Morgunblaðið - 21.01.2001, Side 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 8/1–14/1
FLUGLEIÐIR hafa til-
kynnt um samdrátt í
starfsemi viðhaldsstöðvar
á Keflavíkurflugvelli.
Félagið telur horfur á að
fækka þurfi um 48 stöðu-
gildi í viðhaldsstöðinni.
38 flugvirkjum og 10 al-
mennum starfsmönnum
yrði sagt upp störfum.
Þar starfa nú um 220
manns.
TUGMILLJÓNATJÓN
varð í fiskeldisstöð Rifóss
þegar stór hluti af um
450 tonnum af eldislaxi í
kvíum stöðvarinnar
drapst. Bakteríueitrun er
talin hafa drepið laxinn.
VERULEGA hefur
hægt á verðbólguhrað-
anum samkvæmt síðustu
mælingu Hagstofu Ís-
lands á vísitölu neyslu-
verðs. Verðbólga síðustu
tólf mánaða í byrjun
janúar var 3,5%.
INGIBJÖRG Pálma-
dóttir heilbrigðisráðherra
fékk aðsvif í beinni út-
sendingu á RÚV og var
flutt á sjúkrahús. Orsök
yfirliðsins var of hár
blóðþrýstingur en ráð-
herra er nú á batavegi.
STÚDENTARÁÐ aug-
lýsti eftir einkunnum frá
kennurum við Háskóla Ís-
lands en 20 til 25% prófa
voru í vanskilum.
SIGHVATUR Björg-
vinsson hefur verið skip-
aður framkvæmdastjóri
Þróunarsamvinnustofn-
unar Íslands. Hann tekur
við störfum 14. febrúar
nk.
Hörð átök
og deilur
RÁÐHERRAR og þingmenn stjórnar
og stjórnarandstöðu tókust hart á við
fyrstu umræðu á Alþingi um frumvarp
ríkisstjórnarinnar vegna dóms
Hæstaréttar í máli Öryrkjabandalags-
ins. Þessi fyrsta umræða stóð í tvo
daga áður en henni var vísað til ann-
arrar umræðu í atkvæðagreiðslu á Al-
þingi með 31 samhljóða atkvæði. Tutt-
ugu og einn þingmaður sat hjá en
ellefu voru fjarverandi.
Flugvöllurinn áfram í
Vatnsmýrinni
Í GREINARGERÐ um flugvallar-
hugmyndir á höfuðborgarsvæðinu
kom fram að kostnaður við gerð nýs
flugvallar á Lönguskerjum í Skerja-
firði væri dýrasti kosturinn. Minnstur
kostnaður fylgdi flutningi til Keflavík-
ur og að byggja upp Reykjavíkurflug-
völl.
Flugvöllur sunnan Hafnarfjarðar er
einnig talinn góður kostur. Sturla
Böðvarsson telur aðra kosti en end-
urbyggingu Reykjavíkurflugvallar á
núverandi stað eða flutning til Kefla-
víkur ekki raunhæfa og staðsetningu
flugvallarins í Vatnsmýrinni hag-
kvæmustu lausnina.
Aðgerðir vegna
innflutnings
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti tillögu
Matvælaráðs og sóttvarnanefndar um
að óháður aðili verði fenginn til að
gera úttekt á hugsanlegri hættu sem
stafar af neyslu á vörum sem innihalda
innflutt nautakjöt.
Strangari reglur gilda um eftirlit
með innflutningi gæludýrafóðurs en
matvæla.
INNLENT
Nýr forseti
á Filippseyjum
GLORIA Macapagal-Arroyo sór emb-
ættiseið sem forseti Filippseyja í gær-
morgun. Filippseyingar fögnuðu nýj-
um forseta ákaft og því að Joseph
Estrada væri farinn frá völdum. Estr-
ada er sakaður um víðtæka spillingu.
Á föstudag söfnuðust hundruð þús-
unda manna saman í Manila, höfuð-
borg Filippseyja, og kröfðust afsagnar
hans. Þá lýstu herinn, lögreglan og
flestir ráðherrar stuðningi við kröf-
urnar.
Þrátt fyrir það þráaðist Estrada
lengi við og Arroyo sór embættiseið
áður en hann játaði sig sigraðan.
Arroyo var áður varaforseti lands-
ins en studdi andstöðu gegn Estrada,
sem er sakaður um víðtæka spillingu.
Hún heitir því að útrýma fátækt og út-
hýsa spillingu úr stjórnmálum í land-
inu.
Bush tekur við
forsetaembættinu
GEORG W. Bush sór í gær embættis-
eið. Bush, sem er 43. forseti Banda-
ríkjanna, háði harðvítuga baráttu að
loknum kosningum við mótframbjóð-
anda sinn úr röðum demókrata, Al
Gore, vegna meintra óreiðu við taln-
ingu atkvæða í Flórída.
Hátíðahöld vegna embættisvígsl-
unnar hófust í Washington á fimmtu-
dag. Mikill viðbúnaður var í höfuð-
borginni í gær vegna fyrirhugaðra
mótmæla.
Kabila skotinn til bana
LAURENT Kabila, forseti Lýðveldis-
ins Kongó, lést í vikunni eftir að hafa
orðið fyrir skotárás lífvarðar síns sl.
þriðjudag. Ekki er alveg ljóst hvenær
Kabila lést en lát hans var staðfest á
fimmtudag. Sonur hans, Joseph Kab-
ila, mun taka við forsetaembættinu.
ÖFLUGUR jarðskjálfti
reið yfir El Salvador sl.
laugardag. Mörg hundruð
manns létust og þúsunda
er enn saknað.
MÁL tvíbura sem seldir
voru á Netinu í tvígang
vakti mikla athygli.
Stúlkurnar voru fyrst
seldar til kalifornískra
hjóna en síðar til breskra
hjóna. Börnin voru tekin
af þeim á fimmtudag og
verður málið útkljáð fyrir
rétti.
BILL Clinton, fráfar-
andi forseti Bandaríkj-
anna, samdi við sérstakan
saksóknara í málum for-
setans um að fallið yrði
frá ákæru um meinsæri í
máli Paulu Jones og
Whitewater-málinu. Þess
í stað viðurkenndi Clinton
að hafa sagt ósatt fyrir
rétti um samskipti sín við
Monicu Lewinsky, greiðir
sekt og missir lögmanns-
réttindi í fimm ár.
JOSCHKA Fischer, ut-
anríkisráðherra Þýska-
lands, bar vitni í rétt-
arhaldi yfir hryðjuverka-
manninum Hans-Joachim
Klein, á þriðjudag. Fisch-
er, sem var í sama rót-
tæklingahópnum og
Klein, segist aldrei hafa
tengst hryðjuverkastarf-
semi. Hann er vinsælasti
stjórnmálamaður Þýska-
lands.
TÍU ár eru liðin frá því
að Persaflóastríðið hófst
Af því tilefni flutti Sadd-
am Hussein, Íraksforseti,
sjónvarpsávarp til landa
sinna. Efnahagsþvinganir
SÞ sl. tíu ára hafa ekki
haggað Hussein á for-
setastóli.
ERLENT
VERÐI 10% aukning í fraktflutn-
ingum Cargolux árlega þarf að
stækka flugflota félagsins úr 10 þot-
um nú í 20 árið 2006 og verði hún
16% þurfa þær þá að vera orðnar
30. Þetta kom fram í máli Eyjólfs
Haukssonar, yfirflugstjóra og fyrr-
um framkvæmdastjóra flugrekstr-
ardeildar Cargolux, á fundi Fyrsta
flugs félagsins sl. fimmtudagskvöld.
Eyjólfur sagði að meðalaukning í
flutningum hefði síðustu árin verið
um 16% en ekki væri raunhæft að
gera ráð fyrir svo mikilli aukningu
næstu árin. Ljóst væri þó að félagið
yrði að bæta við þotum á næstu ár-
um vegna aukins umfangs starfsem-
innar.
Tíu þotur í rekstri
og tvær í pöntun
Cargolux rekur 10 Boeing 747-
400 þotur, sem eru nýjustu þoturn-
ar af þeirri gerð, og hefur eina 747-
200 á leigu en hún er nokkru af-
kastaminni en þær nýju. Félagið á
tvær þotur í pöntun. Ný 747-400
þota kostar um 180 milljónir dollara
eða nærri 13 milljarða króna. Eyj-
ólfur sagði mikilvægt að nýta slíkar
fjárfestingar og hefði félagið árið
1999 náð mestri nýtingu allra flug-
félaga á 747-400 þotu, 14,18 tímum á
sólarhring. Kvað hann algenga nýt-
ingu á sólarhring hafa á síðasta ári
verið nær 15–16 tímum á 747-400
þotunum en um 14 tímar á 200 vél-
inni.
Hann sagði flutninganet Cargo-
lux mikið til vera á langleiðum og
því væru flugtímar á sumum leiðum
11–13 tímar. Með þessari nýju gerð
væri til dæmis hægt að fljúga án
millilendingar með 100 tonn frá
Evrópu til landa í Suður-Ameríku
sem væri um 13 tíma flug.
Nýju þoturnar eru gerðar fyrir
tvo flugmenn en Eyjólfur sagði iðu-
lega aukaáhöfn um borð á lengstu
leiðunum. Hann sagði þær um 25%
afkastameiri en 200 gerðina, hún
þyrfti minna viðhald og meðal ann-
arra kosta væri minni hávaði. Þann-
ig markaði 747-400 gerðin um 50%
minna hávaðasvið við flugvelli en
200 gerðin.
Eyjólfur sagði nokkuð kvartað í
Lúxemborg vegna hávaða frá flug-
vellinum en þar ætti Cargolux ekki
alla sök. Nokkuð væri um umferð
eldri flugvélagerða sem yllu mun
meiri hávaða en þotur Cargolux.
Hann sagði umferð um flugvöllinn
takmarkaða að næturlagi og að
flugtök væru bönnuð eftir miðnætti.
Cargolux stundar nú reglulegt
fraktflug til 34 borga út frá Lúx-
emborg og eru þær í Asíu, Eyjaálfu,
Afríku og Norður- og Suður-Am-
eríku svo nokkuð sé nefnt. Hann
sagði félagið nú í samstarfi við
Swissair en oft væri erfitt fyrir
félög frá litlum löndum að fá flug-
leyfi til einstakra landa og því væri
nauðsynlegt að eiga slíkan sam-
starfsaðila. Flugið til Japans væri til
dæmis rekið í samstarfi við Swiss-
air. Hann taldi þó að losna myndi
um höft á flugleyfum á næstu árum.
Auk sjálfs fraktflugsins annast
Cargolux víðtækt flutninganet með
bílum á varningi frá fjölmörgum
borgun í Evrópu til Lúxemborgar.
Eyjólfur segir Cargolux vera eins
konar heildsala í fraktflugi, þ.e. að
flutningsmiðlanir nýti að mestu
flutningsgetu félagsins og sjái síðan
um smásöluna til viðskiptavina. Er
meðalnýtingin um 90% yfir árið.
Hann segir flutningana taka sífelld-
um breytingum. Áður fyrr hafi
tískuvörur og raftæki tekið mikið
pláss en nú sé mun meira um að
flutt séu fersk matvæli og meiri
hraði í flutningum geri slíka flutn-
inga mögulega.
Þá segir hann mikið um að til
dæmis vörur fyrir bílaframleiðslu
séu fluttar frá framleiðslustað þang-
að sem bílarnir séu settir saman.
Eyjólfur nefndi líka dæmi um að
einhverju sinni hefði verið fluttur
farmur af nælonsokkum frá Tel
Aviv til Japans þar sem sokkarnir
voru litaðir og síðan sendir til baka
til Tel Aviv.
Um 96% tekna af flutningunum
Starfsmenn Cargolux eru nú vel
yfir 1.300 og er yfir fjórðungur
starfsmanna flugáhafnir og beint
tengdur flugrekstrinum. Þá starfar
um fjórðungur að viðhaldi, 115 eru
stjórnendur og 65 eru í tölvudeild,
sem hann segir að fari sífellt stækk-
andi. Starfsmenn eru af 30 þjóð-
ernum, flestir frá Lúxemborg og
Þýskalandi og hefur hlutfall ís-
lenskra starfsmanna farið nokkuð
lækkandi síðustu árin.
Um 96% tekna Cargolux koma
frá fraktflutningunum og um 3% frá
verkefnum í viðhaldsstöðinni vegna
viðhalds á flugvélum annarra flug-
félaga. Þannig annast Cargolux t.d.
viðhald fyrir þotur flugfélagsins Atl-
anta.
Fundurinn var hinn fyrsti af
fræðslu- og skemmtikvöldum
Fyrsta flugs félagsins sem efnt
verður til tvisvar á ári. Gunnar Þor-
steinsson, formaður félagsins, sagði
aðsóknina hafa farið framúr öllum
vonum og því yrði haldið áfram á
þessari braut. Þá ráðgerir félagið
ferðir á flugsýningar á næstunni.
Gert ráð fyrir 10–16% aukningu flutninga
hjá Cargolux til ársins 2006
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölmargir sóttu fund Fyrsta flugs félagsins þar sem einkum var fjallað um starfsemi Cargolux fyrr og síðar.
Þotum fjölgað úr
10 í 20 næstu árin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eyjólfur Hauksson, flugstjóri
hjá Cargolux, greindi frá helstu
áföngum í starfi fyrirtækisins að
undanförnu.
HEIMSFERÐIR hafa lokið
flugsamningum sínum fyrir
sumarið 2001 og munu nota nýj-
ustu þotu Boeing-verksmiðjanna,
Boeing 737-700 fyrir allt sitt flug
í sumar.
Boeing 737-700 er af hinni
nýju kynslóð véla frá Boeing.
Hafa þær meiri flugdrægni og
eru taldar einhverjar tæknilega
fullkomnustu vélar í heiminum,
segir í frétt frá Heimsferðum.
Ítalska flugfélagið Azzurra,
sem flýgur meðal annars mikið
fyrir Alitalia, mun annast flugið
fyrir Heimsferðir og verður vélin
á Íslandi fjóra daga í viku í allt
sumar og flýgur frá Keflavík.
Heimsferðir nota nýja
Boeing-þotu