Vísir


Vísir - 26.08.1977, Qupperneq 24

Vísir - 26.08.1977, Qupperneq 24
VÍSIR Bónuskerfið stytt- ir vinnudaginn Hálfs- dags- vinna aígeng í frysti- húsum „Það hefur orðið veruleg breyting á vinnutimanum hér untíanfarna mánuði. Sérstaklega er áberandi að kvenfólk vinnur í vaxandi mæli aðeins hálfan daginn"/ sagði Jón Páll Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Norðurtang- ans h/f á isaf irði, í samtali við Vísi. Hann sagftist búast viö aö þessi breytlng hafi oröið vegna áhrifa frá bónuskerfinu. Starfsstúlkur frystihússins vinna yfirleitt annaö hvort frá kl. 7 eöa 8 til há- degis eöa frá hádegi og fram til kl. 5. Meö þessu móti sagöi Jón Páll aö þær héldu uppi hraöa og nýtingu og næðu þvi góöum bónus. ,,Það er greinilegt aö þeim finnst þetta þægilegt fyrirkomu- lag. Þær ná á þennan hátt það góðum tekjum að þeim finnst þaö nóg. Við erum siöur en svo óánægöir með þetta. Aö visu vorum viö þvi heldur mótfallnir i fyrstu, en reynslan er sú að þetta hefur sina kosti fyrir okkur lika. Einn þeirra ersá að fleira fólk vill gefa sig i hálfsdagsvinnu og kemur þvi út á vinnumarkaöinn”, sagöi Jón Páll. — SJ Vísir efnir til smaoug- lýsingahapp- . drœttis: Nú fá menn ekki aðeins smáauglýsing- una birta i Visi heldur geta þeir átt von á að eignast ókeypis Philipslitsjónvarps- tæki, sem kostar út úr búð á fjórða hundrað þúsund krónur. Þaö hefur sem sé veriö hleypt af stokkunum smáauglýsinga- happdrætti á vegum VIsis. Allir þeir, sem birta smáauglýsingar Ekki aðeins birting, heldur möguleiki á að eignast Philips-litsjón- varpstœki I VIsi dagana 26. ágúst til 11. september næstkomandi, þaö er meðan sýningin Heimiliö ’77 stendur yfir, veröa sjálfkrafa þátttakendur I þessu sérstæöa happdrætti. Eingöngu veröur dregið úr númerum greiddra smáauglýs- ingareikninga. Dráttur fer fram 15. september. Vinningurinn I smáaug- lýsingahappdrætti VIsis er sem sagt Philips De Luxe litsjón- varpstæki frá Heimilistækjum s.f. með 26 tommu skermi og fullkomnasta tæknibúnaöi sem völ er á. Verömæti tækisins er 352 þúsund krónur. Sjónvarpstækiö verður til sýnis I sýningarbás Vísis á heimilissýningunni I Laugar- dalshöll, sem opnuö veröur I dag. Þar veröur tekið á móti smá- auglýsingum meöan sýningin stendur, en eftir sem áöur verður smáauglýsingamóttakan i fullum gangi I auglýsingaslma Visis 86611 og hjá auglýsinga- deild blaðsins að Sfðumúla 8. Aratugum saman hafa smá- auglýsingar VIsis veriö áhrifa- mikill vettvangur fyrir kaup og sölu á Tlestu þvl sem þarf til heimilisins og er þvl eðlilegt aö þær tengist nú Heimilinu 77 á þcnnan hátt. ’ Nú er bara aö nota tækifærið, selja þaö sem þarf eöa auglýsa eftir þvl, sem lesendur vantar á smáauglýsingaslðum VIsis Gœtum þess að ekki verði gengið í okkar verk segja verkfrœðingar borgarinnar, sem hófu verkfallsvörslu í morgun „Við mætum á vinnustaöi okkar og höfum aö sjálfsögöu rétt til aö gæta þess aö aörir gangi ekki I okkar störf. Verk- banniö hófst I gær og þá vorum viö einnig á vinnustööunum án þess aö viö þvi væri amast, en verkfall okkar hófst I morgun”, sagöi Gunnar H. Gunnarsson verkfræöingur I samtali viö VIsi. Vinna liggur niöri hjá 31 verk- fræðingi er starfa hjá Reykja- vfkurborg. Kjaradeila leiddi til þess aö fjórir verkfræðingar er vinna hjá Rafmagnsveitunni boöuöu verkfall er hófst hjá þeim á mánudaginn var, en borgin svaraði meö þvl að setja verkbann á hina 27 verk- fræðingana sem vinna hjá borg- inni. Þeir boðuðu verkfall á móti sem hófst i morgun. Gunnar sagði aö ljóst væri aö truflanir kæmu fljótt fram I ýmsu vegna þessa ástands og svo gæti farið að ýmsar gatna- og holræsaframkvæmdir þyrfti aö leggja á hilluna til næsta árs. Ekki er mælt út fyrir lóðum eöa girðingum, svo dæmi séu tekin og teikningar ekki stimplaöar. Þegar verkfræðingar lögöu niður vinnu i fyrra uröu deilur vegna stimplunar teikninga hjá byggingafulltrúa en borgaryfir- völd vildu meina aö hann heföi sjálfur rétt til aö stimpla þær. Gunnar sagði aö byggingafull- trúi kæmi úr fríi á mánudag, en verkfræöingar myndu reyna aö koma i veg fyrir stimplun ef slikt yröi reynt. Vinna verkfræöinga hjá raf- magnsveitu þróunarstofnun, vatnsveitu og á skrifstofum borgarinnar viö Skúlatún liggur þvi niðri. Verkfræöingar hafa visaö málinu til sáttasemjara, en fundur ekki verið boöaöur. —SG Dr. Josef Luns kominn hingað Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, Joseph Luns, kom til landsins í gær. Mun hann sitja fund ATA samtakanna um vestræna samvinnu, sem hefst í Reykjavik í dag. Þessi mynd var tekin af framkvæmdastjóranum er hann tók við herbergislykli sinum á Hótel Sögu en þar mun hann dveljast meðan ráðstefnan stendur yfir. Vís- ismynd: EGE. Tvö slys ó Akureyri Tvö umferöarslys uröu á Akur- eyri I morgun og uröu slys á fólki I báöum tilfellunum. Það fyrra átti sér staö áKaup- vangsstræti um klukkan fimm i morgun. Fólksbil var ekiö niöur gilið, sem þar er, og fór hann á hliðina og valt siöan nokkrar velt- ur. Fernt var i bilnum og voru tveir farþeganna fluttir á sjúkra- hús, en meiðsl voru ekki talin mjög alvarleg. Um klukkan hálf átta i morgun varð svo árekstur milli létts bif- hjóls og bifreiðar á mótum Höföa- hliöar og Hörgárbrautar. Öku- maður bifhjólsins var fluttur á sjúkrahús en ekki er enn vitað hve alvarleg meiösli hans voru. — GA VEÐRIÐ Veðurstofan gerir ráö fyrir hægri breytilegri átt á öllu landinu I dag. Skýjaö veröur og sums staðar skúrir norð-austan lands, en létt- skýjað meö köflum viöast hvar I öðrum landshlutum. Þó er hætt viö siödegisskúrum. Á morgun er hætt viö aö ekki verði eins gott vcöur vestan- lands, þvi þá er búist við sunnan- eða suðvestanátt. — SJ

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.