Vísir - 05.10.1977, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 5. október 1977 VISIR
VISIR Miðvikudagur
5. október 1977
„Hlakka mikið
til að fást
við þjálfun"
— segir Mark Christensen hinn nýi leikmaður
og þjálfari Þórs í körfuknattleik
Mark Crístensen (t.v.) á æfingu hjá Þórsliðinu. Hér er hann að rseöa við Þröst
Guðjónsson (t.h.) og er greinilega að segja eitthvað merkilegt.
Ljósm. islendingur Akureyri
„Það sem hefur aðailega komið mér á
óvart varöandi körfuboltann hér á Akur-
eyri, er að það viröist ekki hafa verið gert
nóg fyrir unglingana siðustu árin", sagði
Bandarikjamaðurinn Mark Christensen i
stuttu spjaili um helgina.
Mark ernýkominn norður, og hann mun
I vetur leika með og þjálfa 1. deiidarlið
Þórs, og freista þess að tryggja stööu
Þórs i deildinni. Þá mun hann einnig
þjálfa alla yngri flokka félagsins.
,,Eg hlakka mjög til þess að fást við
þjálfun hjá þeim yngri, þaö er ávallt gam-
an að vinna meö ungu fólki.
Um mcistaraflokkinn erþaðaösegja að
ég mun gera niitt besta til að gera Þórs-
liðiö að samstilltu liði, en ég veit að þaö
þarf lengri tima tilað gera liðað góðu líöi,
og þaö sem Þórsliðið vantar fyrst og
fremst f dag er meiri mannskapur.
Mark Christensen cr frá Kentucky í Ne-
braska I Bandarikjunum, og þar lék hann
körfuknattleik I háskóla i fjögur ár. i
fyrra lá leiöin siðan til Kanada þar sem
hann lék við góðan orðstir, og að loknu
keppnístlmabilinu var hann valinn I 5-
manna úrvalsliðþeirra bestu þar i landi. i
slikt lið kemstenginn meðalmaður, þvi að
Kanada er orðið stórveldi i körfuknattleik
á alþjóðavettvangi.
,,Ég var búinn að kynna mér island
talsvert áöur en ég kom hingað, og kunn-
ingi minn sem hefurdvalið hér sagði mér
ýmislcgt um land og þjóð.
Og ég hef ekki orðið fyrir vonbrigðum,
hér er gott og myndarlegt fólk, og ég hef
þegar eignast góða kunningja hér.
— A Akureyri eru menn isjöunda himni
meö þennan nýja liösstyrk. Mark hefur
sýnt stórkostlega ieikni á æfingum. Þótt
hann sé 2 metrar á hæö, er hann mjög
fljótur leikmaður, og boltameðferð hans
og taktar allir bera þess glöggt vitni að
þar fer maður sem á eftir að reynast Þór
vel i vetur.
HR/gk-.
Kínverjarnir „sprungu"
í síðari hálfleiknum!
marka úr hraðaupphlaupum.
En þeir voru ósköp kurteisir i
vörninni, og ef linumaður var
kominn með boltann i hendurnar
fékk hann aö reyna skot óáreittur
að mestu. Þar var svo sannarlega
i fyrirriími vináttan margumtal-
aða.
Enda fór það svo að þótt Kin-
verjarnir hefðu nær ávallt forust-
una i' fyrri hálfleiknum, þá náðu
þeir aldrei að hrista okkar menn
af sér. Ef þeir hefðu leikið alvöru
varnarleik, þá hefði sennilega
farið illa fyrir okkar mönnum á
Akranesi i gærkvöldi.
En þeir virtust orðnir „púður-
lausir” Kinverjarnir i siðari hálf-
leiknum, og Island byrjaði á þvi
að skora 3 fyrstu mörkin og for-
usta tsland, varð mest 6 mörk,
24:18 og 27:21 og leiknum lauk
með tveggja marka sigri eins og
áður sagði.
Það er greinilegt að keppnis-
timabilið er rétt að hefjast hjá
okkar mönnum, og sennilega er
landsliðið okkar nokkrum tugum
kg of þungt i dag. Það voru helst
þeir Geir Hallsteinsson og Jón
Pétur Jónsson sem eitthvað
skemmtilegt sýndu og virtust
vera með sömu snerpu og Kin-
ver jarnir.
Kínverjarnir eru á réttri leið i
handboltanum, á þvi leikur eng-
inn efi. Með meiri baráttu I varn-
arleik sinum eiga þeir að geta
byggt upp stórlið, en þá þarf lfka
að breyta eitthvað hugsunarhætt-
inum. Væri hægt að imynda sér
að einkunnaroröinyrðu: „Vinátta
en keppni samt”. Þeir eru geysi-
snöggir og það brá fyrir gullfall-
egum fléttum I sóknarleik þeirra.
Mörk islands: Geir 7(1), Ólafur
Einarsson 7, Björgvin6, Þorbjörn
G. og JónP. 3hvor, Arni Indriða-
son og Viggó 2 hvor, Jón K. Þór-
arinn og Þorbergur 1 hver.
Bestu menn Kinverjanna voru
markvöröurinn sem varði oft vel
þráttfyrirmörkin 33, og leikmað-
ur nr. 7 sem skoraði 11 mörk (5).
Hann er geysiskemmtilegur.
BV/gk-.
UMBOÐSMENN
ÓSKAST í
STYKKISHÓLMI
OG HÚSAVÍK
Einn sérkenniiegasti iands-
leikur i handknattleik sem fram
hefur farið hér á landi i langan
tima fór fram á Akranesi I gær-
kvöldi, en þar kepptu Kinverjar
við HM-lið okkar Islendinga, og
gekk svo sannarlega á ýmsu þar.
Eftir fyrri hálfleik höfðu Kin-
verjar yfir 17:16, en svo virtist
sem þeirhefðu „sprungið” i fyrri
hálfleiknum ogþá tryggöi tsland
sér sigur 33:31. óvenjuleg
markatala i landsleik, enda ó-
venjulegur leikur.
Eitt af marktækifærum
fór framhjá.
m,
VI
tslands i leiknum. Hinn stórefnilegi Arnór Guöjohnsen hefur spyrnt ,
.hjólhestaspyrnu” að marki Wales, en boltinn
Visismynd Einar
Mörkunum hreinlega „rigndi”
niöur I fyrri hálfleiknum. Kin-
verjarnir voru eins og „hraðlest-
ir” um allan salinn og hreinlega
stungu okkar menn af hvað eftir
annað og skoruðu þá fjölda
að sigra ek
— Þeir höfðu yfir í hálfleik 17:16 í landsleiknum í handknattleik í gœrkvöldien
misstu forustuna strax í upphafi síðari hálfleiksins
4. deiid:
Barnsley—Torquay
Pele kvaddur. Eftir leik New York Cosmos og Santos frá Brasillu gat Pele ekki haldlð aftur af tárunum
og hér sést fyrrum félagi hans hjá landsliði Brasiliu og Cosmos, Carloc Alberto, reyna að hugga hann.
2. deild:
Bolton—Blackburn
Blackpool—C. Palace
Bristol—Mansfield
Charlton—Brighton
Fulham—Burnley
Hull—Tottenham
Luton—Millwall
Oldham—Stoke
Sheff.Utd—NottsC.
Southampton—Orient
Sunderland—Cardiff
3. deild:
Carlisle—Lincoln
Peterborough—Oxford
Plymouth—Shrewsbury
Portsmo.uth—Chester
Preston—Sheff. Wed.
Rotherham—Walshall
Swindon—Bradford
Eftir það hvernig leikur ung-
lingalandsliða islands og Wales i
undankeppni Evrópukeppni ung-
linga hafði þróast, var það grát'-
legt fyrir islenska liðið að sigra
ekki i leiknum. Strákarnir höfðu
nefnilega náð forustunni f upphafi
siðari hálfleiksins og þeirri for-
ustu héldu þeir alveg fram á loka-
minúturnar er Walespiltunum
tókst að jafna eftir mikil mistök
okkar pilta, og úrslitin urðu þvi.
1:1. Walesliðið stendur þvi með
pálmann i höndunum, þvi að þeir
eiga sinn heimaleik eftir ytra.
Walespiltarnir virkuðu mun
sterkari i byrjun leiksins og virt-
ist vera mikil taugaspenna i is-
lenska liðinu. En þegar leiknar
höfðu verið um 15 minútur fóru
okkar piltar að koma meira inn i
leikinn og þeir fengu tvö góð tæki-
færi til að skora. En það tókst
ekki og menn voru svartsýnir i
hálfleik, þvi að islenska liðið átti
eftir að leika á móti talsverðum
vindi.
Það kom þvi ákaflega á óvart
er Island náði forustunni strax i
upphafi siðari hálfleiksins. Liðið
náði þá góðri sókn, og er fyrirgjöf-
kom inn i vitateig Wales, fór bolt-
inn i hendur eins varnarmanna
þeirra og vitaspyrna varð ekki
umflúin. Hana tók Páll ólafsson,
og skoraði af öryggi 1:0
Eftir þetta voru Wales-piltarnir
sterkari aðilinn undan vindinum,
en svo virtist sem okkar piltar
ætluðu að halda fengnum hlut, þvi
að þeir börðust af mikilli hörku.
En rétt fyrir leikslok urðu mikil
mistök til þess að Wales jafnaði. í
stað þess að hreinsa vel frá var
Ómar Jóhannesson að „dútla”
með boltann inni undir eigin vita-
teig, og missti hann. Boltinn var
sendur fyrir mitt markið og þar
skoraði miðherji Wales með
óverjandi þrumuskoti. Grátleg
mistök!
En það má samt sem áður vel
við una. Við tefldum fram ungu
liði i þessum leik, leikmönnum
sem eru nær allir einu og tveimur
árum yngri en Walesmennirnir,
og þetta er mikið framtiðarlið hjá
okkur með snillinginn Arnór Guð-
mundsson i fararbroddi, eitt
mesta efni sem komið hefur fram
lengi hér á landi. Taktar hans
minna oft á Ásgeir Sigurvinsson,
og er ekki leiðum að likjast. Þá
má nefna Ágúst Hauksson, Bene-
dikt Guðmundsson, Skúla Rós-
antsson og Pál Ólafsson, allt mjög
Forest komið í
efsta sœtið!
Nottingham Forest skaust upp
á toppinn i 1. deild ensku knatt-
spyrnunnar i gærkvöldi, en þá fór
fram fjöldi leikja i Engiandi.
Peter Withe skoraði öll fjögur
mörk Forest gegn Ipswich sem
tókst ekki að svara, og Forest
hefur nú tveggja stiga forskot i
deildinni á Liverpool og Man-
chester City. Bæði þau lið léku i
gærkvöldi, Liverpool gerði 0:0
jafntefli i Higbury gegn Arsenal,
en City átti ekkert svar gegn
Coventry og tapaði 4:0. En aðrir
leikir i Englandi i gærkvöldi voru
þessir:
1. deild:
Everton—-WBA
Wolves—Derby
Birmingham—QPR
Darhngton—Northampton 2:0
Grimsby—Wimbledon 3:1
Huddersf.—Hartlepool 3:1
Newport—Scunthorpe 3:1
Rochdale—Halifax 3:1
Swansea—Southport 1:1
unga og efnilega leikmenn sem
eiga framtiðina fyrir sér. Og
þessir piltar verða allir gjald-
gengir i unglingaliðið aftur næsta
ár svo að þá verða möguleikarnir
miklir.
Walesliðið er skipað jöfnum
einstaklingum, sem eru áberandi
likamlega þjálfaðri en okkar pilt-
ar. Ekki nema von, þvi að þeir
koma frá atvinnumannaliðum
s.s. 1 frá Leeds, 1 frá Manchester
City, 1 frá Everton, 2 frá Chrystal
Palace, 2 frá Chelsea o.fl. at-
vinnumannaefni voru þarna með.
Arangur „litlu” Islendinganna er
þvi vel viðunnandi.
gk—.
Aftur í kvöld
i kvöld gefst fólki á Stór-Reyk-
javikursvæðinu þess kostur að sjá
siðari landsleik íslands og Kina i
handknattleik að þessu sinni, en
þá mætast liöin i Laugardalshöii-
inni kl. 20.30.
í leiknum I gærkvöldi sýndu
Kinverjarnir rnargt skemmtilegt,
t.d. mikinn hraða og skemmti-
legar ieikfléttur þótt það nægði
þeim ekki til sigurs.
Okkar menn ollu hinsvegar
vonbrigðum þrátt fyrir sigurinn,
en vonandi tekst strákunum betur
upp i kvöld.
VISIR
SÍMI 86611
VILTU HÆTTA AÐ REYKJA?
íslenska bindindisfélagið mun halda að
Lögbergi við Háskólann námskeið til að
hjálpa fólki að hætta reykingum. Nám-
skeiðið hefst sunnudaginn 9. október og
stendur i 5 kvöld.
Leiðbeinendur verða Sigurður Bjarnason
og Snorri Ólafsson. Námskeið þessi eru
byggð upp samkvæmt erlendri fyrirmynd
og hafa verið haldin viða um lönd með
mjög góðum árangri. Gefin eru ráð um
það hvernig styrkja megi viljann og
hvernig megi á sem skemmstum tima
losna við nikótin áhrifin úr líkamanum.
Jafnframt eru gefnar leiðbeiningar um
mataræði hentugt fyrir þá sem eru að
hætta reykingum og hvernig varast megi
að likamsþunginn aukist. Mörg önnur góð
ráð eru gefin á námskeiði þessu.
Frekari upplýsingar og innritun á skrif-
stofutima i sima 13899 3.-7. okt