Vísir - 01.12.1977, Blaðsíða 24
r
VÍSIR
citnfi mxh
Smámifjlýsinfjahappdvœlli I
n 2fi"lilsjónrarji (áí'tvli)
aö rrröinœfi kv.XHZ þús.
FRÁ
KARNABÆ
HLJÓMDEILD
>\ifc
r-P
Dwgið ’JO.des.
Smáauglýsingamóttaka:
virka daga kl. 9-22
Laugard. kl. 10-12
Sunnud. kl. 18-22
SÍ fií HUUH
| BÆNDUR SAMÞYKKTU 25% FÓÐURBÆTISSKATT Á FUNDI í NÓTT: 1
V li LJ IAJ W • • JTSO L JJ 1 Á S S! u •• 0\ R l i •
Afnám söluskatts á
kjöti og kjötvörum, og
f járhagslegur stuðningur
rikisins við útsölu á um
600 tonnum af smjöri,
voru meðal þeirra skil-
yrða sem aukafundur
Stéttarsambands bænda
setti í nótt f yrir samþykki
við hugmyndir um fóður-
bætisskatt til greiðslu út-
flutningsbóta. Fundinum
lauk um tvöleytið í nótt.
„Tillagan um fóðurbætis-
skattinn var samþykkt með 37
atvkæðum gegn 7”, sagði Agnar
Guðnason blaðatulltrúi Stéttar-
sambandsins i morgun.
Hugmyndin er sú, að frum-
varp um breytingu á lögunum
um Framleiðsluráð landbúnað-
arins verði lagt fram nú alveg á
næstunni á Alþingi og verður
þar ákvæði unf 25% gjald á út-
söiuverð fóðurbætis eins og það
er i Reykjavik á hverjum tima.
„Fundurinn samþykkti að
verðið mætti þó aldrei vera
hærra heldur en sem næmi 0.7
litrum af mjólk i verðlags-
grundvelli”, sagði Agnar.
betta gjald á að leggja á,
samkvæmt samþykktinni þegar
ljóst verður að útflutningsupp-
bætur nægja ekki og nota það til
verðjöfnunar.
„Þá samþykkti fundurinn
samhljóða að leyfa mismunandi
hátt verð á búvöru til framleið-
enda ef markaðsaðstæður ein-
hverrar búvörutegundar séu
þannig að framleiðslutakmark-
anir séu nauðsynlegar. A sama
hátt verði Framleiðsluráði
heimilt að ákveða framleiðend-
um sérstakar verðbætur, ef á-
kveðnum skilyrðum er fullnægt
og er hér lika um algjört nýmæli
að ræða”, sagði Agnar.
Fulltrúar fundarins fóru i gær
á fund ráðherra og ræddu þessi
mál við þá og um leið þau skil-
yrði sem fundurinn setti fyrir
þvi að bændur tækju á sig þá
kjaraskerðingu sem þessu fylg-
ir.
„Þessi skilyr.ði voru þrenns
konar”, sagði Agnar. „1 fyrsta
lagi, að felldur verði niður sölu-
skattur af kjöti og kjötvörum án
þess að niðurgreiðslur veröi
skertar. Lauslega áætlað gæti
það lækkað kjötverðið um ca.
160 krónur á kiló.
1 öðru lagi, að rikisstjórnin
samþykki útreikninga Fram-
leiðsluráðs á heildarverðmæti
landbúnaðarframleiðslunnar
fyrir siðasta verðlagsár, en
mismunurinn á þessu útreikn-
ingum og þvi, sem Hagstofan
hefur gert samsvarar um 150
milljónum króna i útflutnings-
bótum sem rikið myndi þá
greiða.
Loks var það skilyrði sett, að
rikið veiti landbúnaðinum fjár-
hagslegan stuðning við sölu
smjörs á niðursettu verði. bað
voru allir á þvi að koma þyrfti
til útsölu á smjöri sem allra
fyrst. Yrði þá verð á um 600
tonnum af smjöri lækkað t.d.
niður i um 800 krónur kilóið.
Slikt myndi kosta bændur um
300 milljónir og er það ósk
fundarins að rikið greiði þann
kostnað að hluta.”
Fram kom hjá Agnari að við-
ræður fulltrúa fundarins og ráð-
herra i gær hefðu verið jákvæð-
ar.
A fundinum var einnig sam-
þykkt i fyrsta sinn samhljóða að
bændur ættu að taka upp beina
samninga við rikisvaldið.
— ESJ
Tóku borðið með sér
Einum vinsælasta veitinga-
staðnum i borginni — veitinga-
húsinu Tröö í Austurstræti —
var lokað i gær fyrir fullt og allt.
Fastagestirnir kvöddu þá stað-
inn með virktum, en sumir
þeirra hafa veriö svo til dagleg-
ir gestir á Tröö sl. 15 ár. Meðal
þeirra er félagsskapur sem
nefnir sig „F.Í.G.P.”, sem setið
hefur viö sama hringborðið i há-
deginu alla virka daga sl. 15 ár.
Fengu félagarnir að hafa á brott
með sér borðið, sem nú verður
sett upp I Nýja kökuhúsinu, en
þar verður næsta heimili
„F.Í.G.P.-inganna”. Hér má sjá
hluta þeirra við hringborðið
fræga I gær, og með þeim á
myndinni er Kristin Pálsdóttir,
sem hellt hefur kaffi i bollana
þeirra á Tröö öll þessi ár.
Ljósmynd: JEG.
„Enginn minnist
á innflutning á
eggjum við mig"
— segir Halldór E. Sigurðsson,
landbúnaðarróðherra
,,Það hef ur enginn minnst
á innflutning eggja við
mig", sagði Halldór E. Sig-
urðsson, landbúnaðarráð-
herra við Vísi í morgun.
„Það eina sem ég hef heyrt um
egg undanfarna daga var að kon-
an min minntist eitthvað á egg i
gærkvöldi, en ég man nú ekki
hvað það var”.
Eins og Visir hefur skýrt frá
hafa kaupmenn áhuga á að flytja
inn egg frá Hollandi fyrir jólin,
vegna hins mikla eggjaskorts hér
á landi, sem ekki verður á sög-
unni fyrr en á miðju sumri.
Innflutningur á landbúnaðar-
vörum er hinsvegar bannaður og
það þyrfti þvi sérstaka undan-
þágu til að flytja egg til landsins.
—ÓT
Búvörur hœkka
Yfirnefnd um verðlagsmál
landbúnaðarins sat á fundi i
morgun. Er búist viö að á
þeim fundi verði nýtt búvöru-
verö ákveðiö, en bændur höfðu
'krafist breytinga á verölags-
grundvelli landbúnaðarvara.
Formaöur yfirnefndar er
Guðmundur Magnússon próf-
essor og með honum i nefnd-
imni eru Jón Þorsteinsson lög-
fræðingur og Sveinn Tryggva-
son framkvæmdastjóri fram-
leiðsluráðs. ‘ cr
Sjö órekstrar
í nótt
Óvenjumargir árckstrar urðu i
nótt, eða sjö alls. t tveimur tilvik-
unum var um ölvun að ræða.
Slasaðist maöur í öðru en litil-
lega.
A þessum tima I vikunni er litið
um árekstra um nætur, og yfir-
leitt veröa þeir ekki mikið fleiri
en tveir. 1 nótt var þvi brugðið út
af vananum.
—EA
DAGAR
TIL JÓLA
„ Verðlagsyfírvöld eru
að drepa málmiðnaðinn”
Þingi Sambands málm-
og skipasmíðjasem haldið
var síðastlioinn laugar-
dag, var frestað vegna
þess ágreinings sem ríkt
hefur milli sambandsins
og verðlagsyf irvalda.
Sambandsaðilar hafa
ekki treyst sér til að fara
ef tir verðlagsákvæðum •
og hafa því verið kærðir
af yfirvöldum.
Megn óánægja með núver-
andi ástand kom fram á blaða-
mannafundi sem forráðamenn
sambandsins héldu. Formaður
sambandsins, Sveinn A. Sæ-
mundsson taldi til að mynda nú-
verandi stefnu „vera aö ganga
af þessum undirstöðugreinum
iðnaðar á lslandi dauðum”, eins
og hann komst að orði. „Og þar
sjáið þið árangur iðnkynningar-
árs”.
Málm og skipasmiðjueigend-
ur benda á að álagningarprós-
enta sú, sem þeir mega leggja á
laun sveins, það er hluti fyrir-
tækisins i. útáeldri vinnu hafi
hrapað úr 40% árið 1974 niður i
25% eftir siðustu kjara-
samninga. Sliku telja þeir sig
ekki geta unað.
Heimilað verð útseldrar vinnu
er nú 1.855 krónurá klukkustund
en raunverðið er 211 krónum
hærra, samkvæmt útreikning-
um sambandsins Þennan mun
treysta fyrirtækin sér ekki til aö
greiöa sjálf og er máliö sem fyrr
segir komið fyrir dómstólana.
— segir Sveinn A. Sveinsson, formaður
Sambands mólm- og skipasmiðja
Sveinn A. Sæmundsson og Guðjón Tómasson framkvæmdastjóri
samtakanna á blaöamannafundinum. — Vlsismynd JEG