Tíminn - 20.02.1969, Qupperneq 1

Tíminn - 20.02.1969, Qupperneq 1
Auglýsing í Tímanum kemur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda. Gerizt áskrifendur að Tímanum. Hringið í síma 12323. 42. tbl. — Fimmtudagur 20. febr. 1969. — 53. árg. 23% MINNA MJÓLKUR- INNLEGG I MBF I JAN. KJ-Reykjavík, miðvikudag Hjá mjólkurbúunum í Borgarnesi og á Selfossi hefur innvegið mjólkurmagn minnkað um upp undir fjórðung í janúar í ár mið- að við sama mánuð árið áður. Hef ur innvegið mjólkurmagn farið stigminnkandi frá því í ágúst, og hjá Mjólkurbúi Flóamanna á Sel- fossi minnkaði innvegið mjólkur- magn um 2,5% árið 1968 miðað við árið á undan. Það sem einkum er talið að valdi þessari minnkun eru létt hey og minnkandi kjarn- fóðurgjöf. Tíminn aflaði sér í dag upp- lýsinga urn mjólkurinnlegg og kjarnfóðurgjöf hjá mjólkurbúum og kaupfélögum á suð-vesfurlandi og var allstaðar sama svarið: Eysteinn Jónsson Sérprentun á ræðu Eysteins UM ÞING FLOKKA OG UNGT FÚLK IGÞ-Reykjavík, miðvikudag. Komin er í bókaverzlanir sér- prentun á merkri þingræðu, sem Eysteinn Jónsson flutti 6. nóvem- ber 1968. Ræðan var síðan birt hér í báaðinu 9. og 10. nóvember sama ár. Ræðuna flutti Eysteinn Framhald á bls. 14. Mjólkurinnleggið hefur farið hrað i minnkandi, og jafnframt gefa; bændur minna kjarnfóður. Grétar Simonarson, mjólkurbússtjóri j Mjólkurbús Plóamanna á Selfossi; tjáði blaðinu, að á árinu 1968 hefði búið tekið á móiti 34.747.866 lítrum (þrjátíu og fjórum millj. sjö hundruð og fjörtíu og sjö þús und átta hundruð sexitíu og sex lítrar), en árið áður hefði búið tekið á móti 35.636.241 lítra. Lækkunin er 888.375 lítrar eða 2,5%. Grótar sagði að lækkunin hefði byrjað í ágúst og þá verið 5%, í september 10.7%, í október 13,5%, nóvember 19.4%, desem- ber 20,9% og í janúar hefði mjóik urinnleggið minnkað um 23,4% miðað við sama mánuð árið áður. Það sem af er febrúar hefur mjól’kurinnleggið hjá MBF verið um 20 þúsund lífrum minna á dag, eða , kring um 62 þúsund litrar. Grétar sagði, að öll mjólk, nema sú sem væri seld til neyzlu á Selfossi og nágrenni færi á mark að í Reykjavík, og ekkert færi til vinnslu f búinu. f búinu væri að- eins búið til skyr úr undanrennu- dufti frá því í sumar. MBF á Sel- fossi á nú 37 mjólkurflutninga- Framhald á bls. 14. Víða sáust þess merki í gær, að mánaðarfrí var í skólunum. Það vildi einmitt svo vel til, að nokkurt föl var á jörð um morguninn, þegar smáfólkið vaknaði, sem átti frí þennan dág. Og ekki leið á löngu áður en hinir árrisulustu höfðu fengið sér „salíbunu“ niður næstu brekku. Hér að ofan eru nokkrir vaskir piltar að nota fríið sitt til hins ýtrasta á Arnarhóli. (Tímamynd—Gunnar). ASl-ráðstefna um kjara- málin hefst á föstudag EJ-Reykjavík, miðvikudag. Á föstudaginn verður haldin hér í Reykjavík ráðstefna á vegum AI- þýðusambands íslands, þar sem rætt verður um kjaramálin, og þá sérstaklega um verðtryggingu launa. Til grundvallar umræðum mun væntanlega liggja samþykkt síðasta þings Alþýðusambandsins, sem haldið var í lok nóvember s. 1., en talið er sennilegt að á ráð- stefnunni á föstudaginn verði reynt að móta sameiginlega stefnu gagnvart viðræðum þeim, sem fram fara við atvinnurekendur á næstunni. Er við því búizt, að mynduð verði sérstök samninga- nefnd til að fara með þær viðræð ur fyrir hönd verkalýðshreyfingar innar. Eins og kunnugt er mótaði Al- þýðusamband'sþing einróma þá grundvallarstefnu í kjaramálum, að verðtrygging á laun héldist, og yrði greidd ársfjórðungslega eins og verið hefur. Samkvæmt þess- ari kröfu á að greiða verðlagsupp- bót nœst 1. marz — en til þess að svo verði, þurfa samnipgar um það atriði áð nást við atvinnurek- endur. Viðræður hafa ekki komizt á enn þá, og mun aðalástæðan senni lega að verkalýðshreyfingin hef- ur viljað bíða þar til samningum við sjómenn væri lokið. Strax er lausn verkfallsins var staðreynd, ræddi miðstjórn Alþýðusambands íslands kjaramálin lauslega og á- kvað að kalla saman ráðstefnu, þar sem kæmu fulltrúar þeirra lands sambanda, sem aðild eiga að sam ba'ndinu, og eins fulltrúar frá iþeim félögum innan ASÍ sem ekki eru í landssamhöndum. Ekki er álkveðið, hversu margir fulltrúar muni sitja ráðstefnuna, sem hefst eftir hádegi á föstudag, né heldur er ákveðið hvort hún stendur aðeins þann eina dag eða lengur. Fer það eftir gangi mála á ráðstefnunni. Alimennt er við því búizt, að samstaða náist á ráðstefnunni um afstöðuna í kjaramálunum og sam eiginlega viðræðunefnd verka- lýðshreyfingarinnar. FINNAR TBFJA UND- IRBÚNING N0RDEK NTB-Helsingfors, miðvikudag. Margt virðist nú benda til þess að undirbúningi að auk- inni efnahagssamvinnu Norður landa verði ekki hraðað eins mikið og ráðamenn í Noregi og Danmiirku hafa látið í skína. Að afloknum forsætis- ráðherrafundi, var á blaða- mannafundi í Helsingfors gefið til kynna, að dráttur yrði á endanlegum ákvörðunum um norrænt markaðssvæði — NORDEK. — Uhro Kekkonen forseti Finnlands, mun í við- tali við Erlander, forsætisráð- herra Svíþjóðar í dag, hafa látið í Ijós efasemdir um að ráðlegt væri að hraða undir búningi um of. Á blaðamannafundinum skýrði Erlander frá því að hon um hefði alltaf fundizt áætlun- in um undirbúning og samninga viðræður um þetta samstarf, gera ráð fyrir of naumum tíma. — Ég er nú orðinn sannfærður um þetta, sagði Erlander, og benti á að fyrir dyrum stæðu kosningar í Noregi, breytingar á ríkisstjórn Svíþjóðar og í hönd færi undirbúningur að fjárlögum fyrir 1970. — Á þessum stutta tíma á einnig að taka afstöðu til efna hagssamvinnunnar og ef mögu- legt er að taka ákvörðun um framkvæmd hennar. Ég vil ekki hindra framgöngu þessa máls ef það reynist framkvæm- anlegt ,en það verður að telj- ast ólíklegt. Ég hef gert Kekk onen grein fyrir þessari skoðun og honum fannst skynsamlegt að líta vandamálið þessum aug um. Finnska stjórnin hefur í hyggju að leggja tillögurnar um aukna efnahagssamvinnu Norðurlanda fyrir finnska þing ið áður en forsætisráðherrf- fundurinn verður haldinn í Gsló eftir mánaðartíma. Koivisto, Framhaid a bls. 14

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.