Vísir - 05.10.1977, Blaðsíða 17

Vísir - 05.10.1977, Blaðsíða 17
VISIR Miövikudagur 5. október 1977 17 Góð staða pundsins Dollarinn, virtist heldur vera aö rétta úr kiitnum i gær eftir aö hafa falliö að undanförnu. Þetta var þó aðeins mögulegt með miklum dollarakaupum aðal- bankanna. Yenið stóð i gær þannig, að doilarinn kostaði 261 yen eftir aö aðalbankar i Japan höfðu keypt 150 milljónir dollara. Sterk öfl i Japan gera allt sem þau geta til að hindra það að Yenið verði of sterkt þar sem það mun leiða til erfiöleika fyrir útflutnings- iðnaðinn. í Vestur Þýskalandi kostar doliarinn nú 2,30 mörk á móti 2,29 i fyrradag. Híkisbankinn varð aö kaupa 15 milljónir doll- ara í fyrradag og 7,65 milljónir i gær. Efnahagur Vestur Þýska- lands er ekki jafn stöndugur og hann hefur verið. Þótt hægt sé að tala um tímabundinn halla ó greiðslujöfnuðinum i ágúst sem nemur 1,68 milljörðum marka, er hætt við að samtals veröi greiöslujöfnuður yfirstandandi árs litið hagstæður. i júli var hann óhagstæður um 1,99 miiijarða marka og i ágúst i fyrra um 2,60 milljarða. Þessi hagstæðari útkoma i ágúst á þessu ári stafar að hluta til af þvi, að sumarleyfisferðir eru nú frekar farnar i júlí en ágúst. Greiðslujöfnuður fyrstu átta mánuði ársins var hagstæöur um 1,73 inilljarða marka á móti 2,32 milljörðum á sama tima I fyrra. Atvinnuleysi hefur heldur minnkað i september miðað við ágúst. Atvinnulausir voru 911.239 en voru 963,468 mánuð- innáöur. Hlutfall atvinnulausra er 4% á móti 4,3% i ágúst. Pundið stendur sterkt urn þessar mundir þótt dollarinn hafi heldur rétt úr kútnum og heldur pundið sig stöðugt vel yf- ir dollaranum. Gengið er nú 1,76 dollar fyrir pundið og í gær náði það upp i 1,7564. Þá hækkaði pundið i verði gagnvart öllum gjaldmiðl- um frá 62,3 I 62,4 samkvæmt opinberri skráningu. Hin styrka staða pundsins stafar að hluta til af hinum jákvæðu tölum um gjaldeyrisvarasjóð Breta. V'arasjóðir hafa vaxið langtum meira en ráð var fyrir gert, en reiknað var með 17,17 milljörð- um dollara. Aukning i septem- ber nam 2,32 milljöröum og er innifalið í þvi 400 miiljónir doll- ara sem er hluti af 1,5 milljarði dollara Evrópuláni Breta. Breski fjármálaráðherrann segirað aukning varasjóða stafi einnig af miklum kaupum er- lendra aðila á pundinu fyrr i mánuöinum. -Peter Brixtofte/—SG r GENGISSKRANING 1 Bandaríkjadollar... 1 Sterlingspund..... 1 Kanadadollar...... 100 Danskar krónur .. 100 Norskar krónur .. lOOSænskar krónur .. 100 Finnsk mörk..... 100 Franskir frankar . 100 Belg. frankar... 100 Svissn. frankar ... lOOGyllini.......... 100 V-þýsk mörk..... lOOLfrur............ 100 Austurr. Sch.... lOOEscudos.......... lOOPesetar.......... 100 Yen............. Gengið Nr. 187 Gengi nr. 188 3. október kl. 12 4. okt. kl. 12 '• 208.1« 208.60 208.40 208.90 ’ ' 365.40 366.30 366.00 366.90 '• 193.55 194.05 192.60 193.10 ■• 3399.35 3407.55 3401.45 3409.65 '■ 3797.10 3806.20' 3798.80 3807.90 •‘ 4335.90 4346.30 4327.70 4283.85 •• 5025.35 5037.45 5025.35 5037.45 ••. 4282.05 4293.05 4273.55 4283.85 ’' 586.05 587.45 585.85 586.95 '• 8925.55 8947.05 8916.45 8937.85 •■ 8534.10 8554.60 8525.05 8545.55 •• 9090.30 9112.20 9076.65 9098.45 23.63 23.69 23.63 23.69 '• 1271.20 1274.30 1272.25 1275.35 •■ 511.20 512.40 512.40 513.60 '' 245.95 246.55 246.40 247.00 80.12 79.63 79.82 ti L'tl Barsen VÍSIR '■ V) GENGIOG GJALDMIDLAR Stefán Guðjohnsen 'f skrifar: Góð þótttaka hjá BR Góð þátttaka var hjá Bridge- félagi Reykjavikur s.l. miðviku- dagskvöld og var spilaður 3ja riðla tvimenningur. Sigurveg- arar urð A-riðill: A-riðill: 1. Jóhann Jónsson — Stefán Guðjohnsen 198 2. Guðmundur Pétursson — Sigurður Sverrisson 178 3. Jón Hilmarsson — Oddur Hjaltason 177 4. Sigfús Þórðarson — Vilhjálm- ur Pálsson 177 5. Einar Þorfinnsson — Sig- tryggur Sigurðsson 176 B-riðill: 1. Gisli Steingrimsson — Sigfús Arnason 193 2. Bragi Erlendsson — Rikarður Steinbergsson 189 3. Páll Valdimarsson — Steinberg Rikarðsson 186 4. Björn Eysteinsson — Magnús Jóhannsson 184 5. Albert Þorsteinsson — Sigurður Emilsson 177 C-riðill: 1. Jón Asbjörnsson — Simon Simonarson 190 2. örn Guðmundsson — Guðmundur Arnarson 189 3. Jón Baldusson — Sverrir Armannsson 184 4. Asmundur Pálsson — Hjalti Eliasson 183 5. Jakob R. Möller — Jón Hjaltason 178 Næsta keppni félagsins er Butlertvimenningskeppni og hefst hún i kvöld. Bridgefélag Hafn- arfjarðar hefur vetrarstarfíð Vetrarstarf Bridgefélags Hafnarfjarðar er hafið og skipa stjórn félagsins þessir menn: Halldór Einarsson, formaður Sævar Magnússon, varafor- maður Friðþjófur Einarsson, gjaldkeri Hörður Þórarinsson, aðstoðar- gjaldkeri Guðni Þorsteinsson, ritari Ölafur Gislason, áhaldavörður Vissara þótti að hafa gjald- kerana tvo, þar sem reiknað er með mjög aukinni þátttöku i vetur. Gjöld eru þó skorin við nögl, aðeins 500 krónur á kvöldi, enhálftgjald fyrir nemendur og hjón. Keppnisgjöld eru engin og félagsgjöld lág. Félagið hefur verið á hrakhól- um með húsnæði en liklegt er taliö að spilað verði i Sjálf- stæðishúsinu við Strandgötu, en ekki hefir þó verið gengið full- komlega frá samningum. Mánudaginn 26. sept. var spilaður einskvölds tvimenning- ur i Flensborg. Sigurvegarar urðu Albert og Sigurður með 128, en siðan voru þrjú pör jöfn með 120: Þorgeir og Logi, Einar og Þorsteinn og Jón og Þórir. Meðalskor var 110. Stjórn félagsins vill hérmeð hvetja nýja og gamla félaga til aö mæta til spilamennsku i fé- laginu. Ungt fólk er ekki sist hvatt til að mæta og eru ýmsir reyndari spilarar félagsins reiðubúnir til þess að kenna undirstöðuatriði spilsins. Frá Bridgefélagi Kópavogs S.l. fimmtudagskvöld hófst 3ja kvölda tvímenningskeppni hjá Bridgefélagi Kópavogs með þátttöku 20 para. Besta árangri náðu: 1. Birgir Isleifsson — Guðmund- ur Pálsson 142 2. Sverrir Armannsson — Guð- mundur Arnarson 138 3. Óli M. Andreasson — Guðmundur Gunnlaugsson 126 4. Guðjón Sigurðsson — Jón Steinar Gunnlaugsson 124 5. Guðmundur Kristjánsson — Hermann Finnbogason 119 6. Kristinn Gústafsson — Árni Jónasson 119 Meðalskor 108 stig. Keppninni verður haldið áfram næsta fimmtudag og hefst spilamennskan kl. 20 stundvislega i Þinghól Hamra- borg 11. Frá Bridge- félagi Selfoss Úrslit i tvfmenningskeppni 29/9. 1977. stig 1. Sigurður Hjaltason — Sigurður S. Sigurðsson 128 2. Sigfús Þórðarson — Vilhjálmur Þ. Pálsson 3. Sigurður Sighvatsson — Kristján Jónsson 120 4. -5. Ingvar Jónsson — Ami Erlingsson 111 4.-5. Kristmann Guðmundsson JónasMagnússon 111 6. Brynjólfur Gestsson — Garðar Gestsson 108 Meðalskor 108 stig. Næsta kvöld fimmtudaginn 6. október verður tvimenningur eitt kvöld. Fimmtudaginn 13. oktl. kl. 7.30 s.d. hefst sveita- keppni,sem tekur 4-5 kvöld eftir þátttökufjölda sveita. Félagar fjölmennið og hvetjið nýja menn til þátttöku i bridgefélaginu. Konur ath. að félagið er lika fyr- ir ykkur. Núverandi stjórn Bridge- félags Selfoss er þannig skipuð. Formaður. Jónas Magnúson simi 1489. Gjaldkeri. Halldór Magnússon simi 1481. Ritari. Þorvarður Hjaltason. Skáld vikunnar Umsjón: Sigvaldi Hjálmarsson HOFSOLEY Sólblóm í hófblöðku hreiðri, hlaðvarpans prýði. votlendisfitja og valla, vitjar mín angan þín. Litfagra hófsól, litla æsku- leiksystir mín. — Þó grasið sitt bezta geri að grænlita túnið, og punturinn hefji þér hærra sitt hélufax, og frændi þinn Jakobsfifill, fjórblaða smárinn og peningablómið, vaxi frá degi til dags, er litur þinn túnsins litur, er liður á júlí, sem bylgjandi vogur í sólgulli til að sjá. — Ég blessa þig systir, brýni Ijáinn og byrja að slá. Or bókinni Þreyja má þorrann (1953) 'Hótel Borgarnes' Nýja veitingabúðin er opin frá kl. 8.00—23.30. Við minnum á okkar rúmgóðu og snyrtilegu hótelherbergi. Pantanir teknar i sima 93-7119-7219 HÚSBYGGJENDUR-Einanpnarplast Afgreiöum einangrunarplast a Stór-Reykjavíkursvæöið frá mánudegi - föstudags. Afhendum vöruna á byggingar- stað, viöskiptamönnum að kostnaðarlausu. Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar við flestra hæfi Boraarplast Jl tJL, BorqameftJ slmi 93-7370 kvBld cg belgarsimi 93-7359

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.