Vísir - 10.01.1978, Blaðsíða 10

Vísir - 10.01.1978, Blaðsíða 10
10 VÍSIR Utgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdarstjóri: Davió Guömundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson (ábm) Olafur Ragnarsson RitstjórnarfulItrúi: Bragi Guðmundsson. Umsjon meó Helgarblaói: Arni Þórarinsson. Frettastjóri erlendra frétta: Guömundur Pétursson. Blaöamenn: Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrimsson, Jonína Michaelsdottir, Kjartan L. Pálsson, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Ljosmyndir: Jens Alexandersson, Jón Einar Guðjonsson. Utlit- og hönnun: Jon Oskar Hafsteinsson, Magnus Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Pall Stefánsson. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Auglysingar og skrifstofur: Sióumúla 8. Simar 86611 og 82260. Afgreiósla: Stakkholti 2-4, simi 86611. Ritstjorn: Sióumula 14. Simi 86611 (7 linur) Askriftargjald kr. 1500 á mánuói innanlands. Veró i lausasölu kr. 80 eintakió. Prerrtun: Blaóaprent. Landsbankamálið Fjársvikamál deildarstjóra ábyrgðardeildar Lands- bankans hefur skekið stoðir bankakerfisins upp á síð- kastið og að auki valdið nokkrum pólitískum titringi. Bankarnir eru eðli máls samkvæmt stof nanir, sem verða að njóta óskoraðs trausts. Að öðrum kosti er ekki unnt að tala um heilbrigða viðskiptahætti í landinu. Engum vafa er því undirorpið.að þetta fjársvikamál er mikið áfall fyrir Landsbankann og reyndar allt bankakerfiðyþví að mál af þessu tagi eiga ekki að koma fyrir. Að visu verður ekki við öllu séð. En spurning er hins vegar, hvort bankakerfið er of opið fyrir þeim aðil- um innanþessog utaner stunda ólögmæta eða vafasama viðskiptahætti. Skammt er síðan Alþýðubankinn var því sem næst far- inn yf ir um eftir að upp komst um þátttöku hans í vafa- sömum viðskiptum. Þau upplýstust í tengslum við gjald- þrotamáleins af viðskiptafyrirtækjum bankans. Lands- bankamálið kemur upp á svipaðan hátt, í einu af við- skiptafyrirtækjum bankanS/þó að ekki hafi verið um gjaldþrot að ræða í því tilviki. Óneitanlega er það veikleikamerki, að mál af þessu tagi skuli ekki koma upp á yfirborðið innan bankanna sjálfra. Þeir eru háðir mjög takmörkuðu ytra eftirliti. Þar er fyrst og fremst um að ræða bankaeftirlit Seðla- bankans og;að því er ríkisbankana varðar kjörna endur- skoðendur Alþingis. Störf kjörinna endurskoðenda Alþingis i ríkisbönkun- um eru brotakennd í meira lagi, þau eru leifar gamals tíma og i raun og veru skrípaleikur, sem aöallega er fólginn i því að telja veðskuldabréf. Um endurskoðun utanaðkomandi aðila er þvi ekki að ræða^sem er slæmt fyrir bankana ef þeir vilja njóta óskoraðs trausts. Upplýst hefur verið að rannsóknarlögregla ríkisins vinnur einvörðungu að rannsókn á tilteknum kæruat- riðum bankastjórnar Landsbankans varðandi fjársvik deiidarstjóra ábyrgðadeildarinnar. Rannsóknarlögregl- an hefur því ekki með höndum heildarrannsókn á starf- semi ábyrgðadeildarinnar. Að svo miklu leyti sem slík rannsókn hefur farið fram hefur hún verið unnin af Landsbankanum sjálfum. Þetta einstaka mál vekur ekki upp grunsemdir um óreiðu í bankanum að öðru leyti og stjórn bankans hef ur i f lestum atriðum tekið skynsamlega á málinu og af rögg- semi. Eigi að siður er eðlilegt að gera þá kröfu til Lands- bankans að hann feli rannsóknarlögreglu ríkisins yfir- stjórn heildarrannsóknar á starfsemi deildarstjóra ábyrgðadeildarinnar. Að visu er rannsóknarlögreglan tæpast fær um að vinna slíkt mál. Það verður bankinn því að einhverju leyti að gera. En eðlilegt er, að sú rannsókn sé undir stjórn rannsóknarlögreglunnar. Það horfir til aukins trausts út á við fyrir Landsbankann,aö utanaökomandi aðili hafi að öllu leyti með höndum stjórn þessarar rann- sóknar. Mál þetta hefur tengst Sjálfstæöisflokknum að því leytyað einn af forystumönnum féiagsstarfs þess flokks i Reykjavik var í lánsviðskiptum við deildarstjóra ábyrgðadeildarinnar. Viökomandi aöili hefur nú látið af trúnaðarstörfum i flokknum. Það var sjálfsögð og rétt ákvörðun. Stjórnmálamenn.sem flækjast í mál af þessu tagi geta ekki auðveldað hleypidómalausa meðferð þeirra með öðru móti. Landsbankamáliö hefur einnig stjórnmálalega þýðingu að öðru leyti. Það er afsprengi ringulreiðar- verðbólgu og lánsf járskömmtunar. Það er eitt af mörg- um dæmum um þá siðferðilegu hnignun/Sem við blasir i verðbólguþjóðfélaginu. Þó að greinilegt sé að auka þurfi óháða endurskoðun í bankakerfinu, verður ekki komið í veg fyrir mál sem þetta meðeftirlitskerfi á eftirlitskerfi ofan. Það þarf nýjan efnahagslegan og fjármálalegan grundvöll, án ringulreiðarverðbólgu og skömmtunar- stjórnar. Þriöjudagur 10. janúar 1978 VÍSIR j 1 Mfl H ", \ ? r ■ Æ ué > \ WLÁ Ólafur Ragnarsson,ritstjóri, (th) og Óli Tynes, blaðamaður, færðu Jóni vas- ann góða. ,,Ég þakka þennan heiður", sagði Jón L. Árnason, skákmeistari, þegar Vísismenn gengu á f und hans í gær til að af henda honum viðurkenningarvott vegna þess, að hann var kjörinn ,,Maður ársins 1977". „Þetta sýnir hve skákáhugi er mikiilá íslandi", bætti meistarinn hæversklega við. Frá Visi fékk hann hand- skorinn kristalvasa. Á honum var silfurplata, sem á var grafið: „Jón L. Árnason/Maður ársins 1977/Kjörinn af lesendum Visis". Þaö má segja, að Jón hafi varið heimsmeistaratitil sinn á skák- mótinu i Hollandi, þvi þótt hann yrði þar ekki efstur allra varð hann samt efstur þeirra jafnaldra sinna, sem tóku þátt i mótinu. Þeir sem voru fyrir ofan hann eru allir eldri. ,,Ég er alveg sæmilega ánægður með þetta mót,” sagði Jón. Þetta var strangt mót og ég lærði mikið af þvi. Verst þótti mér að tapa fyrir, Dananum. Ég var hálf miður min og mér gekk ekki vel fyrst á eft- ir.” „Kannski var ég of sigurviss. Ég var búinn að vinna Danann á Norðurlandamótinu og fór létt með það. En nú tókst honum að koma fram hefndum.” Erfitt mót framundan Nú tekur skólinn við, og þótt Jón eyði miklum tima i taflið hefur Kannski var ég of sigur- viss... íslensk fyrirtœki taka þátt í 20-25 erlendum sýningum Ráðgerter,að islensk fyrirtæki taki þátt i 20-25 erlendum vöru- sýningum á þessu ári. Nú þegar er langt kom- ið að skipuleggja fjórar sýningar. Sú fyrsta þeirra veröur dag- ana 11.-15. janúar. Það er Heimtextilen I Frankfurt sem er stærsta textilsýningin í heimin- um. Þátttakendur veröa Alafoss hf og Ullarverksmiðjan Gefjun. Útflutningsmiðstöö iðnaðarins verður meö upplýsingabás á þessari sýningu. Glit hf. tekur þátt í Gavemessan 15.-18. janúar i Osló. Prjónastofan Iðunn hf„ Les-prjón og Röskva hf. taka þátt í prjónavörusýningunni International Knitwear Fair i London 19.-23. febrúar. Sex til átta fyrirtæki munu svo taka þátt f Scandinavian Fashion Week í Kaupmanna- höfn 16.-19. mars og þar mun Útflutningsmiðstöðin hafa upp- lýsingabás. —EA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.