Vísir - 30.07.1977, Blaðsíða 17

Vísir - 30.07.1977, Blaðsíða 17
VISIR Laugardagur 30. júli 1977. 17 Evrópumótið i bridge 1977 hefst á morgun og er að þessu sinni spilað i Helsingör i Dan- mörku. Islensk sveiter meöal 22 þátttakenda f opna flokknum og hana skipa efitrtaldir menn: Asmundur Pálsson, Guðlaugur R. Jóhannsson, Hjalti Eliasson, Hörður Arnþórsson, Þórarinn Sigþórsson og öm Arnþórsson. Fyrirliði er Rikarður Stein- bergsson. Ennfremur er með i farar- stjórninni Alfreö G. Alfreðsson, sem mun m.a. sitja fund Evrópusambandsins. Alfreð mun einnig sjá um fréttasend- ingar til Visis og munu úrslit fyrstufjögurra leikjanna birtast i þriðjudagsblaðinu. Spilaöir veröa tveir leikir á dag, sá fyrri kl. 13 og sá seinni kl 20.10. Dregið hefur verið um töfluröð og fékk islenska sveitin rásnr. 14 og mætir andstasðing- um sinum i þessari röð: 1. Ungverjaland 2. Italia 3. Tyrkland 4. Holland 5. Belgia tslenska sveitin sem tekur þátt i Evrópumótinu, sem hefst á morgun, i Helsingör. 6. Sviþjóð 7. Frakkland 8. Júgóslavia 9. Sviss 10. Israel 11. Danmörk 12. Portugal 13. Bretland 14. Spánn Austurríski bridgemeistarmn Manhardt sigraði í Bikarnum 15. Noregur 16. irland 17. Grikkland 18. Pólland 19. Finnland 20. Þýskafand 21. Austurriki A timum atvinnumennskunn- ar isvo til öllum iþróttagreinum eiga áhugamannalið eins og okkar erfitt uppdráttar. Segja má, að flestir andstæðinganna hafi atvinnumenn eða hálfat- vinnumenn innan sinna vébanda. Samt er engin ástæöa til þess að örvænta — við send- um okkar besta mögulega lið—• og þótt fyrri hluti mótsins sé hálf óárennilegur á pappirnum, þá veit enginn hver annan gref- ur. Nýlega lauk Evrópubikar- keppni Philip Morris og sigraði hinn frægi og umdeildi austuriski bridgemeistari Peter Manhardt. Hlaut hann 117 stig, eða rúmum tuttugu stigum meira en þrir landar hans, Rohan, Strafner og Voglsang. 1 kvennaflokki varð hlut- skörpust Rixi Markus frá Eng- landi og i unglingaflokki sigruðu tveir af Evrópumeisturunum frá Austurriki, Berger og Fucik. Si'ðasta umferðin i keppninni var spiluð i Biarritz og i henni var makker Manhardt Sviinn Sundelin samkvæmt áður gerðu samkomulagi. Sundelin var i efsta sæti fyrri hluta keppn- innar, en varð siðan að lúta i lægra haldi fyrir stanzlausum sigrum Austurrikismeistarans. Hér sjáum við þá félaga spila vörnina gegn skosku pari, sem stóð sig ágætlega. Staðan var a-v á hættu og norður gaf. * K-7-3 ¥ D-G-10-9-4-3 * 7 * 9-6-4 4 D-9-8-6-4 fK-7 ♦ G-8 * A-D-8-3 * G-10 y A-6 4 A-10-6-5 * K-G-7-5-2 4 A-5-2 4 8-5-2 4 K-D-9-4-3-2 * 10 Sagnir gengu þannig: Norður Austur Suður Vestur Duncan Sundel. Short Manh. 2T pass 2H pass pass 2G 3T 3S pass pass 4T dobl pass pass 4H dobl pass pass pass Opnun noröurs var fjöl- tveggjatigla opnunin sem þýðir bæði sterk og veik spil. 1 þessu tilfelli var um veika opnun i hálit að ræða. Manhardt var nokkuð viss um að þrir spaðar eða fjögur lauf stæðu og þvi doblaði hann til þess að bjarga þvi sem hægt væri. Útspilið var spaði og Short, sem spilaði spilið i suður, drap á kónginn i blindum og spilaði strax tiguleinspilinu. A öörum borðum fór austur upp með ás- inn og eftir það var einfalt fyrir suður að fá niu slagi. Sundelin var hins vegar ekki á þeim buxunum. Hann gaf og sagnhafi fékk slaginn á kónginn NU var sama hvað suður ham- aðist — hann gat ekki fengið fleiri slagi en átta. Það er ef til vill ekki svo erfitt að gefa tigulinn, þegar maður sérhjóninl blindum, en þarsem suður var lokaða höndin, þá var spilamennska Sundelin frábær. Sú þúsundasta verðlaunuð Unga stúlkan á myndinni var svo heppin að festa kaup á þúsundasta miðanum á Rauð- hettu hátiðina sem nú stendur yf- ir. Að launum fékk hún þrjár hljómpiötur og var myndin tekin þegar hún tók viö þeim. Talið frá vinstri eru Sigurður Jónsson, sölumaður, Hjördis Kristjáns- dóttir og Sigurður Bjarnason sölumaður. —SJ/VIsismynd EGE Stefán Guðjohnsen skrifar: mót í Bridge hefst ) morgun FÉLAGSSTARF OG FUNDIR Sum arley fisferðir I ágúst: 3. ág. Miðjálendisferð 12 dagar 4. ág. Kverkfjöll-Snæfell 13 dagar. 6. ág. Gönguferð um Lónsöræfi 9 dagar 13. ág. Norðausturland 10 dagar. 16. Suðurlandsurndir- lendið 6 dagar. 19. Núpsstaðaskógur- Grænalón 5 dagar. Nánari upplýsingar og farmiðasala á skrifstof- unni. — Ferðafélaag ts- lands. Ferðir um verslunar- mannahelgina. 1. Þórsmörk, 2. Land- mannalaugar, 3. Hvera- vellir, 4. Kerlingarf jöll, 5. Norður á Strandir, 6. Snæfellsnes — Breiða- fjarðareyjar, 7. Veiðvötn — Jökulheimar. (Gist í húsum), 8. Hvanngil, 9. Skaftafell (Gist i tjöld- um). Nánari upplýsingar á, skrifstofunni. Pantið timanlega. Kl. 08.00 Þórsmerkurferð. Kl. 20.00 Grasaferð.Farið I Bláfjöll og tind þar fjallagrös. Leiðbeinandi: Anna Guðmundsdóttir, húsmæðrakennari. Hafið hentug ilát meðferðis. Verð kr. 1000 gr. v/bilinn. Farið frá Umferðarmið- stöðinni að austanverðu. Ferðafélag tslands. Ferðir um verslunar- mannahelgina. Laugardagur 30. júli. KI. 08.00 1. Hveravellir-Kjölur. 2. Kerlingarfjöll 3. Snæfellsnes-Flatey. vGist i húsum. Kl. 13.00 Þórsmörk. Gönguferðir um helgina verða auglýstar á laugar- dag. Pantið timanlega. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. Ferðafélag Islands. Versl. m. helgi 1. Þórsmörk, tjaldað i Stóraenda i hjarta Þórs- merkur, gönguferðir. Fararstj. Ásbjörn Svein- bjarnarson o.fl. 2. Lómagnúpur, Núps- staðarskógur. Gengið á Súlutinda að Grænalóni og viðar. Fararstj. Þor- leifur Guðmundsson og Sólveig Kristjánsdóttir. 3. Kerling - Akureyri, gengið um fjöll i nágrenni Akureyrar. Fararstj. Er- lingur Thoroddsen. Upplýsingar og farseðlar á skrifst. Lækjarg. 6, simi 14606. Munið Noregsferðina 1.-8. ágúst, allra siðustu for- vöð að kaupa miða. MINNGARSPUÖLD Minningarkort Barnaspi- tala Hringsins eru seld á eftirtöldum stööum: Bókaverslun Isafoldar, Þorsteinsbúð, Vesturbæj- ar Apóteki, Garðsapóteki, Háaleitisapóteki Kópa- vogs Apóteki Lyfjabúö Breiöholts, Jóhannesi Norðfjörö h.f. Hverfis- götu 49 og Laugavegi 5, Minningarspjöld Óháða safnaöarins fást á eftir- töldum stööum: Versl. Kirkjustræti, simi 15030, Rannveigu Einarsdóttur, Suöurlandsbraut 95 E, simi 33798, Guðbjörgu Pálsdóttur Sogavegi 176, simi 81838 og Guörúnu Sveinb jörnsdóttur, Fálkagötu 9, simi 10246. Orlof húsmæðra Seltjarnarnesi, Garðabæ og Mosfellssveit veröur i orlofsheimili húsmæöra i Gufudal, ölfusi. Fyrir konur með börn 30.7-6.8 Fyrir konur eingöngu 20- 27. ágúst. Upplýsingar i simum 14528 (Unnur) 42901 (Þuriður 7-8 siðd.) 66189 (Kristin 7-8 siöd.) Kirkjuturn Hallgrims- kirkju er opinn á góð- viðrisdögum frá kl. 2-4 siðdegis. Þaðan er ein- stakt útsýni yfir borgina og nágrenni hennar að ógleymdum fjallahringn- um i kring. Lyfta er upp I turninn. Asgrim ssafnið, Berg- stæðastræti 74, er opiö alla daga nema laugar- daga frá klukkan 1.30-4. tslandsmótið I körfu- knattleik ’77-’78 Islandsmótiö i körfu- knattleik hefst I okt.-nóv. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist skrif- stofu Körfuknattleiks- sambands Islands, Box 864, 121 Rvik. fyrir 1. ágúst n.k. Þátttökutil- kynningar veröa ekki teknar til greina nema að þátttökugjöld fylgi en þau eru: Fyrir meistara- flokka kr. 20.000, fyrir aðra flokka kr. 10.000. Stjórn K.K.t. Frá Vestfiröingafé- laginu. Þátttakendur i Stranda- sýsluferðinni á laugardag verða að láta vita i dag i siöasta lagi I sima 15413. Fundir AA-samtak- anna i Reykjavík og Hafnarfirði Tjarnargata 3c: Fundir eru á hverju kvöldi kl. 21. Einnig eru fundir sunnudaga kl. 11 f.h., laugardaga kl. 11 f.h. (kvennafundir), laugar- daga kl. 16 e.h. (spor- fundir). — Svarað er i sima samtakanna, 16373, eina klukkustund fyrif hvern fund til upplýsinga- miðlunar. Austurgata 10, Hafnar- firði: mánudaga kl. 21. Tónabær: Mánudaga kl. 21. — Fundir fyrir ungt fólk (13- 30 ára). Bústaðakirkja: Þriðjudaga kl. 21. Laugarneskirkja: Fimmtudaga kl. 21. — Fyrsti fundur hvers mánaðar er opinn fundur. Langholtskirkja: Laugardaga kl. 14. Ath. að fundir AA-sam- takanna eru lokaöir fundir, þ.e. ætlaöir alkó- hólistum eingöngu, nema annað sé tekið fram, að- standendum og öðrum velunnurum er bent á fundi Al-Anon eöa Ala- teen. AL-ANON, fundir fyrir aðstandendur alkóhó- lista: Safnaðarheimili Grensáskirkju: Þriðjudaga kl. 21. — Byrjendafundur kl. 20. Langholtskirkja: Laugardaga kl. 14. ALATEEN, fundir fyrir börn (12-20 ára) alkó- hólista: Langholtskirkja: Fimmtudaga kl. 20.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.