Vísir - 29.04.1978, Blaðsíða 24

Vísir - 29.04.1978, Blaðsíða 24
Jónotan Þórmundsson, protessor* „Lagaheimild til að læknir sleppi við refsingu vegna oðgerðorleysis" Jónatan Þðrmundsson prófessor I refsirétti skilgreindi iiknardráp þannig i erindi sinu á fundi örators. „Það er liknardráp að svipta annan mann lifi i liknarskyni, ef hann er haldinn alvarlegum og ólæknandi sjúkdómi, alvarlegri og kvalafullri likamlegri sködd- un eða andlegri hrörnun á háu stigi vegna verulegra heila- skemmda og það er gert með eða án samþykkis hans, með beihni athöfn eða athafnaleysi, er flýtir dánarstundinni.” Það skal tekið fram að hér á landi hefur enginn dómur geng- ið i liknardrápsmáli en einhverjir slikir hafa fallið á Norðurlöndum. Er Jónatan var inntur eftir þvi hvort liknardráp gæti nokk- urn timann verið refsilaust, kvaö hann það ekki vera. Þaö gæti ekki orðið tilefni sýknu, nema fyrirhendi væru einhverj- ar almennar refsileysisástæður svo sem sakhæfisskortur eða neyðarvörn. Kvaðst hann telja að það þyrfti sérstaka laga- heimild til að þetta yrði refsi- laust fyrir þann er léti fyrirfar- ast að reyna að koma hjartanu af stað. Marklaus samningur? Jónatan lét þess getið aö óvist væri að svona samningur yröi metinn gildur út frá réttarregl- um sem gera ráð fyrir þvi, að samningar sem brjóta i bága við almennt velsæmi séu ekki bindandi fyrir aðila. 1 erindi Jónatans kom fram, að beiðni um aö vera sviptur lifi sé oftast marklaus, nema verknaðarþoli sé með fullu ráöi og kominn til þess aldurs, að hann geri sér ljósa grein fyrir beiðninni og skilji þýðingu hennar. Hann vakti einnig athygli á þvi, að i nokkrum rikjum Bandarikjanna væri fullfriskum manni, andlega og likamlega, talið heimilt að undirrita skjal þess efnis, að ef hann veikist eða slasist lifshættulega skuli hann ekki látinn sæta vélrænum aðgerðum á sjúkrahúsi til að halda i honum liftórunni. Verður þá ekki komið fram refsiábyrgð á hendur þeim, er ábyrgð ber á vanrækslu slikra ráðstafana. Um skilyrði refsinæmis sagði Jónatan: „Um llknardráp er áskilið eins og um hvert annáð manndráp að gerandi sé að lög- um ábyrgur fyrir athöfn eða athafnaieysi, sem á ólögmætan hátt flýtir dánarstund manns. Það er ekki liknardráp heldur lögmætur verknaður, ef læknir Jónatan Þórmundsson gefur sjúklingi lyf til að lina þjáningar hans I dauðastriðinu án ásetnings um að flýta dauða- stundinni.” Frjáls meðferð á eigin likama Um frelsi og vilja sjúklings sagði Jónatan: „Viðhorf og ósk- ir sjúklings marka að nokkru leyti athafnaskyldur lækna. Aðalreglan hlýtur að vera sú samkvæmt grundvallarreglu Islensks réttar um frjálsa meðferð á eigin likama, að hvorki læknar né aðrir séu skyldir til bj'órgunaraðgerða gegn vilja hlutaðeigandi, enda sé hann með fullu ráði og rænu og hafi nægan aldur og þroska. Læknisaðgerð gegn vilja manns getur eftir atvikum varðað við refsilög. Þótt sjúklingur hindri björgunaraðgerðir um stund með synjun sinni eða likamleg- um tilburðum t.d. af trúar- ástæðum, getur björgunar- skyldan vaknað að nýju þegar sjúklingurinn er orðinn meðvit- undarlaus. Þá getur læknir þurft að gera aðgerð, er synjað var um, til að bjarga lifi sjúklingsins.” „Almennt veröur að ætlast til, að öllum ráðum sé beitt til bjargar mannslifum hvað sem það kostar. Verður ekki séð, að það breyti miklu enn sem komið er, þótt fjöldi lækna telji nú eðlilegt að miða dánarhugtakið við hinn svokallaða heiladauða. 1 löggjöf og lagaframkvæmd er sá mæli- kvarði ekki lagður til grund- vallar heldur hjartadauði og stöðvun öndunarstarfsemi”. Þriðji of urinn ef Karen Ann Quinlan varð ný- lcga 24 ára gömul. Þetta var þriðji afmælisdagurinn eftir heiladauða hcnnar. Hiín liggur i dái I sérstakri sjúkrastofu I New Jersey. „Hún vaknar aldrei til lifsins framar” segja læknar. Likaminn neitar hins vegar að deyja. Þau þrjú ár, sem dvali Karen- ar hefur varað hafa kostað bandariskaskattborgara tæpar eitt hundrað milljónir islenskra króna. Enginn veit hvað gerðist áður enhún féll i dáið, enginn veit af hverju heiladauði hennar staf- ar. Likur eru taldar á þvi að or- sakarinnar sé að leita i þvi, að Karen neytti áfengis og eitur- Snorri Páll Snorrason Hver er ofstoðo þín til líknordróps? Teknir voru tali þrir bruna- verðir sem hafa I starfi sinu viö akstur á sjúkrabifreiðum kynnst ýmsum hörmungum manniegs lífs. _ Magnús Helgason: „Ef sjúklingur er oröinn svo illa farinn að hann veit ekki i þennan heim eða annan og eng- in von er um bata finnst mér koma til greina' aö fjölskylda viðkomandi og fleiri iæknar taki ákvörðun um aö frekari meö- ferð sé þýðingarlaus. Ég vil leggja áherslu á þaö að enginn einn læknir getur tekiö þessa á- kvörðun. Það væri of mikil á- byrgö fyrir hann, en ef fleiri læknar eru sammála honum um að þetta sé vonlaus barátta tel ég það ekki ámælisvert þótt hætt sé eða látið vera að hefjast handa til björgunar mannveru, sem kemur aldrei til með aö vita af sér framar.” Arnþór Sigurðsson: „Ef sjúklingur hefur hvorki ráö né rænu og engin von er tjl þess að hann nái heilsu á nýjan leik þá tel ég aö fjölskylda eða aðstandendur i samráði viö lækni geti ákveðið að frekari meðferð sé þýöingarlaus. Við verðum að athuga það að sé dauðastrið manna framlengt út I það óendanlega eykur það bara á vanda þeirra sem eftir lifa. Fjölskylda þess manns, sem I raun er aöeins beðið eftir að deyi, getur ekki tekist aö fullu á við þann vanda sem frá- fall fjölskyldumeðlims er, fyrr en hann er allur. Ekki breytir það neinu þótt sjúklingurinn sé dauðvona. Fjölskyldan er meira og minna lömuð á meðan þetta ástand er og horfist ekki I augu við vandamálið fyrr en sjúkl- ingurinn er dáinn.” Arnþór kvatíst sjálfur ekki kæra sig um að læknavlsindin gerðu allt sem unnt væri til að halda honum á lffi, ef ljóst væri aö hann heföi hlotiö meiri eða minni heilaskemmdir. Jón Guðjónsson: „Ég tel að menn eigi að geta gert samning á meðan þeir eru með ráði og rænu þess efnis aö þeir frábiöji sér læknishjálp ef ákveðnir hlutir gerast. Þennan samning verða menn að gera I í samráði við lækni sem veröur aö gera viðkomandi manni ljóst hvaöa afleiðingar þetta hafi i för með sér, svipað og er meö fóst- ureyðingar þar sem áhersla er lögCrá að viökomandi viti hvað hún tekst á hendur og hverjar afleiðingar það muni hafa. Ef menn hljóta varanlegar heilaskemmdir tel ég það for- svaranlegt að læknar I samráöi við fjölskyldu viðkomandi manns ákveði að hætta meöferö eða hefja hana ekki. Þeíta á við i þeim tilvikum þar sem ekki liggur fyrir afstaðaviðkomandi sjúklings.” Magnús Elias Guð- mundsson heimilisfað- ir „Viö þessari spurningu er ekki hægt að gefa tæmandi svar að minum dómi. Það hlýtur að vera matsatriði hverju sinni hvort eigi að halda lifi i sjúklingi eftir að allt bendi I raun til að hann sé látinn, þótt llkams- frumurnar fái timabundna starfsgetu frá tilbúnum app- arötum. En hvenær er maður örugglega dáinn? Mörg dæmi eru til um að fólk, sem allir hafa talið hreina gustuk að stytta aldur vegna þess að það hafi veriði endanlegu dauðadái, hafi vaknað aftur til llfsins. Ef ein- hver mjög nákominn mér, t.d. kona min eða barn væru það sjúk eöa slösuð að mér fróðari menn teldu að þau myndu aldrei vakna til lífsins, myndi ég ekki treysta mér til að taka ákvörðun um framgang mála aö óreyndu. Maður myndi aðsjálfsögðu lifa i voninni og óska eftir að allar mögulegar og ómögulegar leiðir veröi reyndar til að halda i þeim lifinu. En er ástin ekki að miklu leyti eigingirni?” Kristin Sigurðardóttir, starfsstúlka „Ég tel að fólk veröi að fá aö ráða þvi sjálft hvort þaö vill lifa. Ef það er ekki i ástandi til að láta i ljósi vilja sinn tel ég að fjölskylda sjúklings og læknar geti tekið þá ákvörðun að lækn- ismeðferð sé til einskis. Sjálf myndi ég ekki kæra mig um að haldið væri i méiliflófunni eftir að ég væri orðinn hálfpartinn aumingi. Ef fólk hefur hlotið þannig heilaskemmdir að þaö mun aldrei ná sér aftur finnst mér það ekki ámælisvert þótt á- kveðið sé I samráöi við fjöl- skyldu að það sé ekki til neins að halda „lifi” I viðkomandi sjúkl- ingi.” ' Eirikur Þorgeirsson, læknanemi „Þetta er erfið spurning sem tæpast er unnt að svara með ör- fáum orðum. Ég held að það sé unnt aö ein- falda málið með þvi að kljúfa liknardráp i tvennt. Annars vegar virkt liknardráp og hins- vegar óvirkt(passivt). Hið fyrra álit ég óverjandi I öllum tilvikum, en tel að þær að- stæður geti skapast I einstaka tilviki, að óvirkt liknardráp komitil greina.þ.e. ef dauðvona sjúklingur á i hlut, sem þjáist mikiö og vill deyja. Þá getur komiðtilgreinaaðhætta virkum lækningatilraunum, sem aðeins myndu lengja þjáningartlmann. Þessi spurning snertir einnig, að,þvi er virðist óskyld málefni þ.e. nútímalæknisfræöi og fjár- mögnun hennar. Þau tilvik geta orðið að tækjakostur sé ekki nægur til að allir sjúklingar njóti hans, sem setur lækna I þá erfiðu aðstöðu að velja og hafna, þ.e. læknir getur staöið frammi fyrir þvi að taka ákvörðun um aö hætta lækningatilraunum á einum sjúklingi til að geta beitt tækinu að öðrum, (hjarta-, önd- unarvélar). Þessu tengjast einnig læknis- fræðilegar skilgreiningar álifi- og dauða. Helst er við að styðj- ast I þeim efnum hina gömlu skilgreiningu, sem miðast við að hjartað sé hætt að slá i tiltek- inn tima og sjúklingur hættur að anda. En eins má styöjast við þá skilgreiningu að starfsemi heil- ans sé hætt. Af þessu má sjá að ekki er gott að gefa einhlít svör við' þessari spurningu, enda bland- ast hér saman siðferðileg, guð- fræðileg, læknisfræðileg, lif- fræðileg, lögfræðileg og stjórn- málaleg viðhorf svo eitthvað sé nefnt.”

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.