Vísir - 28.10.1978, Blaðsíða 10

Vísir - 28.10.1978, Blaðsíða 10
10 Utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdarstjori: Davíð Guðmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. Olafur Ragnarsson Ritst jörnarf ulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Umsjón með helgarblaði: Arni Þórarinsson. Blaða- menn: Berglind Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrimsson, Jón Einar Guðjónsson, Jónina Mikaelsdóttir, Katrin Páls- dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Otlit og hönnun: Jón Öskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson. Laugardagur 28. október 1978 Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Síðumúla 8. Simar 86611 og 82260 Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611 Ritstjorn: Síðumúla 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald erkr. .240« á mánuði innanlands. Verð i lausasölu kr. 120 eintakið. VÍSIR 1 Reynslan er sinna peninga virði I venjulegu þjóðfélagi myndi stjórnarsamstarf stranda á ágreiningi eins og þeim, sem nú er risinn vegna fjárlaga- frumvarpsins. En að sumu leyti er það kostur, hversu íslenskt þjóðfélag er óvenju- legt. Á ýmsan hátt væri slæmt, ef þessi stjórn færi frá við svo búið. Ríkisstjórn hinna miklu fyrirheita þarf að tæma bikar- inn. Kosningabaráttan síðastliðið sumar vannst á nokkrum ein- földum slagorðum, sem voru í meira lagi villandi. Þau vörpuðu Ijósi á draumóra en ekki raunverulegar efnahaqs- legar aðstæður. Rísisstjórnin hef ur á síðustu vikum reynt að fara milliveg milli draumóra kosningaslagorðanna og raun- veruleikans. Afleiðingin er áframhaldandi ringulreið í efnahagsmálum. Það horfir til aukins almenns skilnings á þeim raunverulegu vandamálum, sem við er að etja, ef þessi ríkisstjórn verður látin tæma bikarinn í botn. Þau átök, sem nú eiga sér stað um stef nuna í ríkisfjármálunum, sýna Ijós- lega á hvaða fúaspýtum kosn- ingabaráttan var rekin. Þegar stjórnin tók við gaf hún frá sér það lausnaorð, að samráð við launþegafélögin yrði leiðin út úr ógöngunum. Ráðherrarnir átu lausnarorðið hver upp eftir öðrum og fengu klapp á bakið f rá stjórnendum launþegafélaganna. Ef til vill hafa einhverjir trúað því að þarna væri leiðin fundin. Undirbúningur fjárlagafrum- varpsins sýnir á hinn bóginn að jafnvel lausnarorðið var innantómt slagorð. Vísir benti á það um leið og stjórnin gaf út samstarfsyfir- lýsingu sína að yf irlýsingar af þessu tagi væru ekki tákn um neitt annað en uppgjöf. Rtkis- stjórnir, sem ekki þora að taka ákvarðanir, nema fyrir liggi samþykki hagsmunasamtaka, sitja aðeins að forminu til. Valdið er þá ekki hjá kjörnum fulltrúum fólksins. Slíkar stjórnir geta ekki annað en gefist illa. Nú er lausnarorðið fokið út í veður og vind. Fjárlagafrum- ýarpið er afgreitt án samráðs við stjórnendur launþega- félaganna. Formaður fram- kvæmdast jórnar Alþýðu- bandalagsins segir í viðtali við Vísi í gær, að hornsteinn stjórnarsamstarfsins hafi verið brotinn með því að leggja ekki f járlagafrumvarpið undir dóm fulltrúa launþegafélag- anna. Formaður framkvæmda- stjórnar Alþýðubandalagsins segir ennfremur í viðtali við Vísi, að fjárlagafrumvarpinu hafi verið haldið leyndu fyrir þingmönnum stjórnarf lokk- anna og jafnvel leiki vafi á að hve miklu leyti aðrir ráð- herrar en f jármálaráðherrann hafi fengið vitneskju um hvað i frumvarpinu felst. Ljóst er, að skattaálögur þær, sem f rumvarpið gerir ráð fyrir, stríða algjörlega á móti grundvallarstefnu Alþýðu- flokksins í skattamálum. Þá hefur Alþýðuflokkurinn lýst harðri andstöðu við þá land- búnaðarstyrkjastefnu, sem felst t f járlagafrumvarpinu. Afstaða fjármála- ráðherrans er um margt skiljanleg. Ef hann hefði viðhaft venjuleg vinnubrögð um samstarf við þjngflokka, svo ekki sé talað um samráð við stjórnendur launþega- félaganna, hefði hann einfald- lega ekki komið frumvarpinu inn í þingið. Fjármálaráð- herrann stóð þannig frammi fyrir tveimur kostum. En aðgerðin öll ber keim af stjórnmálastíl Ólafs Jóhann- essonar. Svona ríkisstjórnir eru ekki starfhæfar. En til þess að svipta hulunni af blekkingum kosningaslagorðanna er brýnt að stjórnin sitji áfram um sinn. Það er að vísu dýrt fyrir þjóðin. En reynslan er sinna peninga virði. EITT Í EINU efftir Steinunni Sigurðordóttur AÐ SEGJA EÐA SEGJA EKKI Þa6 er nokkuð langt siöan ég og fleiri býst ég viö hættum aö ætlast til þess af ráöamönnum, aö þeir segðu eitthvaö við nokk- urt tækifæri, eöa væru sérstak- lega að skipta sér af þvi sem fram fer i landinu, það er að segja í ræðu. Segjum að ráð- herra hafi tækifæri til að láta ljós sitt skina á einhverri opnun- arathöfn eða á fundi hjá virðulegum félagasamtökum, hvað segir hann þá? Hann segir i hæsta lagi: Virðulega sam- koma, mikið skelfing er gaman að var hér á meðal vor. Þau eru mörg málin og margt er nii málið, og þarfriast skjótrar úrlausnar. Ég hefði nú haldið það og þó fyrrhefði verið. Veriði öll blessuð og sæl. — Eftir ræð- um þessara manna að dæma mætti semsagt oft draga þá ályktun að ekkert sé sérstak- lega umræðuvert, lifið og tilveran bara ein samfelld vigsluathöfn, og ekkert utan þeirra. Eigi svo að reifa málin er það oftast gert á svo klisju- kenndan máta að það hvorki heyrist né skilst. Þessi siðvenja æðstumanna á Islandi aö segja ekkert — er þeim mun undar- legri þegar til þess er hugsað hvað það er hægt að hafa mikil áhrif — eða kannski I þessu til- felli, hvað þaö er hægt að afla sér mikils fylgis, með þvi að segja eitthvað. Fyrir nú utan það aðalmenningur á einhverja lágmarkskröfu á þvi aö- vita hvað mennirnir eru að hugsa. Þegar verst gegnir sannfærist maður um að það sé ekkert. Þegar svo vill til að æðstu- menn láta eitthvað frá sér fara verður maður bæði hissa og ánægður, jafnvel þótt maður sé ekki sammála. Það var til dæm- is góö tilbreyting að heyra menntamálaráðherra minnast á uppeldi barná i sjávarplássum um daginn, og er mér sem ég heyrði ýmsa fyrirrennara hans skipta séraf smáræði sem þvi að krakkar ganga sjálfala á þeim stöðum. Það heföi verið miklu fyrirhafnarminna fyrir ráð- herra að óska börnum um land allt gleðilegra jóla, þegar þar aö kæmi, og fullkomlega i stil við ræðuefni margra kollega hans fyrr og siðar. Gaman væri að vita hvers vegna ekkert er sagt, þegar margt mætti segja, og þá gengið út frá að það sé af einhverri annarri ástæðu en þeirri að menn hafi ekkert að segja. Getur það verið að æðstumenn haldi fólkiö vilji hafa þá svo slétímála aö þeir segi akkúrat ekkert? Þaö er þá mikill mis- skilningur hjá þeim, þvi auð- vitað vilja allir fá meira aö heyra frá þeim sem eiga að heita ráða þvi hvernig málin skipast. Eða getur kannski verið að þeir hafi svo mikiö að gera við að stjórna að þeir séu alveg úr tengslum við raun- veruleikann? Eða bara af ótta við að segja einhverja vitleysu, ef farið væri út fyrir klisjurnar? Það má auðvitað gera ráð fyrir þvi, að 'þvi fleira sem talað er, þvi meiri vitleysa verði i um- ferð, en er ekki hugrekki, og þá einkum hugrekki til þess aö hætta á mistök, eitt af aðals- merkjum manna? Þetta má kannski orða þannig að menn verði að kunna að gera mistök, og tala rugl, ef svo ber undir, og þó einkum að kunna að taka afleiðingunum. — Er það kannski þessi ótti við að verða hankaður á töluðum orðum sem fælir æðstumenn frá því að segja nokkuð? Þá er auðvitað á það að lita að ef maður segir eitthvað getur ekki öllum líkað það en verra samt, að segi maður ekkert, likar það engum. Þetta er þá spurningin um hugrekki, þann eiginleika sem pólitikusana okkar hefur vantað hvaðmest, þótt hér séu á ýmsar prýðilegar undantekningar og vonandi til almættisins að þeim sé að f jölga. Eða er það kannski til of mikils mælst, svo við snör- um okkur frá orðum til verka, aönokkur manneskja hafi kjark til þess að segja og gera það sem þarf til að koma þessari þjóð úr þvi fjármálafári, sem hún er búin að koma sér I?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.