Vísir - 24.06.1978, Síða 15
15
VISIR
Laugardagur 24. júnl 1978
ir viðskiptavinina.
Hver voru verkefnin á Total
Design?
Þau voru mjög fjölbreytt. Þaö
sem einkennir vinnubrögðin á
þessari stofu er hópvinna, sem
hefur gefist mjög vel. Mér fannst
mjög þroskandi að vinna með hóp
af færu fólki að einu verkefni, og
sérstaklega áhugavekjandi og já-
kvætt að allar tillögur eru teknar
jafngildar og metnar af hópnum.
Þegar þannig er að staðið virkar
hópvinnan mjög hvetjandi á ein-
staklingana. Eitt verkefniö sem
ég tók þátt i að vinna i hópvinnu
var plakat til kynningar á lista-
timariti sem gefið er út af ,,list-
ráði rikisins”. Það var skemmti-
leg tilviljun að i þessu timariti
var heilsiðumynd af útiskúlptúr
eftir Sigurð Guðmundsson. Þessi
skúlptúr er i úthverfi Amsterdam
og ieigu rikisins. Er annars nokk-
ur skúlptúr i Breiðholtinu?
Vannstu þá einungis I hóp-
vinnu?
Nei, ég vann lika á eigin spýtur.
T.d. hannaði ég upplýsingabækl-
ing fyrir tilraunaleikhúsið
MICKERY. Margir íslendingar
kannast við þetta leikhús frá þvi
að tnúk-flokkurinn sýndi þar um
árið. Þar sýna leikflokkar frá
öllum heimshornum tilraunaverk
nútimans, sem oft eru með póli-
tisku inntaki eins og ínúk var. 6g
hannaði heildarútlit bæklingsins
og valdi liti, en siðan mun textinn
vélritaður inná við hvert nýtt
leikrit. Þetta verkefni vann ég að
mestu i leikhúsinu, japanskur
leikflokkur var þá að setja þar
upp verk og var stórkostlegt að
sjá hvernig leikhúsið var alger-
lega umbyggt að innan til að hæfa
verkinu.
Hvað með önnur verkefni?
Ég vann með hóp sem hannaði
plakat og sýningarskrá fyrir um-
ferðarmyndlistasýningu um Hol-
land. Þaö má geta þess að á Total
Design fer fram öll hönnun varð-
andi sýningar á Stedelijk, Hol-
lenska nútímalistasafninu. Ég
vann lika með hóp sem hannaði
bókarkápur á ákveðinn bóka-
flokk, ein bókanna var „Sérher-
bergið” eftir Virginiu Woolf. Þá
tók ég lika þátt i gerð plakats og
borða sem strengdir eru milli
húsa til að auglýsa árlega listahá-
tið um allt Holland, eða „Holland
festival”.
Ertu ánægð með „plakat-
menninguna” á tslandi?
Mér finnst sorglegt hve litið
plaköt eru notuð hér. Það er við-
tekið að hengja falleg plaköt á
veggi i heimahúsum, en i raun
eru plaköt fyrst og fremst mikil-
vægur upplýsingamiðill. Ég álit
að það ætti að koma upp fristand-
andi plakataveggjum þar sem
margt fólk á leið um, þvi þess
háttar veggir gerðu bæinn líf-
rænni. Plaköt hafa beinni áhrif á
fólk en flestir aðrir miðlar. T.d.
mætti auglýsa leikhúsin á þess
háttar plakötum. Ég vil taka
fram að ég er alls ekki að iaia um
flennistór plaköt meðfram þjóð-
vegum.
Oft deilir þaö fólk sem vinnur
að hreinni myndlist á teiknara og
álitur þá hugsa um peninga fyrst
og fremst. Hvert er þitt álit á þvi?
Elsku besta, það er alveg sama
hvort þú vinnur á stofu við að
teikna grafiska auglýsingu á
strætó eða hvort þú málar myndir
Daglegt umhverfi Sigríöar, teiknað af henni sjálfri
og smíðað af Reyni Sigurðssyni manni hennar.
i bilskúr út i bæ, þetta er allt
harður bisness! Ég legg hrein-
lega t.d. vel hannaöa bðk að jöfnu
við gott myndlistaverk. Með þvi
að tjá þig á myndrænan hátt ertu
að koma tilfinningum þinum og
Upplýsingabæklingur
sem Sigríður hannaði
fyrir Mickery-leikhús-
ið i Amsterdam.
hugsunum á framfæri við annað
fólk. Ef myndir væru aðeins fyrir
þá sem búa þær til væru þær ekki
miðill. Það er oft talaö um firr-
ingu myndlistar frá almenningi,
Sýningarbás Sjáturfélags Suðurlands á Iðnkynn-
ingu 1977 en Sigríður hannaði bæði pelsana og bás-
inn sjálfan.
en grafiskir teiknarar hafa sterk
tengsl við fjöldannjeiknarar hafa
á margan hátt góð tækifæri til að
tjá sig i verkum sinum.
Er þá flokkunin i hreina og nýta
myndlist óeðlileg?
Sú flokkun er orðin talsvert erf-
ið i dag. Mörkin eru orðin svo
ógreinileg og ef ég á að nefna
dæmi þá hafa stefnur innan
hreinnarmyndlistarsvo sem pop-
list og op-list sprottið upp úr verk-
um grafískra hönnuða og sótt
yrkisefni sitt inn á svið grafiskrar
teikningar.
En hvað með siðfræðina? Eru
teiknararnir ekki stöðugt að plata
nýjum tegundum þvottaefnis inn
á saklaust fólk?
Auglýsing er fyrst og fremst
upplýsing. Auglýsingar eru
ómissandi þáttur i þvi samfélagi
sem við búum i. Hvernig heldur
þú myndlistasýningu án þess að
auglýsa hana? Það er erfitt að
meta hvað er siðfræðilega rétt og
rangt að gefa fólki upplýsingar
um, og um það má endalaust
deila, en i eðli sinu álit ég auglýs-
ingar ekki siðferöilega rangar.
Mér finnast auglýsingar yfirleitt
vel unnar þegar þær eru unnar af
fagmönnum. Hins vegar er áber-
andi að mörg timarit eru illa út-
litandi vegna þess að faglært fólk
kemur ekki nálægt útlitshönnun
þeirra.
Skera verkefnin teiknurum
ekki oft þröngan stakk?
Ja, þá reynir nú fyrst á hvað
viðkomandi teiknari getur if.engið
út úr verkefnunum fyrir aöra og
sjálfan sig. Ef tekiö er verkefni
sem blaðaauglýsing þá skiptir
mig máli hver öll hlutföll eru, let-
urtegundin, form þess sem aug-
lýst er og staða þess i myndflet-
inum.
Nú vinnur þú á auglýsingastofu
hér, vinnur þú að einhverri
myndgerð þar fyrir utan?
Ég hef nýlokið við hönnun á
veggmýnd fyrir vöruskemmu
sem er að risa við Sundahöfnina.
Hún verður skorin i mót og steypt
um leið og veggurinn. Annars hef
ég ýmsar hugmyndir sem ég von-
ast til að koma i framkvæmd i ná-
inni framtiö. Mér finnst mér ekk-
ert að vanbúnaði að vinna að
hreinni myndlist þar sem ég hef
sömu undirstöðumenntun og það
fólk sem stundar slika vinnu hér.
Með tilliti til tækni i útfærslu og
hugmyndafræði er ég ekki ver
sett en flestir.
Og hvernig er að véra komin
heiin frá Hollandi?
Það er alltaf gott að koma
heim, sérstaklega þegar maður
ertviefldur og fullur af hugmynd-
um og vinnukrafti.
6felagerrf,-
Eyjagötu 7, örfirisey
Reykjavik . simar 14093—13320
HUSTJOLD - TJALDHIMNAR
SÓLTJÖLD, TJÖLD, TJALDDÝNUR.
Framleiöum allar geröir af tjöldum á hag-
stæöu veröi m.a.
5 — 6 inanna kr. 36.770.-
3 manna kr. 27.300,-
Hústjöld kr. 68.820.-
5 gerðir af tjaldhimnum.
— Seljum einnig ýmsan tjaldbúnað t.d.
— Sólstóla, kælibox, svefnpoka og leiktjöld
Komið og sjáió tjöídin uppsett i hinum nýju
glæsilegu húsakynnum aö Eyjagötu 7 örfiris-
Póstsendum um allt land.
OFNAR A LAGER
TIL AFGREIÐSLU
STRAX!
Eigum fyrirliggjandi
HELLUOFNA,
framleidda skv. íslenskum Staðli ÍST 69.1
ISO
Góðir greiðsluskilmálar eða staðgreiðslu-
afsláttur.
Merkið sem <JCf f tryggir gæðin.
OFNASMIÐJAN
HATEIGSVEGI 7, SÍMI 21220
ER EITTHVAÐ AÐ FOTUM YÐAR?
ÞA MUNU
VORURNAR HJALPA YÐUR
FASTINÆSTA APOTEKI
KEMIKALIA HI