Vísir - 28.10.1978, Blaðsíða 15
15
vísm
Laugardagur 28. október 1978
er fyrir sig og gera hvaö sem er.
Þeir hafa hlotið svoleiöis mótun
einhvernveginn. Þeir segja aö
þau komi þeim ekkert viö ef
menn eru svo vitlausir aö láta
nota sig, og þeir viröast
ósnortnir hvaöa þjáningu sem
þeir valda. Þetta eru yfirleitt
karlmenn, og oft er þaö konan
eöa einhver i umhverfinu sem
kvartar. Þeir vilja mylja allt
undir sig og svifast einskis.
Alltaf þurfa þeir aö vera aö
hlaöa einhverju dóti i kringum
sig til aö sanna sér að þeir séu á
réttri leiö. Og sameiginlegt ein-
kenni þeirra er aö þeir eru hel-
teknir undirniöri af minni-
máttarkennd.
— Þekkiröu slika unglinga?
— Já, sumir brynja sig á
þennan veg, fáir aö visu, >
en þegar betur er að gáö þá er
undirniöri rúst sem foreldrar
eiga sök á.
— En er þaö ekki einkenni
lifandi lifs aö finna til'
— Sannarlega. Um leiö og
maöur hættir aö finna til þá er
hann dauður. Ég trúi þvi aö hér
á götunum gangi um menn sem
eru dauöir menn. Allt dautt
nema likaminn, einsog hafi
gleymst aö slökkva á honum.
óttinn
við dauðann
— Hræðist fólk dauöann?
— Ótti við dauöann er
algengur, ekki einasta meðal
þeirra sem bráöfeigir eru.
Dauöageigur getur sest aö
manni hvenær sem er á lifs-
leiðinni. Ég man eftir unglingi
um fermingu sem kom til min
óskaplega upptekinn af
dauðanum, og jafnvel fólk sem
starfar i návist dauöans alla
ævi, td. á spitölum. Menn vilja
halda i lifiö og flestir vona aö
eitthvaö sé hinum megin. En á
þvi er hamraö sýknt og heilagt,
aö þeir séu fáir sem eigi i
vændum aö lifa, hinir tortimist
eða búi viö eilifa kvöl.
— Trúir fólk á viti?
— Ég held ekki. En óttinn viö
viti sest aö sumum og veldur þá
óhugnanlegum kvlða. Þeir
koma þá kannski til prestsins til
aö biöja um aö þessi beygur sé
frá þvi tekinn. Til eru þó hinir,
fáir mjög aö visu, sem beinlinis
eru hræddir viö aö lifa áfram
eftir likamsdauöann, vilja sofna
svefninum langa. En óttinn viö
dauöann og viti er sannarlega
ekki úr sögunni, kannski fremur
aö aukast. Kirkjan gerir of litiö
aö þvi aö flytja sinn boöskap
sem fagnaöarboöskap. Margir
ungir klerkar leggja iika tölu-
veröa áherslu á aö maöurinn
geti sama og ekkert gert til að
öðlast himnariki. Náöin ein
veröi aö koma til. Ég skil ekki
hvaöan þessi miskunnarlausa
kenning um tortimingu er
komin, allaveea ekki frá Kristi.
Samtalinu er lokiö. Séra
Siguröur Haukur gengur útaö
glugganum.
— Fagurt er haustiö, segir
hann. En þaö er undarlegt hve
nú er litiö af rauöum litum, flest
blööin eru gul.