Vísir - 29.04.1978, Qupperneq 10

Vísir - 29.04.1978, Qupperneq 10
10 r* v utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdarstjóri: Davíö Guömundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. Olafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmund ur Pétursson. Umsjón meö helgarblaði: Arhi Þórarinsson. Blaöamenn: Berglind Ásgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jóns’son, Guójón Arngrímsson, Jón Einar Guöjónsson, Jónina Mikaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefáns son, Oli Tynes, Sæmundur Guóvinsson, Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Palsson. Ljósmyndir: Björgvin Pálsson, Jens Alexandersson. utlit og hónnun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson. Laugardagur 29. april 1978 Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánssor Dreifingarstjóri: Sigurður R. Petursson Auglysingar og skrifstofur: Siöumúla 8 simar 86611 og 82260 Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611 Ritstjórn: Sióumúla 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald er kr. 2000 á mánuöi innanlands. Verö i lausasölu kr. 100 eintakiö. VÍSIR \ Um nokkurt árabil hefur vandamálafræði verið tísku- námsgrein i háskólum hér og er- lendis. Þessi fræðigrein gengur undir ýmsum nöfnum en aðal- lega er hún þó kennd við samfé- lag og vísindi. Og vist er um það/ að margt er vandamálið. Það getur meira að segja verið vandamál að komast úr fortíð- inni yfir í nútíðina. Þannig er þessu farið um borg- ir. Reykjavíkurborg hefur óneit- anlega fundið fyrir ýmis konar vandamálavaxtarverkjum. Hún hefur á tiltölulega skömmum tíma breyst úr bæ í borg. Þar af leiðir, að stjórnendur hennar þurfa stöðugt að mæta nýjum viðfangsefnum og vandamálum, sem nútíma borgarsamfélag leiðir af sér. Þessi viðfangsefni snerta bæði fortíð og nútiö. Borg verður sannarlega ekki byggð með menningarbrag, nema hún tengi saman fortið og nútíð. Á síðustu árum háfa menn vaknað upp við þessa hugsun einfaldlega vegna þess, að sums staðar hafa þau slysorðið, að borgum hefur verið breytt í sárlarlaust múrverk. Kjarni málsins er sá, að dauðir hlutir geta þrátt fyrir allt andað. Með þeim má upplifa merkile^a sögu. Þeir stjórnendur, sem gleyma þessu, geta með glópsku sinni skorið á menningarleg tengsl fortiðar og nútíðar og þannig drepið sálina í múrverki borgarsam-f.élagsins. í Reykjavík má f inna ummerki um slys af þesst* tagi, en flest heyra þau til liðinni tíð. Sannleik- urinn er sá að á síðustu árum hef ur i a11 ríkum mæli verið tekið tillit til þeirrar menningarlegu kröf u að viðhalda í borgarsamfé- laginu verðmætum frá tíð bæjar- samfélagsins. En þá koma vandamálasér- fræðingarnir til sögunnar og greina ekki hismið frá kjarnan- um. Menn verða þó að skilja á milli menningarlegra verðmæta og þess sem ekki er vert að f lytja frá einni tíð til annarrar. Og sannarlega er það hálfbroslegt þegar útlendingar eru fengnir hingað til þess að prédika að gera eigi Reykjavík að bárujárns- minjasafni. Það getur verið skemmtilegt fyrir útlendinga, en þjónar ekki hagsmunum Reyk- víkinga. Borgaryfirvöld sýnast hafa ratað gullinn meðalveg i þessum efnum. Til marks um það eruáformin um uppbyggingu miðbæjarins, þar sem með nýj- um framkvæmdum á að efla mannlíf í tengslum við gömul menningarverðmæti á Bern- höftstorf u og í Grjótaþorpi. Og á- stæða er í þessu sambandi að vekja athygli á nýgerðri sam- þykkt um friðun fjölmargra húsa, sem eru tákn liðins tíma i borginni. í lifandi mannlegri borg er þörf á svigrúmi til útivistar. Með nýjum tima verða til nýjar þarf ir i þeim efnum eins og öðrum. Borgaryfirvöld hafa í þessari viku samþykktaðgera höfn fyrir smábáta í Elliðavogi. Þessi sam- þykkt er dæmigerð fyrir ný við- fangsefni, sem borgaryfirvöld verða að sinna. En það stóð ekki á vandamála- sérf ræðingunum, sem vildu bregða fæti fyrir framgang málsins. Og yfirskynið var það að ekki mætti raska lífríki Elliðaánna. Hér er verið að búa til vandamál, því að fyrir liggur að mikill meirihluti þeirra sér- f ræðinga, sem leitað var álits hjá af þessu tilefni, taldi enga hættu samfara hafnargerð á þessum stað. Vitaskuld þarf að standa vörð um lífríki Elliðaánna. Og það hef ur verið gert. En vandamála- fræðin má ekki verða svo rikj- andi í borgarskipulaginu að hún hefti nauðsynlega viðleitni til þess að byggja upp lifandi borg- arsamfélag. Ákvörðunin um smábátahöfnina í Elliðavogi er fyrst og fremst gleðilegur vottur um vilja borgaryfirvalda til þess að efla útivist og mæta nýjum þörf um og óskum í þeim efnum. Þetta blað hefur jafnan lagt á- herslu á varðveislustef nu í skipu- lagsmálum. Og þá gildir einu hvort um er að ræða gömul merkileg hús eða lífríki Elliða- ánna. En um leið verður að gera þá kröfu til stjórnenda borgar- innar að þeir láti ekki vanda- malahugsjónina koma í veg fyrir að Reykjavík verði lifandi nú- tímaleg borg. ■ ‘ — Vandamálafrœðin og borgarsamfélagið V_____________:___J SUIPNYNDIR AF AMERIKU Eftir Ölaf Hauksson Sverrir Runólfsson, fyrrum Kaliforniubúi og vegagerðar- maður, hefur verið einna ötulastur manna við að kynna ameriskt stjórnarfar hér á landi. Sverrir lét sér ekki nægja að kynna málið, heldur vildi hann að við tækjum upp ameriska kerfið. Sjálfsagt vill Sverrir það enn, þótt litið hafi heyrst frá honum að undanförnu. Sverrir talaði mikið um valfrelsi og þjóðaratkvæði. En tslendingar voru ekki tilbúnir að taka við meira kosninga- veseni en fylgir byggðakosning- um, Alþingiskosningum og forsetakosningum. Slikar kosn- ingar kosta mikla vinnu, og sjálfsagt hryllti mörgum við meiru af svo góðu. Kannski mis- skildu margir hvað Sverrir var að fara. Stjórnarfarið þeirra Sverris og Amerikumanna er afskap- lega flókið. En það byggir á einni frumhugmynd — lýðræði. Lýðurinn á að ráða i aðal- atriðum hvað er best fyrir hann, en ekki misvitrir atvinnustjórn- málamenn. Auðvitað gengur slikt ekki i alvörunni. Nóg er samt reynt og Amerikanar segjast búa við mesta lýðræði i heimi. Það er stærð landsins sem gerir stjórnarfarið svo flókið. Krafan um að atkvæði lýðsins fái að hafa sem mest áhrif gerir það svo enn flóknara. Amerikanar kjósa um næst- um allt sem viðkemur opinberri stjórn. Þeir kjósa lögreglu- stjórana, súma dómara, nefnd- ir, bæjarstjóra, bæjarráðs- menn, þingmenn til rikisþings og þingmenn til alrikisþings, forseta, rikisstjóra o.s .frv. Allt þetta fólk og fleira til verður að há kosningabaráttu til að komast i viðkomandi störf. Störfin eru þeim þó ekki tryggð, þar sem kosningar eru háðar á nokkurra ára fresti. Hin hliðin á ameriska stjórnarfarinu er það sem Sverrir átti við þegar hann tál- aði um þjóðaratkvæði. Amerikanar kjósa ekki aðeins flestalla sem gegna opinberum ábyrgðarstöðum, heldur kjósa þeir einnig um einstök mál inn- an hvers rikis. Sem dæmi má nefna: hvort eigi að verja fé til stækkunar flugvalla, hvort eigi að gera kjarnorkuver útlæg, hvort eigi að leyfa spilaviti, hvort eigi að lækka áfengis- drykkjualdurinn, hvort eigi að losa um klámlöggjöf o.s .frv. Málefnin sem kosið er um eru ótæmandi og óteljandi. Þetta mikla lýðræði gerir það að verkum að almenningur fær að tjá hug sinn um flestöll meiriháttar mál. Ráðin eru tek- in af stjórnmálamönnunum. Þetta þýðir þó ekki endilega að öll deilumál komi til allsherjar- atkvæða. Fyrst þarf ákveðinn hluti kjósanda að skrifa undir beiðni um að viðkomandi mál verði lagt fyrir allsherjarat- kvæði. Þegar nógu margir hafa skrifað undir áskorunina, þá er kosið um málið i næstu kosning- um. Krafan um lágmarks fjölda undirskriffa kemur i veg fyrir að kosningar séu á hverjum sunnudegi. En það er ekki kraf- istsvo mikils fjölda undirskrifta að ómögulegt sé að koma mál- um fyrir dóm almennings. Þessi háttur^ að kjósa um málefni gildir á öllum stigum amerisks stjórnarfars. Þeir sem eru óánægðir með lögreglu- stjórann i 10 þúsund manna bæ geta krafist kosninga um hann, jafnvel á miðju kjörtimabili. Slikt er nefnt að afturkalla hinn kjörna embættismann. Þeir sem eru óánægðir með ein- hverja ákvörðun þingsins i við- komandi riki, geta safnað undir- irskriftum til að fá kosningar, og reyna að brjóta ákvörðunina á bak aftur. Ameriskir kjósendur geta meira að segja bætt við stjórnarskrána. Það er þó hið mesta púl, og tekur mörg ár. Næsta viðbót við stjórnarskrá Ameriku verður væntanlega jafnréttislöggjöf þeirra, sem konur (og menn) berjast grimmt fyrir um þessar mundir. En fyrst þurfa tveir þriðju hlutar hinna 50 rikja- þinga að samþykkja viðbótina, áður en hún verður hluti af stjórnarskránni. Þessi aðferð tekur mörg ár og kostar peninga og fyrirhöfn. Þetta puð með amerisku jafn- réttislögin leiðir eflaust hugann að islensku Jafnréttislögunum. Auðvitað þurfti að hafa talsvert fyrir þeim, þinga um þau og semja þau, og fjalla um þau á þingi. En miðað við vinnuna við S tjórnarfarið þeirra S velH

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.