Vísir - 19.04.1978, Side 8
Miövikudagur 19. april 1978 VISIB
Frumsýna
Súpermann
Þaö hefur mikið verið rætt og ritað um myndina
Superman í Ameríku, enda á Superman ekki svo
litil tök i fólki. Christoper Reeve 24 ára gamall frá
Princeton i New Jersey fékk stóra hlutverkið, en
Marlon Brando leikur föður Supermans i myndinni.
I fyrstu var Reeve i vafa um hvort hann ætti að
þiggja hlutverkið.,, Er þetta upphaf eða endir ferils
míns?" spurði hann sjálfan sig. ,,Verð ég alltaf
Superman i augum fólks?" Framleiðendur
myndarinnar komu því þannig fyrir að hann hitti
Sean Connery sem tókst án mikilla erfiðleika að
hrista af sér James Bond ímyndina. Hann gaf
Reeve góð ráð og sagði m.a.: „Hafðu aðeins
áhyggjur af fyrstu kvikmyndinni sem þú leikur í.
Ef þér mistekst, ertu búinn að vera hvort sem er".
Kvikmyndina á að frumsýna i júni í sumar i
Ameriku og framleiðendur segja að fleiri myndir
um Superman muni fylgja í kjölfarið.
Nick Nolte (Gæfa eða gjörvileiki) sem meðal
annars hefur verið kallaður arftaki Roberts Red-
ford, kveðst ekkert skilja i þvi hvernig látið er með
hann. Nolte varð f rægur f yrir leik sinn I f yrrnefnd-
um myndaflokki eða Rich Man Poor Man eins og
hann heitir á frummálinu. Ekki minnkaði svo
frægðin þegar hann lék I myndinni, The Deep, sem
hér hefur verið sýnd. „Fólki finnst að ég eigi ekki
að ráða mér fyrir ánægju út af þessu öllu. En það
skilur ekki að ég hef alltaf verið ósköp ánægður
meðstöðu mína sem leikari, þó ég hafi ekki fengið
nema litil ómerkileg hlutverk. Ég hef alltaf verið
jafn ánægður". Hann kveðst hafa reynt að fá hlut-
verk í Apocalypse Now með Brando, Slap Shot með
Paul Newman og Sorcerer með Roy Scheider en
fékk ekkert þeirra. I örvæntingu kveðst hann hafa
tekið hlutverkinu í The Deep. „Vegna þess að ég var
blankur og hafði ekki unnið í ár".
015
Um leiö og Tarsan var búinn aö
kveöja Steve ávarpaöi hann ókunnur
maöur ..Afsakiö, en ég heyröi að þií
sagöist stla til Congo — ”
virust vingjarnlegur,
en Tarsan grunaöiI
aö eitthvaö annaö |
byggi aö baki bessara
» köldu augna_______■
Ég heid aö ég viti hval*Y^—
allt or hr PnHtnnro Kaft nlnn All*
allt er hr. Podmore, þabeino Allt i lagi —
sem ég hef áhyggjur af y"’ Kaliabu bara
er ef elnhver fer ab
'vera meb óspektir
d mig strax ^
og þd séb hilla
undlr vandrœbi /
M47
Umsjón: Edda Andrésdóttir