Vísir


Vísir - 20.07.1978, Qupperneq 4

Vísir - 20.07.1978, Qupperneq 4
Fimmtudagur 20. júlí 1978 VISIR Þeir standa gleiðir á litlum steinpalli við bryggjuna og greiða úr þangflæktu neti á milli sin. Við og við kvarta þeir yfir þvi hvor við anrian hvað grásleppuveiðin hafi verið slöpp i ár, en eru þó hýrir á svip eins og það skipti i rauninni engu máli. Hver er lika að eyða timanum i að hafa áhyggjur út- af lélegri veiði þegar smábylgjumar við tærnar á manni glitra undan sólinni. ílHI l*i Og svo liggja brjóstin á jörðinni” Rabb a Reykjavíkurhöfn //Ekkert líktað fáað vera á sjónum og að vera lokaður inni i landi" segir Hrói, stýrimaður á Helgu. „Llklega gerum viö þaö i hobbii á þorranum i vetur. Yf- ir smáglasi þvi að annars er þetta ekkert hobbl. Þannig var þaö í trillumannaskúrunum I gamla daga. 1 þeim skúrum var oft glatt á hjalla þegar 1 •■■ : r.e ,,Sumir menn þurfa þess með að komast til sjós. Það gerir saltbragðið". „Það fæst aldrei nóg. Þann- ig er þaö alltaf til sjós” segir sá eldri, Sæmundur, og brosir út undir eyru „Nú er grásleppuvertiöin búin, en varla hægt að segja aö mikiö hafi borið á grásleppu á þeirri vertiö. Þó er þetta kannski heldur skárraen I fyrra. En úr þvi þið eruð komin hingaö niö- ur á höfn viljiö þið væntanlega fá aö vita eitthvað. Litiö snöggvast á þennan kork. Hann er kallaður korkateinn eins og við á. Þetta sem hann Július heldur á er kaliað steinateinn, og svo liggja brjóstin á jöröinni. Þau eru til þess að halda endunum á net- inu i sundur.” Netið bætt yfir smá- glasi á þorranum „Þegar við erum búnir að greiöa þangið úr netinu á eftir að bæta það allt og laga til” heldur Sæmundur áfram til- raunum sinum til að fræða þetta ósjóaða aökomufólk um aðfarir við grásleppuveiðar. verið var aö beita, og þá var maður meö smátár eins og hann Ási i Bæ mundi segja.Ég er frá Vestmannaeyjum og var einu sinni á trillu hjá Asa, en á sjónum var ég i alls þriátiu ár.” „Væri samt ekki betra fyrir ykkur að tala viö hann JúJius ef þið viljið kynnast hafnarlif- inu i Reykjavik. Ég er nefni- legaalgjörFæreyingurá fasta landinu og þekki eiginlega ekkert til hér, en hann Július er algjör Reykvikingur, þótt hann sé upphaflega kominn undan Eyjafjöllum”. „Erum vist engir stflistar hér niðurfrá” Július Oskar Sigurbjörnsson er eigandi trillunnar, sem þeir félagarnir nota til grásleppu- veiðanna. „Þetta er þó einungis aukavinna hjá mér ” segir Július. Mittaðalstarf er i Laxeldisstööinni i Kolláfirði. Þar hef ég næturvaktir og gef fiskunum, passa að vatns- rennslið stiflist ekki og svo- leiðis nokkuö. í dag er siöasti dagurinn sem veiða má grá- sleppu, en liklega skrepp ég eftir sem áður hér út undir Gróttu og renni fyrir ýsu I soð- ið”. „Það erómögulegt annað en aðfá sér smá gusuannað slag- ið „skýtur Sæmundur inni. Sumir menn þurfa þess með að komast til sjós. Það gerir saltbragðið.” bætir hann viö tekur myndarlega i vörina og segist verða að fá að setja I kjallarann hjá sér. „Þið fyrir- gefið þótt ég tali við ykkur á sjómannamáli. Viö erum vist engir stilistar hér niðurfrá.” „Vinn aldrei framar i landi”. Steinsnar frá trillunni hans Júliusar liggur nótabáturinn Helga i makindum og gælir við bryggjustólpa. Við hlið hennar stendur maður og horfir hug- sandi út á fjörðinn. Hann segir okkur að hann heiti Hróbjart- ur, kallaður Hrói, og sé stýri- maöur á Helgu. „Við höfum verið að biða undanfarinn hálfan mánuð eftir að geta leyst nótaefni sem okkur vantar úr tolli” segir Hrói. „Um leið og það fæst leggjum við af stað norð- ur á loönuveiöar, og þá er að í r bátum endalaust. Það er ágætt að stoppa þjónustuna i soldinn tima. Ég dreif mig til Spánar i þrjár vikur nýlega, og fór svo upp i sveit. Skyld- fólk mitt býr i Rangárvalla- sýslunni og ég fékk að vera hjá þvi i góöu yfirlæti. Mér finnst þó þrátt fyrir allt ekkert likt að fá aö vera á sjónum en að vera lokaður inni i landi. Ég vann einu sinni I landi I eitt ár við járnsmiðar, og þaö mundi ég aldrei gera aftur.” Landmaður á Grandakaffi „Ertu sjómaður”? spyrjum við mann nokkurn sem situr við borð inni á Grandakaffi til að svo liti út sem við höfum ■M „Mér finnst gott að horfa hér yfir höfnina". Við hittum Sigurð vél- virkja á Grandakaffi. , '**f^'*“ X Jóhann Andersen, blökkina. vélstjóri á Helgu, smyr Myndir SHE vona að ekki veriö vandræði með Isinn. Hann hefur oröið eitthvað meiri en þeir bjugg- ust við.” Hrói hefur veriö i frii i tvo og hálfan mánuð, enda ekkert varið i aö vera að þvælast á rjs- XX Grásleppuvertíðinni er nú lokið, og hér eru Sæmundur Einarsson, fyrrverandi skipstjóri í Vestmannaeyjum, og Július óskar Sigurbjörnsson að greiða netin. einhverja afsökun fyrir að setjast hjá honum. „Nei” seg- ir hann og sötrar varlega á á rjúkandi kaffi. „Ég er larid- maður. Hins vegar hef ég þá venju að fá mér sundsprett i Vesturbæjarlauginni eftir há- degi, og kem hér við á eftir til að fá kaffisopa. Mér finnst gott að sitja hér og horfa út um gluggann yfir hö'fnina. Þannig kemst ég i snertingu við sjávarlífið og fæ dálitið yfirlit yfir önnur störf en mitt eigið.” „Auk þess á ég margar góð- ar minningar frá höfninni. Ég er vélvirki að mennt, og þegar ég var aö læra i Héðni var ég oft sendur til skips og látinn bjástra þar við vélar. Svo á ég lika hraðbát og fer stundum á honum hér út á sundin” Og með það kveður landmaður- inn og óskar okkur góðrar veiði um leið og hann hverfur út um dyrnar. —AHO

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.