Alþýðublaðið - 29.10.1969, Side 26
58 — Aiþýðublaðið 50 ára
iimwii Iiini. .• ... Iimwwiiimmup,i»M|wTTmir .im iir .., .. i.!i.n.n—
HVERS VECNA SKODA T
SKODA er ótrú'ega ódýr, frá kr. 211.700,00
SKODA hefUr hátt endursölúverS
SKODA er öruggur í frosti og kuldutn
SKODA býður upp á lágt varahlutaverð og
góða varahlutaþjónusfu
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDI H.E f|
Auðbrekku 44—46, Kópavogi - Simi 42600- |
V
SKODA býður upp á örugga viðgerðarþjónustu
SKODA ér traustur, aflmikilf, sparneytinn
SpyrjiÖ nágrannann, hann á senniíega Skoda
ÞETTA ER
Framh. af bls. 23.
degi sem öll sýna mismunandi
fleti á mannlegu lífi.
Finnbogi Rútur réðst í að
setja Alþýðublaðið upp eins
og títt var um stórblöð er-
lendis. Hann hugðist nota
stórt letur í fyrirsagnir sem
látnar yrðu ná yfir marga
dálka. Hann vildi hafa myndir
til að varpa skýrara ljósi yfir
atburði, svo og leturbreyting-
ar, uppslátt og undirfyrirsagn-
ir, en slíkt mátti þá heita
alls óþekkt í blöðum hér á
landi.
Hér var við ramman reip
að draga því ■ prentsmiðja
blaðsins-var ekki útbúin fyr-
ir slík vinnubrögð, þótt allir
væru af vilja gerðir. Feitt for-
málaletur virðist ekki hafa
verið til og fyrirsagnaletur
mjög af skornum skammti.
Fyrstu mánuðina má sjá ef
flett er blaðinu frá þessum
tíma að hinn nýi ritstjóri er
að þreifa sig áfram með notk-
un fábreyttra leturtegunda
og stundum undirstrikar hann
skáletur þegar hann sýnilega
vildi eiga kost á sterkari let-
urgerð.
En þennan skort lét hann
ekki aftra sér, er frá leið fékk
prentsmiðja blaðsins stórt og
áberandi letur, og það væri
synd að segja, að Finnbogi
Rútur hafi ekki þorað að nota
það, hann skorti yfirleitt ekki
hug til að segja það sem hann
taldi að blað alþýðunnar ætti
að1 segja og á þánn hátt sem
hann hugði bezt skiljast af
hlutaðeigandi.
Það var aldrei meining
Finnboga Rúts að gera bylt-
ingu í íslenzkri blaðamennsku.
Hann segir sjálfur í grein á
forsíðu er hann tók við rit-
stjórastarfi, að það vaki ekki
fyrir honum að reyna að bæta
íslenzka blaðamennsku, hann
vilji aðeins leitast við að bæta
Alþýðublaðið. En hin nýja
blaðamennska þar sem frétt
in, viðburðurinn sjálfur, var
aðalat'riði málsins vakti gífur-
lega athygli. Við að lesa hið
nýja Alþýðublað varð breyt-
ing í huga blaðalesandans, —
hann tók vitandi eða óafvit-
andi að gera nýjar kröfur til
blaða. Og þá var ekki að sök-
um að spyrja. Önnur bjöð
sigldu í kjölfarið, og allt í
einu var orðin bylting í ís-
lenzkri blaðamennsku.
Menn voru að því er mér
er tjáð dálitla stund að átta -
sig á hvað skeð hafði.
■ Áður höfðu hin pólitísku
vopnaviðskipti verið mest á-
berandi í yfirbragði blaðanna.
Blöðin voru vígvöllur stjórn-
málamanna, en sinntu minna
öðrum skyldum. En þó að Al-
þýðublaðið væri komið með
þennan svip að láta atburð-
inn í hverju tilfelli vera mest
áberandi þá kom hin pólitíska
lína eigi að síður skilmerki-
íega -fram bæði í anda frá-
sagnarinnar og viðfangsefn-
um. Og pólitískar fréttir voru
sagðar ein-sog fréttir, en ekki
eins og jag, og þannig komst
pólitískt mikilvægi hennar
jafnvel enn betur til skila.
Þá má lengi deila um hvað
teljast skuli gott' blað. En
hvaða skilgreining sem-verð
ur fyrir valinu þá hlýtur eitt
höfuðatriðið alltaf að vera að
hafa lag á að.láta taka eftir
sér. Pólitískt málgagn getur að
litlu gagni komið ef ekkert
heyrist í því. Vera má að það
mæli orð spekinnar á hverj-
um degi, en ef þennan mikil-
væga eiginleika vantar verða
þau lítið annað en eintal sál-
arinnar hjá flokknum og rit-
stjórninni.
Það var sannarlega tekið eft
ir Alþýðublaðinu hjá Finn-
boga Rúti.
Sagt er að fólk sé þannig
gert yfirleitt að það kaupi ekki
endilega það blað sem er ske-
ekkiihöpi
S5íÍ-':
Hvers vegna er
fjölskyldunnar eftir máltíðir?
Vegna þess að heimilið vantar uppþvottavél, en uppþvottavél gjör-
breytir heimilisvenjum.
Við matborðið kvíðir húsmóðirin ekki upp’pvottinum.
Eftir máltíð bíður fjölskyldan ekki húsmóðurinnar.
Sameiginlega nýtur fjölskyldan Kitchen Aid uppþvottavélarinnar.
í 20 ár hefur Kitchen Aid ætíð verið mest selda vélin hér á landi.
Vegna verulegs verksmiðjuafsláttar er þessi ameríska úrvalsvél nú á
mjög hagstæðu verði.
Kynnið yður greiðslukjörin meðan birgðir endast.