Vísir - 18.10.1978, Side 7
VISIR
Miftvikudagur 18. október 1978
repilblikanan, David Durenberg-
er, lögmann, sem margir spá
sigri.
Hinn öldungadeildarþingmaður
Minnesóta er Wendell Anderson,
sem vakti hneykslan, þegar hann
notaði aðstöðu sina i rikisstjóra-
embættinu til þess að skipa sjálf-
an sig öldungadeildarþingmann I
staö Walter Mondale, þegar hinn
siðarnefndi varð varaforseti. —
Repúblíkanarteljasig hafa í fullu
tré við Anderson og eftirmann
hans, rikisstjórann Rudy Perp-
ich.
t Kaliforniu beinist athyglin að
Jerry Brown, sem eitt sinn
stefndi að þvi að verða frambjóð-
andi i forsetakosingum, og atti þá
kappi viö Carter. Saksóknarinn,
Evelle Sounger, hefur boðið hon-
um byrginn I baráttunni um rikis-
stjóraembættið. — Brown hefur
tekist að auka vinsældir sinar i
sambandi við skattalækkunina,
þótt hann hafi i upphafi barist
gegn henni. öðlist hannirikis-
stjórakosningunum sannfær-
andi sigur gæti það fieytt honum
áfram i tilraunum hans til þess að
komast i Hvita húsið.
Annar líklegur forsetafram-
bjóöandi, repúblikaninn Howard
Baker (sem sat i þingnefnd
öldungadeildarinnar, er fjallaöi
um Watergatehneykslið), er tal-
inn öruggur um endurkjör I
Tennessee. Hann hefur einngis að
þvi aö keppa að bæta enn fylgi sitt
frá kosningunum fyrir sex árum,
þegar hann fékk 62%.
James Thompson, rikisstjóri i
Illinois, sem iennig þykir koma til
álita sem forsetaframboðsefni
repúblikana, er annar, sem þykir
öruggur um endurkjör, en verður
þó gefinn gaumur I þessum
kosningum.
I Alabama getur George Wall-
ace, rikisstjóri, ekki leitað endur-
kjörs enn einu sinni, vegna
stjórnskráráakvæða. Hann er
lamaður eftir banatilræöið, sem
honum var sýnt 1972, og er nánast
talinn úr leik i bandariskum
stjórnmálum fyrsthann ákvað að
gefá ekki kost á sér til framboðs
fyrir öldungadeildina. — Ala-
bama á tvö þingsæti i öldunga-
deildinni. Annaöer skipaðaf John
Sparkman, er nú hyggst setjast i
helgan stein, og hitt var skipað
af James heitnum Allen. Ekkja
Allens, Maryon, hefur skipaö það
siðan, en tapaði frokosningum
demokrata. Hún var annars eina
þingkonan i öldungadeildinni.
Enn einn suðurrikjamaöur,
hinn 75 ára gamli Strom
Thurmond, sem hefur verið alls-
ráðandi f stjórnmálum Suð-
ur-Karólina um 30 ára bil,- talinn
munueiga fullt f fangi með aö ná
endurkjöri fyrir keppni demó-
kratans, Charles ,,Pug” Revenal.
Þannig sér teiknarinn Lurie Carter bandarikjaforseta beita neitunarvaldi
sínu gegn sukksemi þingsins
Arabar jafnnœr um
_ _ _ __ m manna í Líbanon og sýrlensk
91 I 99 H Jí§| hermanna i friðargæsluliðinu,
orlog Libanon
örlög Libanon eru enn
óráðin eftir skyndifund
utanrikisráðherra
Arabalandanna, sem
leiddi ekki til neinnar
niðurstöðu um nýjar
ráðstafanir til þess að
binda endi á ófriðinn i
landinu.
Ráðstefna utanrikisráöherr-
anna stóð i þrjá daga og komu þar
fram óljósar hugmyndir um að
efla Libanonstjórn, byggja upp að
nýju Lfbanonher og afvopna hina
herskáu hægrimenn landsins.
En lokayfirlýsing ráðstefnunn-
ar var i öllum atriðum að efni til
nákvæmlega þaðsama og Araba-
rikin samþykktu fyrir tveim ár-
um, þegar sex Arabalönd ákváðu
að senda 30.000 manna her til
friðargæslu i Libanon.
Aðalverkefni þeirra að þessu
sinni var aö finna leiðir til þess að
afstýra þvi, að bardagar brjótist
út að nýju milli kristinna hægri-
sýrlenskra
en
Sýrlendingar eru meginuppi-
staðan i friðargæslunni.
Fundinum lauk svo, að engin
tillaga kom þar fram um þaö efni.
Utanrikisráðherra Sýrlands gerði
það ljóst eftir fundinn, að i raun-
inni yrðu engar meiriháttar
breytingar á ástandinu eins og
það er i dag. Hann sagði jafn-
framt að sýrlensku hermennirnir
myndu hvergi vikja úr vigstöðu
sinni i hinum kristnu hverfum
Beirút.
Sarkis Libanonforseti hafði þó
haft mikinn hug á þvi aö láta ann-
arra þjóða hermenn leysa
Sýrlendinga af hólmi til þess að
draga úr spennunni. Að minnsta
kosti á svæðum, þar sem kristnir
menn búa.
! Dýrt frí-
| merki
Nýtt heimsmet I frimerkja-
I söiu var sett I gær á fri-
merkjauppboði I Hamborg,
| þegar sænskt þriggja skild-
' inga frimerki frá árinu 1855
| var selt á eina mðljón þýskra
| marka.
Hæsta verð, sem til þessa
j hefur fengist á uppboði fyrir
i frimerki, var 280 þúsund
í Bandarikjadalir, sem Irwin
j Weinberg bauð 1970 fyrir eins
| sents frímerki frá 1856.
Sænska frimerkiö er með
| appelsinugulu litarafbrigði,
| hið eina, sem nokkurn tima
’ hefur fundist úr seriunni með
| sliku afbrigði. Saga þess er
| rakin alla leiö aftur til 1885,
' þegar fjórtán ára skóla-
| drengur seldi það frimerkja-
sala einum I Stokkhólmi fyrir
sjö krónur sænskar.
Meðal fyrri eigenda fri-
merkisins er Carol, fyrrum
j Rúmeniukonungur og Frakk-
| inn Rene Berlingin, sem
keypti það af honum 1950.
Dönsk-
um
fiski-
bótum
lagt
Fimm hundruð af
4.000 fískibátum Dan-
merkur hafa sótt um
rikisstyrki til þess að
leggja megi bátunum i
nóvember og desember,
eftir siðustu framleng-
ingu fiskveiðibanns
Breta.
Smith rœddi við
Ian Smith, forsætis-
ráðherra Ródesiu, ferð-
ast um vesturströnd
Bandarikjanna, áður en
hann snýr aftur til
Washington til frekari
viðræðna um framtið
lands sins. — Hann átti i
morgun stuttan fund
með Gerald Ford,
Ræddust þeir við I klukkustund,
en i för meö Smith var Sithole,
einn meðráðherra hans úr bráða-
birgöastjórninni.
í undirbúningi er fundur
breskra og bandariskra
embættismanna með Smith,
Sithole og Muzorewa og Chirau,
sem einnig eru staddir i Banda-
rikjunum. Sá fundur var ákveð-
inn eftir, að Smith lýsti þvi yfir,
Páfinn lofar að hafa
biskupa með í ráðum
Jóhannes Páll II páfi
virðist ætla að fara að
fordæmi nafna sins og
fyrirrennara og litt ætla
að rigbinda sig við hefð-
ir eða forna siði Páfa-
garðs. Það er ekki einu
sinni búið að vigja hann
til embættis og er hann
þó farinn að rjúfa hefð-
ina.
Tæpum sólarhring eftir páfa-
kjörið yfirgaf Jóhannes Páll II
páfahöúina l gærkvöldi til þess að
vitja landa sins, preláta frá
Póllandi, á sjúkrahúsi og biðja
fyrir honum við sjúkrabeðinn. —
Það hefur ekki veriö tii siös, aö
páfar yfirgæfu páfagarð fyrr en
aðafstaðinniathöfn, þar sem þeir
eru vigðir til biskups yfir Róma-
borg, sem einatt er ekki fyrr en
nokkrum vikum eftir kjörið.
Hinn nýi páfi mun veita
kardinálum móttöku i dag og er
slfkmóttaka ekkieinsformföstog
athöfnin i Sistin-kapellunni I gær,
þar sem hann flutti þeim ræðu.
Hann lofaði þeim þvi, að i stað
miöstýringar frá Páfagarði
mundu biskupar róm-
versk-kaþólsku kirkjunnar hér
eftir fá meiru um ráðið i mál-
efnum kirkjunnar.
Ford
að hann og hinir þrir (allir ráð-
herrar blökkumanna) væru
reiðubúnir til viðræðna um leiðir
til að binda enda á skæruhern-
aðinn i Ródesiu og um samninga
til þess að koma á meirihluta-
stjórn.
Gaf Smith til kynna að fundur
með leiötogum skæruliða gæti
komið að gagni, og er það I fyrsta
sinn, sem bráöabirgöastjórn I
Ródesiu hefur ljáð máls á viðræð-
um við skæruliðana.
Ekki virðist vera einhugur inn-
an stjórnar Smiths um að setjast
til viðræðna við skæruliöahreyf-
ingarinnar. Muzorewa biskup
sagöist ekki viss um, að hann
vildi eiga fund meö Nkomo og
Mugabe, leiðtogum skæruliða.
Sjávarútvegsráðuneytið
danska skýrði frá þvi i gærkvöldi,
að útvegsmenn færu fram á að-
stoð til að mæta afborgunum lána
og öörum kostnaði, sem á legðist,
meðan bátarnir væru bundnir viö
bryggjur.
Danir hafa nú fyllt sinn veiði-
kvóta I Norðursjó á miðunum við
austurströnd Skotlands, en Bret-
land hefur framlengt veiðibann
sittá þvl svæði. Aþessum miðum
hafa Danir jafnan fiskað mikiö til
bræðslu.
Danska stjórnin ætlar að veita
25 milljónum (danskra) króna til
þess að fleyta útgeröarmönnum
yfir næstu tvo mánuöi, en ekki
hefur verið ákveöið, hvernig þvi
verður skipt á einstaka báta.
Hafa Danir beöið EBE-ráðið i
Brussel aö stefna Bretlandi fyrir
Evrópudómstólinn vegna einWiða
ákvörðunar Breta um takmörkun
veiöa á breskum grunnmiöum.
SKYNDIMYNDIR
Vandaöar litmyndir
í öll skírteini.
barna&fjölskyldu-
Ijósmyndir
AUSTURSTRÆTI 6
SIMI 12644