Vísir - 10.01.1978, Síða 3
3
vísm Þriðjudagur 10. janúar 1978
Hallvarður um Landsbankamálið:
Forrœði rannsókn-
ar málsins er
óskorað í höndum
rannsóknarlög-
reglu ríkisins
„Forræði rannsókn-
ar málsins er óskorað i
höndum rannsóknar-
lögreglu rikisins”, seg-
ir i yfirlýsingu frá
rannsóknarlögreglu-
stjóra um rannsókn
Landsbankamálsins.
Yfirlýsing Hallvarðs Einars-
sonar er svohljóðandi:
„Vegna ummæla sem viðhöfð
hafa verið i fjölmiðlum um
rannsókn á meintri fjártöku
deildarstjóra ábyrgðardeildar
Landsbanka Islands, þess efnis,
að Landsbankinn „skammti
gögn i hendur rannsóknarlög-
reglunnar” þykir rétt að taka
fram eftirfarandi:
Eins og áöur hefir verið frá
greint barst rannsóknarlög-
reglustjóra rikisins kæra og
beiðni um rannsókn vegna
þessa atferlis frá stjórn Lands-
banka Islands. Er þar frá þvi
greint að um háar fjárhæðir sé
að ræða, sem teknar hafi verið
i ákveðin skipti á alllöngum
tima. I þágu rannsóknar þeirra
alvarlegu kæruefna, sem hér
um ræðir hefir verið leitað eftir
ýmsum sönnunargögnum og
skýringum hjá bankanum á
þeim kæruatriðum, sem hann
hefir borið fram „Gögn” þau,
sem með tilgreindumhætti hefir
verið rætt um, munu vera þau
skjöl og þær greinargerðir, sem
bankinn hefir þannig lagt fram
kærunni til stuðnings. Forræði
rannsóknar málsins er óskorað i
höndum rannsóknarlögreglu
rikisins og mun það sæta þeirri
rannsókn, sem atvik þess á
hverjum tima gefa tilefni til.
Fyrrgreindum ummælum er
þvi visað á bug sem röngum og
villandi.”
Hringvegur-
inn sé óvailt
aðalbraut
Klúbbarnir ,,öruggur
akstur" hafa á fundum
sinum undanfarið m.a.
lagt áherslu á að hring-
vegurinn fái undantekn-
ingarlaust forgangsrétt
sem aðalbraut, þar sem
misræmi og sleifarlag í
þessu efni hafi valdið al-
varlegum slysum.
A svonefndum haustfundum
klúbbanna viða um land hefur
einnig yerið fjallað um ýmis
önnur málefni, er snerta um-
ferðarmál. Td hefur verið tekið
undir þá hugmynd að nýbyrjað
ár verði sérstaklega helgað um-
ferðinni i tilefni af 10 ára afmæli
hægri umferðarinnar — en hún
var, sem kunnugt er tekin upp
1968.
— ESJ
„Nýjar gaml-
ar lummur
ó leiðinni
Upptaka á „Nýjum
lummum” hefst i
Hljóðrita i Hafnarfirði
nú á næstu dögum. Það
eru Gunnar Þórðarson
og félagar, sem leika
munu á þeirri plötu,
eins og á plötunni
„Gamlar Lummur,”
sem út kom fyrir jólin.
Salan á gömlu lummunum er
nú komin eitthvað á þrettánda
þúsund eintaka að sögn Steinars
Berg, útgefanda hennar. HUn
var langvinsælasta hljómplata
s®asta árs.
Astæða þótti til að fylgja vin-
sældunum eftirmeð nýrri plötu.
A henni verða, eins og þeirri
fyrri, gamlir slagarar i nýrri Ut-
setningu Gunnars Þórðarsonar.
Steinar sagði ennfremur, að
mikill áhugi væri hjá Lummun-
um að halda hópinn eitthvað
framvegis og jafnvél mætti bú-
ast við, að þær kæmu fram á
dansleikjum áður en mjög langt
liður.
—GA
Ashkenazy stjórnar
fyrstu tónleikunum
Stjórnandi er Vladimir
Ashkenazy og einleikari Joseph
Kalichstein.
Vladimir Ashkenazy er þegar
orðinn islenskum tónleikagest-
um kunnur sem afbragðs
stjórnandi ekki siður en pianó-
snillingur. Hann er nýkominn
úr langri tónleikaferð um hálfan
hnöttinn: Skandinaviu, Eng-
land, Honolúlú, Japan, Kóreu,
Hongkong Astraliu og Suður-
Afriku.
Pianóleikarinn Joseph
Kalichstein fæddist i Tei Aviv
1946 en fluttist til Bandarikj-
anna árið 1962. Eftir að hafa
unnið tvær pianókeppnir þar fór
hann sina fyrstu tónleikaferð til
Evrópu, árið 1970, og hélt tón-
leika i helstu borgum i Bret-
landi, Þýskalandi, Frakklandi
og Austurriki og var jafnframt
einleikari með Filharmoniu-
hljómsveit tsraels á listahátið i
Flandern. Siðan hefur frami
hans farið sivaxandi jafnt i
Evrópu sem Bandarikjunum og
hann hefur farið tvisvar á ári
hverju til tónleikahalds i
Evrópu.
<■>
i - m
..I- _
m 1
| fi I §
Idhröð pappírsfærsla (11 lin.
• Eldhröð prentun
• Leyfilegt er að draga
pappirinn upp með hendinni
• Bæði Ijósaborð og strimill
(mod 2251)
• Stórir og skýrir stafir
• Fullkomin kommusetning
jp||||||8«
GÍSLIJ JOHNSEN HF.
Vesturgata 45 Reykjavík
sími 27477