Vísir


Vísir - 26.08.1977, Qupperneq 2

Vísir - 26.08.1977, Qupperneq 2
2 c —y ^ i Reykjavik. j; Hvað finnst þér um stærsta stól i heimi? (sem reistur hefur verið gegnt Hótel Esju) Itjarni Karlsson, 38 ára gamall útvarpsvirki. Mér líst ágætlega á hann, en auðvitað er þetta bruðl og ekkert annað. Kristján Leifsson, gangstétta- lagningamaður hátt á þritugs- aldri. Er hann bara ekki ágætur — ég hef nefnilega ekki séð hann. Jón tllfljótsson 23 ára gamall setjari. Mér list vel á gripinn — það er gaman að hafa séð svona stóran stól einu sinni á æfinni. Sverrir Sveinsson, 37 ára gamall verkstjóri i prentsmiðju. Hann er ekkert bruðl ef hann hefur aug- lýsingagildi. Ég reikna með aö auglýsandinn telji sig fá hann borgaðan. Svenna Sigurgcirsdóttir, 34 ára „símsvari”. Ég hef nú ekki séð hann enn — það sem maður hefur hinsvegar heyrt að hann kosti finnst manni bruðl svo ekki sé meira sagt Föstudagur 26. ágúst 1977 VISIR Kaupstefnan „íslensk föt 77" opnuð á fimmtudaginn: SÝNA NÝJU HAUST- OG VETRARTÍSKUNA Þessi fatnaður er frá nærfata- gerðinni Ceres. Kaupstefnan „islensk föt 77" hefst i Víkingasal Hótels Loftleiða kl. 14 á fimmtudaginn og stendur í þrjá daga. Þar munu 15 framleiðendur sýna is- lenska haust- og vetrartísku. I tilefni af kaupstefn- unni var haldinn fundur iðnrekenda og blaðamanna í gær. Þar sýndu sýningar- stúlkur hluta þess fatnað- ar# sem sýndur verður á kaupstefnunni. Þá töluðu þeir ólafur Davíðsson, hagfræðingur hjá Þjóð- hagsstofnun, og Björn Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Sportvers, um málefni fataiðnaðarins og svöruðu fyrirspurnum. 15 fyrirtæki Tilgangur kaupstefnunnar er að gefa framleiðendum og dreif- endum islenskra fatnaðar- og vefnaðarvara kost'á aö stofna til viðskipta sin á milli, en það er Félag islenskra iönrekenda sem stendur að kaupstefnunni fyrir hönd fataframleiðendanna. Þetta er 16 kaupstefnan sem haldin er, Hausttiskan frá Skinfaxa en stefnt er aö þvi að halda slika fatakaupstefnu vor og haust. Að þessu sinni taka fimmtán fyrirtæki þátt i kaupstefnunni, en þau eru Lexa hf, Verksmiðjan Dúkur hf, Vinnufatagerð Islands hf, Les-prjón hf, Prjónastofan Ið- unn hf, Artemis sf, nærfatagerð, Henson sportfatnaður hf, Skinfaxi hf, Bláfeldur hf, Skóverksmiðjan Iðunn, Fataverksmiðjan Hekla, Sportver hf, Klæði hf, Ceres hf og Max hf. Formaður undirbúningsnefnd- ar er Axel Aspelund, en fram- kvæmdastjóri kaupstefnunnar er Þórarinn Gunnarsson, skrifstofu- stjóri FII. Markaðshlutdeildin I erindi Ölafs Daviðssonar kom fram, að rúmlega 860 manns störfuðu i fatagerð hérlendis árið 1975, en um 300 manns i prjóna- vöruframleiðslu. Framleiðni á mann i fataiðnaði hefur aukist um 6% að meðaltali á undanförnum árum. Innlendir framleiðendur hafa haft meira en helming innlenda markaðarins, eða 53-57% á undanförnum árum, og fer hlut- deild þeirra vaxandi. Framleiðsluverðmæti fata- gerðar, sem fyrst og fremst framleiðir fyrir innlendan mark- að, var rúmlega tveir og hálfur milljarður króna á siðasta ári, og er þá miðað viö það verð, sem Eiga jarðýtur að eyðileggja fornminjar Hálfgerð vertið er hafin i fornleifafundum i landinu. Menn taka sig til i Kelduhverfi og byrja að grafa i bæjarrústir við Bláskógaveg. Þar telja þeir sig vera komna niður á fornaldarbæ. A Skarði á Skarð- strönd er ýtt við bæjarhólnum og upp kemur vcggur úr bygg- ingu ólafar riku. Ef þessu held- ur áfram vcrður að fara fjölga fornminjafræðingum, svo hægt sé að senda sveitir þeirra á staði, þar sem fornminjar spretta úr jörðu eins og kræki- ber á haustdögum. 1 rauninni hefur fornminja- varslan snúist mest um það á siöustu áratugum að láta allt kyrrt Itggja, samkvæmt þeirri kenningu að jörðin geymi þær best. Hins vegar hefur veriö drattast á þá staði, þar sem jaröýtur hafa rótað upp gröfum höföingja, sem stundum hafa verið huslaðir með hrossum sin- um og mannskap eftir bardaga með deigum sverðum. Slikur fundur varð skömmu eftir strið I Kræklingahliö og þótti ekki merkilegur, þóttekki væri mok- aöyfir beinagrindurnar afturtil aö framfylgja stefnu fornminja- fræðinnar um að jörðin sé besta frystikistan. Fornminjar á Skarði á Skarðströnd hljóta að vera um- talsverðar. Með umróti jarö- vegs er hægt að vinna óviljandi skemmdir á þessum minjum, sem ekki verða bættar. Svo er um fleiri merka sögustaöi, þar sem stórvirkar vinnuvélar eru látnar róta upp mold og möl, eins og ekkert kunni markvert að leynast á milli yfirborðsins og jarðarmiöju. Furðurlegt er það sinnuleysi um þessa hluti, á sama tima og Náttúruverndar- ráð fer eins og eldibrandur um allt land og lokar stórum hlutum þess fyrir framkvæmdum undir yfirskini ákvæða um þjóðgarða, eða friðlýsinga, skuli þeir sem séðhafa um fornminjavörsluna i landinu, m.a. með þvi að láta fornminjar i friði, aldrei hafa látið sér detta i hug að friölýsa sögustaði og bæjartóftir, svo þær geti beðið óbreyttar eftir þeim timum, þegar bæði fé og mannafli er fyrir hendi til að taka þessum málum tak. í stað slikrar skynsamlegrar ráðstöfunarfer hver I sínu horni af stað, ýmist til að grafa upp á eindæmi, af þvi honum þykja rústir forvitnilegar, eða þá hefja moldarverk með jarðýt- um, en þær eru einhver verstu tæki sem á fornminjum geta lenLSkarð á Skarðsströnd býr að þeirri gæfu, að þar hefur sama ættin búiö óslitið i margar aldir. Þar er si lfurbrautin fræga, sem ólöf rika lét breska fanga leggja yfir mýrarsund, þegar hún hélt hóp þeirra á staðnum meðan stóð á iöngum væringum hennar og Breta eftir dráp manns hennar. Vitað er, að á Skarði var einna best búið á miðöldum og mikill auður I garði, enda þarf ekki annað en róta við gömlum steinvegg frá tíð Ólafar riku, svo ekki komi upp gullmunur markveröur, sem samkvæmt kenningu forn- minjavörslunnar væri bes,t geymdur i jörðu. Það er auðséð að meðan yfir stendur sú stefna í þjóðminja- vörslu að láta jöröina geyma sem mest af minjum fyrri tiðar, þarf einhverrar vernd- unar við á þeim svæðum, sem iikleg eru til að leiða i ijós merkilega hluti, strax og rótað er við jarðveg- inum. Við erum sárfátæk af fornminjum en þeim mun rikari af sögu, sem sum hver er þó ekki annaö en iygi og hindur- vitni. Engu að siður virðist okk- ur þannig farið, að við látum söguna nægja, en hiröum minna um undirstöður hennar, sem liggjaundirfótum okkar.Þaðer þvi full ástæða til að skora á þá sem láta sig þjóðminjar ein- hverju varða, að koma þegar I stað á fót aðstöðu til að vernda alla markverðari sögustaði fyrirfrekara jarðraski, og hefja siðan markvissa sókn til að létta af þeim þyrnirósarsvcfni, sem yfir þjóðminjaleit hefur verið, og gera okkur kleift að taka við hlutverki moldarinnar I varð- veislu minja. Svarthöfði

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.