Vísir - 25.05.1978, Blaðsíða 3
vism Fimmtudagur 25. mal 1978,
3
Frá ársfundi Æskulýðsráðs Reykjavikur.
ÆSKULYÐSRAÐ:
Fundað um frjólsa
félagastarfsemi
Annar ársfundur
Æskulýðsráðs Reykja-
vikur með fulltrúum
æskulýðsf élaga i
Reykjavik var haldinn
fyrir skömmu. Aðalefni
fundarins var „Staða
og starf frjáisra æsku-
lýðsfélaga í Reykja-
vik”.
Framsöguræður fluttu þeir
Steinþór Ingvason frá Skáta-
sambandi Reykjavíkur og Ei-
rikur Ingólfsson frá Ung-
templarafélaginu Hrönn.
Æskulýðsfélögunum var boðiö
að senda einn fulltrúa og alls
tóku 39 einstaklingar þátt i um-
ræðuhópum en fundartimanum
var aðallega varið til skoðana-
skipta i umræðuhópunum.
Helstu atriðinsem ræddvoru i
umræðuhópunum voru starfs-
skýrslur félaga, en þær lágu
fyrir fundarmönnum, leiðtoga-
þjálfun — annars vegar almenn
þjálfun i félagsstörfum og hins
vegar námskeiö fyrir
embættismenn félaga. Þá var
rætt um rekstrargrundvöll
félaga og aldurshópaskiptingu i
félögum og hvernig mætti
hamla gegn brottfalli félaga,
sem gerist við 13—15 ára aldur.
Það sem einkum setti svip
sinn á álitsgerðir umræðu-
hópanna var i fyrsta lagi —
þjónustuhlutverk Æskulýðsráðs
Reykjavíkur meðal annars hvað
snertir leiðtogaþjálfun. 1 öðru
lagi — samband frjálsra félaga
innbyrðis og nauðsyn á
aukningu þess og hvernig það
mætti verða. Þá var lögð
áhversla á nauðsyn þess að
nemendur i grunnskóla fái
meiri þjálfun I félagslegri þátt-
töku i skólum sinum og að vand-
lega sé fylgst með framkvæmd
laga og reglugerða um félags-
störf i grunnskóla. Athygli var
vakin á þvi að nemendur
menntaskóla og annarra hliö-
stæðra skóla væru mettir af
félagsstarfi vegna fjölbreytts
framboðs i skólum sinum og
þyrftu ekki að leita út fyrir skól-
ana til sikra starfa, enda gerðu
þeir það ekki nema i litlum
mæli. —BA.
HRAUNEYJAFOSSVIRKJUN:
Fyrsti verk-
samningurinn
undirrítaður
Fyrsti verksamn-
ingurinn vegna Hraun-
eyjafossvirkjunar var
undirritaður fyrir
skömmu. Samningur-
inn er um uppgröft
fyrir stöðvarhúsi og
þrýstivatnspipum.
Samningurinn er gerður milli
Landsvirkjunar annars vegar
og verktakanna ístaks h.f,
Miðfells h.f., Loftorku s.f., AB
Skánska Cementgjuteriet og E.
Phil & Sön AS hins vegar.Verk-
takar þessir stóðu aö
sameiginlegu tilboði, sem
reyndist lægst þeirra tilboða
sem bárust í umræddan verk-
hluta. Samningsupphæðin
nemur tæpum 714 milljónum
króna. Gert er ráð fyrir að
þessum verkhluta ljúki næsta
haust. —KS
HAFNEX 78 í Víðistaða-
skóla í
Félag frimerkjasafnara I
Hafnarfirði og Garðabæ halda
frfmerkjasýninguna HAFNEX
78 í Viðistaðaskóla i Hafnarfirði
dagana 2 til 4 júni.
A sýningunni verða yfir 50
rammar með afar forvitnilegu
efni og fjölbreyttu úrvali safna.
Þar sem sýningin nýtur stuðn-
ings Landssambanda isl. fri-
merkjasafnara verða söfn þau,
sem hljóta silfur og gullverð-
laun, viðurkennd til alþjóða-
sýningar.
Starfrækt verður sérstakt
pósthús með sérstimpli og
laugardaginn 3. júni verður
hann auðkenndur vegna 11.
landsþings L.I.F., sem haldiö
verður þann dag. Umslög með
merki sýningarinnar verða sdd
á staðnum.
Lœgrí skólagjöld
í tónlistarskóla
sem Ragnar Björnsson opnar í haust
„Þetta er nokkuð
sem búið er að veltast i
mér i langan tima og ég
hef unnið að þessu
lengi,” sagði Ragnar
Björnsson, organisti,
sem i haust opnar
nýjan Tónlistarsköla í
Reykjavik.
En samþykkt var á fundi
borgarráðs i gær aö styöja
þennan skóla á sama hátt og
aðrir tónlistarskólar eru studdir
af borginni.
„Skólinn verður með alger-
lega nýju sniði”, sagði Ragnar
„sem gerir það að verkum að
skólagjöldin verða helmingi
lægri en tiðkast i öðrum
tónlistarskólum”.
Fyrirmyndina að þessum
nýja Tónlistarskóla fékk
Ragnar frá Bandarikjunum, en
skólafyrirkomulag þetta hefur,
og verið reynt viða annars-
staðar til dæmis i Bretlandi.
„Höfuðbreytingin frá þvi
Ragnar Björnsson
fyrirkomulagi sem nú tiökast er
i þvi fólgið að i staðinn fyrir
hefðbundna kennslu á hljóðfæri
þar sem einn nemandi er hjá
hverjum kennara i einu, en það
er einmitt það sem gert hefur
námiö svo dýrt,yrði i þessum
nýja skóla sameiginlegur timi
þar sem fjórir læra saman i
einu.
Þetta gildir þó ekki út allan
skólann heldur aðeins fyrstu
stigin” sagði Ragnar.
I tengslum við hinn eiginlega
skóla verður siðan rekin sérstök
undirbúningsdeild sem Ragnar
vildilikja við þaö þegar börnum
er hent út i sundlaugina til aö
læra að synda.
Þar byrja börnin fýrst á þvi
að setjast fyrir framan nótna-
blöðin og syngja eftir nótunum
og fá tilfinningu fyrir tónum og
tónstigum áöur en þau setjast
við hljóöfærið.
„Skólinn verður nú ekki stór i
fyrstu, ekki verður kennt á öll
hljóðfæri til að byrja með”
sagði Ragnar.
Þá má telja það til nýjunga að
iþessum skóla verða keypt hljóö-
færisem lánuð yrðu nemendum
sem þannig losnuðu við
óþarflega dýran stofnkostnað á
hljóðfæri sem þau hugsanlega
seinna missa áhugann á.
—H.L.
Nú er tími
garðrœktar og voranna
í GARÐHORNINU
hjó okkur kennir margra grasa
Allskonar slöngutengi, úðarar, slöngur, slöngustatív, slönguvagnar.
Margvisleg garðyrkjuóhöld, þar sem m.a. að einu skafti fellur fjöldi
óhalda.Kant- og limgerðisklippur, rafknúnar handslóttuvélar
Husquarna-mótorslúttuvélar með Briggs og Stratton mótor (3,5hp)
Margar gerðir
Skóflur - Gufflar - Hrifur. í gorðs- <emnal S4þzeúmn Lf.
horninu hjó okkur kennir morgro 00 J
, . Akurvik h.f. Akureyri
grosa. Litið mn.