Vísir - 29.04.1978, Page 3
vrsm ■Láugardagur
29: aprfl 1978
Nýja söluskrifstofan er mjög smekklega búin innréttingum og húsmunum og þarna eru þeir Sveinn
Sæmundsson blaðafulltrúi' Flugleiöa og Birgir Þorgilsson sölustjóri með starfsfólki strifstofunnar,
Sigurði Ingvarssyni, Fjólu Tryggvadóttur og Stefaniu Magnúsdóttur.
Ný sðluskrif-
stofa Flulgeiða
Flugleiðir hafa opnað nýja
söluskrifstofu að Hótel Esju við
Suöurlandsbraut. Um er að
ræða deild úr söluskrifstofu
félagsins i Lækjargötu 2 og þar
er hægt að fá alla venjulega fyr-
irgreiðslu varðandi þjónustu
Flugleiða svo sem farskráningu
og farseðla innanlands sem ut-
an. Nýja söluskrifstofan er á
fyrstu hæð og gengið inn úr and-
dyri Iiótels Esju.
Gert er ráð fyrir að fimm
manns vinni á söluskrifstofunni,
en fyrst um sinn verða þar þrir
starfsmenn. Sigurður Ingvars-
son stjórnar daglegum rekstri
skrifstofunnar og með honum
vinna Fjóla Tryggvadóttir og
Stefania Magnúsdóttir.
Sfðar i sumar verður skrif-
stofan tengd tölvukerfi far-
skrárdeildar, Gabriel, sem
verið hefur i notkun hér á landi i
tvö ár og stórbætt þjónustu við
viðskiptamenn og flýtt far-
skráningu og upplýsingum.
Nýja söluskrifstofan á Esju
bætir enn þessa þjónustu
Flugleiða við viðskiptavini sina
og má benda á að bilastæði eru
næg við hótelið.
—SG
Bandalagháskólamannaumskattafrumvarpið:
Mun þýða veru-
lega meiri
skattbyrði!
Lœkka verður enn frekar
prósentutölur skattstigans
Tekjuskattur veröur verulega
meiri á þessu ári samkvæmt
skattalagafrumvarpinu en yrði
samkvæmt núgildandi lögum,
nema prósentutölurskattstigans
verði lækkaðar frá þvi sem fyr-
irhugað er, segir i yfirlýsingu
frá Bandalagi háskólamanna
um skattafrumvarp rikisstjórn-
arinnar.
Þar er bent á, að þær tölur,
sem stjórnvöld hafi lagt fram til
samanburðar á skattbyrði sam-
kvæmt gildandi lögum og frum-
varpinu séu ekki raunhæfar
vegna þess, að þar sé aðeins
gert ráö fyrir að meðalhækkun
tekna til skatts milli áranna
1977 og 1978 verði 35% en hins
vegar liggi fyrir tölur frá Þjóð-
hagsstofnun um, að þessi með-
alhækkun sé i reynd 41% ■.
Þá segir einnig, að óbreytt
prósenta útsvars muni hafa i
för meö sér verulega þyngingu á
skattbyrði ef staðgreiðslukerfi
yrði tekið upp, og sé þvi nauð-
synlegt að endurskoða lög um
tekjustofna sveitarfélaga.
BHM gagnrýnir nokkur önnur
atriði i skattalagafrumvarpinu,
en segir, að I heild horfi frum-
varpið til bóta. „Þó er þar ekki
vegið að rótum meginvandans
þ.e.a.s. skattsvika. Slikt verður
aðeins gert meö. stórauknu
skattaeftirliti”, segir i athuga-
semdum BHM.
—ESJ.
1. maí á Akureyri:
Heimta
alþýðuvöld
,,Hinu efnahagslega
ranglæti verður ekki
útrýmt fyrr en tekist
hefur að breyta sjálf-
um grundvelli þjóð-
félagsins, koma á
alþýðuvöldum og
byggja þjóðfélag, sem
hefur félagslegt og
efnahagslegt lýðræði
að aðalinntaki”, segir i
1. mai-ávarpi verka-
lýðsfélaganna á Akur-
eyri.
í ávarpinu segir, að þrátt fyr-
ir linnulitið varnarstrið verka-
lýðshreyfingarinnar siöustu
fjögur árin gegn fjandsamlegri
rikisstjörn auðstéttanna hafi
ekki enn tekist að endurheimta
þann kaupmátt launa, sem
náðist i samningunum i febrúar
'1974.
Hvatter til þess að herða enn
baráttuna fyrir „endurheimt
samninganna og kveðja til fleiri
hópa verkafólks”.
Verkalýðsfélögin efna til
kröfugöngu og útifundar að
henni lokinni á Ráðhústorginu.
Þar flytja Jóhanna Sigurð-
ardóttir verjcakona, Hákon
Hákonarson, formaður Alþýðu-
sambands Norðurlands, og Jón
Helgason, formaður Einingar,
ræður. Barnaskemmtun verður
I Sjálfstæöishúsinu kl. 15, og
skemmtikvöld i Sjálfstæðishús-
inu kl. 21. Þá verður dansleikur
þar á vegum 1. mai-nefndarinn-
ar i dag, laugardag. Kvenna-
deild Einingar verður með opið
hús og kaffisölu eftir útifundinn
i Alþýðuhúsinu.
—ESJ.
Margir vilja sjá Stranglers
„ Miðasalan hefur gengið
vonum framar”, sagði Steinar
Berg i samtali við VIsi, en hann
hefur annast hljómleika
Stranglers sem verða á
miðvikudagskvöld i
Laugardalshöll.
„Við verðum varir við mikinn
áhuga og nú þegar eru seldir
hátt I tvö þúsund miðar”, sagði
Steinar. „Það þykir okkur gott
vegna þess að fólk er yfirleitt
frekar blankt fyrir mánaðar-
mót”.
Þess má geta að Stranglers
verða i kvöld i sjónvarpsþættin-
um „Á vorkvöldi” og leika þar
tvö lög. —GA.
smáauglýsinga-
sími VÍSIS er
86611
Veislukaffi
og happdrœtti
í Lindarbœ
Kvennadeild Skagfirðinga-
félagsins I Reykjavik verður
með sitt árlega veislukaffi og
happdrætti i Lindarbæ mánu-
daginn 1. maí n.k. kl. tvö sið-
degis. Að venju verður margt
gómsætt á veisluboröinu og
nytsamir og goðir vinningar I
happdrættlnu. Allur ágóði
rennur til hinna ýmsu verk-
efna félagsins, bæði liknar- og
menningarmála, segir I frétt
frá félaginu. —ESJ.
ÍTALÍA
Dagflug á þriðjudögum. Hægt að
velja um dvöl í hinum undurfagra
ferðamannabæ við Napolíflóann,
ævintýraeyjunni Kaprí eða hinni
sögufrægu og fögru Rómaborg,
borginni eilífu.
(slensk skrifstofa Sunnu í Sorr-
entó og Róm.
Farið verður: 4. og 25. apríl, 16.
maí, 6. og 27. júní, 18. júlí, 8. og 29.
ágúst og 19. sept. Pantið strax.
SUNNA
Bankastræti 10. Simar 16400 -
12070 - 25060 - 29322.
— ■
Aðalumboð Vesturveri Aðalstræti 6
Verzl. Neskjör Nesvegi 33
Sjóbúðin Grandagarði
Verzl. Roði Hverfisgötu 98
Bókabúð Safamýrar Háaleitisbraut §8—60
Hreyfill Fellsmúla 24
Paul Heide Glæsibæ
Verzl. Rafvörur Laugamesvegi 52
Hrafnista, skrifstofa Laugarási
Verzl. Réttarholt Réttarholtsvegi 1
Bókaverzl. Jónasar Eggertssonar Rofabæ 7
Arnarval Arnarbakka 2
Straumnes Vesturbergi 76
Kópavogi
Litaskálinn Kópavogi
Borgarbúðin Hófgerði 30
Garðabæ
Bókaverzl. Gríma Garðarflöt 16—18
Hafnarfirði
Hrafnista Hafnarfirði
Kári og Sjómannafélagið Strandgötu
11—13
Sala á lausum miðum og endurnýjun flokks
miða og ársmiða stendur yfir.
Dregið í 1. flokki 3. maí.