Vísir - 25.05.1978, Page 24
VÍSIR
Iðnverkafólk f lægstu töxtum Iðju, Sóknarfélagar verka-
menn og eitthvað af verslunarfólki er meðal þess fóiks,
sem bráðabirgðalögin frá f gær ná til.
Óljóst hve
margir njóta
lagabreyt-
ingarinnar
„Beinar upplýsingar liggja ekki fyrir um það, hversu
margir það eru, sem fá fulla vfsitöluhækkun,” sagði
Ólafur Daviðsson hjá Þjóðhagsstofnun er Vfsir hafði
samband við hann i morgun til að kanna hvort Þjóöhags-
stofnun vissi um fjölda þeirra launþega sem hafa laun
upp að 122000 kr. á mánuði.
Ríkisstjórnin setti í gær
bráðabirgðalög um
breytingu á lögunum um
efnahagsráðstafanir frá
þvi í febrúar. Skerðingar-
ákvæði laganna eru rýmk-
uð þannig, að óskert visi-
tala greiðist á dagvinnu-
laun upp að 122000 krónum
á mánuði miðað við mai-
laun.
Ólafur sagði, að væntan-
lega væri hér einkum um
að ræða fólk i lægri flokk-
um Iðju og þremur lægstu
töxtum verkafólks, auk
þess sem hluti af
verslunarfólki næði ekki
122000 krónum i mánaðar-
laun.
Þær upplýsingar fengust
hjá Kjararannsóknar-
nefnd, að þar hefði ekki enn
unnist timi til að kanna
hversu margir þaö væru,
sem hefðu tekjur upp að
þessu marki.
Þá var I morgun haft
samband við þau samtök
launþega, sem hér um ræð-
ir. Svarið var víöast hvar
það, að ekki hefði unnist
timi til að kanna fjöldann.
Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir, formaður Sóknar,
sagði þó að velflestir
félagsmenn væru með iaun
undir þessu marki. Hún
vildi þó taka það fram, aö
það hefði ekki ennþá verið
kannað nægilega vel.
— BA
Verkalýðsfélögin á Suðurnesium og Vestfjörðum:
Verður fafffð
frá verkföllum ?
Verkalýðsfélögin á Suðurnesjum og
Vestfjörðum hafa aflað sér verkfalls-
heimilda i kjarabaráttunni. Visir at-
hugaði i morgun, hvort viðhorfin til
verkfálla hefði eitthvað breyst eftir
setningu bráðabirgðalaganna i gær.
Engar ákvarðanir hafa verið teknar, en
á Suðurnesjum er hallast að þvi að
skipta um baráttuaðferðir, en á Vest-
fjörðum er afstaðan harðari.
Karl Steinar Guðnason,
formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Kefla-
vikur, sagði við Visi i
morgun, að hann teldi
vissulega bót að þessum
lögum fyrir þá lægst
launuðu frá þvi sem ver-
ið hefur. Hins vegar teldi
hann að skerðingar-
ákvæði laganna væru
þannig vaxin, að það
þyrfti að beita nýjum að-
ferðum til að fá þau af-
numin. Ekki vildi hann
segja hvaða aðferðir
hann hefði i huga.
„Sannleikurinn er sá,
að verkalýðshreyfingin er
búin að lofa sér þvi i ára-
tug að láta rikisvaldið
ekki eyðileggja gerða
samninga”, sagði Pétur
Sigurðsson, formaður
SV við Visi i morgun,
er hann var spurður álits
á bráðabirgðalögum
rikisstjórnarinnar. „Ef
menn ætla að láta undan i
baráttunni geta þeir al-
farið látið löggjafann
skammta sér laun. Ég tel
að staðan I samningamál-
um ætti ekki að breytast
við þessi lög, að minnsta
kosti ekki til þess að
breyta um baráttuaðferð-
ir. Þaö er min skoðun, en
hins vegar á svo eftir að
taka afstöðu til málsins'.'
Þeir hafa ósjaldan
deilt harkalega,
Hannibal Valdi-
ma rsson og
Bjarni Guönason.
En stjórnmála-
menn skipta lika
stundum um
skoðun og einnig
það hafa þeir
ósjaldan gert
Hannibal og
Bjarni.
Þegar þeir hitt-
ust á kosninga-
fundi Alþýðu-
flokksins á Hótel
Sögu í gærkveldi
voru þeir þvi
brosleitir og sátt-
fúsir. —óT.
Kosningaskjdlfti á Seltjarnarnesi
Öskar eftir opin-
berrí dómsrtumsókn
„Vinstri menn báru út hér á mánu-
daginn blaðsnepil i hvert hús, þar sem á
mig voru borin gróflega mannskemm-
andi og ærumeiðandi ósannindi i sam-
bandi við þessi húsakaup. Af þeim sök-
um mun ég i dag senda rikissaksóknara
bréf þar sem ég krefst opinberrar rann-
sóknar á þessu máli öllu.
Ég bauð reyndar
ábyrgðarmanni þessa
blaðs vinstri manna að
vera meðflutningsmann
að þessari beiöni til rikis-
saksóknara, en hann
hafnaði þvi”, sagði
Magnús Erlendsson, for-
seti bæjarstjórnar Sel-
tjarnarness, i samtali við
Visi I morgun, en þar I bæ
hefur risið upp kosninga-
mál vegna húsasölu
minningarsjóös sem var i
umsjá stjórnar gjafasjóðs
Sigurgeirs Einarssonar.
En um hvað snýst mál-
ið?
Samkvæmt reglum
sjóösins var oddviti bæj-
arstjórnar formaður
sjóðsstjórnar og er enn.
Auk hans var skipaður i
sjóðsstjórnina einn
stjórnarmaður af bæjar-
stjórn.
Sjóðurinn átti húseign á
Vesturgötunni og fékk
fasteignasölu i Reykjavik
til að selja húseignina.
„Fasteignasalan mat
húsið og setti upp sölu-
verðið”, sagði Magnús
Erlendsson, ,,en ekkert
gekk i rúmt ár aö selja
þrátt fyrir að fjölmargir
hefðu komið og skoöaö.
Söluverðið þótti enda of
hátt, sem sést best á þvi
að þrátt fyrir 30-35%
verðbólgu á árinu 1977 þá
lækkaði fasteignamat
hússins úr 21,8 milljón ár-
ið 1977 niöur i 19 milljónir
i janúar 1978.
En svo er það i mai
1977, að tveir menn koma
og kaupa húsið á því verði
sem fasteignasalan var
búin að reyna að selja i
rúmt ár. Annar þeirra
verður löngu siðar svo ó-
heppinn aö fara I prófkjör
og ná kjöri i eitt af efstu
sætunum á lista Sjálf-
stæðisflokksins.
„Þetta var nú allur
glæpurinn”, sagði Magn-
ús Erlendsson.
—H.L.
Þrjú innbrot
Þrjú innbrot voru framin á Reykjavíkur-
svæðinu i nótt. Rétt fyrir klukkan tvö í nótt
greið lögreglan innbrotsþjóf í Sindra á
Hverf isgötunni.
Þá var brotist inn i Blóm
og ávexti i Hafnarfirði og
þaðan stolið tveim ávisun-
um uppá 22 þúsund samtals,
og skiptimynt,auk þess sem
hurð var brotin.
1 Miðfelli hf. á Funahöfða
var siðan brotist inni skrif-
stofu og verkstæði og stolið
litilli vasatölvu og útvarpi.
Litið var skemmt
—GA
Már nufncfar-
formaður
hjúOECD
A fundi fiskimálanefndar
Efnahags- og framfara-
stofnunar Evrópu (OECD)
22. mai s.l. var Már Elisson
fiskimálastjóri kosinn for-
maöur néfndarinnar til
eins árs. Már Elisson er
fyrsti íslendingurinn sem
gegnir nefndarformennsku
hjá OECD en fiskimála-
nefndin er til komin vegna
tillögu Islendinga árið 1960
þegar OECD var stofnað.
Fiskimálanefnd hefur ýmis
þýðingarmikil verkefni
með höndum svo sem ár-
lega skýrslugerð um þróun
sjávarútvegs aðildarrikj-
anna sem ekki eru unnin af
öðrum alþjóðastofnunum.
VINNINGURiNN ER
B SIMCA 1307
VISIR
Simi 86ÓII
Simi 82260
Simi 86611
Simi 82260
Simi 86611