Vísir - 10.01.1978, Síða 8
8
Þriðjudagur 10. janúar 1978 vism
iá&>ilfurf)úðuif
Brautarholti 6, III h.
Simi 76811
Móttaka á gömlum
I munum :
I Fimmtudaga kl. 5-7 e h
I Föstudaga kl. 5-7 e.h.
Nýkomin barnahlaðrúm
úr furu í ýmsum litum
Sendum í póstkröfu
Mikið úrval
af lokkum
Gerum göt
í eyru.
Ný og
sársaukalaus
aðferð.
Hargreiðslustofan
LOKKUR
Strandgötu 1-3 (Skiphól)
Hafnarfirði, sími 51388.
ATHUGIÐ!
Tiskupermanent - klippingar og blastur
(Litanir og hórskol)
Munið snyrtihornið
Nýtt skip
Heiörún ÍS 4, fimmt-
ugasta skipið, sem
skipasmiðastöð M.
Bernharðssonar hf. á
tsafirði smiðar, var af-
hent eigendum sinum í
fyrradag. í ræðu, sem
framkvæmdastjóri
skipasmiðastöðvarinn-
ar, Guðmundur
Marzeliusson, flutti við
það tækifæri sagðist
hann telja, að þetta
væri fullkomnasta
fiskiskip íslendinga.
Heiðrún 1S er rúmlega 300
lestir. Skipið ber á fimmta
hundrað tonn af loðnu og getur
tekið um 2000 fiskikassa i lest.
Heiðrún getur stundað margs
konar veiðiskap— linu, net, nót
ogtogveiðar. Nú einhvern næstu
— Heiðrún:
„Fullkomn-
asta fiskiskip
íslendinga,,
daga mun skipið halda til linu-
veiða. Allur tækjabúnaður um
borð i Heiðrúnu er af fullkomn-
ustu gerð, og eru i skipinu
margs konar nýjungar, sem litt
eða ekki voru kunnar áður.
Skipstjórar á Heiðrúnu verða
tveir, Einar Halldórsson og Jón
Eggert Sigurgeirsson. Eigandi
skipsins er hlutafélagið Völu-
steinn h.f. i Bolungarvik, en
framkvæmdastjóri þess er Guð-
finnur Einarsson. —ESJ
Fœrri skilnoðir í
en órið óður
fyrra
Svipaður fjöldi mála
kom til afgreiðslu hjá
borgardómaraembætt-
inu í fyrra og árið 1976.
Af skriflega fluttum
dómsmálum voru 5.082
afgreidd á siðasta ári,
en 5.204 árið áður.
Munnlega flutt dómsmál voru
520. Voru þvi afgreidd 5.602
máls alls og eru það aðeins færri
en 1976.
Þi ngfestingar voru 5.578,
hjónavigslur 183 og leyfi til
skilnaðar að borði og sæng 204,
en þau voru 188 árið áður. Af-
greitt var 561 skilnaðarmál, en
652 árið áður. Hefur skilnaðar-
málum þvi greinilega fækkað á
siðasta ári i Reykjavik.
— SG
Eltingaleik-
ur um götur
í Kópavogi
Fimm ökumenn voru tekni^
grunaðir um ölvun við akstur, i
Hafnarfirði um helgina. Urðu
verðir laganna að elta einn
þessara manna um götur Kópa-
vogs áður en þeir náðu honum.
Sá ók utan i bil á Hafnarfjarðar-
vegi á leið i Hafnarfjörð. Hélt
hann áfram þrátt fyrir það, en
ökumaður hins bilsins lét lög-
regluna vita. Kom lögreglan
auga á manninn i bilnum, þegar
hann var á leið frá Hafnarfirði
aftur og þá á Hafnarfjarðar-
vegi. Fór hún á eftir honum.
Kostaði það eltingarleik um
götur i Kópavogi og var þá litið
skeytt um hraðatakmörk . Náð-
ist maðurinn loks þar sem hann
hafði farið með sjálfan sig og
bilinn inn i skúr i Kópavogi.
— EA
YÐAR ÁNÆGJA - OKKAR STOLT
Önnumst öll mannamót, stór og smá. Að-
eins nokkur ,,nútima” hænufet frá ys og
skarkala höfuðborgarinnar. Við bjóðum
allaþá aðstoð, til hverskonar mannamóta,
er best gerist. Þjónustan er indæl og verð-
ið eftir þvi.
FESTI
GRINDAVÍK - SÍMI 92-8255 og 92-8389
Handtekinn
með lyf
í fórum
sínum
Ungur maður var handtekinn á
Höfn í Hornafirði í fyrradag og
fluttur til Reykjavikur. Rann-
sóknarlögreglumenn úr Reykja-
vfk komu til móts við Hafnarlög-
regluna á Hvolsvelli og tóku þar
við manninum.
Ástæðan fyrir handtöku hans er
sú, að hann hafði i fórum sinum
lyf og ýmislegt annað sem ástæða
þótti til að athuga nánar eins og
stimpla frá nokkrum fyrirtækjum
og bilaleigusamning. Maðurinn,
sem áður hefur komið við sögu
hjá lögreglunni kom til Hafnar á
föstudaginn og var á leið til vinnu
á Djúpavogi.
Hann er nú i vörslu i Reykjavik.
—GA
Þjófar ó ferð
Þrjú innbrot^sem framin voru
um siðustu helgi(eru til rannsókn-
ar hjá lögreglunni. Brotist var inn
i rakarastofu Péturs Guð-
jónssonar á Skólavörðustig 10 og
þaðan stolið rakspira og rak-
blöðum meðal annars. Þá var
stolið 120 þúsundum króna úr af-
greiðslu Borgarspitalans. Var
lögreglunni tilkynnt það i gær-
kvöldi. Um helgina var einnig
brotist inn i Skodabúðina i Kópa-
vogi og þaðan stolið slípirokki.
—EA
Notaðir bíl-
ar af frílista
Viðskiptaráðuneytið hefur
ákveðið að notaðir bilar verði
teknir af frilista og verður inn-
flutningur á þeim framvegis
háður leyfum.
Hins vegar verður eftir sem
áður leyfður innflutningur bila
i eigu þeirra sem flytjast bú-
ferlum til landsins.
Jafnframt hefur ráðuneytið
ákveðið að framvegis verði
heimilt að flytja inn rúgmjöl
og sykur án innflutnings- og
gjaldeyrisleyfa. /
—SG