Vísir - 19.08.1977, Blaðsíða 12

Vísir - 19.08.1977, Blaðsíða 12
Örn þjólfari hjá FH-ingum örn Hallsteinsson hefur nú veriö ráöinn sem þjúlfari til 1. deildarliös FH f handknatt- leik og mun hann taka viö af Reyni ölafssyni sem þjúlfaö hefur liöiö tvö siöastliöin keppn- istlmabil. örn sem er bróöir Geirs Hallsteinssonar var áöur fyrr enn af okkar kunnustu handknatt- leiksmönnum — og jafnan fastamaöur i landsliöinu, en vinnuslys sem varö þess vald- andi aö örn missti framan af nokkrum fingr- um batt enda á handknattleiksferil hans. FH-ingar eru þegar byrjaöir aö æfa undir stjórn Arnar og hafa þeir nú ákveöiö aö taka þátt i Evrópukeppni bikarmeistara I hand- knattleik. Eins og kunnugt er og Visir hefur skýrt frá þá mun Viöar Simonarson sem veriö hefur einn af lykilmönnum liösins leika meö 2. deildarliöinu Halmstad I Sviþjóö ásamt þeim Heröi Haröarsyni og Hilmari Björnssyni sem veröur þjálfari þess liös, en eins og einn úr FH liöinu sagöi: , Þá kemur maöur I manns staö”, og þeir eru allscndis ósmeykir þótt þeir hafi misst Viöar, enda fullvist aö þeir Þórarinn Ragnarsson og Geir Hallsteinsson munuteika meö liöinu i vetur. -BB ★ ★ Rússar sigra - en Kínverjar koma á óvart Sovélmenn hófu heimsleika stúdenta I ár þar sein þeir skildu við þá 1U73 — með þvi aö vinna fyrstu gullverölaunin á leikunum. Rússarnir setn unnu hvorki tneira né minna en t>8 gullverölaun i siöustu heimsleikum, unnu í gærkvöldi flokkakcppni I fimlcikum karla, en Japanir uröu aðrir. Þaö voru þó livorki Iiússar né Japanir sem mesta athygli vöktu i þessari grein. Það var liöið i þriöja sæli — Kina. Klnverjar hafa svo til algjörlega haldiö sig utan viö alþjóölega keppni af þessu tagi, en I Sofiu I Búlgariu þar sem leikarnir eru haltlnir eru Kinverjar meö tit) fnanna lið. Kngin reiknaöi þó meö neinu af þcim, enda gjörsamlega óþekkt stærö i iþróttum. Biöa menn nú spenntir eftir þvi hvernig öörum kinverskuin keppendum vegnar. Kinverjarnir sjálfir tóku þó öllu meö sinni i'rægu rósemi og litillæti, og sögöust alls ekki hafa komiö til aö sækjast eftir verölaununt. Þeir væru bara þarna til aö „skoöa og læra”. Sérfræöingar sein staddir cru i Sofiu velta þvi nú fyrir sér hvaö Kinverjarnir gætu ef þá langaöi til aö vinna! —GA ★ ★ Ali vill berjast við Frazier ,,Þaö sem ég er aö gera er aö bjóöa Joe Frazier aö gera sig kláran og keppa viö mig snemma á næsta ári um heimsmeistaratitil- inn”, sagöi Muhammed Ali i gær, þegar hann haföi tilkynnt aö hann ætlaöi aö fara enn einu sinni i hringinn áöur en hann hætti alveg, og þaö væri tilvalíö aö mæta Frazier I þaö skipt- iö. „Hann hefur haldiö sér viö og ætti aö geta veriö kominn I gott form eftir svona 8 mán- uöi, og þaö hentar mér vel aö hætta þá meö sigri yfir honum", sagöi Ali, en hann hefur sigraö Frazier I tveimur af þremur keppnum þeirra. Og Ali bætti viö: „Frazier hefur sagt aö hann hafi áhuga á aö mæta mér. Nú fær hann tækifæri til þess”. gk- Atkvœðaseðill í kosningu VÍSI5 um vinsœlasta knattspyrnuliðið sumarið '77 LIÐIÐ MITT ER: NAFN HEIM1LI BYGGÐARLAG SÝSLA SIMI Sendu seðilinn til VÍSIS Siðumúla 14, Reykjavik strax i dag. Hálfsmánaðarlega verður dregið úr nöfnum þeirra sem tekið hafa þátt i kosningunni og er vinningurinn hverju sinni 15 þúsund króna úttekt á sportvörum hjá SPORTVALI, Hlemm- torgi, Reykjavík. Aukavinningurinn er dreginn er út i lok kosning- arinnar úr atkvæðaseðlum þéirra, sem greiddu vinsælasta liðinu atkvæði sitt er 50 þúsund króna úttekt á sportvörum i Sportvali, Hlemmtorgi, Reykjavik. VINNINGAR HALFSMÁNAÐARLEGA Kunnur þjálfari er staddur hér! Þessi mynd er frá úrslitakeppninni i Evrópubikarkeppni iandsliöa sem fram fór I Helsinki um siöast- liöna helgi, en þar setti Rose-Marie Ackermann frá Austur-Þýskalandi nýtt heimsmet 1 hástökki kvenna, stökk 1,97 metra og er þessi mynd af henni I metstökkinu. 1 siðari hálfleik snerist dæmiö viö, þá voru Valsmenn öllu at- kvæöameiri viö mark andstæö- ingsins. Og þeir voru lika fyrri til aö skora. Dæmd var aukaspyrna á Akurnesinga rétt utan viö vita- teig þeirra og fyrir miöju marki. t fimmta flokki er þetta mjög Einn af kunnustu frjáls- iþróttaþjálfurum Bret- lands er nú staddur hér á landi og mun hann leiö- beina íslenskum íþrótta- mönnum næsta hálfa mán- uðinn. Hann heitir Gordon Surtees frá Billingham — og eru það IR-ingar sem standa fyrir komu hans hingað, en fleiri félög munu taka þátt í kostnað- inum. ISurtees, eöa Gordon eins og frjálsiþróttamenn kalla hann. var meö sina fyrstu æfingu á Laugar- dalsvellinum i gærkvöldi og siðan ráðgerir hann aö hafa æfingar- búðir i Skiöaskála tR um helgina og verða þar á milli 20 og 30 manns. Gordon er sérhæfður i þjálfun lang- og millivegalengdahlaúpara og hafa islenskir iþróttamenn, þeir Agúst Asgeirsson, Sigfús Jónsson og Jón Diöriksson æft eftir prógrammi frá honum sið- astliöin ár. Auk þess hefur hann leiðbeint fleiri hlaupurum. Frægasti hlaupari sem hefur æft undir stjórn Gordons siðast- liðin ár er Dennis Coates, er hefur unnið marga frækna sigra á hlaupabrautinni og hann komst i úrslit i 3000 metra hindrunar- hlaupinu á Ólympiuleikunum i Montreal þótt ekki kæmist hann á verðlaunapall enda hlaupið eitt frægasta hlaup sem hlaupið hefur verið fyrr og siðar og stóðst heimsmetið ekki þau átök. Þetta er ekki i fyrsta skipti sem Gordon kemur hingað til lands, hann kom hingað fyrir tveim ár- um og hélt þá svipað námskeið og nú er ráðgert. -BB Super kaup — á super 8 fílmum! 12% afsláttur ef keyptar eru fjórar í einu Lið Vals og Akraness í fimmta aldursflokki verða að leika að minnsta kosti einn úrslitaleik enn, til að fá úr því skorið hvort liðið hljóti Islandsmeistaratitil- inn. Og eftir þriðja úrslita- leiknum að dæma sem háð- ur var í gærkvöldi gætu leikirnir allt eins orðið miklu fleiri. Þessi tvö lið eru nefnilega alveg ótrúlega jöfn. Þau hafa leikið þrjá leiki núna á rúmri viku, allir hafa endað með jafntefli og i öllum leikjunum hafa liöin skorað sitt markið hvort. ' Dálitil gjóla var i Laugardaln- um i gærkvöldi þegar 3. leik- urinn fór fram. Skagamenn léku undan henni fyrri hálfleik og sóttu þvi nokktu meira. Skall nokkrum sinnum hurð nærri hælum við Valsmarkið, en ekkert mark var skoraö i hálfleiknum. Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær næsti leikur fer fram. -GA Breski þjálfarinn Gordon Surtees var með sina fyrstu æfingu á Laugardalsveliinum I gærkvöldi og þar voru þær Aðaibjörg Hafsteinsdóttir HSK til vinstri og Thelma Björnsdóttir úr Kópavogi mættar og ætla að æfa undir handleiðslu hans ásamt fjölda annarra islenskra iþróttamanna. Ljósmynd Einar Gunnar. L 11)11) MITV STltAX IPOST hættuleg staöa. Leikmennirnir eru svo lágvaxnir ennþá, að varn- arveggur kemur litið að gagni og markmaður af meðalstærð nær ekki uppi slá. Hinn skotfasti Ingv- ar Guðmundsson i Valsliöinu var þvi fenginn til aö taka spyrnuna og hann skaut beina leið yfir veginn og yfir markmann Akur- nesinga sem þó náði að koma við knöttinn. 1-0. En Skagamenn voru sist lakari aðilinn og áttu skilið aö jafna. Þaö geröu þeir þegar um 7 min. voru til leiksloka. Þá dæmdi Grétar Norðfjörð dómari heldur vafa- sama vitaspyrnu á Valsara, og Sigurður Jónsson skoraði örugg- lega. Og þannig lauk þessúm bráðskemmtilega leik, 1-1. I báðum liðum eru mjög jafnir einstaklingar, sérstaklega i Vals- liðinu þar sem enginn er öðrum fremri. Hjá Akurnesingum átti Sigurður Jónsson stórleik á miðju vallarins, en að öðru leyti var lið- ið jafnt og gott. Leika verður fjórða úrslitalefkinn í íslandsmóti fimmta flokks. Liðin skoruðu sitt hvort markið á Laugardalsvellinum í gœrkvöldi. — Gordon Surtees sem er einn af kunnustu frjálsíþróttaþjálfurum Bretlands leiðbeinir hér á landi LIDII) MITT LESENDUR, VÍSIS VELJA VINSÆLASTA KNATTSPYRNULIÐIÐ SUMARIÐ 1977 lýkur á morgun! — Síðustu forvöð að setja seðlana í póst í dag Nú er komiö að lokasprettinum i keppninni um iiðið mitt. Henni lýkur sem kunnugt er þann 20. ágúst, sem er á morgun. Þegar ailir miðarnir hafa verið taldir og komin niðurstaða um hvaða lið sé vinsælast á tslandi, þá verður dregið úr ölluin sendum miðum og sá sem hefur heppnina með sér, fær fimmtíu þúsund króna vöruúttekt i versluninni Sportvali i Reykjavik. Þegar talið var siðast i keppn- inni, fyrir viku, voru Valsmenn með flest atkvæði, en siðan þá hafa komið bunkar af seðlum viðsvegar að, og allt upp i 200 seðlar I sumum umslögunum. Staðan gæti þvi verið gjörbreytt núna. Liðið sem flest atkvæði fær, hlýtur titilinn „Vinsælasta knatt- spyrnulið á íslandi 1977”, og auk þess fallegan bikar til eignar. Það er þvi að miklu að keppa fyrir að- dáendur liðanna og liðin sjálf. Röð liðanna þegar siðast var talið var þessi: Valur, Fram, Akranes, Breiðablik, IBV, Sel- foss, KR, Vikingur, IBK og Þór var i tiunda sæti. Alls hafa um 30 liö fengið atkvæði i keppninni. Það skilja ekki mörg atkvæði liðin i efstu sætunum, og þvi getur allt gerst. En munið: Það eru siðustu forvöð að setja seðlana i póst núna i dag, eða i fyrramálið, vegna þess að úrslitin verða birt i mánudagsblaði Visis. Múller skoraði sex mörk Dieter Muller, vestur þýski landsliðsmiðherjinn sem leikur með Köln setti nýtt markamet i þýsku fyrstu deildinni i fyrra- kvöld. Hann skoraði sex mörk þegar lið hans sigraði Werder Bremen með 7-2. Hinn „Mulierinn”, Gerd, er þó enn markahæstur i fyrstu deild- inni með sjö mörk eftir þrjá leiki, þvi að hann skoraði llka I fyrra- kvöld þegar Bayern töpuðu 4-2 fyrir Fortuna Dusseldorf! Sex lið eru nú efst og jöfn i fyrstu deildinni, öll með fjögur stig eftir þrjá leiki. —GA Valsmenn fengu hornspyrnu á siðustu minútum leiksins, en eins og sjá má greip markvörður ÍA liðsins laglega inni, og þar meö fór sfðasta tækifæri Valsmanna forgörðum. — Visismynd Einar. Enn gerðu Valur og Akranes jafntefli!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.