Vísir - 20.07.1978, Síða 7
Carter sýnir hörku
VISIR Fimmtudagur 20. júll 1978
Viðrœðurnar og flótta-
fólkið látið bíða
Stjórnir Vietnams og Kina hafa orðið ásáttar
um að slá á frest, i einn mánuð eða svo, viðræðum
um flótta kinverskættaðs fólks frá Vietnam.
Fjöldi fólks hefur flúið til Kina (á myndinni sjást
kinverskættaðir Vietnamar vaða Nanhsi-hljót),
en um 150 þúsund eru sagðir biða tækifæris og
niðurstöðu viðræðna Pekingstjórnar og Hanoi.
Tvö kinversk flutningaskip hafa beðið utan land-
helgi Vietnams, reiðubúin til að flytja flóttafólk
sjóleiðina.
Samsœri á Kýpur
Spyros Kyprianou,
forseti Kýpur, kunn-
gerði i gærkvöldi, að
komist hefði upp um
samsæri, sem beint var
gegn stjórn hans.
í 13 minútna sjón-
varpsviðtali (i tilefni af-
mælis innrásar Tyrkja á
eyjuna) varaðist Kýpur-
forseti þó að lýsa þessu
samsæri i einstökum
atriðum.
Hann sagði, að samsærið heföi
átt upptök sin erlendis, en ljóstað
hefði verið upp um það, meðan
það var enn á byrjunarstigi, og
ekkert þyrfti lengur að óttast.
Ekkert kvaðst Kýpurforseti
skilja i útlendingum, að geta
hagað sér þannig, og enn siður, að
það skyldu vera til Kýpurmenn,
sem létu teyma sig út i slikt.
Eftir þvi sem fréttir herma frá
Kýpur hefur tveim útlendingum
verið visað úr landi vegna þessa
máls. Annar er Eli Funchs,
israelskur knattspyrnuþjálfari,
serri var að störfum hjá einu
Kýpurfélaginu. Hinn er fyrrum
starfsmaður v-þýska utanrikis-
ráðuneytisins, Paul Kurbjuhn.
tþróttafélög á Kýpur eru flest
hápólitisk og „Olympiakos”, fé-
lagið sem Funchs starfaði hjá,
þykir afar hægrisinnað. — Sagt
er, að samband hafi verið milli
Funchsog Kurbjuhns.
Eftir þessar fréttir af samsær-
inu hafa menn skoðað i nýju ljósi
brottvikningu Tassos Papadopou-
losar, aðalsamningamanns
Kýpur-Grikkja i viðræðunum við
Kýpur-Tyrki. Engar skýringar
voru gefnar á brottvikningunni,
en Papadopoulos hélt þvi fram,
að reynt hefði verið að bendla
hann við samsæri, og honum hefði
verið hótað saksókn.
Papadopoulos hefur gagnrýnt
Kyprianous forseta og sagt, að
hann ætli að hætta viðræðunum
við Kýpur-Tyrki og afturkalla
ýmsar mikilvægar tilslakanir.
sem forveri hans, Makarios
biskup, hafði veitt.
Kyprianou forseti fullvissaði
sjónvarpshlustendur i gærkvöldi,
aðhann fylgdi stefnu Makariosar
á öllum sviðum.
Þá berast einnig þær fréttir frá
Kýpur, aðyfirvöid hafi hrundið at
stað nýrri rannsókn á moröi
Rogers Davies, ambassadors
Bandarikjanna i Nicosiu. Hann
var myrtur i ágúst 1974, nokkru
eftir hernám Tyrkja.
Kosningarnor
endurteknar
í Bólivíu
Herinn þykir nú hafa
pólitiska framtið Bolivíu
i hendi sér, eftir að ógilt
voru úrslit fyrstu al-
mennu kosninganna,
sem fram hafa farið þar
i landi i tólf ár.
Yfirkjörstjórn ógilti i gærkvöldi
úrslitin úr kosningunum 9. júli, og
hafði þá Hugo Banzer forseti áöur
lýst þvi yfir, að hann mundi fela
forsetaumboðið i hendur hernum,
ef úrslitin yrðu ógilt.
Banzer hershöfðingi sagðist
mundu segja af sér 6. ágúst, og
eftir það yrði pólitisk framtið
landsins i höndum hersins.
Úrskurður yfirkjörstjórnar
kemur að kröfu Juan Pereda As-
bun, hershöfðingja og forseta-
frambjóðenda, sem fariö hefur
fram á, að efnt verði til nýrra
kosninga. Hefur yfirkjörstjórn
boðað nýjar kosningar eftir hálft
ár.
Pereda hershöfðingi bar fram
kröfu sina eftir aö kosningatölur
sýndu, að hann hafði sigrað. Hann
hafði hlotið hreinan meirihluta.
En i hámæli komst, að svik hefðu
verið framin i kosningunum.
Blaðaskrifin leiddu
hana út í drykkju
Joan Kennedy hefur skýrt fra
þvi i blaðaviötölum, að aödrótt-
anir blaða i Bandarlkjunum um
tengsl manns henriar, Edwards
Kennedy, við aörar konur hefðu
sært hana svo, aö hún hefði
leiðst út I drykkjuskap og orðið
áfengissjúklingur. — Hún hefur
nú unnið bug á þessum veikind-
um.
c
Umsjón: Guömundur Pétursson
Carter forseti virðist
nú staðráðinn i að taka
upp harðari stefnu i
samskiptum við Sovét-
rikin til þess að sýna
andúð Bandaríkja-
stjórnar á meðferð and-
ófsmanna i Sovétrikjun-
um.
Bönnuð hefur verið sala á full-
kominni bandariskri tölvu til
Tass-fréttastofunnar, og fyrir-
hugaður útflutningur á tækja-
kosti til oliuvinnslu er nú háður
eftirliti embættismanna Hvita
hússins.
Þar til viðbótar var svo sovésk-
ur diplómat kvaddur til utanrikis-
ráðuneytisins i Washington i gær
til þess að gera grein fyrir starf-
semi TASS i San Francisco.
Ýmsir þingmenn hafa fagnað
þessum aðgerðum, en leggja til,
að fleira verði að gert. Þannig
leggur Henry Jackson, einn af
áhrifamestu öldungadeildarþing-
mönnum demókrata, til, aö hlut-
ast verði um að Ólympiuleikarnir
1980 verði fluttir frá Moskvu.
Móðurmiólkin stœðist
ekki óhollustuprófanir
en þykir samt hollasti
barnamaturinn
Ef reglur og lög V-
Þýskalands um hrein-
læti i meðferð matvæla
væru látin taka til
móðurmjólkur væri
hún bönnuð til mann-
eldis.
Niðurstöður rannsókna, sem
hið opinbera hefur beitt sér
fyrir, eru þær, að brjóstmylk-
ingar fái með móðurmjólkinni
ýmis hættuleg efni, en um leið
er þvi samt haldiö fram, að
þetta sé besta fæða kornabarns.
Kemur fram I skýrslu um
þessar rannsóknir, að finna
megi I móðumjólkinni hin og
þessi óhöll efni og svo miklum
mæli, að fyndust þau i kjöt-
vörum i jafnmiklum mæli, yrði
varan bönnuð á markaði i
Þýskalandi.
En þegar öllu hefur verið til
skila haldið,sem móðurmjólkin
gefur barninu, þykir hún Samt
taka fram öllum verksmiðju-
framleiddum barnamat. Bæði
næringarmeiri og eins færir hún
barninu ónæmi gegn ýmsum
sjúkdómum.
Má bjóða „dinnermúsík"!