Vísir - 30.07.1977, Blaðsíða 1

Vísir - 30.07.1977, Blaðsíða 1
I „Þetta stendur allt fast núna, og frá þvi að upp úr slitnaði á fimmu- dag hefur enginn samningafundur verið boðaður”, sagði Erling Guðmundsson i samn- inganefnd farmanna i samtali við Visi í gær. Sagði Erling, að ef ekki tækist samkomulag, kæmi verkfall til framkvæmda á miðnætti þann 31 júli. Erling sagði að það væri raunverulega ekki ýkja mikið, sem bæri á milli, en ef verkfall yrði, þá væri liklegt að mun meiri harka hlypi i deiluna. - SEGJA FARMENN Sáttanefnd kom fyrir stuttu með þá tillögu, að hásetalaun yrðu 100 þúsund krónur á mánuði fyrir 40 stunda vinnuviku. Byrjunarlaun viðvaninga áttu samkvæmt sömu tillögu að vera 85% af kaupi háseta. Erling sagði, að báðir deiluaðilar heföu hafnað þessari innanhússtillögu, og þvi væri ef til vill erfitt að segja nákvæmlega hvað mikiö raunveruiega bæri á milli. Erling Guðmundsson er háseti á m.s. Selfossi, en kveðst hafa komið i land til að taka þátt i samningunum. Formaður samninganefndar- innar er hins vegar Guðmundur Hallvarðsson , gjaldkeri Sjómannafélags Reykjavikur. Allir farmenn á landinu eru félagar i Sjómannafélagi Reykjavikur, sem er aðildarfélag Sjómannasambands Islands. —AB „Ósanngjarnt ef far- menn fallast ekki á tilboð okkar" — segir Guðmundur Ásgeirsson hjá Nesskip „Við erum nú að vona að þessa deilu megi leysa án þess að til verkfalls komi”, sagði Guðmundur Ás- geirsson hjá Nesskip i samtali við Visi i gær- kvöldi um farmanna- samningana. Guðmundur sagði það skoðun sina, að þegar hefði verið gengið það langt til móts við kröfur farmanna, að ekki yrði lengra komist. Sagði hann það vera ákaflega ósanngjarnt af farmönnum ef þeir ætluðu út i verkfall núna. „Það hafa allir aðrirlosnaö við verkföll, og það ætti ekki að þurfa að koma til þeirra hjáfarmönnumfrekar en öðrum” sagði Guðmundur. Guðmundur sagði að litið væri að gerast i samningamálunum þessa stundina, siðasti fundur hefði veið haldinn á fimmtudag. HcUin kvaðst þó gera ráð fyrir samningahrotu nú um helgina, og þá ættu málin að fara að skýrast. —AH Nýrnaveiki að Laxalóni — segir Kanadamaðurinn sem rann- sakað hefur heilbrigði fisksins þar Nýrnaveiki er fyrir hendi i laxeldisstööinni að Laxalóni, sam- kvæmt upplýsingum Kanadamannsins Tre- vors Ewellin sem dval- ið hefur hér á landi undanfarna daga við rannsóknir sínar. Hann hélt utan i gær. Ewellin rannsakaði einnig stöðina við Elliðaárnar, en fann ekkert athugavert þar. Hann var hins vegar ekki beöinn að rannsaka laxeldisstöð rikisins í Kollafirði. 1 samtalivið blaðamenn VIsis I gær, skömmu áöur en Ewellin hélt heimleiðis, sagði hann, að ekki væri nauðsynlegt að farga öllum fiski i stöðinni að Laxa- lóni, sjúkdómurinn væri ekki þaö hættulegur og staöreynd væri aö hann væri fyrir hendi bæði i Evrópu og Ameriku, og þvi væri ekki undarlegt þó hann bæristhingaö tillands, þvilaxa- stofnar margra landa blönd- uðust meira og minna úti I At- lantshafinu. Sjá nánar á blaö- slðu 2. —AH Það var ys og þys á umferðarmiöstööinni f gærkvöldi þegar Einar Gunnar Ijósmyndari Vfsis kom þar viö. Fólkiö var aö fara I allar áttir, en unglingarnir, sem voru Tl meirihluta, ætluöu flestir á Rauöhettu- mótið viö (Jlfljótsvatn. A Akureyri fengum viö þær upplýsingar aö bærinn væri óöum aö tæmast og aö flestir héldu austur á bóginn. A Selfossi aftur á móti var umferðin heldur minni f gærkvöldi en á undanförnum föstudags- kvöldum fyrir þessa mestu umferöarhelgi ársins, enda leiðinlegt veöur. —GA Á fjörutíu ára gömlu hjóli í kringum ísland — Sjá bls. 8 og 9 Esperantistar þinga í Reykjavík - *... „„

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.