Tíminn - 29.10.1969, Qupperneq 1
SAMVINNVBANKINN
enmdarllrðt
Patrtksfirðf
Sauðárkróki
Húsavib
Kópcskeri
Stöðvarfirði
Keflavib
JSmfnarflrði
Beybfavik
SAMVJNNVBANKINN
iwmis
238. tbl. — MiSvikudagur 29. okt. 1969. — 53. árg.
iMVINNtT
BANKIHN
Færeyskir
blaðamenn
í gærkvöldi komu hingað til
lands sjö Færeyingar á vegum
Flugfélaigs íslands. Þeir munu
dvelja hér fram yfir helgi, og
skreppa m. a. til Gílasgow í
Flugfél a'gsþotuu n i. Þeir, sem
komu voru Knut Wanng rit-
stjóri Dagbladet, Georg Samu
elsen ritstjóri Dimmalættingen,
Erlendur Patursson ritstjóri 14.
september og kona hans, Niels
Juel Arge útvarpsstjóri, Jon-
bert Poulsen ritstjóri Nordlyset
og Lars Larssen frá Flugfélagi
Færeyja. Gestirnir eru hér á
myndinni ásamt Sveini Sæmunds
syni blaðafulltrúa.
(Tímamynd: Gunnar).
Ólafur Jóhannesson í framsöguræðu um Togaraútgerð ríkisins:
Sameinaö þjóðfélagsafl
grípi inn í þegar einka-
fyrirtæki skortir bolmagn
FRUMVARPIÐ FRAM KOMIÐ VEGNA ÞESS AÐ ÍSKYGGILEGA HORFIR í ATVINNUMÁL-
UM — FISKVINNSLUSTÖÐVAR FÁ ÓNÓG HRÁEFNI — TOGARAFLOTANN ÞARF AÐ
EFLA OG ENDURNÝJA OG AUKA ÞARF GJALDEYRISTEKJUR
LL-Reykjavík, þriðjudag.
í dag var frumvarp Ólafs Jóhannessonar og fleiri þingmanna Fram-
sóknarflokksins um Togaraútgerð ríkisins og stuðning við útgerð sveit-
arfélaga til umræðu í efri deild Alþingis. Mælti Ólafur Jóhannesson
fyrir frumvarpinu og rakti nokkuð greinar frumvarpsins. Sagði hann
í ræðu sinni, að ríkissjóður ætti samkvæmt frumvarpinu að leggja
fram 100 millj. kr. stofnframlag, og yrði ábyrgð ríkissjóðs takmörkuð
við það framlag. Ríkisstjórninni væri heimilt að ábyrgjast 300
millj. kr. lán, sem útgerðin tæki til að standa straum af kostnaði við
smíði skipanna. Einnig ætti Togaraútgerðin að eiga kost á stofnlánum
eins og önnur hliðstæð fyrirtæki.
1 frumvarpinu eru fyrirmæli
um, að eftir því sem unnt er, verði
skip útgerðarinnar, togarar eða
önnur fiskiskip, smíðuð innanlands.
Markmiðið með því kvað Ólaíur
i vera að efla íslenzkan skipasmíða-
j iðnað eítir því sem við yrði komið,
I þó yrði eflaust að smíða einstaka
I skip erlendis.
10-12 ÞUS. KYRFODUR
VANTAR Á HEYFORDA
KJ—Reykjavík, þriðjudag.
Ljost er nú orðið að vegna hinna
miklu óþurrka í sumar og sprettu
leysis vantar um þrjú til fjögur
hundruð þúsund hesta af heyi,
miðað við meðalheyfeng. eða 10—
12 búsund kýrfóður. Vantar með
öðrum orðum hey handa fjórð
ungi af nautgripastofni lands-
manna. Mest er vöntunin á Suð
urlandi, þar sem bændur vantar
um 220 þúsund hesta á að gizka,
og er þá aðeins talað um vöntun
hjá þeim, þar sem meira en 20%
skortii á meðalheyfeng.
Það er fljótlegra að telja upp
þau svæði á landinu, sem vel eru
sett með hey, en þau eru aðailega
þrjú: Aðal búskaparsvæðið í Eyja
firði, Þingeyjarsýslurnar báðar og
Fljótsdalshérað. í öllum öðrum
hlutuœ landsins er meiri og
minni töðubrestur og þó nökkrir
bændur hafa aðeins náð um
fimmtung af meðalheyfeng.
Eftir bráðabirgðatölum um hey
feng í Ámes- og Rangárvallasýsl
um að dæma, þá mun vanta um
eitt hundrað þúsund hesta heys
í hvora sýsluna og talið er að um
ellefu þúsund hesta vanti í Vest-
ur-Skaftafellssýslu. Þá er eftir að
fá fuiinaðarskýrslur um heyfeng
hjó bændum í Borgarfirði, en þar
mun ástandið yfir höfuð
ekki vera betra en á Suðurlandi.
Að því er Einar Ólafsson bóndi,
sem vinnur við úrvinnslu heyforða
skýrslanna, sagði Tímanum í dag,
þá vantar mjög víða helming upp
á meðalheyfeng og sumsstaðar
meira, en algengast mun vera að
vöntunin sé frá fjórðung og upp
í helming miðað við meðalhey
skaparár.
Bændur í Árnessýslu munu nú
vera búnir að kaupa um tvö hundr
uð kýrfóður norðan úr landi —
Eyjafirði og S. -Þing., og hefur
það áreiðanlega bjargað mikiu,
en aumir bændur á Suðurlandi eiga
líka enn hey úti í lönum, og má
búast. við að það sé ekki allt upp
á marga fiska, hvað snertir fóður
gildi.
Stórgripaslátrun fer senn að
hefjast í stórum stíl, og það er
þá fyrst. sem kemur í ljós, hve
kúafækkunin verður mikil. Ann
Framhald á bls. 14.
Ennfremur segir í frumvarpinu,
að stjórn útgerðarinnar sé heimilt
að taka skip á leigu til bráðabirgða
og gera út til hráefnisöflunar fyr-
ir tiltekna staði.
Um stjórn útgerðarinnar sagði
Ólafur, að hún ætti að vera skip-
uð 7 mönnum. Yrðu 4 þeirra kosn
ir af Alþingi, 2 af skipshöfnum
skipanna (1 af yfirmönnum og 1
af unddrmönmun) en formann skip
aði sjóvarútvegsmálaráðherra.
Ólafur vaikti sérstaka athygli á
9. grein frumvarpsins, þar sem seg
ir, að ef stjóm Togarútgerðarinn-
ar telji ekki lengur þörf á því að
hún geri út togara, sé henni heim
ilt, að fengnu leyfi sjávarútvegs-
málaráðherra, að selja fiskverkun-
arstöðvum og félagssamtökum, sem
stofnuð em fyrir forgöngu sveitar
félaga, togara sína, enda skuld-
bindi kaupandi sig til að leggja upp
afla hjá tilteknum fiskvinnslustöðv
lun. Þó skal togaraútgerðin jafnan
eiga og gera út a. m. k. 4 togara.
Sagði Ólafur, að með þessu
ákvæði væri fiskvinnslustöðvum
og útgerðarfyrirtækjum, sem sveit
arfélög hafa stofnað, gefinn kostur
á að eignast togara, sem skuld-
bundnir eru til að leggja upp í
tiiteknum höfnum. Ætti þetta að
tryggja atvinnuöryggi þessara
staða. Sagði hann, að skip, sem
Framhald á bls. 14.
Hrossakjðt snar-
hækkar nú í verði
FB-Reykjavík, þriðjudag.
Svo getur farið í vetur, að
minna verði um hrossakjöt á
markað.i hér innanlands í vetur
en endranær, og eitt er víst, að
verðið verður miklum mun
hærra en undanfann ár. Stafai
þetta af því, að mikil eftir-
spum hefur verið eftir íslenzk
um hrossum á erlendum mörk-
uðum, bæði góðhestum og af-
siáttarnrossum Hafa erlendir
kaupmcnn farið um sve.itimar
og keypt hross í stórum stíl.
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið fékk í Kjötbúð Tómasar
á Laugavegi stendur nú yfir
kapphlaup um verðið á hrossa
kjötinu, og ekki útséð um,
hvað verðið verðui að lokum.
í fyrra var heildsöluverð 6
hrossakjöti um 33 krónur kíló
ið í heilum s’krokkum, i nú
verður verðið ekki undir 60
krónum, jafnve’ rösklega það.
eftir því, sem okkur hefur
Framhald a bls. 14.
SPÁ GAMALLA ÍSFIRÐINGA RÆTTIST
Nýja smábátahöinin
stóðst ekki veðrið
FB-Reykjavík. þriðjudag.
ísfirðingar urðu þess varir á
Sunnudtginn, i vestanstorminum,
sem oa var að smábátahöfn sú,
sem verið hefur i byggingu, hent
ar varla ti’ bess sero henni er ætl
að. Lndruðust það sennilega fáir,
þvl gamlir og reyndir sjómenn á
ísafirði hafa alverlega varað við.
að hafa höfnina eins opna og
vertoræðingai hafa látið byggja
bana. í storminum sökk svo létt
bátur dýpkunarskipsins Háks.
Fraraihald á bls. 14