Vísir - 28.10.1978, Blaðsíða 16

Vísir - 28.10.1978, Blaðsíða 16
r 16 Ein af kvikmyndum Marco Ferreris/ BREAK- UP/ fjallar um mann/ sem er sifellt að blása upp gimmiblöðrur. Hann er nefnilega ekki mönnum sinnandi nema að hann geti ákvarðað það/ hversu mikið loft kemst í biöðruna áður en hún springur. Þrátt fyrir þrotlausar tilraunir misheppnast honum þetta brautryðjendastarf/ og í örvæntingu sinni fremur hann sjálfsmorð. Islenskir áhorfendur hafa til þessa aðeins átt kost á að sjá eina mynd éftir Ferreri eftir því sem ég veitbest, ATIÐMIKLA, („La Grandebouffe", 73). Þessi mynd var fyrst sýnd á mánudagssýningum Háskólabiós, oy það var ekki fyrr en aðsókn fór fram úr öllu valdi, að hún var sett á almennar sýn- ingar, sem þó takmörkuðúst af því, að hún var ekki með íslenskum texta. Það hefur löngum verið trúa kvikmyndadreifenda hérlendis, að engar myndir beri sig nema engilsaxneskar og dönsk klámundan- renna, og að þvi leyti skella þeir skollaeyrum við tölum um aðsókn erlendis frá. Verðlagsstjóri þyrfti að athuga það, hvernig á þessum hagstæðu inn- kaupum stendur... Hvað varðar ATIÐ MIKLA fékk stjórnandi bíós- ins hinsvegar þá ágætu hugmynd að sýna myndina rétt áður en jólahátíðin gekk i garð. ATIÐ MIKLA greinir frá fjórum kunningjum, sem draga sig i hlé i húsi einu með það fyrir augum að éta sig i hel. Þarna er á ferðinni i breyttri mynd viðfangsefnið úr BREAK-UP. Þess má geta, að um sömu jól og myndin var sýnd, voru þess dæmi á tslandi, að fólk væri flutt á spitala í ofboði með sprunginn maga af ofáti. En það er erfiðara aö verða sér út um nýjan maga en nýja (gúmmi)- blöðru. um, og hljóöiö er nær undan- tekningarlaust eftirhreyta, þe. „döbbaö”, sett inn á eftir að myndin er fullklippt eins og hláturkór i amerisku sjónvarps- sjóvi. Leikarinn getur þvi átt von á að búktalari skjóti honum ref fyrir rass, (Dirk Bogarde geröi uppsteyt, er hann heyrði hvernig einhver itali „leiörétti” túlkun hans i „Andlát i Feneyj- um” eftir Visconti). Samtimis þvi sem leikarinn er hlunn- farinn glata myndinrar þjóðleg- um séreinkennum, þar sem miöaö er viö þaö aö hægt sé að döbba þær á standardútgáfuna af helstu heimsmálunum. i gull- pálmamyndinni frá Cannes ’77, Padre padrone eftir Taviani bræðurna (sýnd hjá Fjalakett- inum), hefur þaö mikla þýöingu fyrir söguþráöinn að aöalsögu- hetjan er Sardiniubúi og talar þarafleiöandi mállýsku eins og Sikileyingarnir i La Terra trema.Þetta veldur honum aö- lögunarerfiöleikum, þegar hann er kvaddur i herinn á italska meginlandinu. En þótt málhelti Sardiniubúans liggi i augum uppi eins og alltaf i döbbuðum myndum, þar sem oröin veröa aö frunsu á vörunum sem ætið er af sama styrkleika hvar sem leikarinn er staddur, liggur hún ekki i eyrum uppi fyrir almenn- an italskan áhorfenda, þar sem Sardiniubúinn talar myndina út i gegn sömu itölskuna og þul- urnar i sjónvarpinu. Þegar aörar þjóöir fóru að voga sér aö ráöi með kvik- myndavélina út á götu, voru Italir komnir aftur i stúdióin, og nú er stúdióvinnan yfirgnæf- andi. Sem dæmi má nefna þaö, að þegar Fellini þurfti á Feneyjum að halda fyrir atriði i Casanova, var hann ekkert að æða þangað, heldur lét hann klambra öllu upp i stúdiói. Sá Fellini sem birtist i Casanova á litiö skylt viö höfund I Vitelloni og La Strada, og ef hann hefði Laugardagur 28. október 1978 VISIR ekki stráð akfeitum konum i all- ar myndir sinar, yrði erfitt að finna þungamiöjuna i verkum hans. i Casanovaer „fögru kon- unni” úr likingu Bazins „nauðgað” bæöi. á sviði efnis- þráöar og forms. Stúdióvinnan gerir það kleift aö fylla út myndflötinn likt og málverk eins og glöggt má sjá i byrj- unaratriðinu, þar sem Casanova siglir á hafi úr plasti, eöa i atriðum um viöskipti hans við tröllkonuna. Raunar hefur það veriö eitt aöaleinkenni italskra kvikmynda á siöari timum, hversu mjög þær sækja til málverka um innblástur. Stundum drukknar fiskurinn i vatninu eins og i sumum mynd- um Pasolinis, þar sem áhorfandanum liður eins og sé veriö aö veifa framan i hann kortum af listasafni: halló Giotto, nei blessaöur Botticelli... Flugan i súpunni Pasolini var kálaö áöur en hann gat fært sönnur á að hann væri magi en ekki blaöra, siöari verk hans, hin gersamlega ómeltanlega mynd Saló eöa 120 dagar i Sódómu.benti þó til hins fyrrnefnda. Eins og ýmsar myndir Ferreris var Salóglöggt dærni um þá gullvægu stað- reynd, að það þarf smekk til aö vera smekklaus: (Veldi tilfinn- ingannaeftir Oshima var einnig sönnun þess, þótt aö á Islandi lenti hún i þvi að sýna fram á smekkleysi þeirra, sem i krafti lagabókstafs þykjast hafa smekk fyrir öðrum). Gleggsta dæmið eru þó bókmenntaverk Sade markgreifa, tam. þaö sem liggur til grundvallar Saió (og aö vissu leyti Átinu mikia). Þegar Sade gengur svo langt i kynórum aö oröiö „smekkur” veröur innihaldslaust, gerir hann þaö á einhverjum fágaðasta frönskum prósa sem dæmi eru um. Frakkar fatta þetta, þegar þeir smiða tvö lýs- ingarorö út frá nafnorðinu sadismi: þe. „sadique”: sadisk- ur, haldinn kvalalosta i læknis- fræðilegum skilningi, og „sadien”: vera undir áhrifum Sade i hugmynda- og fagur- fræðilegum skilningi, sem þýöir það einfaldlega að hafa þor til að berja naglann á höfuðið meö bókstafnum, segja allt. Kvikmyndahöfundar eiga sér visari samastaö i Bastillu eöa Gúlagi markaðs- eða stjórnmálakerfis, heldur en i filabeinsturni. En til að vita hver segir allt þarf að hlusta á allt, og á undanförnum árum hefur athygli manna utan ítaliu ekki lengur einskorðast viö primadonnurnar Fellini, Antonioni, Rosi, Bertolucci.. heldur hefur hún jafnframt beinst að „fátækrasúpunni”, sem kerfishvörnin spýtir úr sér eins og Hollywood gerði i eina tið. Þannig hafa uppgötvast höfundar, sem áttu þegar fjölda mynda aö baki: Luigi Comencini, Ettore Scola, Dino Risi og Marco Ferreri. Þegar Ferreri vakti á sér heimsathygli meö Atinu mikla, sem var „succes de scandale” á hátiðinni i Cannes, hafði hann þegar gert fjórtán myndir á Italiu, Spáni og i Frakklandi. 1 rauninni má segja aö hann hafi veriö.flugan i þessari súpu: hann var fiskaður upp og kvart- að við þjóninri, og það skorti ekki upphrópanir á borð við ..ill- yrmislegur” (monstrueux), „dýrslegur”, „er hægt að bjóða fólki upp á þetta?” Það þarf vart að taka fram að Atið mikla fékk engin verð- laun i Cannes ’73, gullpálm- inn það árið féll, ef ég man rétt, i hlut ameriskr- ar myndar, sem hét Fugla- hræðan („The Scare- crow”) og sá titill lýsir höfundi Það harf smokk «11 ai Fögur kona/ sem hef ur verið nauðgað... Undanfariö hafa „magarnir” úr italskri kvikmyndagerð verið að týna tölunni hver af öðrum. Á timabili neórealismans i striös- lok gerjuðust viðfangsefnin og framsetningarmátinn fyrst og fremst i vömbunum á hinum heilögu kúm Rossellini og Visconti. Fáir leikstjórar hafa lagt aö baki heilsteyptari feril en Rossellini, sem þróaði til fullnustu „gagnsæan” stil, þar sem formið virtist svo að segja gufa upp. „Veruleikinn blasir við okkur, og hvað hefur það upp á sig aö breyta honum formsins vegna?”, sagöi Rossellini, og André Bazin bætti viö: „Fögur kona, sem hefur veriö nauðgað, er fögur eftir sem áður, en hún er ekki lengur sama konan”. Það var þvi engin furöa, aö Orson Welles, sem öðrum fremur hefur „misþyrmt veruleikanum með taumlausum expressjónisma, þætti litiö koma til Rossellini og kallaöi hann amatör. Myndir hans sönnuðu það eitt, að allir ttalir væru fæddir leikarar, og þvi væri það nóg að setja upp kvik- myndavél á ttaliu og filma fólk til að geta siðan státað af þvi að vera leikstjóri. Þrátt fyrir þennan stólpakjaft á Welles eru myndir Rossellinis enganveginn tilviljunarkennt fálm, heldur eitt af gleggri dæmum um „úrvinnslu” á kvik- mynd: þe. smámunir úr dag- lega lifinu taka á sig nýja merk- ingu vegna þeirrar áherslu, sem leikstjórinn leggur á þá. Hjá Rossellini er sú merking af trúarlegum rótum runnin, og lóðið er það að koma auga á handleiöslu Guðs i myndskeiði sem gæti verið tekiö af túrista með super 8 vél. Þarna er ekki frekar um „endurspeglun” á raunveruleikanum að ræða en i siöari myndum Viscontis, sem á hinn bóginn nálgaðist óperuna i iburöarmiklum uppsetningum og virtist halda að hann gæti gert kvikmyndavélina að ballettdansmær með þvi að festa hana á nógu öflugan krana. Gagnrýnendur gripa oft til stikkorða á borð viö „commedia dell ’arte” eða „verismi” til að reyna aö henda reiður á þró- uninni i itölskum kvikmyndum, og þau orð eru á sama hátt siöasta hálmstráið og „kabúki” um eitthvaö japanskt eða „episkur andi” varðandi eitt- hvaö islenskt. Sú þróun hefur nefnilega ekki oröið jafn beint strik og ferill Rossellinis. Neó- realisminn er yfirleitt skil- greindur sem rökrétt svar við veruleikaf ælni fasistatimabils- ins, er lýsti sér i „mammút- myndunum” um sögu rómverska heimsveldisins. En jafnframt gengu vinnubrögðin i berhögg við Hollywood-fordæm- ið. Snúið var baki viö stjörnu- kerfinu og farið út úr stúdióinu til aö kvikmynda á raunveru- legum vettvangi, en hljóðiö samt tekiö upp um leiö. Þetta voru ekki fyrstu dæmin um slikt en i neórealistamyndunum varð þetta aö fræöilegu grund- vallaratriöi, sem stundum var kveikja einstæðra verka á borö við La Terra trema ( 48) eftir Visconti, þar sem amatörar fara meö hlutverk sjálfra sin og tala Sikileyjarmállýsku, sem mun illskiljaanleg hinum almenna ttala. Þessi mynd á fátt sameigin- legt með siðustu myndum Voscontis. Nú tröllriður-stjörnu- kerfiö italska kvikmyndaiðnaðin

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.