Vísir - 10.01.1978, Blaðsíða 5

Vísir - 10.01.1978, Blaðsíða 5
„TEl AÐ SADAT St AÐ GíRA RÉTT segir íranskeisari í heimsókn í Egyptalandi. Rœðir við Saudi-Araba í dag um friðartilraunir Egyptalands íranskeisari leggur af stað til Saudi Arabiu i dag að loknum við- ræðum við Sadat Eg- yptalandsforseta í Aswan. ,,Ég held að Egyptar séu að gera nákvæm- lega það,, sem við telj- um réttast”, sagði keisarinn við frétta- menn fyrir fund sinn við Sadat. Fyrir brottförina til Saudi Arabiu sagði keisarinn, að i heimsókninni þangað mundi hann ræða nýjustu tilraunir Sadats, Egyptalandsforseta, og Begins, forsætisráðherra Isra- els, til að komast að friðar- samningum. íranskeisari fer til Egypta- lands i þann mund, sem land- nám tsraela á Sinai er orðið samningatilraunum til trafala. Israelsmenn vilja að samninga- nefnd þeirra og Egypta, sem kemur saman i Jerúsalem á mánudag, ræði landnámið. Eg- yptar taka ekki i mál að ræða hugsanlega áframhaldandi veru Israela i Sinai, eftir að svæðinu hefur verið skilað. Begin forsætisráðherra hefur sagt, að hann kunni að endur- skoða skilmála sina fyrir þvi að skila Egyptum Sinai. Klukkustundar minn- ingarathöfn fór fram i mosku múhammeðstrú- armanna i London á laugardaginn um Said Hammami, fulltrúa þjóðfrelsishreyfingar Palestinu, sem myrtur var á dögunum á skrif- stofu sinni þar. Ekkja hins látna (t.h. á mynd- inni) var þar viðstödd ásamt tveim börnum þeirra, dótturinni sem !eiðir hana, og syninum, sem snýr baki i myndavélina. Morðingja Hammamis hefur verið leitað um allt Bretland, en lögreglan hefur einungis við ó- ljósa lýsingu á illvirkjanum að styðjast. Leitin hefur engan ár- angur borið til þessa. — Hamm- ami hafði stutt friðartilraunir Sadats og leikur grunur á þvi að andstæðir skoðanahópar innan samtaka Palestinuaraba hafi staðið að morðinu. MÓTMÆLA ENN SELADRÁPINU Frank Moores, for- sætisráðherra Ný- fundnalands, hefur hafið sókn á alþjóðavettvangi gegn andstæðingum selaveiða Kanada og Nýfundnalands. „Selaveiði Nýfundnalands er réttlætanleg, veiðin er einhver sú manneskjulegasta, sem til er, og með henni er haft rækilegt eftir- lit”, sagði hann á ráðstefnu dýra- verndaraðila og fiskifræðinga i New York. Forsvarsmenn Greenpeace- samtakanna, sem barist hafa gegn seladrápinu, voru mættir i ráðstefnuhúsið og komu á fram- færi mótmælum sinum við blaða- menn eftir ræðu Moores for- sætisráðherra. Þeir sögðust ekki mótmæla að- ferðunum við seladrápin sem slikum; heldur rányrkjunniá ein- stökum selategundum, sem hætta væri á, að deyja mundu út, ef fylgt væri gildandi veiðikvótum Kanadastjórnar. Vitjuðu leiðis Presleys Þúsundir aðdáenda rokkkóngsins, Elvis Presley, vitjuðu grafar hans að Graceland i Memphis i Tennesee um helgina i tilefni af þvi, að hann hefði orðið 43 ára á laugardaginn, ef hann hefði lifað. — Myndin hér var tekin i Graceland af nokkrum hinna syrgjandi aðdá- enda. Nokkrum skugga þótti varpa á, að i Memphis voru settar upp sölusýningar á ýms- um minjagripum um Presley til þess að gera sér fé úr. 1í MÍ mm m m&ér a W' i V V .V. HB IJjifK Wt m L Xk.. w.T-l Sœttast Ekland og Rod Stewart? Lögfræðingur leikkonunnar Britt Ekland, vinkonu Rod Stcw- art, popsöngvara, hefui borið það til baka, að santkomulag hafi náðst i skaðabótamáli, sem Ek- land höfðaði á hendur Stewart. En liann viöurkennir, að slikt samkomulag sé i vændum. — Ek- land krafðist 21! milljóna dollara bóta af Stewart. Stewart sagði i London i gær, að málaferlin væru á enda, og tekist hefðu sættir sem fælu i sér, að fallið væri frá peningakröfum. Ekland höfðaði málið á hendur Stewart tveim dögum eftir, að hann flutti úr húsinu, þar sem þau höfðu búið saman. Kvaðst hún hafa komið honum á framfæri, aflað honum frægðar og fjár, en hann hefði svikið hana og prettað i staðinn. Evel Knievel i einu sýningaratr- iða sinna — miðju stökki á bif- hjólinu yfir fimmtán bila. Knievel fœr ekki leyfi til vinnu Mótorhjólakappinn Evel Knievel fær nú ekki lengur leyfi til þess að vinna utan fangelsisins á virkum dögum, vegna þess að hann kom of seint inn á föstudaginn var. Knievel, sem afplánar 6 mán- aða dóm fyrir líkamsárás, hafði komist að samkomulagi við yf- irvöld um að sitja dóminn af sér um helgar og að næturþeli, en gat stundað æfingar sinar og sýningar á virkum dögum. Föstudagskvöldið hringdi hann til fangelsisins og sagðist ekki mundu koma til baka. Gef- in var þegar út handtökuskipun á hann. Þegar honum snérist hugur, og hann gaf sig sjálfur fram við fangelsishliðið fimm stundum siðar,varhann kærður fyrir strok, en frá þeirri kæru hefur siban verið fallið. En hann var sviptur ferða- leyfinu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.