Vísir - 28.07.1977, Síða 24
VÍSIR
gffTiH MV
rw
■IMSALA
Lykillinn aó góóum
bilakaupum
P. STEFÁNSSON HF.
SÍÐUMÚLA 33 SÍMI 83104 83105 (
sparar
1
AVELING BARFORD
ÞUNGAVINNUVÉLAR
ÖLL ÖKUTÆKI
SMÁ OG
STÓR
P. STEFÁNSSON HF.
vvJ^HVERRSGÖTU103 SÍMI_269n^y;
Ríkissjóður er að verða stœrsti sparisjóðurinn:
Almenningur á
17 V2 milljarð
hjá ríkinu
Skuld rikissjóðs við
eigendur spariskirteina
nemur i dag um 17 1/2
milljarði króna. Er þá
miðað við verðgildi
spar iskirteinanna 1. júli
si. í þessari upphæð er
vitaskuld ekki reiknað
með nýjasta útboði
rikisins, en sala þeirra
bréfa hefst 5. ágúst n.k.,
eins og Visir skýrði frá i
gær.
Fullvlst er talið að nýju spari-
skirteinin muni renna út eins og
heitar lummur og munu þvi á
næstu dögum bætast 1100 milljón-
ir við skuld rikissjóös við almenn-
ing, og nemur hún þá hátt i 19
milljarða króna. Til samanburð-
ar má geta þess að öll spariinnlán
i Landsbankanum, stærsta banka
landsins, nema aðeins litlu hærri
upphæð, eða innan við 20 millj-
arða króna, samkvæmt nýjustu
tölum sem Visir hefur undir
höndum.
Hafa 23-faldast
Nú i haust rennur út lánstimi
spariskirteina 1. flokks 1965. Þau
skirteini hafa nú 23-faldast i verð-
gildi og fæst fyrir hvert 10.000
króna skirteini við innlausn eftir
10. september n.k. kr. 230.970. Við
gerð fjárlaga var gert ráð fyrir
500milljónum króna til að standa
undir innlausn þessa flokks, en
um 600 milljónir eru enn óinn-
leystar.
eftir nœsta útboð
hátt í 19 milljarða
Að sögn Jóns Friðsteinssonar
hjá Seðlabankanum er þó ekki
vist að rikissjóður þurfi að inn-
leysa öll þessi skirteini i pening-
um, þar sem reynslan frá
1964-flokknum sýndi að fólk kýs
oftast að festa fjármuni sina
strax aftur i nýjum bréfum,
standi þau til boða. Flokkurinn
frá 1964 náði hámarkslánstima
10. janúar 1975.
Sem dæmi um verðgildi yngri
skirteina má nefna, að 10 þús.
króna skirteini i 2. flokki frá 1968
er nú 129.436 króna virði, 10 þús.
króna skirteini i 1. flokki 1970 er
88.874 króna virði, i 2. flokki 1973
jafngildir nú slikt bréf 33.181
krónu og 10 þús. króna skirteini
sem gefin voru út haustið 1976 eru
nú 11.093 króna virði.
—SJ
Slökkviliðsmenn l Reykjavfk áttu náðugan dag i gær og gátu leyft sér þann munaö að taka sér hrifu i
hönd og raka saman framan við Slökkvistöðina. Það var lika verðriðtil þess, glampandi sói og hiti allan
daginn. í dag er hins vegar ekki útiit fyrír sólskin hér á Suður- og Suðvesturlandi.
M gll
Rafmagnsverð
til kœliborða
íathugun
,,Málið er nú i athugun hjá
báðum aöilum, og þá sérstak-
lega hjá Rafmagnsveitunni",
sagði Gunnar Snorrason kaup-
maður i morgun, um viðræður
kaupmanna og Rafmagnsveit-
unnar um verð á rafmagni til
kæliborða i verslunum.
Sagði Gunnar, að þess væri
að vænta, að málin skýrðust
innan fárra daga, og litið væri
hægt að segja um málið á þessu
stigi.
Gunnar sagði, að Aðalsteinn
Guðjohnsen rafmagnsstjóri
hefði tekið málaleitan þeirra vel
að sumu leyti, en þess bæri að
gæta, að Rafmagnsveitan væri
bundin af sinni fjárhagsáætlun.
Ef verð á rafmagni lækkaði á
einum stað, þá yrði að ná þvi inn
á öörum. Kaupmenn hafa talið,
að þeir séu að greiða þann mis-
mun sem varð vegna lækkunar
á raforkuverði til ýmissa teg-
unda iðnaðar. —AH
##
Verslunin mun fœrast
á steinaldarstig"
verði rafmagnsverðið
ekki leiðrétt,1
„Verði ekkert að gert i sam-
bandi við rafmagnsverð til
verslana, mun verslunin færast
aftur á nokkurs konar stein-
aldarstig”, sagði Jónas
Gunnarsson, formaður félags
matvörukaupmanna. í samtali
við Visi i morgun.
Sagði hann, að rafmagnsverð
til þeirra verslana sem mest
notuðu kæliborð, hefði hækkað
um allt að 100%, og jafnvel þar
yfir, en verö á rafmagni til
verslunarinnar almennt hefði
hækkað um 50%.
Jónas kvaðst telja það óraun-
hæft, sem fram kom í blaðinu i
gær, að kaupmenn myndu selja
kæliborð sin, einfaldlega vegna
þess að engir kaupendur væru
fyrir hendi. Og jafnvel þó svo
n
væri, þá hefði engínn efni á að
reka þau, sagði hann. Sagði
Jónas að ef til vill væri best, að
koma upp minjasafni, til minn-
ingar um hvernig tækjakostur
verslunarinnar hefði einu sinni
verið, það gæti orðið fróðlegt
-fyrir fólk þegar verslunin væri
komin aftur til steinaldarfyrir-
komulags.
Jónas kvað það sina skoðun,
að ef Rafmagnsveitan þyrfti á
þessu fé að halda, þá yrði að
hleypa þvi út i verðlagið, kaup-
menn gætu ekki fyrirvaralaust
axlað byrðar iðnaðarins. Sagði
Jónas, að hins vegar væri varla
von á öðru, þegar þeir menn
ráða ferðinni ,,sem hvorki hafa
vit né vilja til að skilja vanda
verslunarinnar”.
— A
Bbðamenn sömdu
Samningar tókust milli biaba-
manna og útgefenda um kiukkan
sjö i morgun. Voru þá undirritað-
ir samningar i kjaradeilunni, með
fyrirvara um samþykki félags-
fundar Biaðamannaféiags is-
lands, sem væntanlega verður
haidinn á morgun.
Siðar verður svo tekiö mið af
þeim samningum sem gerðir
verða við opinbera starfsmenn,
og verði ekki samkomulag þar
um, þá eru samningar iausir hinn
20. janúar með viku fyrirvara.
— AH
Sveik tvœr milljón-
ir úr póstkerfinu
Maður nokkur hefur
á undanförnum vikum
svikið rúmlega tvær
milljónir króna út úr
póstkerfinu. Hann hefur
verið úrskurðaður í allt
að 30 daga gæsluvarð-
hald.
Maður þessi lét sér ekki nægja
sitt eigið orlofsfé, heldur hafði
hann fundið upp aðferð til að fá
greitt orlofsfé annarra. Ekki er
enn vitað hvort þessar tvær
milljónir eru endanleg upphæð,
eða hvort fleiri svik mannsins
eru ókomin fram.
Njörður Snæhólm, hjá
Rannsóknarlögreglu rikisins,
taldi ekki rétt að skýra frá að-
ferö mannsins að svo komnu
máli, en Visir hefur fregnað að
fölsuð bókasafnskort hafi þar
komið við sögu.
Það var stúlka i einu af póst-
húsum borgarinnar, sem kom
upp um manninn. Hún heyrði
ávæning af þvi sem fram fór
milli afgreiðslustúlku við hlið
hennar og mannsins, og vissi að
hann var ekki sá sem hann
sagðist vera, og kallaði á
lögreglu.
— GA
Fannst lótinn
Lik mannsins, sem féll út-
byrðis úr gúmbát í Breiðafirði
sl. mánudag fannst síðdegis i
gær. Hann hét Steingrimur
Guðjónsson, til heimilis aö
Bárugötu 6, Reykjavik. Stein-
grlmur var sjötugur að aldri.