Alþýðublaðið - 29.10.1969, Page 21
Alþýðublaðið' 50 ára — 53
Óskum
Aþýðublaðinu
iil
hamingju
í lilefni
50
ára
ahnælísins
Linda hf.
Akureyri
Drengir heita...
Framh. af bls. 21.
lendinga við frændþjóðir þeirra
og Breta? Hann sagði við mig
— ég held ég muni það orð-
rétt — : Það var mér mikil
viljaraun að játa loks fyrir
sjálfum mér, að þetta væri sann
færing mín, en eftir að ég hafði
gert það, var vandinn enginn,
-— mér veittist ekki örðugt að
viðurkenna það fyrir öðrum,
sem sumir voru nánir vinir
mínir og félagar.“
Svo réðst hann að nýju til
starfa hjá Alþýðublaðinu 1927
og þar vann hann eingöngu til
ársins 1946. Og pistlana, sem
hann birti undir nafninu Hann-
es á horninu skrifaði hann 1
blaðið allt til æviloka. Þá skrif
aði hann einnig viðtöl handa
blaðinu og við og við ritdóma,
en annars helgaði hann hina
mi’klu starfskrafta sína ritstörf
um, sem ekki voru í þágu blaðs
' ins. Hann var ritstjóri Útvarps
tíðinda 1946—48, hafði síðar
með höndum ritstjórn tímarits
ins Heima er bezt og safnaði
öllu efni í Blaðamannabókina,
1 sem kom út í tveimur, stórum
1 bindum. Einnig safnaði hann
þáttutn í Fólkið í landinu og
ritaði suma þættina sjálfur.
Hann skrifaði og það skáldrit,
v sem ég hef áður á minnzt og
smásagnasafn, sem hann nefndi
Á krossgötum. Hann ritaði
, einnig nokkrar ævisögur og
fleiri bækur en Fólkið í land-
inu, sem fluttu æviágrip og við
talsþætti. Loks innti hann af
hendi ýmis trúnaðarstörf fyrir
Alþýðuflokkinn, og hann var
mikill áhugamaður um starf og
velfarnað Félags íslenzkra rit-
höfunda, var þar stundum í
stjórn og eitt ár formaður.
Þá er getið er hinna miklu
starfa Vilhjálms, má ekki
gleyma því að þó_ að hann væri
maður mikiílar starfsorku og
hartnær ódrepandi seiglu, átti
hjónaband hans mikinn og ó-
metanlegan þátt í þvi, hve
ævistarf hans varð mikið og
farsælt. Þrítugur kvæntist hann
Bergþóru Guðmundsdóttur frá
Hrauni í Keldudal í Dýrafirði.
Hún var komin af duglegu og
þróttmiklu alþýðufólki vestur
þar. Föður sinn missti hún ung.
Hann drukknaði frá stórum
hópi barna. Bergþóra komst þá
á ágætt heimili í Haukadal í
Dýrafirði, og ólst hún þar upp,
unz hún vildi fara sinna eigin
ferða. Hún er kona sístarfandi,
trygglynd og rólynd, reyndist
ástrík og umhyggjusöm eigin-
kona og móðir, og auk þess átti
hún hin sömu félagslegu hugð-
arefni og bóndi hennar og sinnti
þeim af festu og fórnfýsi. Þau
Vilhjálmur áttu fjögur mynd-
arleg börn.
Við Vilhjálmur vorum í átta
mánuði samstarfsmenn við Al-
þýðublaðið. Þá var Haraldur
Guðmundsson ritstjóri þess.
hafði ýmsu öðru að sinna sem
einhver hinn helzti forvígis-
maður lýðræðisaflanna innan.
Alþýðuflokksins og fór meðal
annars utan og var alllengi i
burtu. f fjarveru hans vorum
við Vilhjálmur tveir einir
starfsmenn blaðsins. Ég hafði
komið frá Noregi sumarið (1927
Framh. á gls. 55«
í hinni nýju húseigendatryggingu eru sameinað ar í eina tryggiragu fasteignatryggingar, sem
hægt hefur verið að kaupa isérstaklega undanfarin ár. Með þes'sari sameiniragu hefur tekizt að
lækka iðgjöld verulega. — ATH.: 90% af iðgjaldi er frádráttarhæft við 'skattaframtal.
KYNNIÐ YÐUR HIN HAGKVÆMU TRYGGINGARKJÖR.
■
Umboðsmenn um land allt.
VATNSTJÓNSTRYGGINGU
GLERTRYGGINGU
FOKTRYGGINGU
INNBROTSTRYGGINGU
BROTTFLUTNINGS OG
HÚSALEIGUTRYGGINGU
SÓTFALLSTRYGGINGU
ÁBYRGÐARTRYGGINGU
HÚSEIGENDA
Hin nýja
húseigendatrygging
innifelur
eftirfarandi
fryggingar:
LAUGAVEGI 103 - SÍMI 24425