Tíminn - 29.10.1969, Side 10
10
TIMINN
MIÐVIKUÐAGUR 29. október 1969.
34
búnaðinum. Byltingarsinni skaut
á Stoömn í óperumni í Kærni-
gar'ði meðan á viðhafnarsýningu
stóð á Keisarabrúðinni eftir Ri-
mski-Korsakov. Keisarinn og dæt
ur hans tvær sátu í stúkunni á
móti. Þau sáu forsætisráðherrann
falla niður í sæti sínu, síðan sneri
liaain höfðinu í áttina að keisara
stúkunni og gerði krossmark.
Morðinginn náðist. Forsætisráð-
herranum var ekið í skyndi á
sjúkrahús, en hann lézt að þrem
dögum liðnum.
„Ég mun aldrei gíeyma hryll-
ingi og sorg Nikka. Þegar Stoli-
pín lézt var Nikki í Siernígov.
Hann hraðaði sér aftur til Kænu-
garðs, fór til sjúkrahússins og
taraup hjá líki Stopipíus. Þeir sem
sðgðu, að ríikki ihefði verið feg-
inn, er hann frétti lát Stolipíns,
eru illgjarnari en orð fá lýst. Bróð
ir minn var mjög hlédrægur, en
hann var aldrei með uppgerð. Ég
veit að hann syrgði Stolipín ein-
læglega.“
Ástandið batnaði í Rússlandi
nieðan Stolipín var við stjórnvöl-
inn .Keisaraf.iölskyldunni fannst
hún geta tekið sér nokkurt frí
nú, þegar ástandið var orðið
tryggara. Vorið 1917 fór Olga
stórhertogaynja til Biarritz og
di\'aldi á Hotel du Palais. Henni
til mikillar ánægju kom Xenía
systir hennar þangað seinna á-
samt manni sínum og sex börn-
um. -=■-
, ,.En það kom sivo fjölmennt iið
með þeim, hirðfólk, kennarar,
kennslukonur og þjónustulið,"
sagði Olga hlæjandi. „Það var
ekki nóg pláss í Hotel du Palais
fyrir þau öll. Þau urðu að leigja
sér stórt hús í nágrenninu. Sem
betur fór ferðaðist ég á mjög fá
brotinn hátt í þá daga.“
Ég tók þetta trúanlegt. Það
var ekki fyrr en eftir dauða stór-
hertogaynjunnar, að mér skildist
merking orðsins „fálbrotinn" í sam
bandi við ferðalög hennar. Nancy
sáluga greifafrú af Astor, sagði
mér, að ibún hefði verið í Biarritz
um þetta leyti og hefði heyrt mik-
ið talað um ,,fábrotna“ lifnaðar-
hætti Olgu stórhertogaynju. Hún
komst að þvi, að Olga hafði þrjá
tíu manna fylgdarlið. Þegar á allt
var litið vair þetta samt fámenn-
ur hópur, er um var að ræða Rom-
anova á ferðalagi erlendis. Ekkju
drottningin Ihafði bvö hundruð
manna fylgdarlið! Heimsóknir
Romanovanna ihéldu raunveru-
lega hótelrekstrinum á Ríveríunni
gangandi á þessum árum. Þarfir
þeirra voru miklar, þeir héldu
ríkulegar veizlur og þeir greidda
reikninga sína skilvíslega. Aliur
ferðakostnaður þeirra var greidd-
ur af bankainnistæðum í Eng-
landi, Frakklandi og víðar í Vest
ur-Bvrópu.
Stórhertogaynjan sneri aftur tii
Rússlands frá Biarritz. Það voru
næstum liðin fimm ár frá því hún
hafði sagt eiginmanni sínum, að
hún vildi skilja við hann, en auð
sjáanlega fannst Pétri prinsi af
Oldenburg, sem farið hafði fram
á sjö ára frest, að þau gætu hald-
ið áfram að búa svona um ófyrir-
sjáaniega framtíð. Hann spilaði
enn fjárhættuspil, hann borðaði
enn miðdegisverð hjá foreldrum
sínum við Hallarbryggjuna, og
hann kom enn opinberlega fram
sem hinn fullkomni eiginmaður.
Engin vissi um leynilegt ástaræv
intýri stóithertogaynjunnar, en all
ir vissu hvaða orð fór af Pétri
prinsi. Eins og venjulega þóttust
þeir, sem ekkert þekktu til, vera
vel kunnugir ástandinu á Olde.i-
hurgarheimilinu.
Olga beið. Hún hefði verið ein-
mana, hefði hún ekki haft sína
tryggu gömlu Fóstru. Hún virð
ist varla 'hatfa átt neina nána vini
innan fjölskyldunnar. Etftirlætis-
bróðir hennar var í útlegð. Systir
hennar hafði meira en nóg að gera
með sjö börn. Keisarahjónin
bjuggu nú allt árið í Tsarskoje
Seio. Vetrarhöllin í St. Pétursborg
var aðeins notuð við opinber
tækifæri.
Þann tíma, sem Stolipín var
forsætisráðherra var vissulega
meiri friður í keisaradæminu, en
fjandskapurinn gegn keisarahjón-
unum minnkaði ekkert. Stónher-
togaynjan þreyttist aldrei á að
segja mér, að þessi illivilji hafi
ekki 6tt rætur síriar að rekja til
alþýðu manna heldur til aðalsins,
sem var óánægður með fábreytt
hirðlíí. Það er satt, að lífið í Tsar
skoje var afar tfáhrotið. Ráðherrar
og aðrir háttsettir emhættismenn
komoi með skýrslur sínar og am-
hassadorum var veitt á'heyrn og
þeir sátu miðdegisverðarltoð, en
þar fyrir utan var bókstaflega
ekkert samkvæmislíf og keisarinn
vann meira en nokkru sinni fyrr.
„Nikki og Alikka áttu fáar næð-
isstundir að deginum til,“ sagði
stórhertogaynjan. „Það voru allt
af hádegisverðarboð — oft haldin
í stórum sal fjarri íbúð þeirra.
En í þeirra álmu var engin horð-
stofa. Maturinn var borinn fram
þar sem hentugast þótti, á litlu,
færanlegu borði. Börnin komu
stundum inn til þeirra um það
leyti, sem þau drukku te. Nikki
vann oft á kvöldin. Vinnuherþergi
hans var skammt frá svefnherberg
inu. Þau höfðu ekki aðeins sama
svefnherbergið, heldur sváfu þau
í sama rúmi. Eitt sinn kvartaði
Nikki yfir því í gainni. að Alikka
héldi fyrir honum vöku, þegar
hún væri að bryðja enskt kex í
rúminu!"
Nikulás, sem var ágætur íþrótta
maður, hafði lítið æfingaherbergi
við hliðina á vinnuherbergi sínu.
Leikfimin var eina atfþreying
hans. Dag einn kom ég að hon-
um, þar sem hann hringsnerist
kringum æfingastöngina, þegar ég
hafði húizt við að finna hann
niðursokkinn í störf sín í vinnu-
herberginu." „Ég verð að láta
blóðið renna til höfuðsins, svo
ég geti hugsað,“ sagði Nikulás
brosandi, þegar hann sá undrun-
arsvipinn á andliti systur sinnar.
Sumarið 1908 fóru þau öll sjó-
leiðis til Tallin til fundar við
Jábvarð VII. Englandskonung og
Alexöndru drottningu.
„Þetta var merkilegur, sögu-
legur viðburður. Hann innsiglaði
nýja sáttmálann milli Englend-
inga og Rússa, sem Nikki hafði
svo lengi óskað eftir. Samskiptin
vií England höfðu næstum rofn-
að meðan á styrjöldinni við Jap-
ani stóð. Bretar drógu ekki dul
á með hivorum aðilanum þeir
stóðu. svo að koma Berta frænda
var okkur öllum til þeim mun
meiri ánægju. Okkur fannst að
loks nú mundi vináttusamband
brezku konungsættarinnar og
rússnesku keisaraættarinnar
stuðla að bættum skilningi milli
landanna fcveggja.“
Jáfcvarður konungur kom á skip
inu Viktoríu og Albert, keisarinn
á Gunnfánanum og móðir hans á
Pólstjörnunni. Heimsóknin stóð í
þrjá daga.
„Ég hafði nægan tíma, þar sem
móðir mín var stöðugt í félags
skap Alexröndu móðursystur. Mér
fannst sérlega skemmtilegt að
hitta Fisher flotaforingja aftur.
Ég hafði kynnzt honum nokkru
áður i Karlsbad. Hrædd er ég um,
að ég hafi orðið mér mikið til
skammar. Fisher gat sagt smelln-
ar gamansögur og ég var þekkt
fyrir að hlæja hátt. Við miðdeg-
isveróarboð um borð Viktoríu og
Albert hló ég svo hátt, að Berti
frændi leit upp og bað Fisher
flotaforingja að minnast þa=3. að
við værum ekki stödd í undirfor
ingjamessanum. Mér leið hræði-
lega, en það var ekkert hægt aú
segja eins og á stóð. Ég varð að
bíða þar til miðdegisverðinum var
lokið og ég sagði þá Berta frænda
að þetta hefði allt verið mér að
kenna.“
Skrautlýsingin og flugeldarn-
ir yfir Tallinflóa lýstu upp norð-
lægan himininn og sfcónhertoga
ynjan naut vissulega þessara
stunda. Skömmu eftir þetta tfóru
keisarahjónin í opinbera heim-
sókn til Svíþjóðar, Frakklands og
Englands, en Olga stórhertoga-
ynja varð eftir í Rússlandi og
fylgdi móður sinni í hinu þreyt-
andi samkvæmislífi. En hún átti
þó frí á morgnana og hún gat
notað þann .tíma til þess að fara
í gönguferðir, mála og vinna á
spítala án þess að nokkur vissi.
Það hafði haft djúp áihritf á hana,
er Ella frænka hennar helgaði
líf sitt því verkefni að lina þján-
ingar annarra.
Árið 1912 fór ekkjudrottning-
in í síðustu •heimsókn sína til Eng
lands fyrir heimsstyrjöldina fyrri,
og Olga varð að fylgja henni.
Stórnertogaynjunni þótti ekkert
gaman að fara frá Rússlandi. f
þetta sinn var hún daprari en
nokkru sinni fyrr. Sjö árin voru
liðin, en Pétur prins hafði aldrei
minnzt á loforðið, sem hann hafði
gefið 1903. Hann var auðsjáan
lega ánægður með ástandið eins
og bað var og Olga, sem mundi
gjörla hivaða áhrif fyrri hneyksli
höfðu haft á bróður hennar, hik-
aði við að láta til skarar skríða.
Hin langa dvöl í Sandringhan
hressti hana ekki. Allt var svo
dapurlegt. Alexrandra móðursyst-
ir hafði elzt mikið og heyrði
enn verr en áður. Hún og móðir
mín sátu inni allan daginn og
töluðu um liðna daga. Við Vikt-
er miðvikudagur 29. nóv.
— Narcissus
Tungl í hásuðri kl. 4.15.
Árdcgisháflæði í Rvík kl. 9.31.
HEILSUGÆZLA
BLÓÐBANKINN tekur á móti blóð
gjöfum daglega kl. 2—4.
BILANASÍMI Rafmagnsveitu Reykja
vikur á skrifstofutíma er 18222
Nætur og helgidagavarzla 18230.
SLÖKKVILIÐIÐ og sjúkrabifreiðir —
Simi 11100.
NÆTURVARZLAN í Stórholti er op
in frá mánudegi til föstudags
kl. 21 á kvöldin til kl. 9 á morgn
ana. Laugardaga og helgidaga frá
kl. 16 á daginn til kl. 10 á morgn
ona.
SJÚKRABIFREIÐ i Hafnarfirði í
sima 51336.
SLYSAVARÐSTOFAN í Borgarspital
anum er opin allan sólarhringinn.
Aðeins móttaka slasaðra. Sími
flJMJL
KVÖLD- og helgidagavarzla lækna
hefst hvern virkan dag kl. 17 og
stpndur til kl. 8 að morgni, um
hclgar frá kl. 13 á laugardögum.
í neyðartilfellum (ef okki neest tií
heimilislæknis) er tekið á móti
vitjanabeiðnum á skrifstofu lækna
félaganna í síma 11510 frá kl.
8—17 alla virka daga, nema laug
ardaga.
LÆKNAVAKT í HAFNARF!/:ÐI og
Garðahreppi. Upplýsingar í lög-
regluvarðstofunni, síml 50131 og
slökkvistöðinni, sími 51100.
KÓPAVOGSAPÓTEK opið virka cliga
frá kl. 9—19, laugard. frá kl. 9—14
helga daga frá kl. 13—15.
HITAVEITUBILANIR tilkynnist í
síma 15359.
Skolphreins'un altan sólarhringinn.
Svarað I sima 81617 og 33744.
Næturvörzlu Aptóteka í Reykjavík
vikuna 25. okt,—31. okt. annast
Holts Apótek og Laugavegs-Apótek
Næturvörzlu í Keflavík 25. og 26.
okt. annast Arnbjörn Ólafsson.
Næturvörzlu í Keflavík 29.10 aim
ast Kjartan Ólafsson.
FÉLAGSLlF
Kvenfélag Kópavogs.
Vinnukvöld fyrir bazarinn á
fimmtudagskvöldum frá kl. 8-30.
Bast og niosaik.
Kvenfélag Laugarncssóknar.
Bazar, laugard. 1. nóv. í Laugar
nesskólanum. Félagskonur og aðr-
ir velunnarar félagsins eru beðnir
að koma munum i kirkjukjallarann
fimmtudaginn kl. 8.30 eða föstu
dag milli kl. 3 og kl. 5. Félagskon
ur munið eftir kökunum.
Sumiukonur, Hafnarfirði.
Munið fundinn 4. nóv. i Alþýðuhús
inu. Konur úr Kvenfélagi Kópa
vogs koma í hcimsókn. Margt til
skemmtunar. Muniö breyttan fund
arstað. Stjórnin.
Kvenfélag Laugarnessóknar.
Fundur verður haldinn í fundar
sal kirkjunnar, mánudaginn 3. nóv.
kl. 8.30. Til skemmtuar tízku-
sýning o. fl.
Frá Styrktarfélagi Lamaðra og
fatlaðra, kvennadeilil.
Félagskonur og aðrir veluimarar
félagsins . Árlegur bazar félags
ins verður laugardaginn 29. nóv.
Föndurkvöld vikulega á f.immtu
dögum að Háaleitisbraut 13.
Tónabær — Tónabær — Tónabær
Félagsstarf eldri borgara.
Miðvikudaginn 29. okt. verður
„opið hús“ fyrir eldri borgara í
Tónahæ frá M. 1.30—kl. 5.30. Auk
venjulegra dagskrárliða verður frí
merkjaþáttur og kvikmynd. Endur
skinsmerki verða látin á yfirhafn
ir þeirra sem þess óska.
Kvennadeild Flugbjörgunar-sveit
arinnar,
hefur kaffisölu sunnudaginn 2.
nóv. að Hótel Loftleiðum. Velunn
arar sem gefa vildu kökur hafi
samband við Ástu í síma 32060.
Auði síma 37392.
Kvenfélag Ásprestakalls.
Munið bazarvinnuna á fimmtudags-
kvöldum og þriðjudögum kl. 2—6
i Asheimilinu, Hólsvegi 17.
Foreldra -og styrktarfclag
heyrnardaufra
Félagið heldur sinn árlega bazar
að Hallveigarstöðum, sunnudaginn
2. nóv. n.k. Þeir velunnarar fé-
lagsins, sem vildu gefa muni á
bazarinn eru góðfúslega beðnir að
hafa samband við einhverja af
þessum konum. Jónu, sími 33553
Báru. sími 41478 Sólveigu. slmi
84995 Unni, sími 37903 Sigrúnu,
síini 31430.
Kvervfélag Háteigssóknar
heldur bazar mámudaginn 3. nóv.
n.k. í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu
(gengið inm frá Ingólfsstrasti). —
Þeir sem ætla að getfa muni á bazar
inm, skili þeinr til Sigríðar Benónýs
dóttur, StigabJáð 49, sími 82959; Vil
helmu Vilihelmsd, Stigahl. 4, s. 34141,
Maríu Háltfdánardóttur, Barmahlið
36, simi 16070; frú Uiwiar Jensen,
Háteigsvegi 17, sími 14558; Ragn.
heiðar Asgeirsdóttur, Flókagötu 55,
símd 17365.
FLU GÁÆTLANIR
Flugfélag íslands h. f.
Milillaudaflug.
Gullfaxi fór til Glasg. og Kaup-
mannahafnar kl. 08.30 í morugn.
Væntanlegur aftur til Keflavikur
kl. 18.15 í kvöld. Vélin fer til
Osló og Kaupmannahafnar kl.
15.15 á morgun.
Iimanlandsflug.
í dag er áætlað að fljúga til Akur-
eyrar (2 ferðir) til Vestmannaeyja,
ísafjarðar, Fagurhólsmýrar, Horna
fjarðar og Egilsstaða. A morgun
er áætlað að fljúga til Akureyrar
(2 ferðir) tii Vestmannaeyja, Pat-
reksfjarðar og Sauðárki'óks.
Loftleiðir h. f.
Guðríður Þorbjarnardóttir er vænt
anleg frá NY kl. 08.30. Fer til
Oslóar, Gautah. og Kaupmanna-
hafnar kl. 09.30. Er væntanleg til
baka frá Kaupmannahöfn, Gauta
borg og Osló kl. 00.30. Fer til NY
kl. 01.30.
Bjarni Herjólfsson er væntatdeg
ur frá NY kl. 10.00. Fer til Luxem
borgar kl. 11.00. Er væntanlegur
til baka frá Luxemborg kl. 01.45.
Fer til NY kl 02.45.
5 Svif 7 Stjórna
stafrófsröð 12 Mutt
ering 13 Egg 15 Bókstafurinn 16
Forfeður 18 Rifur.
Krossgáta
Nr. 412
Lóðrétt: 1 Mann 2 Nefnd 3
Sama og 11 lárétt 4 Lærði 6
Eldstæði 8 Matur 10 Púki
14 Svik 15 Amboð 17 Tví
hljóði.
Ráðning á gátu nr. 411.
Lárétt: 1 Ilallur 5 Áls 7
Net 9 Aur 11 DI 12 Rá 13
Una 15 Orð 16 Gor 18 Snoð
ar.
Lóðrétt: 1 Hendur 2 Lát 3
LL 4 USA 6 Gráður 8 Ein
Agn 15 Orð 17