Tíminn - 29.10.1969, Blaðsíða 14
14
TIMINN
MIÐVIKUDAGUR 29. október 1969.
BRENNISTEINSHVERIR
OPNUOUST Í BANJA LUKA
NTB-Banja Luka, þriðjudag.
Forseiti Júgóslavíu, Joseph
Títo, heimsótti í dag jarðskjálfta
svæðin um miðbik landsins, til
að kynna sér ástandið af eigin
raun. í Banja Luka og nágrenni
er vitað um 21 mann, sem látið
hefur lífið í hamförunum rúm-
| lega 700 manns eru særðir og um
200 þúsund eru heimilislausir.
Skammt frá borginni hafa mynd-
ast hverir, sem gjósa sjóðheitri
brennisteinsleðju og lækir hafa
þomað gersamlega upp.
ítoúar Banja Luka hafa fengið
fyrinmaöli frá yfirvöldunuim að
• yfirgefa bæinn, þar sem hætta sé
á nýjium jarðskjélftum. í nótt
fundiuist tveir kippir til viðbótar,
en þó ekki snarpir.
Jarðskjálftarnir hafa haft mik-
il áhrif á landslagið á svæðinu,
sem verst varð úti. f um 20 km.
fjarlæigð frá Banja Luka mynd-
uðust skyndiiega goshverir, sem
gj'ósa sjóðandi brennisteinsleðju.
Lækir hafa gersamlega þornað
upp og ekkert er eftir nema þurr-
ir farvegir.
Sjíónarvottar segja, að eyðilegg
ingin sé eins mi'kil eins og í
Slkopljie fyrir sex árum, en þá
létu 2000 manns lífið í jarðskjálft
um. Ástæðan til þess, að ekki
létu fleiri manns lífið nú, er taiin
sú, að kippurinn í gænmorgun
varð séður fyrir af jarðskjálfta-
Fundur hjá tékknesk-
íslenzka félaginu
Tékknesk-fslenzka félagið gengst
fyrir almennum fundi í Norræna
búsinu í kvöld kl. 20,30 í tilefni
lýðveldisdags Tékkóslóvakíu, sem
er í dag, 28. október. Á dagskrá
verður:
1. Árni Björnsson, cand. mag.
flytur ávarp f tilefni dagsins.
2. Heyrt og séð í Tékkóslóvakíu.
Bjöm Svanbergsson segir frá, en
hann var fyrir skömmu boðinn
þangað f kymnisferð sem fulltrúi
Tékknesk-islenzka félagsins.
3. Tékknesk-íslenzkur kvartett
leikur tónlist frá Tékkóslóvakíu.
4. Upplestur úr tékkósióvöskuim
nútím'aibókmenntum. Hugrún Gunn
arsdóttir les þýðingar á Ijóðum eft
ir MírosLaiv Holulb.
5. Happdrætti. Dregið verður
um fjöida fagurra muna frá Tékkó
slóvakíu, sem félaginu hafa borizt
að gjöf.
sénfræðingum, en í þeim kipp,
hrundu ftest húsin.
í samtali við blaðið í kvöld,
sagði Bgigert Ásgeirsson hjá Rauða
krossi íslands, að þeim hefði bor-
izt hjálparbeiðni frá Júgóslavíu
í kvöld. Þeir, sem vilja verða að
liði, geta komið með framlag sitt
á skrifstofu Rauða krossins að
Öldugiöfiu 4, og einnig er tekið
við framlögum í 6Mum bönkum
og sparisjóðum á landinu.
BYGGINGAJAFNVÆGIS-
Framhald af bls 2
af Vestfjörðum, 6 þús. af Austur
landi, 5 þús. af Suðurlandi vusfcan
fýalls og 3 þús. aif Vesturlandi
sunnan Gilsfjarðar. Gísli sagði,
að hér væri að sjálfsögðu ekki
aðeins um þá að ræða, sem flutt
hafa búferlum milli landshluta,
hieldur einnig afkomendur þeirra
að því leyti sem þeir koma í út-
reiikninginn. f 7 samliggjandi
sveitarfélögum milli Straumfjarð
ar og Kollafjarðar fStór-Reykja-
vílk), voru íbúar 1968 taldir
106.842, eða mun meira en helm-
ingur þjóðarinnar. Það liti því út
fyrir að ísland væri að þróast
í áttirna til borgríkis og væri þessi
þróun mijög varhugaverð, ekki
aðeins fyrir þá landshluta, sem
eiga við fólksfækkun að stríða,
hieldur einnig fyrir höfuðborgina
og nágrenni hennar. enda sé það
viðurkennt af mörgum. Þó kvað
Gísli vanta allsherjarvjðun^ýnn-
ingií á því, að hér sé um að ræða
eitt af stærstu verkefnum þj'óð-
félagsins, sem mikið fjánmagn
þurfi tii að leysa og skipuiegt
starf Það þurfi að útvega fjár-
magn til að efla atvinnulíf þeirra
landshluta, sem verjast í vök og
koma í veg fyrir að skortur í íbúð
arbúsnæði sé því til fyrirstöðu,
að fólk setjist að í þessum lands-
hlutum, t.d. faglærðir menn eða
sérfróðir. Eins þurfi að skipta
opi nberum bj'ónustuistof-nunum
milli landshluta.
Vakti Gísli afchygli á því, að
ört vaxandi stórborg í fámennu
landi ýtti und-ir verðbólgu og hlut
fallslegur jafnvöxtur landsbyggð-
arinnar hafi þar áhrif í jafnvægis
átt.
Sagði Gísli, að þar sem í frum
varpinu væri talað um áætlanir,
væri ekki átt við líkindaáiætlanir,
heldur tillögur í áætlunarformi
um framkvætndir og fjármagns-
notkun.
MJÓLKURFÉLAGIÐ
Framhald af bls 2
gjafi fyrsta flokks nýtt íslenzkt
fiskimjöi. Kornið er malað í raf-
knúinni slaigtkvöm, efnin síðan
blönduð í svo fulifcomnum bland-
ara, að hann gefcur b'landað á
fullnægjandi hátt nokki-um
grömmum af bætiefnum og þess
háttar í heilt tonn af mjöli. Bland
an fer ýmist sem mjöl í sekki _ða
fyrst í gegn urn kögglunarvél og
kæ-li.
Á stefnuskrá félagsins er að
'blanda ailt kjarnfóður í eigin
vinnslustöð hér. En sökum niður-
boðs á kúafóðri frá Danmörku
um þessar mundir, sem og mikill
ar verðhækkunar á fiskimjölinu,
hefur þó ekki orðið hjá því kom
izt í ár að flytja inn nokkuð af
kúafóðurblöndu frá Danmörku.
Aðrar tegundir fyrst um sinn ail
ar framleidldar hér (og einnig
kúafóðurblanda, því margir viija
ákveðið „M.R. kúafóður“ eða „Bú
ikollu-fóðurblöndu“, jiafnvel þótt
verð sé eitthvað hærra. Hin síðar
nefnda er þó ódýrari en jafnvel
danska kúafóðurblandan). En
þessi innflutninigur á blönduðu
fóðri er þó vonandi aðeins til
bráðabirgða. Hivar stæðum við, að
byggja á erlendum fóðurblöndum
ef munn- og klaufaveiki kæmi upp
í fram'leiðsluíland.i'nu?
RÆMUR
Framhald af bls. 2
séu ekki einungis myndlista'’menn
og hafa nýlega verið teknir inn
tveir nýir félagar, þeir Atli Heim
ir Sveinsison, tónskáld og Einar Ól-
afsson, ljóðskáld. Munu þeir báð
ir kynna verk sín á miðvikudags-
kvöldið. Einnig verður sýnd heim
ildarkvikmynd um stúdentaóeirðir
í Evrópu og kvikmyndir eftir
Rósku, Ólaf Gíslason og Ólaf Torfa
son.
KÝRFÓÐUR
Framhald af bls. 1.
ars er búizt við, að fækkunin komi
líka niður á sauðfénu. Mjög er
misjafnt hvað bændur geta treyst
á vetrarbeit fyrir sauðféð, og þá
misjafnt hve mikið hey þarf að
ætla hverri kind, en ekki mun
fjarri lagi, að eitt kýrfóður nægi
handa tíu kindum.
FaSir okkar
Gísli Einarsson
frá ViSvfk á Skagaströnd
andaSist í Héraðshæli Blönduóss 27. þ. m.
Anna Gísladóttir
Snorri Gíslason.
Innilegar þakkir fyrlr auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
útför föður okkar
Steins Ágústs Jónssonar
frá Flatey, Brelðafirði.
Gyða Steindóttir
Jóhann Kristjánsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug vlð andiát og jarðar-
«r
Þorleifs Einarssonar,
Stykklshólml.
Sérstaklega þökkum vlð lækni og systrum sjúkrahússlns I Stykkis-
hólmi og Kf. Stykkishólms og starfsfólki þess.
Guðrún Torfadóttir og börn.
ÞJÓÐFÉLAGSAFL
Framhald af bls 1
keypt hefðu verið með opinberri
aðstoð hefðu oft verið seld burt
frá þeim stöðum, sem þau áttu að
leggja upp á, en það ætti ekki að
geta gerzt hér. Þarna væri einka-
fyrirtækjum gefinn kostur á að
leyisa ríkisútgerðina af hólmi, en
þó væri sá varnagli sleginn, að
jafnan skuli útgerðin eiga 4 tog-
ara.
Astæður fyrir flutningi þessa
frumvarps kvað Ólafur einkum
vera ískyggilegar horfur í at-
vinnumálum, ónóg hráefni til fisk
vinnslustöðva, eflingu togaraflot-
ans og þörf á auknum gjaldeyris-
tekjum. Kvað hann alla sammála
um að gera þyrfti sérstakar og
skjótar ráðstafanir til að koma í
veg fyrir atvinnuleysi í vetur, ekki
mætti treysta á neitt happdrætti
í þeim efnum, en finna þyrfti ráð
sem dygðu til úrbóta-
Sagði Ólafur það skoðun flutn-
ingsmanna frumvarpsins, að brýn
nauðsyn væri á því, að fiskiðnað
urinn befði verkefni og nægileg
hráefni, og vinna yrði aflann innan
lands sem mest. Það mætti ráða
bót á hráefinisskorti fiskvinnslu-
stöðva með togaraútgerð og gæti
þá afkastageta þeirra nýzt allt
árið.
Rakti Ólafur nokkuð sögu tog-
araútgerðar og minntist á þá miklu
fækkun, sem orðið hefur í togara
flotanum. Sagði hann ,að árið 1959
hefði togaraafli verið um 40% af
heildarafla, en árið 1968 um 20%.
Ekki kvað hann það ofrausn þótt
50 togarar væru gerðir út á Is-
landi. En það væri togaraeigendum
um megn að endurnýja skipin. Því
yrði hið sameinaða þjóðfélagsafl
að grípa inn í.
Ekki kvað hann flutninigsmenn
frumvarpsins sérstaka talsmenn
ríkisreksturs. En er einstaklinga
brysti bolmagn til að stunda nauð
synlegan atvinnurekstur yrði ríkis
valdið að grípa inn í. Hér kvað
hann vera um stuðning við einka-
fyrirtæki að ræða hvað viðvéki því,
að fiskvinnslustöðvarnar væru
flestar í eigu einkafyrirtækja og
mundi e. t. v. með þessu móti
verða hægt að nýta þær að fullu.
Ólafur sagði, að við því mætti
búast, að í þessu máli yrði þyrlað
upp ryki í sambandi við það, að
Framsóknarmenn væru orðnir rík
isrekstursmenn, en kvaðst telja,
að þegar svo stæði á, sem nú í
atvinnuvegunum, yrði að grípa inn
í.
Efcki kvað hann rekstrarformið
skipta meginmáli, þegar um svo
mikilvægt atriði væri að ræða. 26
nýs'köpunartogarar hefðu verið í
eig'U opinherra aðila á sínum tíma.
Kvaðst hann vænta þess, að enda
þótt svo kynni að fara að þetta
frumvarp yrði ekki samþykkt,
mundi það og frumvarp Alþýðu-
bandalagsmanna um togarakaup
verða til þess að kom hreyfingu
á þessi nuðsynjamál.
Var frumvarpinu vísað til sjáv
arútvegsnefndar og annarrar um-
ræðu.
ÍSAFJÖRÐUR
Framhald af bls. 1.
Guðmundur Sveinsson fréttarit
ari Tímans á ísafirði sagið í við
tali við biaðið, að um helgina
hefði fengizt nokkur reynsla fyr
ir nýju höfninni sem verið er
að byggja í sundunum þar. —
Það hefur sem sé komið í Ijós,
að höfnin er allt of opin fyrir
vestanbáru út sundin, sagði Guð-
mundur. Sjógangur í hötninni var
svo mikill á sunnudag, að léttbát
urinn sökk þar. Gamlir sjómenn
höfðu álvarlega varað verkfræð-
ingana við að hafa höfnina svona
cpna, en þeirra ráðleggingum
var ekki sinnt.
— Sjógangurinn í vestanstorim
inum var svo mikili, að ógerning
ur hefði verið fyrir nokkurn smá
bát að vera í höfninni, en hún
er einmitt byggð sem smábátahöfn
Það ei svoiítið annað að teikna
hlutina, en hafa reynslu margra
ára fyrir sér um það, hvernig
þeir ættu að vera, svo þeir kæmu
að sem mestum og b-eztum not-
um. ísfirðingar hafa sannarlega
reynslu af því, hvernig sjógangur
inn getur verið í sundunum í vest
araáttinni.
I 8vo virðist, sem þekkingu og
j reynslu heimamanna sé litill gaum
| ur gefinn, þegar um hafnarbygg
ingar er að ræða. Er skemmst að
minnast þegar varnargarðurinn
| við höfnina í Grímsey hvarf í
I djúpið. Höfðu heimamenn þar í
: eyjunni hvað eftir annað varað
j verkfræðingana við, að svona
| myndi fara, og bent á aðrar leiðir
til úrbóta, en þær, sem farnar
I voru.
------------ ■■ ■■ ' ■ ■
! HROSSAKJÖT
! Framhald af bls. 1.
j verði skýrt frá- Verður hækkun
I in því ekki undir 80%.
Greinilegt er ,að mun minna
framboð verður á hrossakjöti
í vetur, en verið hefur Aðal-
ástæðurnar eru, hversu mikið
hefur verið selt úr landi af
hrossum, og svo hitt, að bændur
sjá nú fram á, að hagkvæmara
er að fjölga hrossum sínum og
selja þau síðan á sæmilegu
verði úr landi, heldur en
selja þau til afsláttar hér fyr
ir heimamarkað. Breytingar í
þessa átt urðu fyrst í fyrra, svo
nokkru næmi, og verðhækkun
in núna sýnir, að þróunin heid-
ur áfram í sörrau átt.
HRINGEKJAN
Framhald af bls. 16
er víða mjög áhrifamikið.
— Hringekjan er frá upphafi til
endia vægðarlaus sýning fremur
-en frásögn; hiuitirnir eru 3ýntíir,
allt að því gegnumlýsir ,og les-
andinn látinn óáreittur um aó
dra.ga ályktanir af því sem fyrir
augu han-s og eyru ber í lífi og
tali persónanna, jafnt á göfcu sem
í svefnherbergjum. Mönnum kann
að sýnast sitt hvað um kuildann
og vægðarleysið í framsetning-
unni, hve sagan er gersneydd les
end'afróun. En um hitt miin tæp-
ast no'kkur efast, að hér er á ferð
umta'lsverður skáldskapur og
spennandi aflestrar.
Hringekjan er 180 bls., prentuð
í Alþýðuprentsmiðjunni h.f„ en
bundin í Bókfelli h.f. Káputeikn
ing er etfir Atla Má.
ÁLSAMNINGAR
Framhald af bls. 16
með fyrirvara um samþykki Al-
þingis,
Breytingar á rafmagnssamningi
undirritaði formaður Landsvirkj
unar fyrir hennar hönd, og hins
vegar tveir stj'órnarmenn íslenzlra
Álfélagsins h. f. fyrir þess hönd.
Breytingar á hafnar- og lóða-
samningi undirritaði bæjarstjór
inn í Hafnarfirði fyrir hönd Hafn
arfjarðarkaupstaðar svo^ og tveir
stjórnarmenn fsienzka Álféiagsins
!h. f. fyrir þess 'hönd.
Auk þess voru undirritaðar
breytingar á þremur aðstoðarsamn
ingum milli fsienzka Álfélagsins
h. f. og Svissneska ÁlÆélagsins h.f.
Breytingar á aðalsamningi frá
28. marz 1966, um álbræðslu við
Strauimsvik verða lagðar fyrir Al-
þingi á næstunni, til staðfestingar
samþykktar."
ÞORGEISBOLI
Framhaid af bls. 16
Þorkeil Sigurbjörnsson sagði f
samtaii við blaðið í dag, að þótt
ballettinn væri gerður eftir sög-
unni um Þorgeirsbola, væri sagan
gjörbreytt, þannig að lítið væri
eftir af henni, annað en yfirbragð
ið og einstaka atriði. — Þetta
er 25 mínútna þáttur, sagði Þor-
kell, — hann var tekinn upp í
surnar, og þetta verður í fyrsta
skipti, sem þessi ballebt er sýnd-
ur. Þama dansa átba dansarar og
meðal þeirra er ein íslenzk stúlka,
Unn-ur Gnðjónsdóttir. Dansflokk-
ur Ivo Cramers er ei'ginlega al-
þjóðlegur. því þarna em lí-ka
Finni, Frakki, Ameríkani, Svíi og
Eniglendin-gur. Dansamir eru út-
færðir á mjög frjáislegan hátt og
þaö má segjia, að tónlistin sé eigin
lega klæðskerasaumuð á dansar-
ana, því þetta var svo nákvæm-
lega ákveðið fyrirfram, sagði Þor-
kell að lokum.
Þess má geta, að sýnimgin í
norska sjónvarpinu hefst á föstu-
dagskvöld M. 8 að íslenzkum
tíma.
KENNSLUBÆKUR
Fram-hald af bis. 2
kennslu í algebru (stærðfræði) í
nútímalegra horf.
Annað hefti er væntanlegt í
nó'V. n k.
Ríkisútgáfa námsbóka hóff árið
J966 útgáfu nýs skrifbókaflokks.
eftir Marinó L. Stefánss., kennara,
handa barnaskólanemendum. Tvö
síðustu heftin, hið 5. og 6. eru
nú nýkomin út. Efni þeirra er m.
a. þetta: iiðkunaiæfingar, nokkur
frumskilyrði góðrar rithandar, sög
ur og máishættir, sendibréf, aug-
lýsing umsókn, fundargerð, kvitt
anir og eyðublöð tii að fylla út.
reikningsform og prófverkefni. All
margar skreytingar eru í báðum
heftunum.
Hugsanlegt er, að tvö viðbótar
hefti verði gefin út, eitt fyrir
yngri börnin og annað fyrir hin
eldri.