Vísir - 28.10.1978, Blaðsíða 18
18
Sunnu
blað
Þjóðviljans
fjölbreytt
að efni:
í opnugrein úr írlandsferð er út-
sendari Sunnudagsþjóðviljans
kominn út á útskaga þar sem til
skamms tima var töluð irska og
virðir fyrir sér dapurlega þróun
sem hefur orðið hjá þessari
frændþjóð okkar.
Gils Guðmundsson skrifar grein
uiri verkefni Alþýðubandalags i
stjornarsamstarfi
Blaðamaður virðir fyrir sér það
sem hann kallar einkennilegustu
framleiðslu á íslandi — hún á sér
stað i Bjarnarflagi.
Rifjaðir eru upp nokkrir þættir úr
sögu Sósialistaflokksins sem
stofnaður var fyrir fjörutiu árum
Hve glöð er vor æska heitir grein
sem fjallar um þann ótta sem
gerir líf ungra barna dapurlegra,
meira en flesta grunar.
Á kvikmyndasiðu er fjallað um
Network, einhverja fróðlegustu
mynd sem hingað hefur skolað
um tima.
ÞIOOVIUINN
Laugardagur 28. oktdber 1978
vísm
menningu okkar eru allir mið-
aðir við karlmanninn, konunni
ergleymt. Og þar var hún hepp-
in. Það var þröngvað upp á hana
fullt af utanaðkomandi hug-
myndum: guði, föðurlandi,
fjölskyldu, og lika skyldu,
starfi, atvinnumennsku, og
þessvegna hefur hún aldrei
meðtekið til fulls þessi hegðunar-
munstur. Þar sem hún var úti á
spássiu, hélt hún vissu sjálf-
stæði, og þvi er hún ekki eins
berskjölduö nú og karlmaður-
inn. Það skiptir hana minna
máli, að gildismat okkar
siðmenningar skuli vera að
syngja sitt siðasta.”
Apinn héltkjafti
Eins og þessi ummæli bera
með sér, talar Ferreri oft ærið
„spámannlega”, og gagn-
rýnendur henda þetta á lofti og
velta vöngum yfir þvi, hvort
Sfðasta konansanni það að par-
ið sé úrelt, hvort Apadraumur
sé endanlega grafskrift yfir
vestrænni siðmenningu. En i
spámannshlutverki er ekki
einhlitt að kunna að setja enda-
punkta: Halldór Laxness sagði
eitt sinn um greinarmerkja-
setningu: „menn verða ekki
spámenn af þvi að sleppa
kommunum, heldur af þvi að
nota þær af hinni mestu nær-
færni. Sá höfundur sem gerir
sér að reglu að setja aldréi
kommu á pappirinn án þess að
hafa þráspurt samvisku siná,
mun vakna við það einhverþ
morgun að hann verður spurð-
ur: Hvert stefnir tilverunni? Er
kjarnorkustrið óhjákvæmilegt?
Alitið þér að guð sé til?”
í
Það er kannski enn meiiji
ástæða til að huga að „kommr
unum” i myndmáli en i ritmáii.
Að visu er aldrei hægt að hafg
fulla stjórn á öllum upplýsing-
um sem koma fram á Ijósmynd
eða kvikmynd. Og stundum er
viss töframáttur i þvi fólginni,
hvað myndin er i eðli sinu
„heimskuleg”, hvað hún „ligg-
ur i augum uppi’, þótt um skot
út i bláinn sé að ræða. Þao ligg-
ur lika i augum uppi, að blaðra
springur, ef það er blásið o'f
mikið i hana, en gaukurinn i
Hreak-up sættir sig ekki við
svona einfaldan sannleika,
heldur þráspyr hann samvisku
sina um þetta atriði. Afstaða
Ferreris til myndmálsins er i
sama dúr. I Apadraumi eru
dregnar fram hliðstæður milli
Rómar til forna og New York,
mörg atriði hennar gerast i vax-
myndasafni, sem er starfsrækt i
New York og hefur upp á að
bjóða figúrur úr Rómaveldi,
Sesar, Neró... Siðan blanda
dularfullir aðilar sér i málið og
I krefjast þess að safnið verði
gert meira „aktúelt”: hárlubb-
inn af Kennedy verði settur á
Sesar, nefið af Nixon á Neró... I
lok myndarinnar brennur safnið
til ösku.
Þetta er ágætt dæmi um þaö,
hvernig Ferreri þenur út merk-
inguna til hins ýtrasta i mynd-
máli sinu. Vaxmyndasafnið er
út af fyrir sig tákn um grunn-
færnar lýsingar kvikmyndanna
á sögunni, og jafnframt er það
klisja úr ótal hryllingsmyndum
að sýna vaxmyndir leka niður i
bruna. En á hinn bóginn skop-
stælir hann lummuna „sagan
endurtekur sig” með þvi að láta
Rómaborg brenna sem vax-
myndasafn og með Sesar-
Kennedy andlitslyftingunni.
King Kong getur og rakiö ætt-
ir sinar lengra en til Hollywood
á siðustu dögum rómverska
heimsveldisins voru höggmynd-
ir af öpum mjög i tisku. A
átjándu öld greindi Diderot frá
kardinála, sem barði mannapa
augum i fyrsta skipti og varð
svo um að hann sagði við hann:
„Talaðu, og þá skal ég skira
þig.” Apinn hélt kjafti. Ferreri
er ekki mjög i mun að skira
King Kong, og áhrifamáttur
mynda hans á etv. rætur að
rekja til þess, að þegar reynt er
að skira eða útskýra þær, er
eins og vatni sé skvett á gæs.
Meðan Rómaborg brennur.
Marco Ferreri viö upptöku á //Apadraumi"
’ PWBm.;'** Ojj
Vaxmyndasafnið (//Apadraumur")