Vísir - 19.04.1978, Side 10

Vísir - 19.04.1978, Side 10
10 VÍSIR utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. \ úlafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmund- ur Pétursson. Umsjón með helgarblaði: Árni Þórarinsson. Blaðamenn: Berglind Ásgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elias. Snæland Jónsson, Guðjón Arngrímsson, Jón Einar Guðjónsson, Jónína Mikaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefáns- son, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson, Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Björgvin Pálsson, Jens Alexandersson. útlit og hörinun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8. simar 86611 og 82260 Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611 Jiitstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linur Áskriftargjald er kr. 1700 á mánuði innanlands. Verö i lausasölu kr. 90 eintakið. Prentun Blaðaprent h/f. Tveir góðir í hagfrœði Tveir ungir hagf ræöingar, dr. Þráinn Eggertsson dós- entog Þröstur Ólafsson, hafa nú með tiltölulega stuttu millibili vakið athygli á þeirri staðreynd, að i raun og veru er það f járfestingaræðið, sem öðru fremur hefur takmarkað möguleika til raunhæf ra kauphækkana hér á landi undanfarin ár. Það hef ur kostað 800% kauphækkun á síðustu sjö árum að ná 43% kaupmáttaraukningu. Við höfum varið of stórum hluta þjóðarteknanna til f járfestingar, án þess að uppskera arð að samaskapi. Af þessum sökum hafa kauphækkanir verið greiddar með verðlausum krónum. Fram til þessa hefur ekki verið fyrir hendi pólitískur vilji til grundvallarbreytinga í þessum efnum. Athyglisvert er, að þessir tveir ungu hagfræðingar, sem vakið hafa athygli á þessum aðstæðum i efnahags- lifinu, koma hvor af sínum væng stjórnmálanna. Annar þeirra er frjálshyggjumaður en hinn sósíalisti. Ástæða er til að gefa því gaum, að þessi sjónarmið skuli koma fram hjá mönnum, er skrifa frá jafn ólikum viðmið- unarpunktum og raun ber vitni um. Dr. Þráinn Eggertsson benti á það í áramótagrein sinni hér i Visi, sem vakti mikla atygli, að aukning einka- neyslu og samneyslu hefði ekki farið framúr vexti þjóðartekna á siðustu árum. Þjóðartekjur jukust þannig um 43% frá 1970 til 1973, en einkaneysla um 42% og sam- neysla um aðeins 37%. Dr. Þráinn bendir á, að hefðu aðr- ir útgjaldaliðir vaxið með svipuðum hraða og einka- neyslan, myndi ekki hafa komið til verulegs halla á við- skiptum við útlönd. í grein sinni sýndi dr. Þráinn Eggertsson einnig fra á, að heildar fjárfesting hefur aukist um 72% frá 1970 á sama tima og vöxtur þjóðartekna nam 43%. Engum vafa er undirorpið, að þessi mikla framkvæmdagleði á rikan þátt í ringulreiðarverðbólgu síðustu ára. Þröstur Ólafsson segir i gein sinni: ,,Hin geigvænlega f járbinding í fastaf jármunum undanfarin ár—einkum í sjávarútvegi — ásamt taumlausri óhófsstefnu i meðferð opinberra f jármuna, leiðir af sér tekjutilfærslu verka- lýðnum í óhag. Þessi tekjutilfærsla verður ekki heimt aftur, nema með því að skera niður f járfestingar for- tiðarinnar og breyta þar með samsetningu f jármagnsins i landinu." í þessum skrifum felst óneitanlega gagnrýni á þau viðhorf, sem legið hafa til grundvallar efnahags- stef nunni allan þennan áratug. En það er vert eftirtektar frá pólitísku sjónarmiði, þegar frjálshyggjumenn og só- síalistar lýsa svo svipuðum sjónarmiðum varðandi rætur efnahagsvandans. Hér er um að ræða ótviræða vísbendingu um að innan f lokka eins og Sjálfstæðisf lokksins og Alþýðubandalags- ins sé fyrir hendi gagnkvæmur skilningur á því, hvernig ráðast megi að rótum þeirrar efnahagslegu meinsemd- ar, sem við búum við. Fyrir pólitískar umræður er veru- legur ávinningur að fá þessi sjónarmið f ram fyrir kosn- ingar. Að sjálfsögðu getur verið erfitt fyrir suma af for- ystumönnum stjórnmálaflokkanna að kyngja þeim sjónarmiðum, sem fram koma hjá þessum ungu hag- fræðingum. Öhjákvæmilegt er að leiðrétta mistök, sem gerð hafa verið. Lúðvík Jósepsson hefur t.a.m. nú þegar ráðist að Þresti Ölafssyni vegna ummæla hans um of mikla fjárfestingu í sjávarútvegi. Pólitísk viðkvæmni af þessu tagi getur að sjálfsögðu komið í veg fyrir að samstaða náist um skynsamlegar endurreisnaraðgerðir i efnahagsmálum. Við erum enn að glima við þenslustef nu vinstri stjórnarinnar og höf um ekki náð að gera þær grundvallarbreytingar, sem nauð- synlegar voru i framhaldi af skipbroti hennar. Miðvikudagur 19. april 1978 vism S.l. föstudag frumsýndi Leik- félag Akureyrar leikritið HUNANGSILM eftír Shelagh Delaney i þýðingu Asgeirs Hjartarsonar undir leikstjórn Jill Brooke Arnason. Það hafa fáir eða jafnvel engir leikrita- höfundar náð jafn skjótri frægð á svo ungum aldri og Shelagh Delaney og liggja þó ekki eftir hana nema tvö leikrit. „Hunagsilm” samdi hún aðeins 19 ára. Þetta leikrit var frum- sýnt i London árið 1958 og sýnt þar samfleytt i 18 mánuði við miklar vinsældir. Arið 1967 var það svo flutt i Þjóðleikhúsinu að viðstöddum höfundi. Ekki er hægt að segja að efnisþráðurinn sé v iðh urðarrikur : Lauslát móðir hleypur á brott með elsk- huga sinum og dóttir hennar sem að mestu leyti hefur oröið að sjá um sig sjálf, feUur fyrir svertingja og verður barnshaf- andi. Ungur maður ef til vill kynvilltur tekur hana að sér og hjálpar henni i erfiðleikunum uns móðirin snýr aftur. Samkvæmt þessari lýsingu býst maður við tilfinningavellu meðtilheyrandi táraflóði en það er nú öðru nær. Það er blátt áfram ótrúlegt hvað leikritið er haglega samið, 'semfellt og bráðfyndið. Þó að skuggahlið- um mannlifsins sé lýst er þeim tekið sem sjálfsögðum hlut og jafnvel skopast að þeim. Þegar f V 1 Kristrún , Eymundsdóttir menntaskólakennari skrifar um leikritið Hunangsilm sem Leikfélag Akureyrar frumsýndi s.l. föstudag ---------y--------- veigar og listræn tjáning hreif leikhúsgesti nú sem endranær. Gesti E. Jónassyni tókst af smekkvisi að túlka hið vandrat- aða og vandræðalega hlutverk „kynvillingsins” Geoffreys og gerir piltinn einkar manneskju- leg an. Þórir Steingrimsson lék hinn eineygða og drykkfellda elsk- huga móðurinnar, Peter, hressilega og af innlifun. Þetta er það besta sem ég hef séð til Þóris á fjölunum. Aðalsteinn Bergdal fór vel með hlutverk svertingjans, litið hlutverk en vandasamt. Leikstjórn Jill Brooke Árna- son er með afbrigðum stilhrein • og fáguð og svo vandvirknislega unnin að það hvarflar að manni að ekki sé hægt að gera betur. Sýningin er látin gerast á 6. ára- tugnum, búningareru tiska þess tima og öll tónlist sem leikin er var á vinsældarlistanum 1950-1958. Hún beitir leikbragði sem hún segir að sé kennt við Bertholt Brecht, þ.e. að leikar- arnir fara andartak út úr at- burðarásinni og ávarpa áhorf- endur beint og fannst mér það takast mjög vel i þessari upp- færslu. Leikmynd Hallmundar Kristinssonar svo og búningar Freygerðar Magnúsdóttur voru mjög i anda verksins. Gatan fyrir utan húsið er hið Hlutírnir eru bara lótnir gerast" leikritið er samið ermikilbylt- ing i enskri ieikritagerð og reið- ir ungir menn hösluðu sér'völl, en Shelagh Delaney hefur tekið þann kost að láta hverjum degi nægja sina þjáningu. „Hlutirnir erubara látnir gerast” án nokk- urrar uppreisnar af hálfu per- sónanna, eða eins og Helen seg- ir: „Við stöndum öii við stjórn- völ okkar eigin örlaga..”. Kvikmynd hel'ur verið gerð eftir þessu verki, en talið er að leikritið komist nær þvi að lýsa draumkenndum heimi 17 ára stúlkubarns. Sá heimur litur eigin lögmálum og persónurnar sem koma og fara eru allar tengdar Jo, beint eða óbeint, og séðar með hennar augum. Hún lifir i lokuðum heimi sem af- markastaf ibúðinni. Þetta gefur leikritinu óraunsæisblæ sem við fyrstu sýn virðist trúverðugur en ef grannt er skoðað, stenst ekki, svo sem eins og þegar dóttirin segist ekki hafa efni á u. . „ . að fara i dýran teikniskóla, sem ^ , u Pau l'ris'ln A. Olafsdóttir og Aðalsteinn Berg þó var ókeypis o.s.frv. dal í hlutverkum Jo og Jimmie. Dótturina Jo leikur Kristin ólafsdóttir. Túlkun Kristinar móðurina Helenog slær leikandi var mjög nærfærin og sönn og létt á marga strengi, sýnir okk- vann hún umtalsverðan leiksig- ur eigingirni, losta og ábyrgðar- ur. leysi móðurinnar á tæpitungu- Sigurveig Jónsdóttir leikur lausan hátt. Leikreynsla Sigur- leikmynd- allt með eina raunverulega i inni, inni fyrir er óraunsæjum blæ. Þetta var siðasta viðfangsefni Leikfélags Akureyrar i vetur. Leikhússtjórinn Brynja Bene- diktsdóttir og leikarinn Erling- ur Gislason hafa ótvirætt verið lyftistöng fyrir leiklistarlif Akureyringa og hefur þeim tek- ist að fá til liðs við sig marga kunna leikhúsmenn. Um verk- efnaval má eflaust deila en þvi verður ekki neitað að það var fjölbreytilegt og brugðið var upp ólikum mannlifsmyndum. Það ber að þakka að Þjóðleik- húsið skuli hafa gert mögulega heimsókn Brynju og Erlings til Akureyrar og stigið með þvi mikilvægt skref til þess að efla leikhússtarf utan Reykjavikur.. Enginn vafi er á þvi að það er draumur leikhúsunnenda á Ak- ureyri að samvinna af þessu tagi megi halda áfram og helst þannig að um gagnkvæm leik- endaskipti verði að ræða svo að akureyrskir leikarar stigi á fjali irnar sunnan heiða svp sem reykviskir hér fyrir norðan. Og hið sama á að sjálfsögðu við um aðra starfsmenn leikhússins. iÞórir Steingrímsson leikur Peter/ Gestur E. Jónasson viðiistræntstarfer endurnýjun Geoffrey og Sigurveig Jónsdóttir fer með hlutverk °8 kynning nauðsynieg. ^Helenar. Ljósm. Norðurmynd. Kristin Eymundsdottir

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.