ham — Tottenham 2:2
Wolves — Sunderland 1:1
2. deild:
Fulham — C. Palace 1:0
Portsmouth — Bury 1:2
Aston Villa — Hull 1:1
Bolton — Blackburn 1:1
Bristol C. — Derby 0:0
Carlisle — Norwich 0:4
Huddersf. — Cardiff 3:0
Middlesbro — Birmingh. 3:1
Millwall — Blackpool 1:0
Preston — Charlton 1:1
Sheff. Utd. — Oxford 1:2
í 2. deild hefur Charlton forystu
hefur hlotið 13 stig úr 9 leikjum,
en Blaekpool er með 12 stig úr
8 leikjum.